Morgunblaðið - 04.08.1999, Blaðsíða 64
64 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Ddmkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10 í safnaðarheimilinu. Orgel-
leikur á undan. Léttur málsverður
á eftir.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Árleg sumarferð
eldri borgara í Langholtssókn á
vegum Bæjarleiðabílstjóra og
Kvenfélags Langholtssóknar verð-
ur farin í dag kl. 13 frá safnaðar-
heimilinu.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma
567 0110.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Hafnarfjarðarkirkja. Kjrrrðar-
stund í hádegi í kirkjunni kl.
12-12.30. Æskulýðsstarf, eldri
deild kl. 20-22 í minni Hásölum.
Kl. 20-21.30 íhugun og samræður í
safnaðarheimilinu í Hafnarfjarðar-
kirkju. Leiðbeinendur RagnhOd
Hansen og sr. Gunnþór Ingason.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hdlaneskirkja, Skagaströnd.
Mömmumorgunn í Fellsborg kl.
10.
Frábær fyrirtæki
Verktakafyrirtæki á hjólum. Flytjanleg hvert sem er. Sami eigandi
um áraraðir. 4 menn í vinnu. Föst viðskiptasambönd. Næg atvinna.
Blússandi tekjur. Þarf ekki sérmenntun, aðeins fyrirhyggju og
dugnað.
2. Skyndibitastaður á frábærum stað — aðeins opinn til kl. 21. Lokaður
á sunnudögum. Mikil og gefandi velta. Góðar innréttingar. Góður
hagnaður samkv. reikningum. Skipti á fasteign í góðri leigu kemur
til greina. Það er ekki oft sem við fáum svona arðsöm fyrirtæki í
sölu og hvers vegna eru menn þá að selja? Því svörum við á
skrifstofunni.
3. Tölvufyrirtæki til sölu með eitt þekktasta merkið á markaðnum. Ótrú-
legir stækkunarmöguleikar og mikil veltuaukning. Góð skrifstofu-,
verslunar- og þjónustuaðstaða. Frábærviðbót við stærra tölvufyrir-
tæki. Sami eigandi í áratug.
4. Eitt snyrtilegasta og besttækjum búið innrömmunarfyrirtæki borgar-
innar til sölu. Mikið úrval af fallegum römmum. Innrammar og plastar.
Næg verkefni, svo þú getur unnið eins og þér sýnist og þénað meira
og meira og meira.
5. Þekkt skipasala til sölu með mikið af góðum samböndum. Einnig
góð bílasala, þekkt fasteignasala og kvótasala.
6. Þekkt vélsmiðja í eigin húsnæði til sölu. Þjónustar mikið sjávarútveg-
inn og mörg stór verkefni fylgja með. Vel tækjum búin og hefur 15
manns í vinnu, marga sérhæfða. Sérhæfir sig í ryðfríu stáli og nýsmíði.
Margir stórir fastir viðskiptavinir.
7. Höfum kaupanda að 300 fm húsnæði með góðum innkeyrsludyrum
fyrir mjög þrifalegan rekstur.
8. Höfum einnig góðar heildverslanir á skrá hjá okkur, litlar og stórar.
9. Aldrei meira úrval af frábærumfyrirtækjum á söluskrá og við aldrei
hressari, enda nýkomnir úr sumarfríi, sólbrúnir og fullir af orku.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUOtlRVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRIMSSON.
Útsalan
heldur
áfram
15%
aukaafsláttur
Tískuverslun • Kringlunni 8-12 •Sími 5533300
í DAG
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-13
frá mánudegi til föstudags
Rússneskir sjó-
menn beittir
mannréttinda-
brotum á íslandi?
ÉG SKAMMAST mín fyr-
ir að vera íslendingur
hvað varðar áhöfnina á
Odinskova. Skipið er búið
að vera hér við bryggju
síðan í febrúar og kemst
ekki á sjó vegna vélarbil-
unar. Áhöfnin hefur ekki
fengið laun síðan í febrúar
og ailir eru þeir fjölskyldu-
menn sem hafa ekki komið
til heimalands síns í 13
mánuði. Ég er dálítið
kunnug áhöfninni og eru
þetta mestu prúðmenni og
mjög kurteisir. Hér er ein
lítil dæmisaga. Einn úr
áhöfninni fékk skeyti út á
sjó eftir tvo og hálfan mán-
uð með þær sorglegu frétt-
ir að konan hans væri lát-
in. Þetta eru verstu fréttir
sem hægt er að fá einhvers
staðar fjarri heimalandi
smu og komast ekki heim.
Úgerðin neitaði að borga
ferðina til Litháen svo að
maðurinn hefur ekki séð
leiði konu sinnar og á þar
af leiðandi mjög erfitt með
að sætta sig við andlát
hennar. Hann á einn 15
ára gamlan son sem hann
hefur ekki séð í 13 mánuði.
Ég spyr: Er ekki kominn
tími til að íslensk stjóm-
völd grípi hér inn í og
hjálpi áhöfninni á Odin-
skova að ná fram rétti sín-
um því það er Islendingur
sem rekur skipið og hefur
komið fram við áhöfnina
eins og þræla?
Kæru Islendingar,
hjálpum þesum mönnum
að ná fram rétti sínum.
Bryndís E. Garðarsd.
Ósmekkleg
skopmynd
ÉG VIL koma á framfæri
hneykslun minni á skop-
mynd eftir Sigmund sem
birtist í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 28. júlí. Á
myndinni gerir hann m.a.
grín á mjög ósmekklegan
hátt að Ingibjörgu Sól-
rúnu borgarstjóra. Pinnst
mér Sigmund ganga
þama of langt og sýna
Ingibjörgu og öðrum kon-
um lítilsvirðingu. Vil ég
hvetja aðrar konur til að
láta í ljós vanþóknun sína
á svona myndum.
051035-4539.
Stuðningnr
við skrif
ÉG VIL lýsa yfir stuðn-
ingi mínum við skrif sem
hafa verið um bygginga-
framkvæmdir í Laugar-
dalnum. Finnst mér það
algjört glapræði að vera
að byggja þama. Það þarf
ekki að þétta byggðina í
Laugardalnum, það þarf
að stækka Húsdýra- og
fjölskyldugarðinn en ekki
að þétta byggðina í Laug-
ardalnum. Við það eykst
umferðin og mengunin
verður meiri. Vil ég hvetja
fólk til að koma skoðun
sinni um þetta mál á
framfæri.
Ragnheiður.
Tapað/fundið
Myndavél týndist
MYNDAVÉL Canon
Prima týndist 15. júlí sl.
annaðhvort við Völvuleiði
eða á Reyðarfirði. Ef ein-
hver hefur fundið hana
vinsamlega sendið hana
þá til: Hlínar Gunnars-
dóttur, Arahólum 2, 111
Reykjavík.
Dýrahald
Þakklæti
fyrir kisu
HAFT var samband við
Velvakanda og hann beð-
inn um að koma á fram-
færi þakklæti til Margrét-
ar á Hlíðarvegi sem tók að
sér að hugsa um kisu sem
hafði verið týnd og lét
réttan eiganda vita um
kisuna. Sendir eigandi
kisunnar henni sitt besta
þakklæti.
Páfagaukur týndist
frá Efstasundi
PÁFAGAUKUR týndist
frá Efstasundi 66. Hann
er blár að lit, mjög gæfur,
heitir Hrekkur. Þeir sem
hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 695 4018.
STAÐAN kom upp á opnu
móti í Ljubljana í Slóveníu í
sumar. A. Kogan (2.505),
Israel, hafði hvítt og átti
llmsjón Margeir leik gegn heimamanninum
Pétnrsson V. Jakovljevic (2295)
Hvítur hefur náð að opna
h-línuna gegn
svarta kóngnum
og lagði nú til
glæsilegrar og
rökréttrar atlögu:
19. Rf51! - gxf5 20.
exf5 - exf5 21.
Rd5 - Dd8 22. Bd4
- He5 23. Bxe5 -
dxe5 24. Rf6+ -
Kf8 25. Dh8+! -
Bxh8 26. Hxh8+ -
Kg7 27. Hxd8 -
Rxf6 28. gxf6+ -
Kxf6 29. He8 og
HVÍTUR leikur og vinnur. svartur gafst upp.
HÖGNI HREKKVÍSI
Eq IdEfs&útona. arvm&knfusöoE-. „
cjnnC ut<xndncn-<Á< þgrwan, harhnyKit.
NlvAlv
Víkverji skrífar...
ENN einu sinni er verslunar-
mannahelgi að baki með öllu
tilheyrandi. Ekki er annað að sjá en
umferðin hafi gengið vel fyrir sig
,og útihátíðir virðast einnig hafa far-
ið vel og skikkanlega fram sam-
kvæmt fréttum. Nokkur fíkniefna-
mál setja þó blett á þær sem vitan-
lega er slæmt en hvarvetna þarf
vitaskuld að berjast gegn þeim vá-
gesti hvort sem það er á útihátíðum
eða öðrum stöðum.
Ástæða er til að fagna því að
umferðin gekk stórslysalaust. Hún
var mjög mikil í ákveðnum lands-
hlutum og þar reynir á ökumenn
að sýna þolinmæði þegar hægt
gengur, tillitssemi þegar eitthvað
bjátar á hjá hinum (það kemur
aldrei neitt fyrir mig!) og hafa bíl-
inn í lagi þannig að sem minnst
hætta sé á því að menn rati í
ógöngur.
Þetta er annars merkilegur siður
að þeysa úr þéttbýlinu um þessa
helgi og fara í þéttbýli annars stað-
ar. Helst þar sem flestir eru. Vera í
fjöldanum og taka þátt í sem æsi-
legastri hátíð. Þannig er það að
minnsta kosti hjá mörgum ung-
lingnum. Og merkilegt var að heyra
og næsta ógnvekjandi þegar ung-
lingarnir lýstu því hversu mikið
helgin kostar. Þar voru nefndar töl-
ur á bilinu 30 til 100 þúsund. Ekki
ódýr helgi það. Aðrir sem eru á ferð
reyna að fara um rólegri slóðir,
gjarnan til fjalla og enn aðrir kjósa
að vera um kyrrt, segja að þar sé
rólegast þessa helgi. Víkverji getur
tekið undir öll sjónarmið hvað þetta
varðar, hann hefur hagað sér eftir
aðstæðum heima fyrir hverju sinni
og hefur örlitla reynslu af hinum
ýmsu tilbrigðum þess hvernig
menn verja helginni. Það er allt
breytilegt eftir aldursskeiðum og
því hvað fjölskyldan vill. Aðalatrið-
ið er að menn dundi sér við það sem
þeir helst hafa ánægju af og uni
glaðir við sitt.
xxx
EKKI er Víkverja alveg ljóst
hvort landafræðin var ekki á
hreinu hjá fréttamönnum ríkisfjöl-
miðla eða hvort ákveðn staðhæfing
þeirra í fréttum um helgina síðustu
var staðreynd. Þeir sögðu sem sé
að samgöngur hefðu rofnað milli
Norðausturlands og Austurlands
þegar Kreppa flæddi niður um allar
sveitir og rauf vegi og tók af brýr.
Víkverja rekur minni til að hægt sé
að aka meðfram stöndinni allt frá
Kópaskeri, norður um Sléttu, með
viðkomu á Raufarhöfn, Þórshöfn,
Bakkagerði og Vopnafírði og síðan
um Hellisheiði eða upp á Möðru-
dalsöræfin og þaðan til Austur-
lands. Ekki er því alveg ljóst hvar
samgöngur rofnuðu milli áður-
nefndra landshluta nema þær
kunna hins vegar að hafa rofnað
milli vestari og eystri hluta Norð-
austurlands. Menn þurfa með öðr-
um orðum að vera nákvæmari í
svona lýsingum.
XXX
ILOKIN þykh- Víkverja rétt að
koma með áminningu til öku-
manna: Reynið að draga sem mest
úr lausagangi bíla. Það er hreinn
óvani og óþarfi að láta bílvélina
ganga, t.d. meðan beðið er eftir því
að einhver skreppi úr bflnum og inn
í búð eða annað í stutt erindi. Þetta
er óþarfa mengun og óþarfa hávaði.
Ekki síst í íbúðahverfum og ekki
síst að næturlagi. Það er argasti
dónaskapur að stöðva bflinn í
íbúðahverfi og láta samt vélina
ganga og jafnvel útvarpið líka með
hávaða meðan skroppið er inn í
nokkrar mínútur. Svona hugsunar-
leysi er óþarft.