Morgunblaðið - 04.08.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.08.1999, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Dagskrá um Hallgrím Pétursson Sauðárkróki - í tilefni af kristni- hátíðarári tóku sig saman nokkrir aðilar í Skagafirði og settu saman dagskrá um sálmaskáldið sr. Hall- grím Pétursson og hefur dagskrá- in verið flutt í fjórum kirkjum í Skagafjarðarprófastsdæmi í júlí. Var fi-umflutningur dagskrárinnar í Grarfarkirkju á Höfðaströnd en síðan í Sauðárkrókskirkju og Hofsstaðakirkju og var endað í Glaumbæ. Þéttsetin gestum varð Glaum- bæjarkirkja vettvangur mjög fróð- legrar og skemmtilegrar umfjöll- unar um sr. Hallgrím allt frá því er hann fæddist, líklega á Gröf á Höfðaströnd, og til þess er hann gamall og sjúkur andaðist að Fer- stiklu á Hvalfjarðarströnd. Það var „Hallgrímshópurinn", fjórtán manna blandaður kór undir Morgunblaðið/Björn Björnsson SR. Dalla Þórðardóttir, prófastur á Miklabæ, kynnir trúarljóð sr. Hallgríms ásamt Hallgrímshópnum. stjórn Sveins Arnar Sæmundsson- ar, sem hóf dagskrána með því að syngja einn þekktasta veraldlega texta sr. Hallgríms „Nú er ég glað- ur á góðri stund“ en síðan flutti sr. Ólafur Hallgrímsson, sóknarprest- ur að Mælifelli, mjög skemmtilega og fróðlega samantekt um sr. Hall- grím, ævi hans og störf. Sr. Dalla Þórðardóttir, prófast- ur á Miklabæ, fjallaði um trúar- skáldskap sr. Hallgríms og kynnti texta þá sem sönghópurinn flutti m.a. úr Passíusálmunum. Sr. Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæ, þakkaði flytjendum að lokum mjög ánægjulega kvöld- stund og þakkaði gestum fyrir komuna en að samkomunni lokinni þágu flytjendur og gestir veitingar á heimili sr. Gísla og frú Þuríðar Þorbergsdóttur konu hans. Unglingar í sjóbaði Hvammstanga - Mikil veður- blíða var á Hvammstanga fyr- ir verslunarmannahelgi. Það var því ekki að ástæðulausu, að unglingar í vinnuskóla Húnaþings vestra skoluðu af sér fyrir helgina. Þau fóru þó ekki í hefðbundið bað, heldur stukku í sjóinn af bryggjunni, sumir margar ferðir. Að sjó- baði loknu var farið í sturtu og seltan skoluð af sér og síð- an í sundlaugina. Daginn áður fór hluti hópsins í bað í Mið- fjarðará og var stokkið í djúp- an hyl við brúna hjá Laugar- bakka, vegfarendum til mikill- ar undrunar. „Þetta er ungt og Ieikur sér“ eins og máltæk- ið segir. Söluskáli Sáms í Hrafnkelsdal Bensinsala og ferðamannaversl- un á Aðalbóli yaðbrekku, Jökuldal - Sigurður Ólafsson og Kristrún Pálsdóttir, bændur á Aðalbóli í Hrafnkelsdal, hafa opnað bensínstöð og ferða- mannaverslun ásamt gistingu á Aðal- bóli. Á bensínstöðinni er selt bensín og dísilolía frá Esso. Bensínstöð var á Brú á Jökuldal en henni var lokað í fyrrahaust og það leit út fyrir að mik- il vandræði sköpuðust fyrir fólk sem ferðast um þetta svæði vegna þess hvað langt væri að sækja bensín þeg- ar farið er um þessar slóðir. Sigurður segir að viðbrögð hjá Es- so hafi verið góð, hann hafi sótt um þessa þjónustu um miðjan febrúar síðastliðinn og bensínstöðin hafi ver- ið opnuð nú um miðjan júlí. Ekki hefðbundið útlit Bensínstöðin á Aðalbóli hefur ekki hefðbundið útlit besínstöðva vegna þess að tankarnir eru ofanjarðar á steyptu plani til að minnka mengun- arhættu. Sigurðm- og Kristrún opn- Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson SIGURÐUR Ólafsson og Sindri Sigurðsson við afgreiðsluborðið í Sölu- skála Sáms á Aðalbóli I Hrafnkelsdal. SINDRI Sigurðsson dælir olíu á bfl við nýju bensínstöðina á Aðalbóli. Eins og sjá má hafa tankarnir annað yfirbragð en fólk á almennt að venjast, og frá veginum líkjast þeir meira geimstöð en bensínstöð. uðu einnig ferðamannaverslunina Söluskála Sáms ú neðri hæð íbúðar- húss síns þar sem þau selja gos- drykki og heimabakað brauð, svo sem kleinur og parta. Einnig kaffí bæði í bolla á staðnum og handa fólki í kaffibrúsa sem það hefur með sér. Einnig selja þau handunna muni sem þau framleiða sjálf á trésmíðaverk- stæði sínu svo sem ostabakka og höld fyrir tveggja lítra gosflöskur úr plasti. Sigurður og Kristrún reka einnig bændagistingu í gamla húsinu á Að- albóli þar sem boðið er upp á allt frá svefnpokaplássi til uppbúinna rúma með aðgangi að eldhúsi. Gistingin er vel í sveit sett fyrir veiðimenn sem geta fengið þar gistingu nálægt mjög góðum veiðisvæðum. Stutt er í veiði- svæði hreindýra, heiðagæsa sem fljúga þúsundum saman á haustin yf- ir öræfunum inn af Aðalbóli. Einnig eru afbragðs góð rjúpnalönd í göngufæri frá bænum. Hafnardagur á Sauðárkróki Morgunblaðið/Jónas Erlendsson JÓN GUNNAR með skjalið frá hreppsnefnd Mýrdalshrepps. Verðlauna- garður í Vík Gaman að sýna garðinn Fagradal - Helga Þorbergsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps, veitti Jóni Gunnari Jónssyni viðurkenningar- skjal fyrir fallegan og vel hirtan garð að Hjalla í Vík í Mýrdal. Jón hafði garðinn til sýnis þann dag af þessu tilefni. Jón Gunnar flutti til Víkur fyrir ellefu árum og undanfarin ár hefur hann lagt mikla vinnu í garðinn, m.a. hefur hann flutt þangað mikið af fallegum steinum eins og jaspis, bergkristal, kvars, sOfurberg, hrafntinnu og steinrunnið tré. Hann hefur einnig hoggið út og málað á steina, meðal annars and- litsmyndir. Jón Gunnar segir að til hans sé alltaf að koma fólk og skoða garð- inn, bæði litlir og stórir ferða- mannahópar. Hann segist hafa gaman af að taka á móti fólki og sýna því garðinn sinn. Sauðárkróki - Á undanförnum ár- um hefúr sú venja skapast á Sauð- árkróki að halda hafnardag rétt um eða eftir miðjan júlí. Hefur þessi dagur átt sívaxandi vinsæld- um að fagna og er hann var hald- inn nú nýlega kom meiri fjöldi fólks á hafnarsvæðið og tók þátt í dagskrárliðum en áður hefur verið enda veður betra en oft áð- ur. Dagskráin hófst með dorgveiði- keppni af bryggjunni og voru veitt vegleg verðlaun fyrir stærsta kolann, stærsta marhnút- inn en enginn þorskur veiddist að þessu sinni svo að þau verðlaun gengu ekki út þó að veiðamar væru stundaðar af verulegu kappi. Vom keppendum, svo og öðmm, bornir svaladrykkir með- an á keppni stóð og veitti ekki af enda kappið mikið. Ómar Unason skipstjóri bauð Morgunblaðið/Björn Björnsson MENN röðuðu sér á bryggju- kantinn og dorguðu af kappi. upp á sjóstangaveiði og fór all- margar klukkutímaferðir þar sem menn drógu rigaþorska enda virð- ist nægur færafiskur í firðinum. Um kvöldið var síðan bryggjuball þar sem Hörður Ólafsson og fé- lagar léku fyrir dansi og tóku bæði börn og fullorðnir sporið á fánum skreyttri bryggjunni enda margir á faraldsfæti og Ijöldi ferðamanna í bænum. I boði hafnarstjórnar var öllum boðið upp á grillaðar pylsur og pepsí en á miðnætti var siðan glæsileg flugeldasýning sem loka- punktur hátíðarinnar. Að sögn Brynjars Pálssonar, formanns hafnarsljórnar, vom hinir fjölmörgu gestir mjög ánægðir með daginn og sagði Brynjar hafnarstjórn ákveðna í því að viðhalda þeirri venju og hefð sem skapast hefði með árleg- um hafnardegi á Sauðárkróki. GRILLUÐU pylsurnar vom vin- sælar hjá börnum og fullorðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.