Morgunblaðið - 04.08.1999, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fjölmennasta útihátíðin um helgina var Halló Akureyri 1999
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
MIKILL mannfjöldi var í miðbænum í góðviðrinu á laugardaginn.
ÞAÐ var einnig þröng á þingi í sundlaug Akureyrar. Að sögn Gisla
Kristins Lórenzsonar, forstöðumanns sundlaugarinnar, komu um 12-
14.000 manns í sund um helgina.
Fjöldi fólks
í bænum en
öflug gæsla
TALIÐ er að allt að fjórtán þúsund
manns hafi verið staddir á hátíðinni
Halló Akureyri um nýliðna verslun-
armannahelgi. Þrátt fyrir þennan
mannfjölda töldu forsvarsmenn há-
tíðarinnar, lögreglan og tjaldsvæða-
gæslan að hátíðarhöldin hefðu farið
vel fram og flestir hefðu verið komnir
til Akureyrar til að skemmta sér á
heilbrigðan hátt. Það skyggði á að
ein nauðgun hefur verið kærð til lög-
reglu og á fjórða tug fíkniefnamála
komu upp um helgina. Á hinn bóginn
var ekkert um bílslys og flestir gestir
höguðu sér sómasamlega.
Skipuiagning góð
„Það er mér efst í huga að hingað
voru komnir meira en fjórtán þús-
und manns til að njóta þeirrar dag-
skrár sem við höfðum upp á að
bjóða. Flestir þeirra voru einnig að
skemmta sér á heilbrigðan hátt. Það
skyggir óneitanlega á að ein nauðg-
un hefur verið kærð. Einnig eru
fíkniefnamálin fleiri en í fyrra, en
það má kannski rekja til góðrar
gæslu lögreglunnar," sagði Magnús
Már Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Halló Akureyri.
Magnús sagði að hann væri
ánægður með hvað skipulagning há-
tíðarinnar hefði verið góð. „Lögregl-
an og aðrir aðilar í gæslu voru allir
að vinna mjög gott starf og sú skipu-
lagning er alltaf að batna, þeir eru
alltaf að læra hvað má betur fara frá
einu ári til annars," sagði Magnús.
Magnús sagði að eitt gott dæmi um
góða gæslu væri að þrátt fyrir auk-
inn mannfjölda þá leitaði færri fólk í
athvarf hjálparsveitarinnar.
„Það er mér einnig ofarlega í huga
að hátíðin er að verða hreinræktuð
fjölskylduhátíð í augum fólks. Hing-
að kemur fólk á öllum aldri til að
sækja okkur Akureyringa heim.
Auðvitað kemur hingað einnig mikið
af unglingum, en við reynum að
bjóða upp á góða dagskrá fyrir þá
líka svo að þeir geti vonandi farið
ánægðir heim,“ sagði Magnús Már.
„Að lokum vil ég þakka öllum
sjálfboðaliðum og aðilum í heilsu- og
löggæslu fyrir gott starf og bæjaryf-
irvöldum fyrir skilning á hátíðar-
höldunum," sagði Magnús Már.
Ein nauðgun kærð
til lögreglu
Að sögn Ólafs Ásgeirssonar, að-
stoðaryfirlögregluþjóns á Akureyri,
gekk helgin þokkalega fyrir sig frá
sjónarhóli lögreglunnar. „Það er búið
að kæra eina nauðgun sem mun hafa
átt sér stað á KA-tjaldsvæðinu að-
faranótt laugardags. Einnig komu
upp á milli 30 og 40 fíkniefnamál um
helgina og er það talsvert meira en
áður,“ sagði Ólafur.
„Umferðin gekk hins vegar mjög
vel fyrir sig og enginn árekstur varð.
Við tókum aftur á móti á annað hund-
rað manns fyrir of hraðan akstur og
nítján fyrir meinta ölvun við akstur,"
sagði Ólafur. Hann gat þess einnig að
þeii’ hefðu boðið fólk að blása í önd-
unarmæla, bæði á lögreglustöðinni
og eins við tjaldsvæðin, til að koma í
veg fyrir að fólk væri að leggja af
stað á bílnum og enn undir áhrifum
áfengis.
Ólafur sagði að engin líkamsárás
hefði verið kærð en eitthvað var um
smá pústra alla helgina. „Við erum
ánægðir með okkar þátt, við vorum
með marga menn á vakt og vorum
mikið á ferðinni. Þannig vorum við
sýnilegir allan tímann og það hefur
áhrif til hins betra,“ sagði Ólafur.
Hann vildi einnig geta þess að gæsla
sjálfboðaliða á tjaldsvæðunum þrem-
ur hefði verið mjög góð og alveg til
fyrirmyndar.
„Það er alveg ljóst að svona hátíð-
arhöld verða alltaf haldin um versl-
unarmannahelgina og þá er alveg
spurning hvort ekki sé betra að halda
þær á svæði eins og Akureyri þar
sem öflug lög- og sjúkragæsla er þó
fyrir hendi,“ sagði Ölafur að Iokum.
Mikið að gera á
slysadeild FSA
Birna Sigurjónsdóttir hjá Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri sagði
að nóg hefði verið að gera hjá þeim
alla helgina á slysadeildinni en vakt-
irnar hefðu þó verið vel mannaðar.
„Til okkar leituðu fjórar stúlkur
vegna nauðgunar,“ sagði Birna. Hún
sagði að einnig hefði verið mikið um
pústra en ekkert af því hefði þó verið
mjög alvarlegt, að hennar sögn.
„Mér fannst hins vegar áberandi
meira um eiturlyf eða aðra vímu-
gjafa. Við urðum vör við að hingað
kom fólk sem var ansi illa haldið og
undir áhrifum einhvers konar vímu-
gjafa, það var mun meira en síðustu
ár,“ sagði Birna. Hún sagði þó að í
heildina hefði helgin gengið alveg
þokkalega vel fyrir sig.
Fleiri gestir en áður
á tjaldsvæðunum
Að sögn Ásgeirs Indriðasonar,
skátafélaginu Klakki, þá var um-
gengni góð í flestum tilfellum á tjald-
svæðinu inni í Kjarnaskógi. „Hingað
komu um 2.800 manns, bæði börn og
fullorðnir, og eru þá þeir ótaldir sem
eingöngu gistu í eina nótt,“ sagði Ás-
geir. Að sögn Ásgeirs voru heldur
færri fyrir ári og nú var meira um
yngri hópa. „Það var eitthvað aðeins
um hávaða í því fólki sem kom í stór-
um hópum en það var ekld til neinna
stórra vandræða,“ sagði Ásgeir.
Svala Stefánsdóttir hjá íþróttafé-
laginu Þór sagði að allt hefði gengið
mjög vel hjá þeim. „Það voru tveir
smávægilegir pústrar og er það þá
eiginlega upp talið,“ sagði Svala. Á
tjaldsvæði Þórs voru um 1.100
manns, sem er nær helmingi meira
en í fyrra.
„Gæslan hjá okkur var mjög góð
og því ekki mikið um læti. Hins vegar
varð ég svolítið vör við að sumir
borguðu sig bæði inn á Þórssvæðið
og KA-svæðið. Þeir skemmtu sér þá
á KA-svæðinu en komu hingað til að
sofa í friði,“ sagði Svala.
Hlynur Jóhannesson hjá íþróttafé-
laginu KA sagði að helgin hefði að
mestu leyti gengið mjög vel fyrir sig
á þeirra svæði. „Það kom því miður
upp eitt nauðgunarmál hjá okkur.
Við vorum reyndar búnir að hafa af-
skipti af þeirri stúlku fyrr um kvöldið
en hún afþakkaði þá aðstoð okkar,“
sagði Hlynur.
Að öðru leyti sagði hann að gæslan
hefði gengið vel. Á svæðinu voru um
3-4.000 manns og er það mikil aukn-
ing frá síðasta ári. „Erfiðasta kvöldið
var laugardagskvöldið en þá var
mjög stór dansleikur hér í KÁ-heim-
ilinu. Það urðu smá pústrar en samt
gekk þetta allt saman ótrúlega vel og
í raun vonum framar," sagði Hlynur.
Listasafnið á Akureyri
Fyrirlestur
um Charlie
Thorson
GENE Walz, höfundur bókaiánnar
um Cartoon Charlie, heldur fyrir-
lestur í kvöld, 4. ágúst, kl. 21. Hann
mun þar fjalla um ævi og störf Vest-
ur-íslendingsins Charlie Thorson í
máli og myndum. Charlie er þekkt-
ur fyrir að hafa skapað frægar
teiknimyndafígúrur fyrir Walt Disn-
ey, en þær voru þó aldrei kenndar
við hann.
Charlie Thorson (Karl Þórsson)
fluttist til Kanada árið 1887 og hóf
að teikna myndir fyrir tilstuðlan
besta vinar síns, Friðriks Sveinsson-
ar, og birtist fyrsta teikning hans á
forsíðu Heimskringlu 4. mars 1909.
Hann hóf 44 ára gamall störf hjá
Walt Disney. Af teiknimyndafígúr-
um sem hann er talinn hafa skapað,
má nefna Kalla kanínu og Mjallhvíti.
Þess má geta að talið er að unnusta
Charlie, Kristín Sölvadóttir, hafi
verið fyrimyndin að Mjallhvíti.
Gene Walz er rithöfundur og
kvikmyndaframleiðandi auk þess
sem hann er prófessor í kvikmynda-
fræðum við Háskólann í Manitoba í
Kanada. Hann hefur nýlega hlotið
verðlaun fyrir bók sína um Charlie
Thorson.
----------------
Norrænu bænda-
samtökin funda
á Akureyri
AÐALFUNDUR Norrænu bænda-
samtakanna, NBC, er haldinn á
Akureyri í dag, miðvikudag, og á
morgun, fimmtudag, en slíkur fund-
ur var síðast haldinn hér á landi
haustið 1989. Gert er ráð fyrir að yfir
100 þátttakendur sæki ráðstefnuna
en þar af koma um 80 frá Svíþjóð,
Noregi, Finnlandi og Danmörku.
Á fundinum verða ýmis innri mál
samtakanna til umræðu. Þá verður
séstakur dagskrárliður um stöðu
kvenna í norrænum Iandbúnaði þai’
sem fyrirlesarar frá hverju þátttöku-
Iandi munu flytja erindi og gera
grein fyrir stöðu kvenna, hver í sínu
landi. Aðalefni fundarins verður þó
„miniráðstefna“ þar sem rætt verður
um undirbúning næstu WTO-samn-
inga sem hefjast um næstu áramót.
Á fundinum verða einnig veitt menn-
ingarverðlaun NBC.
Löndin innan NBC skipta með
mér sér forystuhlutverkinu á
tveggja ára fresti og núverandi for-
seti NBC er Ari Teitsson, formaður
Bændasamtaka Islands, og aðalritari
Guðmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðs landbúnað-
arins.
V
Svæðisvinnumiðlun
Norðurlands eystra
SKRIFSTOFUSTARF
Á skrifstofu Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands eystra er laust til
umsóknar framtíðarstarf sem felst m.a. í:
* útreikningi atvinnuleysisbóta
* að miðla upplýsingum og gögnum til úthlutunamefndar
* almennum skrifstofustörfum o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
Æskilegt er að umsækjendur hafi góða tölvukunnáttu, reynslu af
skrifstofustörfum, hæfni til mannlegra samskipta og góða skipu-
lagshæfileika.
Laun em skv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal
skila til forstöðumanns Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands
eystra, Skipagötu 14, 600 Akureyri, fyrir 13. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður,
Helena Þ. Karlsdóttir, í síma 460-5100.
Tæplega 40 fíkniefnamál komu upp á Akureyri um helgina
Svipaður fjöldi mála
og allt árið í fyrra
LÖGREGLAN á Akureyri hafði af-
skipti af tæplega 40 fíkniefnamálum
í bænum um verslunarmannahelg-
ina, sem er svipaður fjöldi mála og
upp kom allt árið í fyrra. Daníel
Snorrason, lögreglufulltrúi á rann-
sóknardeild lögreglunnar á Akur-
eyri, sagði að að minnsta kosti 60 að-
ilar yrðu kærðir vegna þessara tæp-
Iega 40 mála sem upp komu.
Daníel sagði að lögreglan hefði
fyrir utan þessi mál fengið upplýs-
ingar um mikla neyslu til viðbótar og
um söluaðila sem ekki tókst að hafa
upp á vegna hins mikla mannfjölda í
bænum. „Fíkniefnin sem við tókum
úr umferð eru harðari en við eigum
að venjast hér og það má segja að
við höfum tekið alla fíkniefnaflóruna,
marijúana, hass, amfetamín, kókaín,
e-töflur og LSD. Það var mikið talað
um neyslu á e-töflum og að töluvert
af þeim hafi verið í umferð. Nokkir
aðilar voru fluttir á slysadeild FSA
DANÍEL með fíkniefni og tól
sem tekin voru úr umferð í
bænum um helgina.
illa á sig komnir af e-töfluáti og
einnig var stúlka flutt á FSA vegna
LSD-notkunar.“
Daníel sagði að lögreglan hefði
verið með öflugt eftirlit og komist yf-
ir stærri skammta og harðari efni en
áður. Hann nefndi sem dæmi að einn
aðili hefði verið tekinn með 11
grömm af kókaíni, 15 grömm af hassi
og 4 e-töflur, annar aðili hefði verið
tekinn með 10 grömm af amfetamíni
og 16 grömm af hassi og sá þriðji
með 8 e-töflur.
Þá sagði Daníel að unnið væri að
rannsókn máls frá því um helgi, þar
sem maður hafi gefið 16 ára stúlku e-
töflu og eitthvað fleira í þeim til-
gangi að misnota hana kynferðis-
lega. Stúlkan hafi þó sloppið með
skrekkinn en verið í hópi þeirra sem
fluttir voru á slysadeild FSA.
Ekki urðu alvarlegar líkamsmeið-
ingar í bænum um helgina en þó
komu upp beinbrot og skrámur og
þá er í rannsókn, að sögn Daníels,
hvort gangstéttarhellu var kastað í
höfuð manns eða hvort hann var bar-
inn með einni slíkri um helgina.