Morgunblaðið - 04.08.1999, Page 24

Morgunblaðið - 04.08.1999, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Umdeild sálgreining Hill- ary Clinton á bónda sínum Ummæli Hillary Clinton, eiginkonu Bills Clintons Bandaríkjaforseta, um hjónaband þeirra í viðtali við nýtt tímarít, Talk, hafa vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. —7--------------------------------------- I grein Davíðs Loga Sigurðssonar kemur fram að þar gefí forsetafrúin í skyn að framhjáhald forsetans megi útskýra með tilvísun í erfíða æsku hans. YFIRLÝSINGAR HiUary Clinton, eiginkonu Bills Clintons Bandaríkja- forseta, þess efnis að hún teldi fram- hjáhald forsetans tengjast sálrænu of- beldi sem hann hefði orðið fyrir í æsku hafa vakið mikla athygli vestur í Bandarikjunum. Fréttaskýrendur eru ekki á eitt sáttir um hvort forsetafrúin hafi gert rétt í því að ræða opinber- lega um málið en hitt telja þeir öruggt að tímaritið nýja, Talk, sem fékk Hill- ary til að fjalla um framhjáhald Clint- ons, njóti góðs af athyglinni. Að sögn Joes Lockharts, tals- manns Hvíta hússins, er forsetinn „í meginatriðum“ sammála skoðunum Hillary, en Lockhart þurfti að svara fjölda spuminga um viðtal Talk við forsetafhína á daglegum fundi sín- um með fréttamönnum á mánudag. Sagði Lockhart ennfremur að forset- inn væri fyllilega sáttur við þá ákvörðun konu sinnar að ræða um málið opinberlega. Lockhart svaraði ekki beint þeirri spumingu hvort forsetinn teldi sjálf- ur að hann hefði mátt þola andlegt ofbeldi í æsku en sagði að Clinton tryði því að hann hefði, líkt og annað fólk, mátt ganga í gegnum erfið tíma- bil með fjölskyldu sinni. Þegar Lock- hart var spurður hvort Clinton teldi sig geta afsakað framhjáhald sitt með því að vísa í erfiða æsku svaraði talsmaðurinn: „Nei, forsetinn telur sig bera ábyrgð á eigin gjörðum.“ í viðtalinu í Talk ræddi Hillary um það sem hún kallaði „veikleika" eig- inmanns síns og viðurkenndi hún að reynt hefði á hjónaband þeirra vegna framhjáhalds Clintons í gegnum tíð- ina. En Hillary sagðist ekki hafa uppi nein áform „að ganga bara á dyr“. ,AHar fjölskyldur þurfa að takast á við erfiðleika," sagði Clinton í sam- tali við Talk. „Og fjölskyldur þurfa að takast á við vandamálin. Þú geng- ur ekki bara á dyr þegar þú elskar einhvern - þú reynir að veita mann- eskjunni aðstoð.“ Erfltt fyrir sveinbam að lenda milli tveggja kvenna Menn hafa lengi vitað að æska Bills Clintons var ekki auðveld. Stjúpfaðir hans, Roger Clinton, var grimmlynd- ur áfengissjúklingur sem átti það til að hóta Virginíu, móður forsetans, ofbeldi. Hillary Clinton gaf hins veg- ar í skyn að spenna í samskiptum móður forsetans og ömmu hefði skaddað Clinton andlega. Sagði Hillary að áhrif áfengissýki stjúpföðursins hefðu ekki verið nema hluti vandans, enda var Clinton afar ungur þegar þeir atburðir áttu sér stað. „Það var afar stirt á milli móður hans og ömmu,“ sagði hún. Virginía Kelley, móðir forsetans, hefur áður sagt frá því í sjálfsævisögu sinni, Leading with My Heart, að hún hafi deilt hart við móður sína um uppeldið á Clinton. Toguðust þær meira að segja einu sinni á um bamið. „Sálfræðingur sagði mér eitt sinn að fyrir sveinbarn væri sú reynsla, að lenda mitt á milli í deilum tveggja kvenna, með þeim erfiðari sem hægt væri að hugsa sér. Bamið fyndi ávallt hjá sér þörf til að gera báðum til geðs,“ sagði Hillary Clinton. Samband Clinton-hjóna virðist hafa farið batnandi að undanfömu og forsetafrúin segist í viðtahnu við Talk vænta þess að Clinton verði henni trúr í framtíðinni, jafnvel þótt gera megi ráð fyrir að hún verði mikið að heiman í aðdraganda þingkosninga í New York-ríki á næsta ári, en allt bendir til að Hillary muni þar sækjast eftir útnefningu Demókrataflokksins. Hún sagði að vitaskuld hefði fram- hjáhald Clintons valdið henni sárs- auka. „Það hefur verið mikill sársauki verið við hlið hans hálfa ævina. Sam- band okkar er einfaldlega svo náið að það stendur af sér öll vandkvæði." Hún sagði hins vegar að ávallt væri nauðsynlegt að halda vöku sinni. „Ég hélt að þetta hefði verið úr sögunni fyrir tíu árum,“ sagði Hillary. „Ég hélt að hann hefði náð að ráða bug á vandamálum sínum. Ég hélt hann hefði komist að rótum vandans. En hann kafaði ekki nógu djúpt eða vann ekki nógu ötullega í sínum rnálum." „Úthugsað leikbragð“ að gera málin upp núna? Lucinda Franks, blaðamaðurinn sem tók viðtalið við Hillary Clinton, sagði á sunnudag að það hefði tekið sig fimm mánuði að fá forsetafrúna til að fallast á að gera upp framhjá- haldsmál forsetans. Beitti Franks óspart þeim rökum að það myndi styrkja Clinton í væntanlegri kosn- ingabaráttu í New York-ríki að leggja spilin á borðið núna og gera málið upp. Sagði Martha Berry, tals- maður Hillary Clinton, að forseta- frúin hefði samþykkt að ræða um hjónaband sitt við Franks því hún væri „manneskja sem hún þekkti fyrir og líkaði vel við“. Á hinn bóginn hafa bæði demókratar og repúblikanar lýst miklum efasemdum með þá ákvörð- un Hillary Clinton að ræða svo opin- skátt um framhjáhald forsetans. Segja þeir að hafi hún viljað af- greiða málið nú, áður en baráttan um öldungadeildarþingsætið í New York hefst fyrir alvöru - en líklegt er talið að þar muni þau Clinton og Rudy Giuliani, borgarstjóri í New York, etja kappi - hafi það verið mistök. „Ef hún vildi gera þetta til að af- greiða málið, held ég einfaldlega ekki að það muni takast. Ég held hún hafi mildu frekar rifjað málið upp alveg að óþörfu,“ sagði Louise Slaughter, demókrati frá New York. Repúblikaninn Vito Fossella, þingmaður í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings, kallaði viðtalið hins vegar „úthugsað leikbragð" og sagði þetta gefa henni „einstakt tækifæri til að stjóma umræðunni í kosningabarátt- unni“. Þreytt á því að vera misskilin? Sögðu ýmsir fréttaskýrendur að Clinton hefði talið að ef hún ræddi ekki um framhjáhald forsetans nú myndi málið koma upp á yfirborðið seinna og skaða framboð hennar. Ónefnd vinkona hennar sagði þetta viðtal „frelsa“ forsetafrúna, nú geti hún neitað að ræða um kvennamál forsetans og sagt að hún hefði engu við Talk-viðtalið að bæta. Repúblikaninn Rich Galen gaf í skyn að markmið Hillary væri að afla sér samúðar. „Hún er hin særða forsetafrú - hún veit að hún vinnur helst fylgi út á þá ímynd,“ sagði Galen með vanþóknun. „Vand- ræði forsetans eru ekki lengur til- komin vegna samsæris hægri- manna, þau eru ömmu að kenna,“ sagði Galen og vísaði þar í yfirlýs- ingar Hillary frá því í fyrra, þess efnis að málareksturinn gegn Clint- on hefði verið eitt allsherjar sam- særi. Lucinda Franks sagði hins vegar að forsetafrúin hefði á endanum samþykkt að láta taka við sig viðtal „því hún var þreytt á því að vera misskilin“. Sjálf kvaðst Franks telja að Hill- ary hefði staðið við hlið eiginmanns síns í gegnum alla orrahríðina vegna Lewinsky-mála forsetans gegn því að hann veitti henni „algjöran stuðn- ing“ í væntanlegu þingframboði hennar. og mikil reiði,“ sagði hún. „En ég hef HILLARY OPENSUP “7 his mis ti sin oj irniliiii ss..." GWYNETH GOESBAD GEORGE W. GETSREAL JFK JR.: IMAGES OF SUMMER BY PETER BEARD l'LUS: Tom Stoppard's Mcmoir Richard Butlur u Iraij Bombshell Tlie UnsolmJ Mystorios of Prlncess Dínna Safari Massacre Micliaol Korda’s Country Life MíirtinAmísSlays/fa/i/i/Tra/; SallyBrompton's Horoscope and Drew Barrymoro, Ituport Everott, and Angellna Jolíe Reuters Tímaritið Talk fer vel af stað FYRSTA tölublað Talk, sem vakið hefur mikla athygli í Bandaríkjunum vegna áhuga- verðs viðtals við Hillary Ciinton, kom í búðir í dag en það skartar djarfri mynd af Óskarverðlau na- leikkonunni Gwyneth Paltrow á forsíðu, auk myndar af forseta- frúni. Jafnframt getur þar að líta mynd af George W. Bush, líklegum frambjóðanda Repúblikanaflokksins í forseta- kosningum á næsta ári. Forsetafrúin hefur fram að þessu ekld viljað ijá sig um framhjáhald Clintons, sem næst- um var vísað úr embætti af Bandaríkjaþingi síðastliðið haust fyrir að hafa sagt úsatt til um samband sitt við Monicu Lewinsky við yfirheyrslur. Þyk- ir það því rús í hnappagat Tinu Brown, ritstjúra Talk, að liafa fengið Hillary til að samþykkja að láta taka við sig slíkt viðtal. Brown er vel þekkt í banda- rískum útgáfuheimi, hefur m.a. þútt standa sig vel sem ritsljúri Vanity Fair og The New Yor- ker, og með fyrsta tölublaði Talk túkst henni enn á ný að slá við öðrum glanstímaritaritstjúr- um. I fyrsta tölublaði Talk eru, auk viðtalsins við Clinton, grein- ar eftir leikritaskáldið Tom Stoppard; Richard Butler, fyrr- verandi vopnaeftirlitsmann Sa- meinuðu þjúðanna í írak; rit- gerð um John F. Kennedy yngra og sviplegt fráfall hans, eigin- konu hans og mágkonu; auk um- Qöllunar um leikkonuna Gwy- neth Paltrow og George W. Bush, ríkissljúra í Texas. Hefur tekist framar vonum að vekja athygli á útgáfu tímarits- ins, sem Miramax-kvikmynda- fyrirtækið og Hearst-blaðaút- gáfan eiga í sameiningu. Segja menn að ítök Miramax, sem er dútturfyrirtæki Walt Disney, í kvikmyndaheiminum og áhrif Hearst í fjölmiðlaheiminum muni auka líkurnar á þvi að Talk gangi vel. Raunar hafa menn áhyggjur af hringamyndun í rekstri fjöl- miðla og skemmtanamiðla í Bandaríkjunum og benda á að það geti varla verið tilviljun að Paltrow er samningsbundin Miramax-kvikmyndafyrirtæk- inu, sem er annar eiganda Talk. En spurningin sem leikur á allra vörum er sú hvort Brown geti tryggt áframhaldandi vel- gengni, eða hvort erfitt verði fyr- ir ritstjúrann að tryggja jafn- mikla umQöllun og auglýsingu, og þar með útbreiðslu, og túkst með viðtalinu við Hillary Clinton. Galdrafár í Tansaníu REIÐIR íbúar þorpa í suður- hluta Tansaníu hafa myrt meira en þrjú hundruð og fimmtíu manns á undanfömum átján mánuðum en allir hinna látnu áttu það sameiginlegt að hafa verið sakaðir um að stunda galdra. Þýðir þetta að rekja má að jafnaði tuttugu og eitt morð á mánuði til hjátrúar og hindurvitna. Höfðu hinir látnu gjarnan verið sakaðir um að ráða fólki bana með göldr- um, eða um að hafa hneppt aðra þorpsbúa í álög þannig að þeir máttu þola uppskerubrest eða ólán í viðskiptum. Einstæð mdð- ir hefur betur EINSTÆÐRI breskri móður, sem rekin var úr starfi eftir að hún neitaði að vinna sextán klukkustunda langa vakt á Heathrow-flugvelli, var í gær úthlutað skaðabótum, sem nema um þreföldum árslaun- um, fyrir rétti í London. Úr- skurðaði sérstakur dómstóll að South African Airways- flugfélagið hefði gerst sekt um „algerlega óviðunandi hegð- un“, þegar það krafðist þess af hinni fertugu, einstæðu móður að vinna svo langan vinnudag. Kína fær enga aðstoð frá Interpol ALÞJÓÐALÖGREGLAN Interpol neitaði í gær að verða við beiðni kínverskra yfirvalda um hjálp við að koma höndum yfir Li Hongzhi, leiðtoga Falun Gong-hreyfingarinnar, sem bú- settur er í Bandaríkjunum, en stjórnvöld í Peking bönnuðu nýlega starfsemi Falun Gong. Sögðu talsmenn Interpol að beiðnin væri af pólitískum rót- um runninn og lögreglan gætí þvi ekki orðið við henni. Habibie stað- festir kosn- ingaúrslit B.J. HABIBIE, forseti Indónesíu, staðfesti í gær úr- slit þingkosninganna sem fram fóru 7. júní síðastliðinn og eru þar með engar hindranir leng- ur í veginum fyrir því að for- setakosningar verði haldnar í landinu í nóvember. Stjórn- málaleiðtogar fögnuðu mjög ákvörðun Habibies og sögðu hana einu leiðina til að koma í veg fyrir pólitískt uppnám og binda enda á langt óvissutíma- bil við stjórnun landsins, sem m.a. hafði haft slæm áhrif á fjármálamarkaði í Jakarta. Vopnafrum- varp samþykkt LAGAFRUMVARP, sem bannar dreifingu upplýsinga um vopn, sem telja má hugsuð til gereyðingar, bíður nú undir- skriftar Bills Clintons Banda- ríkjaforseta en lögin voru sam- þykkt í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings á mánudag. Gætu þeir sem gerast brotlegir við lögin átt von á allt að tuttugu ára fangelsisdómi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.