Morgunblaðið - 04.08.1999, Qupperneq 54
* 54 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Tíðindalaust frá
VestQörðum?
NÝR sjávarútvegs-
ráðherra hefir nú lokið
yfirferð sinni um Vest-
firði og telur að at-
vinnuástand þar sé nú
öllu betra en hann
hafði búist við af frétt-
um fjölmiðla. Það veit
ekki á gott, að nýr ráð-
herra skuli sleginn
slíkri blindu á stað-
reyndir. Botnfiskveið-
ar á Vestfjörðum eru
nú aðallega bundnar
við smábáta, ýmist á
aflahámarki eða sókn-
ardögum, nú 23 á ári,
og mun mörgum þykja
erfitt úthaldið, þegar
ekki má vinna nema 23 daga á ári
og leggja þarf allt til. Einkennandi
við smábátaútgerð er að hún verð-
ur ekki stunduð samkvæmt núgild-
andi lögum nema hluta ársins, þeg-
ar vel viðrar. Er nokkur ástæða til
að stjómvöld séu að takmarka
þannig atvinnufrelsi manna, þvert
á ákvæði stjómarskrárinnar um
atvinnufrelsi? Stjórnunargleði
Sjávarútvegsráðuneytisins minnir
aðeins á sovéska stjórnunarhætti,
sem komið hafa Sovétríkjunum á
vonarvöl. Sextán ára reynzla af
kvótakerfinu sýnir að það er nú
langt komið með að leggja margar
byggðir landsins í auðn, ekki að-
eins á Vestfjörðum heldur víðsveg-
ar um allt land.
Fræknasti sigurvegari Alþingis-
kosninganna 8. maí, Guðjón A. Kri-
stjánsson, hefir lagt landsmönnum
til haldgóðar upplýsingar í blaða-
grein í Mbl. 13. júlí sl. bls. 40, um
togaraútgerð á Vest-
fjörðum á kvótatíma-
bilinu, sem hófst 1984.
Þá voru 12 togarar
gerðir út frá Vest-
fjörðum, sem lögðu
afla sinn á land til
vinnslu þar, með
kvóta, sem nú reiknast
29.699 tonn. Eftir að
Sléttanesið, áður á
Þingeyri, hefir nú ver-
ið selt með 1.188 tonna
úthlutuðum kvóta,
hafa 9 þessara togara
verið seldir frá Vest-
0nundur fjörðum alls með
Ásgeirsson 24.842 tonna kvóta,
eða 83,6% af afla þess-
Kvótakerfi
Sextán ára reynzla af
kvótakerfinu sýnir,
segir 0nundur As-
geirsson, að það er nú
langt komið með að
leggja margar byggðir
landsins í auðn.
ara skipa, sem annars hefðu farið
til vinnslu þar. Það var ekki von að
ráðherrann sæi þessi skip fyrir
vestan, því að þau eru öll horfin
þaðan. Eftir eru þrír togarar: Páll
Pálsson, Hnífsdal, 3.280 t., Bessi,
Súðavík, 1.144 t. og Framnes, áður
á Þingeyri, 433 t. alls 4.857 tonna
úthlutaðir kvótar eða 16,4%. Ráð-
herrann segir atvinnuástandið gott
fyrir vestan?
Eftir lagabreytinguna 1990 er
heimilt að selja kvóta sjálfstætt, án
skips. Þetta nefnist nú „frjálst
framsal" á kvótum. Umráð með
kvótum Básafells hf, á Isafirði og
Skagstrendings hf. á Skagaströnd
eru nú ekki lengur í höndum
heimamanna, og má því búast við
að þessir kvótar hverfi úr þessum
byggðarlögum fljótlega, kannske
næstu daga. Allt hefir þetta gerst
undir stjórn Sjálfstæðisflokksins,
sem tekið hefir að sé að fram-
kvæma eiginhagsmunastefnu
Framsóknarflokksins í fiskveiðun-
um, en framsóknarmenn hafa
grætt mest á kvótasölunum fram
til þessa. Ummæli þessa nýja ráð-
herra benda ekki til þess, að nein
breyting sé væntanleg hjá Sjálf-
stæðisflokknum. Þeir eru ánægðir
með að moka framsóknarflórinn.
Eignarkvótar voru í upphafi
seldir á minna en 250 kr/kg, en
seljast nú á yfir 800 kr/kg. Núvirði
brottseldra eignakvóta frá Vest-
fjörðum reiknast þannig 24.842
tonn x 800.000 kr/tonn eða 19,9
milljarðar. Árlegir leigukvótar, þ.e.
það verð sem þessir árlega úthlut-
uðu gjafakvótar seljast á nú miðað
við gangverð 120 kr/kg, nemur nú
2.981 milljónum króna. Þetta telur
Sjálfstæðisflokkurinn nú eðlileg
viðskipti, en skrattinn situr á fjós-
bitanum og hlær. I Rússlandi eru
menn nú farnir að leita að glæpon-
unum, sem komust yfir eignir Sov-
étsins sálaða fyrir lítið eða ekkert.
Ekkert slíkt gerist hér, því að ís-
lenzka sovétið lifir nefnilega enn
góðu lífi, og það undir vernd Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar.
Það er engin gagnbylting sýnileg
hér.
Höfundur er fv. forstjóri Oh's.
Baráttan um
útivistarsvæðin
heldur áfram
greiddi
Gœðavara
Gjafavara - matar- oij kaífislell.
Allir verðflokkar.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gidnni Versace.
V'VV-1 VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Pantaðu núna
* 555 2866
Kays - Argos - Panduro
B.Magnússon
Fax 565 2866 • bm@vortex.is
FYRIRÆTLANIR
meirihluta R-listans í
borgarstjórn Reykja-
víkur um að leyft verði
að byggja tvö stórhýsi
á 36.000 fermetra
svæði austast í Laugar-
dal hafa mætt vaxandi
andstöðu að undan-
fömu. Þessar áætlanir
skjóta skökku við á
tímum vakningar í um-
hverfismálum meðal al-
mennings og ganga
vafalítið þvert á vilja
meirihluta borgarbúa.
Enn sem komið er ’ rti fi ir
daufheyrist meirihluti a /
R-listans í Reykjavík Magnusson
við öllum ábendingum og mótmæl- verandi
um gegn þessum byggingaráform-
um. Vonandi sér vinstri meirihlut-
inn í borginni að sér í þessu máli svo
að forðast megi alvarlegt skipulags-
klúður í Laugardal, sem seint yrði
fyrirgefið.
Frá því að undirritaður kom til
starfa í borgarstjóm Reykjavíkur
íýrir níu ámm hefur hann beitt sér
fyrir vemdun og varðveislu útivist-
arsvæða á höfuðborgarsvæðinu og
að skammtímahagsmunir einstakra
sveitarfélaga víki fyrir heildarhags-
munum og langtímasjónarmiðum. Á
áranum 1992-1993 voru uppi áætl-
anir um að leggja mikilvæg útivist-
arsvæði, sem að mestu leyti lágu ut-
an yfirráðasvæðis Reykvíkinga,
undir sértæka starfsemi eða bygg-
ingarframkvæmdir. Ástæða er til
þess að rifja þessi mál upp nú, þeg-
ar baráttan fýrir vemdun Laugar-
dalsins stendur sem hæst.
Baráttan um útivistarsvæðið
í Fossvogsdal
Sumarið 1993 var deilt um hug-
myndir um gerð golfvallar á 14-15
hektara svæði í austurhluta Foss-
vogsdals. Fáir kjörnir fulltrúar
Reykvíkinga tóku einarða afstöðu í
þessu máli, sem kann að skýrast af
því, að meirihluti þessa svæðis er í
landi Kópavogs. Und-
irritaður beitti sér
mjög gegn þessum fyr-
irætlunum, jafnt innan
borgarstjómar sem ut-
an. Afstöðu minni til
þessa máls er m.a. lýst
í Morgunblaðsgrein frá
24. júlí 1993 undir heit-
inu „Utivist í Foss-
vogsdal".
Meirihluti skipulags-
nefndar Reykjavíkur
gerði ekki upp á milli
tillögu um almennt úti-
vistarsvæði í austur-
hluta Fossvogsdals og
tillögu um golfvöll, en
Guðrún Jónsdóttir, þá-
fulltrúi Nýs vettvangs,
atkvæði gegn þehri sam-
Umhverfismál
Baráttan um útivistar-
svæðin í Fossvogsdal
og á Seltjarnarnesi,
segir Olafur F. Magn-
ússon, heldur áfram í
Laugardalnum.
þykkt og lýsti sig alfarið á móti golf-
vallarhugmyndinni. Borgarráð sam-
þykkti síðan samhljóða tillögu
skipulagsnefndar um deiliskipulag í
Fossvogsdal. Áður hafði umhverfis-
málaráð mælt með golfvallarhug-
myndinni án mótatkvæða. Meintir
andstæðingar golfvallai-hugmynd-
arinnar í borgarráði og umhverfis-
málaráði létu sér nægja hjásetu og
bókun um að þeim litist betur á til-
lögu um almennt útivistarsvæði en
tillögu um golfvöll í Fossvogsdal.
Það kom því í hlut íbúa í Foss-
vogsdal að stöðva þessar fyrirætl-
anir og 3.500 manns tóku þátt í und-
irskriftasöfnun samtakanna „Líf í
Fossvogsdal" gegn golfvallargerð í
dalnum. Mótmælin skiluðu tilætluð-
um árangri.
Baráttan um vestursvæði
Seltjarnarness
Árið 1992 fór bæjarstjórinn á Sel-
tjarnarnesi, Sigurgeir Sigurðsson,
fyrir þeim sem vildu ganga á úti-
vistarsvæðið vestast á Seltjarnar-
nesi og leggja þar land undir stór-
tækar byggingarframkvæmdir.
Rætt var um allt að 96 húsa byggð á
þessu svæði! Þessi framkvæmd
hefði vissulega veitt miklu fé í bæj-
arsjóð Seltjarnamess, en fórnar-
kostnaðurinn var of mikill. Um
þessar fyrirætlanir vil ég endurtaka
stíhað?*
Fáðu þér þá brúsa af Fermitex og málið er leyst
Fermitex losar stiflur í frárennslispípum, salernum
og vöskum. Skaðlaust fyrir gler, postulín, plast og
flestar tegundir málma. Rjótvirk og
sótthreinsandi. Fœst í flestum byggingavöru-
verslunum og bensínstö^vum ESSO.