Morgunblaðið - 25.08.1999, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
__________________FRETTIR
Tekist á um flug-
völlinn í borgarráði
BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð-
isflokksins létu bóka á fundi borgar-
ráðs í gær að yfirlýsing Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra
um Rey kj avíkurfl u gvöl 1 væri til
komin vegna óstjómar og ringulreið-
ar sem nú ríkti almennt í skipulags-
málum í Reykjavík. Borgarstjóri vís-
aði því á bug í sérstakri bókun þar
sem segir að ummæli samgönguráð-
herra um flugvöllinn beri þess
glöggt vitni að honum sé meira í
mun að blanda sér í pólitískt deilu-
mál í Reykjavík en gæta hagsmuna
umbjóðenda sinna í flugvallarmálinu.
I bókun borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins segir að R-listinn beri
Nafn manns-
ins sem lést
MAÐURINN, sem lést í fyrra-
dag er hann féll ofan í sprungu
á Skálafellsjökli, hét Philip
Klose og var 28 ára gamall
Þjóðverji.
Hann var í vélsleðaferð
ásamt fimm þýskum kvik-
myndatökumönnum, en tók sig
út úr hópnum með þeim afleið-
ingum að hann féll ofan í
sprunguna. Nánustu aðstand-
endum mannsins hefur verið
greint frá slysinu og komu full-
trúar þeirra til landsins í gær.
fulla ábyrgð á framkvæmdum og
endurbyggingu Reykjavíkurflug-
vallar. „Undir forystu borgarstjóra
var nýlega samþykkt deiliskipulag
að flugvallarsvæðinu og Aðalskipu-
lag Reykjavíkur samþykkt fyrir
tæpum 2 árum festir flugvöllinn í
sessi til næstu 20 ára. Tillaga borg-
arstjóra nú um að efna til atkvæða-
greiðslu meðal borgarbúa um fram-
tíð Reykjavíkurflugvallar er ein-
ungis sett fram í þeim tilgangi að
slá ryki í augu borgarbúa.
Fluttu tillögu um að
færa flugvöllinn
Þegar vinstri flokkamir voru í
minnihluta í borgarstjóm 1982 til
1994 lögðu þeir ítrekað fram tillög-
ur um að leggja Reykjavíkurflug-
völl niður og flytja innanlandsflugið
til Keflavíkur eða byggja nýjan
flugvöll fyrir innanlandsflugið án
þess að nefna sérstakan stað í því
sambandi. Nú hafa fulltrúar þess-
ara sömu flokka haft meirihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur í 5 ár en
ekkert aðhafst í málinu heldur
þvert á móti fest flugvöllinn í sessi
til 20 ára með samþykkt Aðalskipu-
lags Reykjavíkur til 20 ára.
Ef hugur hefði fylgt máli hefði R-
listanum verið í lófa lagið að efna til
atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa
um framtíð flugvallarins áður en
Aðalskipulag Reykjavíkur var sam-
þykkt og deiliskipulag flugvallarins
fyrir nokkrum mánuðum. Það gerði
R-listinn ekki.“
I bókun borgarstjóra segir: „Það
er að vonum að sjálfstæðismenn í
borgarstjóm Reykjavíkur og sam-
gönguráðherra snúi bökum saman í
flugvallarmálinu. Ummæli ráðherr-
ans í því máli að undanfömu hafa
borið þess glöggt vitni að honum er
meira í mun að blanda sér í pólitískt
deilumál í Reykjavík en að gæta
hagsmuna umbjóðenda sinna í flug-
vallarmálinu. Það skal þá svo vera.“
Ingibjörg Sólrún segir að allt frá
árinu 1985 hafi það verið talið brýn-
asta verkefni í flugmálum að gera
endurbætur á flugbrautum Reykja-
víkurflugvallar. Ekki hafi fengist
fjármunir til þess, en ekki sé verj-
andi út frá öryggissjónarmiðum að
draga það lengur. Það sé hins vegar
sjálfstætt mat flugvallaryfirvalda
hversu miklum fjármunum þurfi að
verja til verkefnisins til að koma
brautunum í nothæft ástand.
Borgarstjóri segir einnig að sam-
komulag borgarstjóra og sam-
gönguráðherra hafi gengið út á að
forsenda fyrir því að borgin sam-
þykkti breytingar á skipulagi flug-
vallarins, sem samgönguyfirvöld
óskuðu eftir, væri að séð yrði til
þess að dregið yrði úr neikvæðum
umhverfisáhrifum flugumferðar
m.a. með því að snertilendingar í
æfingar- og kennsluflugi flyttust frá
flugvellinum.
Könnun Gallups á fylgi flokkanna
Rrkisstjórnin
bætir við sig
SAMKVÆMT niðurstöðum síma-
könnunar Gallups fengi Sjálfstæð-
isflokkurinn tæplega 48% fylgi ef
gengið væri til kosninga núna og
Framsóknarflokkurinn fengi
19,5%. Könnunin fór fram frá 15.
júlí til 5. ágúst sl. og samkvæmt
henni auka allir flokkar við fylgi sitt
miðað við seinustu könnun nema
Vinstri hreyfingin - grænt framboð.
Samfylkingin er með svipað fylgi
nú og Framsóknarflokkurinn eða
um 19% en Vinstri hreyfingin -
grænt framboð mældist með 9,6%
fylgi. Frjálslyndi flokkurinn fengi
rösklega 2%, sem er minna en í
seinustu könnun Gallups en mun-
urinn er þó innan skekkjumarka.
Samkvæmt könnuninni er stuðn-
ingur við ríkisstjórnina einn sá
mesti sem mælst hefur samkvæmt
könnunum Gallups, en alls sögðust
74,5% styðja stjórnina. Úrtakið var
1.131 manns á landinu öllu, á aldr-
inum 18 til 75 ára. Tæplega 22%
voru óákveðin eða neituðu að
svara, en 5,5% sögðust ekki myndu
kjósa eða skila auðu.
Fýluferð eftir brotn-
um ferðamanni
BJÖRGUNARSVEITIN á Seyðis-
firði var kölluð út um miðjan dag í
gær eftir að tilkynnt hafði verið um
erlenda ferðakonu sem fallið hafði
af hestbaki í Loðmundarfirði með
þeim afleiðingum að hún viðbeins-
brotnaði.
Haft var samband frá gistiheimil-
inu í Stakkahlíð í Loðmundarfirði
og tilkynnt um að konan hefði fallið
af baki. Björgunarsveitarmenn
héldu tafarlaust af stað sjóleiðina en
um fýluferð reyndist að ræða því að
búið var að flytja konuna af slysstað
með bifreið þegar þeir tóku land í
Loðmundarfirði.
Erfiðari leið farin
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Egilsstöðum komu
björgunarsveitarmenn aftur til
Seyðisfjarðar um klukkan 18.20 en
þá var konan ekki enn komin á
sjúkrahúsið á Egilsstöðum enda
mun lengra og erfiðara að fara land-
leiðina til Egilsstaða frá Loðmund-
arfirði heldur en sjóleiðina til Seyð-
isfjarðar. Að mati lögreglu hefur
það væntanlega bakað konunni
meiri þjáningar að aka með hana
heldur en bíða björgunarsveitar-
manna.
Halldór Asgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknaflokksins, um málefm FBA
Utilokað
að selja
einum aðila
Morgunblaðið/Jim Smart
Á landsstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær sátu ráðherrar flokksins, að frátöldum umhverfisráðherra,
fyrir svörum. Frá vinstri: Guðni Ágústsson, Páll Pétursson, Halldór Ásgrímsson, Hjálmar Árnason, varafor-
maður þingflokksins, Finnur Ingólfsson og Ingibjörg Pálmadóttir.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanrík-
isráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, kveðst telja útilokað að
eignarhlutur ríkisins í Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins yrði seldur
einum aðila, þar sem sjálfstæði
bankans væri þá í húfi. Til greina
kæmi hins vegar að selja allan
hlutinn, 51%, samtímis.
Halldór lét þessi ummæli falla á
haustfundi þingflokks og lands-
stjórn Framsóknarflokksins í gær í
Svartsengi. Hann kvaðst hins veg-
ar telja koma til greina að allur
hluti ríkisins fari á markað í einu,
en um leið yrði lögð áhersla á að
tryggja dreifða eignaraðild í bank-
anum, þó svo ekki yrðu sett um það
sérstök lög.
Sjálfstæði FBA í húfi
„Þegar við lögðum af stað með
sölu FBA var lagt til grundvallar
að tryggja sjálfstæði hans. Ég tel
að þetta sjálfstæði væri ekki leng-
ur fyrir hendi og ekki til staðar
dreifð völd í bankanum ef hlutur
nkisins væri seldur einum aðila.
Ég tel það koma til greina að selja
allt á sama tíma, en tel það ekki
samrýmast stefnu okkar að selja
einum aðila,“ sagði Halldór í sam-
tali við Morgunblaðið. „Við höfum
ekki skilið forsætisráðherra svo að
hann vilji selja einum aðila heldur
allt samtímis og það kemur til
greina af okkar hálfu.“
Finnur Ingólfsson viðskiptaráð-
herra benti á það á fundinum að
gert hefði verið ráð fyrir sölu bréf-
anna í FBA í fjárlögum þessa árs,
og því myndi niðurstaða fjárlaga í
árslok vera með öðrum hætti en
reiknað var með, fái ríkið ekld tekj-
ur af sölunni. Halldór kveðst telja
skipta höfuðmáli nú að friður skap-
ist um FBA þannig að bankinn geti
áfram byggt upp það traust sem
hann hefur notið. Þá kveðst Hall-
dór telja koma til greina að fresta
sölu á eignarhlut ríkisins í FBA
fram á næsta ár.
„Við viljum auðvitað standa við
forsendur fjárlaga og teljum heppi-
legt að salan nái fram að ganga hið
fyrsta, en þó að salan dragist eitt-
hvað erum við ekki að missa af
neinu. Þetta er spurning um mark-
aðsaðstæður og að fá hagkvæm-
asta verð fyrir bankann. Það er
mikilvægt að ljúka málinu og mjög
mikilvægt að engin óvissa sé í þeim
efnum. Övissa um framtíðina rýrir
verðgildi bankans,“ segir Halldór.
Hann kveðst telja að framhald
þeirrar umræðu sem staðið hefur
yfir um málefni FBA bæti ekki
ástand mála og brýnt sé að niður-
staða fáist sem fyrst til að sátt ríki.
Myndi kalla
á eftirlitskerfi
Finnur kvaðst telja of marga
ókosti samfara því að binda dreifða
eignaraðild í fjármálastofnunum í
lög vegna margra ókosta sem því
fylgdi. Slíkt kallaði m.a. á dýrt og
flókið eftirlitskerfi, nánast rúss-
neskt kerfi, sem ætti illa við í nú-
tímaviðskiptum. Þá myndu hömlur
á sölunni valda verðfalli á eigninni.
Á fundinum spunnust talsverð-
ar umræðum um virkjanaáform á
Austurlandi og ítrekaði Halldór þá
skoðun sína að það væri mikill
misskilningur sem upp hefði kom-
ið, að ekki hefði farið fram um-
hverfismat á Fljótsdalsvirkjun.
„Ég fullyrði að ekkert mannvirki
frá upphafi byggðar hérlendis hafi
gengið í gegnum jafnmikinn
hreinsunareld og þessi bygging.
Sú vinna hefur staðið í tuttugu ár
og að henni hafa komið allir helstu
sérfræðingar landsins, þar á með-
al menn sem eru harðir andstæð-
ingar hennar. Mat hefur átt sér
stað og á sér enn stað, en á grund-
velli þeirra, laga sem þá voru í
gildi. Alþingi ákveður hins vegar í
hvaða farvegi þessi mál verða,“
sagði Halldór.
Mat notað vísvitandi
Hann kvaðst jafnframt þeirrar
skoðunar að andstæðingar virkj-
anaáfoima hefðu vísvitandi notað
kröfu um umhverfismat til að
reyna að koma í veg fyrir fram-
kvæmdina. „Við munum senda
skýi-slu Landsvirkjunar, sem von-
andi kemur í október, beint til Al-
þingis og Alþingi tekur ákvörðun
um hvernig afgreiðslu verður hátt-
að. Ef það verður hins vegar
ákveðið að taka málið til frekari at-
hugunar þýðir það töf sem tekur að
minnsta kosti á annað ár og fleiri
þúsund kærur munu berast því
kærufrestur verður rýmkaður.
Menn verða að hafa í huga að við
stöndum í samningum við aðila og
höfum gengist undir ákveðnar
skuldbindingar. Hvað verður um
traust íslands í slíkum viðskipt-
um?“ sagði hann.
Finnur kvaðst þeiiTar skoðunar
að ef ekki verði virkjað á Eyja-
bökkum sé verið að útiloka nýtingu
þriðjungs af vatnsafli á landinu,
þar sem þá sé búið að afskrifa allar
virkjanir norðan Vatnajökuls. „Það
mun aldrei borga sig að flytja alla
þessa orku þvert yfir hálendið til
Suðurlands, þannig að ef hún verð-
ur ekki nýtt fyrir austan verður
hún ekki nýtt,“ sagði Finnur.
Hann kvaðst eiga von á að um-
ræða um þessi mál verði hörð
áfram en hann telji að leiða ætti
hana til lykta sem fyrst. Þá vék
hann að sjónarmiðum þeirra sem
hafa lagt áherslu á fegurð á þeim
slóðum sem um ræðir. „Ég er
sannfærður um að það verði ekki
ljótara á þessu svæði eftir að búið
er að fylla þessa kvos af vatni.
Menn sætta sig við þetta þegar
framkvæmdum er lokið,“ sagði
hann.