Morgunblaðið - 17.07.1999, Side 9

Morgunblaðið - 17.07.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 9 FRETTIR Sektir lögreglunnar hækkuðu um helming á síðasta ári Sektir fimmtíuföld- uðust í Vík í Mýrdal HREIN fjárhæð sekta lögreglunnar í landinu hækkaði um helming í fyrra frá árinu áður, úr 130 milljón- um króna í 193 milljónir. Þó ber að hafa í huga að tölur frá árinu 1997 vantar í þremur umdæmum, hjá sýslumönnunum í Keflavík, Seyðis- fírði og Neskaupstað. Hrein álagning sekta jókst hlut- fallslega mest hjá sýsiumanninum í Vík í Mýrdal, þar sem hún fimmtíu- faldaðist, nam 19.000 kr. árið 1997 en 955.970 í fyrra. Þá fjörutíuogfimm- faldaðist álagning á Isafirði, var 3.781.875 árið 1998, samanborið við 82.875 árið 1997. Þegar talað er um hreina álagningu sekta er m.a. búið að taka tillit til 25% afsláttar sem greiðendur fá fyi-ir að borga innan 30 daga. Hjá lögreglunni í Reykjavík jókst hrein álagning sekta mest í krónum, um rúmar 44 milljónir, og tvöfaldað- ist. Þá ellefufaldaðist hún hjá sýslu- manninum á Hvolsvelli og rúmlega fjórfaldaðist á Blönduósi. Mest minnkaði álagningin í Búðardal, um 92%. Langflest brot í Reykjavík Heildarfjöldi umferðarlagabrota jókst úr 9.742 fyrstu fjóra mánuði ársins 1998, í 12.524 á sama tímabili í ár. Brot voru 45.235 á öllu árinu í fyrra. Langflest voru framin í Reykjavík, eða 22.221. Þá komu Akureyri, Hafnarfjörður og Kópa- vogur, með á bilinu 3-4.000 brot hvert umdæmi. Næst á eftir voru Keflavík og Selfoss, með u.þ.b. 2.500 umferðarlagabrot. Lögreglan hefur gert sérstakt átak í að framfylgja 4. gr. umferðar- laga, sem fjallar um tillitssemi og Álagning sekta, nettó fjárhæðir Embætti Þús. krónur 1997 1998 Breyting Lögreglustjóraskrifstofa 44.583,4 88.916,5 99,11% Sýslum. í Kópavogi 17.443,5 19.910,1 -3,06% Sýslum. í Hafnarfirði 15.960,1 15.470,0 -3,07% Sýslum. í Keflavík 0 9.591,0 - Sýslum. á Keflav.flugv. 1.930,1 803,9 -58,35% Sýslum. á Akranesi 2.606,5 1.637,8 -37,17% Sýslum. í Borgarnesi 1.620,9 3.813,5 135,27% Sýslum. í Stykkishólmi 2.919,0 4.923,5 68,67% Sýslum. í Búðardal 159,3 13,3 -91,68% Sýslum. á ísafirði 82,9 3.781,9 4.463,35% Sýslum. í Bolungarvík 349,8 146,0 -58,26% Sýslum. á Patreksfirði 674,0 291,8 -56,71% Sýslum. á Hólmavík 261,5 770,8 194,74% Sýslum. á Siglufirði 452,5 338,3 -25,25% Sýslum. á Sauðárkróki 2.428,3 2.864,5 17,97% Sýslum. á Blönduósi 1.542,0 6.398,5 314,95% Sýslum. á Akureyri 22.996,3 17.138,2 -25,47% Sýslum. á Húsavík 1.827,1 1.934,0 5,85% Sýslum. á Ólafsfirði 664,3 494,3 -25,59% Sýslum. á Seyðisfirði 0 1.556,5 - Sýslum. í Neskaupstað 0 99,5 - Sýslum. á Eskifirði 1.096,6 959,0 -12,55% Sýslum. á Höfn Hornafirði 627,1 339,8 -45,82% Sýslum. í Vestmannaeyjum 1.158,0 1.052,8 -9,09% Sýslum. í Selfossi 8.319,7 9.187,6 10,43% Sýslum. í Vík í Mýrdal 19,0 955,8 4.930,26% Sýslum. á Hvolsvelli 196,0 2.268,0 1.057,14% Samtals 129.917,7 192.656,3 48,29% varúð í umferðinni. 136 brot hafa verið framin á því ákvæði fyrstu fjóra mánuði ársins, samanborið við 24 í fyrra. Þá hefur þeim ökumönn- um sem teknir hafa verið fyrir að nota ekki bílbelti fækkað töluvert, úr 887 fyrstu fjóra mánuðina í fyrra, en voru 606 á sama tíma í ár. Ekki rætt við kennara KENNARAR í Reykjavík sem sagt hafa upp störfum frá og með 1. september nk. ætla sér að mæta til vinnu í ágúst líkt og þeir telja sig hafa samið um. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem hópur upp- sagnarkennaranna hélt í gær. Alls hafa 250 kennarar sagt upp störfum eða ekki óskað eftir end- urráðningu í kjölfar þess að borg- arstjóri hafnaði kröfum kennara um 230.000 króna greiðslu á ári til loka ársins 2000 í samræmi við kjarabætur kennara utan Reykja- víkur. Að sögn Öglu Ástbjörnsdóttur telja kennarar sig hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest líkt og aðr- ir og ætli þeir að starfa þar til upp- sögnin tekur gildi. „Þátttaka á námskeiðum er hluti vinnu kennara í ágúst og munum við taka þátt í þeim námskeiðum sem við höfum skráð okkur á með samþykki skóla- stjórnenda. Auk þess munum við hefja undirbúning næsta skólaárs þótt við komum ekki til með að hefja kennslu í september. Kennurum stendur ekki ógn af því að fá ekki ágústlaunin. Borginni er heimilt að afþakka vinnuframlag kennara en það firrir hana ekki greiðsluskyldu. Ef launin verða ekki greidd mun Kennarasamband Islands fela lögmanni sínum að annast málið og skoðun á því er reyndar hafin. Við það munu kenn- arafélögin blandast inn í málið og einnig þeir kennarar sem ekki sögðu upp störfum," sagði Agla. „Hins vegar hafa borgaryfirvöld ekki gefið út yfirlýsingu þess efnis að ágústlaun verði ekki greidd. Þær Morgunblaðið/Arnaldur Uppsagnarkennarar í Reykjavík á blaðamannafundi sem haldinn var í gær. F.v. Þuríður Óttarsdóttir, Kristinn Jónsson, Agla Ástbjörnsdóttir, Eiríkur Brynjólfsson og Birna Halldórsdóttir. Útsalan er hafin TESS V Neðst við Dunhago Opið virka daga 9-18 sínti 562 2230 laugardaga 10-14 ÍÚtsalan byrjuð I Mikill afsláttur Opið til kl. 15 í dag Eddufelli 2 • Sími 557 1730 r r AF OLLUM SUMARSKOM UR STRIGA BARNA - HERRA - DOMU D0MUS MEDICA við Snorrabraut Reykjavík Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12 Reykjavík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS upplýsingar koma eingöngu frá fjölmiðlum." Aðspurður sagði Kristinn Jóns- son að meginrökin fyrir kröfugerð- inni væru aukið vinnuálag. „Alagið hefur aukist töluvert frá síðustu kjarasamningum. Þar má nefna aukið foreldrasamstarf, samstarf við aðila sem koma að velferð barna í skólum, vinna við skólanámskrá og aðlögun skólastarfs að nýrri að- alnámskrá." Kennarar á fundinum lögðu áherslu á að ekki væri um hópupp- sagnir að ræða því kennarafélögin hefðu ekki komið að uppsögnunum. Sýndu á þér tærn Höggdeyfandi sóli með grófum botni. Níðsterkir og ótrúlega þægilegir skór. Snorrabraut 60 • Reykjavík • Sími 51 1 2030 Fax 51 1 2031 • www.skatabudin.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.