Morgunblaðið - 04.08.1999, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Framkvæmd Wye-samkomulagsins
Vill lokaáfang-
ann í febrúar
Jcrúsalcm. Reuters.
FRIÐARUMLEITANIR Israela
og Palestínumanna virðast nú vera
komnar í hnút eftir að samningavið-
ræður þeirra um framkvæmd síð-
asta friðarsamkomulags þeirra fóru
út um þúfur um helgina. Embættis-
menn Ehuds Baraks, forsætisráð-
herra Israels, sögðu í gær að hann
vildi fresta því að koma lokaáfanga
samkomulagsins í framkvæmd þar
til í febrúar, en því hafa Palestínu-
menn hafnað.
Barak lét í fyrsta sinn í ljós óá-
nægju með andstöðu Palestínu-
manna við tillögu hans um að lokaá-
fanga Wye-samkomulagsins svo-
kallaða yrði frestað þar til sam-
komulag næðist í viðræðunum um
endanlega stöðu palestínsku sjálf-
stjómarsvæðanna. Forsætisráð-
herrann sakaði Palestínumenn um
þvergirðing í deilunni.
Barak áréttaði í Moskvu eftir
fund með rússneskum ráðamönnum
á mánudag að Israelar hygðust
koma öllu Wye-samkomulaginu í
framkvæmd en ætluðust til þess að
Palestínumenn hugleiddu beiðni
hans um að fresta lokaáfanganum.
,AHar tilraunir til að torvelda eða
hindra þessa málamiðlun eru óskilj-
anlegar.“
Framkvæmdin taki fimm
mánuði í stað 12 vikna
Yassar Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sakaði ísraela um að reyna
að víkja sér undan því að virða frið-
arsamkomulagið. „Þetta staðfestir
það sem ég hef alltaf sagt, að þetta
sé tilraun til að komast hjá því að
virða gerða samninga.“
Samkvæmt samkomulaginu eiga
Israelar að láta 13% Vesturbakkans
af hendi í þremur áföngum á tólf
vikum gegn því að Palestínumenn
skeri upp herör gegn hermdar-
verkamönnum. Forveri Baraks,
Benjamin Netanyahu, undirritaði
samkomulagið í október en frestaði
framkvæmd þess í desember vegna
meintra vanefnda Palestínumanna
eftir að hafa afhent þeim 2% Vest-
urbakkans.
Aðstoðarmenn Baraks sögðu í
gær að hann vildi að samkomulagið
tæki gildi 1. september, öðrum
áfanganum yrði lokið 1. október og
lokaáfanganum yrði síðan komið í
framkvæmd í febrúar. Samkvæmt
þessu á framkvæmd samkomulags-
ins að taka fimm mánuði, ekki tólf
vikur eins og gert var ráð fyrir í
samkomulaginu.
„Okkur hefur ekki verið skýrt frá
þessari áætlun og við föllumst ekki
á hana,“ sagði Mahmoud Abbas,
samningamaður Palestínumanna.
Palestínumenn hafa krafíst þess
að brottflutningur ísraelska herliðs-
ins frá Vesturbakkanum hefjist inn-
an þriggja vikna.
Barak telur að fresta þurfi loka-
áfanga samkomulagsins, sem verð-
ur til þess að nokkrar byggðir gyð-
inga einangrast, til að koma í veg
fyrir spennu á svæðinu sem gæti
dregið úr líkunum á því að hægt
yrði að ná varanlegu friðarsam-
komulagi.
Palestínumenn sögðu að þolin-
mæði þeirra væri á þrotum og
sökuðu Barak um tvöfeldni. „Op-
inberlega segist hann ekki ætla að
breyta Wye-samkomulaginu ef
Palestínumenn hafna því en á bak
við tjöldin hefur hann í hótunum
við okkur ef við samþykkjum ekki
tillögu hans,“ sagði Nabil Amr,
ráðherra í palestínsku heima-
stjórninni. „Hann reynir að beita
sama kænskubragði og Netanya-
hu með því að segjast ekki vilja
standa við samkomulagið vegna
gyðingabyggðanna. Þetta er óvið-
unandi."
Sir Michael Jackson og Wesley Clark deildu um viðbrögð
við innreið rússnesku hersveitarinnar til Kosovo
Yildi forða þriðju
heimsstyri öldinni
Washington. AFP.
SIR Michael Jackson, yfirmaður
KFOR, friðargæslusveita Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) í Kosovo,
neitaði að framfylgja tilskipunum
Wesleys Clarks, æðsta yfirmanns
NATO, er rússnesk hersveit hélt
fyrirvaralaust inn í Kosovo-hérað
og hertók flugvöllinn í Pristina, hér-
aðshöfuðborg Kosovo. Clark vildi að
Jackson beitti sveitum sínum til að
koma í veg fyrir að rússneska her-
sveitin yrði á undan NATO til að
hertaka flugvöllinn en Jackson -
sem á sama tíma stjómaði innreið
hersveita NATO inn í héraðið -
hafnaði skipunum Clarks vegna
hættunnar á gagnaðgerðum Rússa.
Að sögn bandaríska vikuritsins
Newsweek vildi Jackson ekki hætta
á þriðju heimsstyrjöldina.
„Eg mun ekki hefja þriðju heims-
styijöldina fyrir þig,“ átti Jackson að
hafa tjáð Clark er þeir áttu í orða-
skiptum vegna innreiðar rússnesku
hersveitarinnar. Telur Newsweek að
málið hafi komið af stað illdeilum á
milli hershöfðingjanna eftir að
Jackson neitaði að verða við skipun
Clarks um að senda árásarsveit til
flugvallarins í Pristina og hindra inn-
reið Rússanna.
Telur Newsweek að Clark hafi
verið svo umhugað um að vera á
undan Rússum til Pristina að hann
hafi - eftir að Jackson neitaði til-
skipuninni - farið þess á leit við
James Ellis, aðmírál og yfirmann
herafla NATO í suðurhluta Evrópu,
að hann skipaði herþyrlum að
fljúga til Pristina og lenda þar á
flugvellinum og koma þar með í veg
fyrir að Iljúsín-flutningavélar rúss-
Bad English can mean bad business!
But if you can easily spot ten English no-nos in the sample paragraph below, you
don't need us.
*Woolover is one of Iceland's oldest, largest and most respected wool producers. Our only ambition is
to offer high-quality wool to our customers. In fact, we deal in more than 50.000 pounds a month!
From the farmers which tend our sheeps in the fields to the people that staff the 28 offices in our new
house located in one of the most beautiful parts of Iceland, we welcome your business. As President, I
invite you to call me personally for a copy of our new video brochure and price list - or just to say
hello! If I'm out of town or on a meeting, ask my secretary to page me and I'll retum your call after
one hour. I'm one of those people who is determined to make your call worth your while.
Unsure?
If you're dealing with the world - or would like to - don't let flawed or awkward
English distract the world from your message!
Iceland fínally has one authoritative central stop for English. Be it British,
American or generic. Everything from translation to proof-reading to polishing to
copywriting to localization to narration.
* A list of ten instances of unsound English usage in the sample paragraph above is available for the
asking. If you caught them all correctly, ask us for a job.
The English Language Center/re . Ensk málstöð ehf
Hafnarstræti 19 • 101 Reykjavík • Sími/Phone: (+354) 552 3900
english@islandia.is • www.englishwise.com
Slæm enska getur jafngilt slæmu gengi í viðskiptum!
Ef þú getur auðveldlega fundið tíu dæmi um vonda enska málnotkun í efnisgreininni hér fyrir neðan þarft þú ekki á þjónustu
okkar að halda.
*Woolover is one of Iceland's...
(Efnisureinin hér að ofan skvrir sis siálf oe óþarfí að bvða hana á brenelaðu íslensku. Alhs. Mbl.i
Ertu ekki viss?
Ef þú vilt ná til fólks ættir þú ekki að iáta slæma ensku eða stirðbusalega málnotkun draga athyglina frá því sem máli
skiptir, skilaboðunum sjálfum.
Heildarlausn á ensku er nú loks fáanleg á íslandi, hvort sem um er að ræða ameríska, breska eða almenna ensku. Við þýðum,
prófarkalesum, fínpússum og lagfcerum, skrifum auglýsinga- og kynningartexta og aðlögum texta að málsvæðum. Auk þess
höfum við afar færa þuli og upplesara.
* Þú getur fcngið lista hjá okkur yfir gildrurnar tíu úr efnisgreininni hér að ofan. Ef þú varst með allt rétt getur þú sótt um starf hjá okkur.
Reuters
SIR Michael Jackson, yfirmaður friðargæslusveita NATO í Kosovo, og
Wesley Clark, hershöfðingi og yfirmaður herafla NATO.
neska hersins gætu lent. Ellis hafn-
aði fyrirskipun Clarks með þeim
rökum að Jackson myndi ekki falla
aðgerðin í geð.
Fóru báðir fram á
pólitískan stuðning
Telur Newsweek að bæði
Jackson, sem er Breti, og Clark,
sem er Bandaríkjamaður, hafi farið
fram á stuðning stjórnvalda í
heimalöndum þeirra, en eingöngu
Jackson hafi fengið pólitskan stuðn-
ing. Clark hafi ekki fengið þann
stuðning sem til þurfti og því hafi
tilskipanir hans verið afturkallaðar.
Fréttin um deilur þeirra
Jacksons og Clarks kemur aðeins
um viku eftir að það fregnaðist að
Clark myndi hætta störfum sem yf-
irmaður herafla NATO þremur
mánuðum fyrr en starfssamningur
hans sagði til um. Hefur Newsweek
það eftir ónafngreindum heimildar-
mönnum innan bandaríska varnar-
málaráðuneytisins að fregnir þess
efnis að hann yrði að hætta í núver-
„Kæri George,
þinn Bill“
ÞÖKK sé bandarískum upplýs-
ingalögum geta áhugasamir nú
lesið á Netinu hve náin vinarhót
varnarmálaráðherrar Bretlands
og Bandaríkjanna, þeir George
Robertson og William Cohen,
hafa tíðkað að sýna hvor öðrum í
bréfaskiptum sínum.
Brezka dagblaðið The Guardi-
an kom höndum yfir bréfin í
krafti bandarískra upplýsinga-
laga og gerði almenningi þau að-
gengileg á Netinu í gær (á slóð-
inni:
www.newsunlimited.co. uk/kosov
o). Samkvæmt brezkum upplýs-
ingalögum þurfa að líða 30 ár áð-
ur en heimilt verður að svipta
hulu trúnaðarmálsflokkunar
stjórnarskjala af þeim.
Guardian bar vinarhót ráð-
herranna í bréfunum við það
samband sem Margaret
Thatcher, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Bretlands, hafði við
Ronald Reagan, þáverandi
Bandaríkjaforseta, og vel auglýst
vináttusamband þeirra Tonys
Blairs og Bills Clintons og
Cherie Blair og Hillary Clinton.
„Er þetta nánasta vináttusam-
bandið frá tímum Thatcher og
Reagans?" spyr blaðið. „Jafnast
Cohen
Robertson
það á við Tony og Bill? Er það
eins vinsamlegt og milli Hillary
og Cherie?"
í einu bréfinu, dagsettu 3.
febrúar 1999, tjáir Cohen Ro-
bertson eftirfarandi: „Ég er
þakklátur fyrir að þú skulir vera
jafn áreiðanleg uppspretta
skarpskyggnrar innsýnar sem
traustrar ráðgjafar.“
Og Robertson skrifar Cohen:
„I persónulegu tilliti langar mig
að segja þér, að það, að þú skulir
ávallt vera tilbúinn að veita okk-
ur allt sem okkur vanhagar um
og þín góðu ráð gerir sannarlega
gæfumuninn. Það er feikilega
hughreystandi að vita að við eig-
um traustan vin og bandamann
okkur við hlið, þegar við tökumst
á við verkefni þeirra erfiðu tíma
sem framundan eru.“
andi starfi, hefðu komið honum að
óvörum. Þá segir blaðið að Clark
hafi tjáð Henry Shelton, yfirmanni
sameinaðs herafla Bandaríkjanna,
sem tilkynnti Clark um ákvörðun
Bandaríkjastjómar, að hann liti svo
á að stjómvöld bæm ekki lengur
traust til hans.
Þá hafi það verið sem salt í sárin
að fregninni um starfslok Clarks
hafi verið lekið í Washington Post
innan við klukkustund eftir að um-
rætt símtal átti sér stað. Næsta dag
hafi fulltrúar Bandaríkjastjórnar
reynt að „bæta fyrir" ákvörðun sína
og hrósað Clark í hástert. Hafi
William Cohen vamarmálaráðherra
sagt t.a.m. að Clark biði sendiherra-
staða.
Háttsettur evrópskur embættis-
maður hjá NATO lýsti fregnunum
um starfslok Clarks sem „reið-
arslagi“ í viðtali við Newsweek. Al-
banar og Kosovo-Albanar hafi litið á
Clark sem þjóðhetju og íranska dag-
blaðið Le Monde hafi sagt að Clark
væri meðhöndlaður sem „ræfill".