Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 76
Heimavörn
Drögum næst
10. ágúst
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegasl til vinnings
Sími: 580 7000
MORGUNBLADW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Hlutabréf í FBA seld til Orca S.A. fyrir um fímm milljarða króna
Samherji, Jón Olafsson og Bón-
usfeðgar verða meðal hluthafa
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Orca S.A. í Lúxem-
borg hefur keypt dótturíyrirtæki Scandinavian
Holding S.A. í Lúxemborg, sem á 22,1% hlutafjár í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. Jafnframt
hefur Orca SA. keypt viðbótarhlutafé í FBA og
nemur hlutur þess í bankanum nú 26,5%. Scandin-
avian Holding er í eigu sparisjóðanna, Kaupþings
og Sparisjóðabankans. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru helztu eigendur Orca SA. eða
væntanlegir eigendur, þar sem í sumum tilvikum
hefur ekki verið gengið endanlega frá eignaraðild,
Samherji hf. á Akureyri eða helztu forsvarsmenn
þess, Jón Ólafsson, stjómarformaður Norðurljósa
hf., Pétur Björnsson, fyrrverandi aðaleigandi Vífíl-
fells hf., Jón Asgeir Jóhannesson og Jóhannes
Jónsson, helztu hluthafar í Baugi hf., og fleiri.
Verðmæti hlutar Orca S.A. miðað við markaðs-
verð FBA á verðbréfaþingi nemur rúmlega fimm
milljörðum króna. íslenzka ríkið er stærsti hlut-
hafinn í FBA og nemur eignarhluti þess 51%. Aðr-
ir stórir eignaraðilar að FBA eru sparisjóðimir.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins höfðu
forráðamenn FBA ástæðu til að ætla fyrir
nokkmm vikum, að eigendur Scandinavian Hold-
ing í Lúxemborg, þ.e. Kaupþing, sparisjóðirnir og
Sparisjóðabankinn, væra tilbúnir til að selja þann
hlut í FBA, sem skráður var á fyrirtækið í Lúxem-
borg og hófust viðræður um kaup á bréfunum milli
aðila. I kjölfar þess leituðu þeir til nokkurra fjár-
festa, sem lýstu áhuga á að kaupa þann hlut. Par
var m.a. um að ræða Hof hf., eignarhaldsfélag
Hagkaupsfjölskyldunnar, Kára Stefánsson og
Gunnar Björgvinsson, flugvélamiðlara í Liechten-
stein, en viðtal við hann birtist í Morgunblaðinu sl.
laugardag. Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var leitað til þessara fjárfesta með vitund
fulltrúa stærsta hluthafans, þ.e. ríkisins. Tilboði
þessara aðila var hins vegar hafnað. í ljósi fyrri
samskipta milli aðila mun það hafa komið forráða-
mönnum FBA og væntanlegra fjárfesta á óvart,
enda munu þeir hafa talið, að Kaupþing væri ekki í
viðræðum við aðra aðila á sama tíma.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins töldu
forráðamenn Kaupþings hins vegar, að verðhug-
myndir þessa hóps fjárfesta væra of langt frá því
verði, sem viðunandi væri fyrir sparisjóðina og
Kaupþing. Á svipuðum tíma hefðu nýir aðilar
komið til sögunnar og gert tilboð í hlut Scandinav-
ian Holding. Þeirra tilboði hefði því verið tekið.
Þar var um að ræða einhver ofangreindra fyrir-
tækja og einstaklinga, en síðan komu fleiri til sög-
unnar.
Fyrr á þessu ári munu hafa farið fram viðræður
á milli forsvarsmanna sparisjóðanna og annarra
fjármálastofnana og fjárfesta um að þessir aðilar
allir sameinuðust um kaup á hlutabréfiim ríkisins í
FBA. I hópi sparisjóðanna og Kaupþingsmanna
mun hins vegar hafa komið upp eindregin and-
staða við slíkar hugmyndir.
Fyrir síðustu áramót munu fulltrúar Kaupþings
hafa boðið hlut fyrirtækisins í FBA til sölu og leit-
að til nokkurra aðila í því sambandi. Sumum
þeirra þótti verðið of hátt og höfnuðu því m.a. á
þeim forsendum.
Verð á hlutabréfum í FBA hefur hækkað mjög
undanfarnar vikur og á verðbréfamarkaðnum hef-
ur þeirri skoðun verið lýst, að einhverjir aðilar
hafi stuðlað að því með markaðsaðgerðum, að
verðið hækkaði. Ljóst er að söluhagnaður af sölu
hlutabréfanna í FBA er mjög mikill.
I samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagði
Bjarni Armannsson, forstjóri FBA, að það væri
alls ekki rétt, sem fram hefði komið, að það væri
fjárfestingarhópur á vegum stjórnenda FBA sem
hefði keypt hlutabréfin. Vegna þeirrar stöðu, sem
nú væri komin upp, væri það dálítið ankannalegt,
að eigendur 26,5% hlutafjár í félaginu hefðu ekki
komið fram, en hann kvaðst treysta því, að það
mundi breytast á næstu dögum.
■ Eignarhaldsfélagið/20
Þormóður rammi
skoðar rekstur
á Húsavík
I viðræðum
við Fiskiðju-
samlagið
RÓBERT Guðfínnsson, stjórnar-
formaður Þormóðs ramma á
Siglufirði, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær að viðræður
um hugsanlegt samstarf fyrirtæk-
isins við Fiskiðjusamlag Húsavík-
ur stæðu nú yfir. „Enn liggur
ekkert fyrir, en við höfum áhuga á
að koma inn í reksturinn ef það
hentar báðum aðilum," segir Ró-
bert.
Hugsanlegt að styrkja
kvótastöðuna
Hann segir ekki standa til að
gera tilboð í Fiskiðjusamlagið. „Ef
þeir hafa áhuga á að vinna með
okkur, afgreiðum við það öðruvísi
en með tilboði, t.d. með því að
koma inn með nýtt hlutafé." Ró-
bert segir hugsanlegt samstarf fyr-
irtækjanna liggja í því að styrkja
kvótastöðu og skipastól Fiskiðju-
samlags Húsavíkur.
Mikill hiti
um allt land
ÞÚSUNDIR landsmanna hafa not-
ið góðs af blíðviðrinu undanfarið
og von til að þeir fái tækifæri til
þess áfram um sinn. Samkvæmt
veðurspá Veðurstofu íslands er
útlit fyrir hæga norðlæga eða
breytilega átt. Búist er við bjart-
viðri víða um land, en hætt við
þokulofti, einkum að næturlagi.
Hiti verður að líkindum 12 til 22
stig að deginum.
---------------------
Tvö íslensk
skip á leið í
Barentshaf
TOGARARNIR Margrét EA, sem er
í eigu Samherja, og Björgvin EA,
sem er gerður út af Snæfelli á Dal-
vík, héldu til veiða í Barentshaf um
helgina. Reiknað er með að skipin
verði komin á veiðisvæðið suður af
Bjarnarey á miðnætti í kvöld. Þar
hafa breskir togarar verið við veiðar
og samkvæmt fréttum hafa aflabrögð
þeirra verið skapleg.
Islensku skipin era með veiðileyfi í
norsku lögsögunni samkvæmt þrí-
hliða samningi Islendinga, Norð-
manna og Rússa um veiðamar. Enn
hafa ekki fengist tilskilin leyfi frá
rússneskum yfirvöldum um veiðar í
þeirra lögsögu.
Valdimar Bragason, útgerðarstjóri
Snæfells, sagði að fyrir utan fréttir af
aflabrögðum bresku togaranna hefði
lítið spurst út um veiði. „Við rennum
blint í sjóinn með þetta og við vitum
varla hvort þetta borgar sig. Ef veið-
in gengur vel borgar þetta sig.“
Björgvin EA má veiða 220 tonn af
óslægðum afla upp úr sjó.
Að sögn Valdimars munu fleiri ís-
lensk skip leggja í hann í þessari
viku. Hann segir að lítið hafi verið
um að útgerðir hafi boðið aflahlut-
deild sína til sölu. Greinilegt sé því að
menn hafi einhverja trú á þessum
veiðum. „Þeir sem ætluðu að selja frá
sér hlutdeildina þurftu að gera það
fyrir mánaðamótin og það gerði eng-
inn.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Stálsmiðjan og
Slippstöðin sameinast
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina
Stálsmiðjuna hf. í Reykjavík og
Slippstöðina hf. á Akureyri í nýju
hlutafélagi frá 31. ágúst næstkom-
andi. Hið nýja félag mun verða
stærsta málmiðnaðarfyrirtæki
landsins, með um 280 starfsmenn,
en ákvörðun um sameiningu er
tekin með fyrirvara um samþykki
hluthafafunda sem verða boðaðir á
næstunni.
Hluthafar í Stálsmiðjunni munu
eignast 54% hlutafjár í nýja félag-
inu og hluthafar í Slippstöðinni
46%. Stærsti hluthafi hins nýja fé-
lags verður Slippfélagið í Reykja-
vík hf. en það á 32% hlut í
Stálsmiðjunni og 30% hlut í Slipp-
stöðinni. Aðrir stórir hluthafar í fé-
laginu verða Burðarás hf., Marel
hf. og Málning hf. með tæplega
10% hlut hvert félag og Olíuversl-
un Islands hf. með um 5,7% hlut.
Fram kom á fréttamannafundi,
sem haldinn var í gær í tilefni af
sameiningu fyrirtækjanna, að
markmiðið væri að skapa öflugt
málmiðnaðarfyrirtæki sem væri í
stakk búið til að sækja fram á sviði
stóriðju og skipaþjónustu og
líklegt til að standast samkeppni
við erlenda keppinauta. Mark-
aðsvirði hins nýja fyrirtækis er
áætlað um 700 milljónir króna við
sameininguna en hún á sér stað
undir kennitölu Stálsmiðjunnar og
mun hið nýja félag því verða skráð
á Vaxtarlista Verðbréfaþings ís-
lands, eins og Stálsmiðjan hingað
til.
■ Verður stærsta/20
Banaslys við
Akranes
BANASLYS varð á vegamótum
Akranesvegar og Vesturlands-
vegar laust fyrir klukkan fimm
síðdegis í gær. Rákust þar sam-
an fólksbíll og flutningabfll og
lést ökumaður fólksbflsins.
Ökumaður fólksbílsins var
einn í bflnum. Lögreglan í
Borgamesi kom á vettvang og
auk hennar sjúkrabíll frá Aki-a-
nesi og tækjabfll frá lögregl-
unni á Akranesi. Tveir menn
vora í flutningabflnum og sak-
aði þá ekki. Gott veður var á
þessum slóðum í gær, bjart og
stillt. Ekki er unnt að greina frá
nafni hins látna.