Morgunblaðið - 17.07.1999, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 17.07.1999, Qupperneq 60
60 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ tPlÆIKFÉLAGliaé REYKJAVÍKURJ® BORGARLEIKHUSIÐ A SIÐUSTU STUNDU: Síðustu klukkustund fyrir sýningu eru miðar seidir á hátfvirði. Stóra svið kl. 20.00: LitL ktyttÍHýtbúðik eftir Howard Ashman, tónlist eftir Alan Menken. í kvöld fös. 16/7 örfá sæti laus Lau. 17/7 fáein sæti laus fim. 22/7 AUKASÝN. - laus sæti fös. 23/7 laus sæti lau. 24/7 laus sæti Ósóttar pantanir seldar daglega Erum byrjuð að taka niður pantanir fyrir ágústmánuð Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýn- ingu sýningardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Grei ðs lu kortaþj ónusta. Sími 568 8000, fax 568 0383. www.landsbank Tilboð til klúbbfélaga Landsbanka íslands hf. Vorian Vörðufélagar eiga þess nú kosl að kaupo i forsölu, ú hagstæðu verði, pakkaferðir til Flórída. Þetta eru haustferðir, og eru i boði ó tímabilinu 10. september lil 10. desember 1999. Ferðirnar eru aðeins til sölu ú Söluskrifstofu Flugleiða og Fjorsölu Flugleiða í sima 50 50 100. • Orlando, Best Western Plaza. Verð 46.190 kr. ó mann miðað við tvo í berbergi. • St. Petersburg Beotb við Mexíkóflóann. Verð 51.990 kr. ó monn miðað við tvo i stúdíóíbúð. • Sierro Suites-Poinle Orlando: Verð 51.690 kr. ó mann miðað við tvo í herb. m/eldunoraðstöðu Gengið • 2.500 kr. afslúttur of GSM símum og TALfrelsi • Tveir miðor ó verði eins ó 10 things I hote obout you & Wing Commander. • Tveir leikir ó verði eins í Loser Tag, faxafeni (món. - fim.) • 15% afslóttur í Spútnik. • 10% afslóttur af geisladiskum i SAM lónlist. Þessi tilboð eru kynnt nónar í tímaritinu „Á mörkunum". Ýmis önnur tilboð og ofslættir bjóðast klúbbfélögum Londsbanko Islonds hf. sem finna mó ó heimosíðu bankons, v.landsbankUs L Landsbankinn FÓLK í FRÉTTUM I skugga drepsótta TÍUNDI þátturinn af Orðspori var sýndur á Stöð 2 á sunnudagskvöld. Þetta er svona þáttur um persón- ur, sem þykja hafa skorið sig úr fjöldanum á tuttugustu öldinni. Þáttasmiðir eru þó enn ekki komn- ir langt í fyrri hluta aldarinnar, kannski vegna þess, að þá voru ekki tímar fyrir sjónvarp eða kvik- myndaþætti um fólk. Þannig verð- ur þessi allsráð- andi sjónvarpstíð að gera sem mest með poppfólkið, en sleppa stórmennum sögunnar ef því er að skipta, af því hið nýja ritmál, kvik- myndin, var ekki orðin nógu al- menn til að skrá einhverja sögu að gagni fyrir 1950. Orðsporsmenn sýndu núna síð- ast ágrip af ævi Jóakims von Ribbentrop, utanríkisráðherra Ad- olfs Hitlers og nasista. Ribbentrop var lengi sendiherra nazista í London og er sagður hafa unnið að því að koma á einskonar friðar- bandalagi Breta og Þjóðverja. Flestir Bretar létu sér fátt um sendiherrann og uppnefndu hann Ribbensnob. Maðurinn var ekki óviðkunnanlegur að sjá, en hann SJÓNVARPÁ LAUGARDEGI mun hafa talið sig eiga lítið vantal- að við aðra en valdamenn og aðal. Hann undirritaði frægan vináttu- samning Stalíns og Hitlers, sem hafði m.a. hin undarlegustu áhrif á Islandi, sem sagnfræðingar hafa veigrað sér við að fjalla um af þekkingu og skynsemi. Vegna þessa vináttusamn- ings voru ýmsir öfgamenn hér allt í einu komnir í bandalag við Hitler. Þrír voru sendir utan til Englands og kallaðir þjóðhetjur á íslandi æ síðan. Á stríðsárunum var Steingrímur Eyfjörð læknir á Siglufirði. Þar var þá vísnagerð nokkur og var Steingrímur einn helsti hagyrðing- urinn. Hann orti um Ribbentrop: Aumt er að vita illan lim/ í efstu valdastiga rim/ og óráðsglópy Það leiðir af sér branda brim/ og bölv- aður fari Jóakim/ von Ribbentróp. Stöð 2 lét skammt stórra högga á milli á sunnudagskvöldið og sýndi sögulega mynd frá 1932 um ránið á barni Lindbergs flugkappa, sem flaug fyrstur manna í einni lotu á milli New York og Parísar. Því var haldið í gíslingu og síðan myrt. Tveimur árum síðar var þý- skættaður smiður kærður fyrir morðið og dæmdur til dauða. Lind- berg var sænskur innflytjendason- ur; afar vinsæll eftir flugafrekið og kallaður „Lindy“ um allan heim. Lögreglan virðist hafa haldið að hún yrði eins fræg og Lindy ef hún fyndi morðingja barnsins. Svo fór að smiðurinn var tekinn af lífl í rafmagnsstólnum, en þessi kvikmynd af réttarhöldunum sýn- ir að vesalings maðurinn var sak- laus, enda kaus hann dauðann heldur en lýsa sig sekan. Stríð er það sóðalegasta sem maðurinn stundar. En þau virðast honum kær. Síðasti þáttur kalda stríðsins var um Suður-Ameríku- ríkin, sem ætluðu að koma á ný- skipan hjá sér, að hætti Castros á Kúbu. Það tókst ekki. Hins vegar naut Castro þess að verða með þeim fyrstu að gera byltingu og var rómaður mjög í fréttagreinum í New York Times á meðan hann var á fjöllum. Svo kom Castro of- an úr fjöllunum og lét mikinn eins og jábræður hans og sendimenn um alla Suður-Ameríku. Við lok aldar eru menn vaknaðir af draumum sínum. Á þriðjudagskvöldið sýndi rík- isrásin fyrsta þátt í þriggja þátta röð breskri um yfirvofandi skelf- ingar á jörðinni. Fyrsti þátturinn var um drepsóttir. Ekki fara sög- ur af því að mannkynið hafi náð jafn framarlega í lífskjörum og vísindum og nú á dögum. Jafn- framt hefur mannkyni tekist að búa til tæki til gjöreyðingar sér, hvenær sem hálfvitar kjósa að brúka þau. Þá er maðurinn að drekkja sér í offjölgun og þannig mætti lengi telja. Hins vegar stafar honum líklega mest hætta af veirum, sem hann fær frá um- hverfinu, m.a. frá húsdýrum. Lyf hafa verið fundin upp, sem gerðu kraftaverk á þessari öld, en veir- ur og bakteríur aðlagast þeim jafnharðan. Maðurinn hefur alltaf orðið að þola þetta nábýli við dýr- in og það hefur staðið mikið leng- ur en tvö þúsund ár. Ártal okkar er tilbúningur og heldur ómerki- legt miðað við langan aldur mannsins. Þrátt fyrir undralyf má maðurinn vænta þess að sjúk- dómar haldi áfram að plaga hann, einnig plágur stórar og smáar og farsóttir. Indriði G. Þorsteinsson Barnabarn Mjali- n m hvítar syngur í Winnipeg Eftir tónleika Gradualekórs Langholtskirkju í Winnipeg var ein stúlkan úr kórnum kölluð fram á gólf og kynnt sem dótturdóttir Mjallhvítar. Jón E. Gústafsson segir að stutt dvöl ömmu hennar í Winnipeg sextíu árum áður sé orðin hluti af sögu Islendinga í Vesturheimi. Lj ósmyndari/ J E G RON Eyjolfson og Sigrún Kristín Skúladóttir með ljósmynd sem tekin var af Ron og Kristínu ömmu Sigrúnar á sama stað árið 1930. Kristín er talin hafa verið fyrirmyndin að Mjallhvíti. 5 30 30 30 i H12-18 OBfamat týrtngu LOmtfantyrt-li )rlC]£plGlsa HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 1200 Mið 21/7 örfá sæti laus Fim 22/7 örfa sæti laus, Fös 23/7 SNYRAFTUR Þri 20/7 ath kl. 19, UPPSELT Rm 22/7 örfá sæti laus Fös 23/7 kl. 23.00 UPPSELT Ath! Aðeins þessar sýningar Tónleikaröð Iðnó-Stilluppsteypa og fl. Sun. 18/7 kl. 21.00. TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA! 20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðró. Borðapantanir í síma 562 9700. EG þekkti hana úr hópnum um leið og ég leit yfir kórinn. Hún er lifandi eftirmynd ömmu sinnar," sagði Ron Eyjolfson eftir tónleika Gradualekórsins í Winnipeg síðastliðinn þriðjudag. „Þegar ég svo hitti hana var ég svo spenntur að ég missti kaffibollann úr höndum mér.“ Stúlkan sem Ron var að tala um heitir Sigrún Kristín Skúladóttir og var á ferð um Manitoba með Gradu- alekór Langholtskirkju í enda júní. ÍSLENSKA ÓPERAN ____iliil ■t'áVjlSDJjjJ ,.i Gamanleikrit I leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar Lau17/7 kl. 20 uppselt Fös 23/7 kl. 20 Lau 24/7 kl. 20 Ósóttar pantanir seldar daglega Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 12 Miðasaia opin frá kl. 13—19 alla daga nema sunnudaga USTAHÁTÍÐ 1999 Hallgrímskirkj a Sunnudagur 18. júlí kl. 20.30 Breski orgelsnillingurinn Jennifer Bate leikur verk eftir Mendelssohn, Bach, Liszt, Berkeley, Whitlock og sig sjálfa. Miðasala í Hallgrímskirkju alla daga firá kl. 15.00 til 18.00 og við innganginn. Réttum sextíu árum fyrr hafði Kristín amma hennar búið í Winnipeg og sú stutta viðurvist er orðin hluti af sögu ís- lendinga í Kanada. Listamaðurinn á kaffihúsinu Kristín var tvítug þegar hún yfirgaf ís- land og fór til Winnipeg. Hún fékk vinnu á kaffihúsi á Ellis Avenue og með- al fastagesta þar var jafnaldri hennar, Ron Eyjolfson. Ron heillaðist af þessari fallegu ungu konu frá íslandi og ekki leið á löngu þar til þau fóru að hittast eftir vinnu. En það var annar Vestur-íslend- ingur sem líka heillaðist af Kristínu. Sá hét Charles Thorson og var lista- maður. Hann var tuttugu árum eldri en Kristín og hafði orð á sér fyrir að vera mikið upp á kven- höndina. Á milli þess sem hann teiknaði myndir fyrir Lög- berg-Heimskringlu og Eatons-pöntunarlistann hélt hann til á kaffihúsinu á Ellis Avenue. Krakkarnir hverfinu áttu það til að læð- KRISTIN Sölvadúttir og teikning Charles Thorson af Mjallhvíti. JÓN Stefánsson kórstjúri og Lára Bryndís Egg- ertsdóttir, undirleikari Gradualekúrs Langholts- kirkju, við Icelandic River eftir tónleika kórs- ins í bænuni Arborg í Manitoba. ast inn á kaffihúsið og biðja Charlie að teikna fyrir sig dýramyndir, því lítil krúttleg dýr voru sérgrein hans. Charlie gekk á eftir Kristínu með grasið í skónum en á endanum hafn- aði hún bæði honum og Ron því hún var komin með heim- þrá. Disney merkti sér myndirnar Charlie flutti til Hollywood og fékk vinnu hjá Walt Dis- ney. Hæfileikar hans voru nákvæm- lega það sem Disney var að leita að og Charlie tók þátt í að skapa teiknimyndaper- sónur sem við þekkjum enn í dag. Sumar þeirra er talið að Charlie hafi skapað frá grunni en erfitt er að sanna það. Walt Disney hafði fjölmarga teiknara í vinnu en setti nafnið sitt á allt það sem aðrir teiknuðu. Flestir sem þar unnu sættu sig við þessa vinnuaðferð. Charlie var sannur ís- lendingur og það var ekki í hans eðli að taka þessu þegjandi, heldur orti hann níðvísur um Walt Disney og dreifði um fyrirtækið. Það er því í sjálfu sér ekkert skrítið þótt Charlie hafi fljótlega misst vinnuna hjá Disn- ey. Næst vann hann fyrir Wamer- bræðuma og bjó þar til Kalla kanínu (Bugs Bunny) og fleiri teiknimynda- persónur. í bréíi sem Charlie sendi Kristínu sagði hann að á meðan hann vann fyrir Disney hefði hann notað hana sem fyrirmynd að Mjallhvíti. Það er erfítt að færa sönnur á að Charlie hafi búið Mjallhvíti til en þeg- ar bornar eru saman myndir af Ki-ist- ínu á þessum áram og fyrstu útgáfur af Mjallhvíti er vart um að villast. Mjallhvít í uppáhaldi „Mjallhvít var ein af mínum upp- áhaldssögum þegar ég var lítil. Eg var því mjög hissa þegar ég heyrði að amma mín hefði verið fyrir- myndin að Mjallhvíti," sagði Sigrún Kristín þar sem hún stóð fyrir framan húsið á horni Ellis Avenue og Dominion-stræti. Ron sýndi henni mynd sem tekin var af honum og ömmu hennar fyrir framan þetta sama hús árið 1930. „Eg fæddist tveimur árum eftir að amma dó en mamma var búin að segja mér að hún hefði búið hér og unnið á kaffíhúsi. Það var mjög skrítið og óvænt að hitta gamlan kærasta hennar og heyra allar þessar sögur. Mamma vissi um tengsl ömmu við Mjallhvíti eniþetta hefur ekki mátt fara hátt. Eg er kannski að ljóstra upp einhverju sem ekki má segja frá,“ sagði Sig- rún Kristín.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.