Morgunblaðið - 25.08.1999, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
MORGUNBLADIÐ
AKUREYRI
Færri á atvinnu-
leysisskrá en í fyrra
ATVINNUASTAND á Norðurlandi
eystra virðist vera nokkuð gott ef
miðað er við tölur á atvinnuleysis-
skrá. Um síðustu mánaðamót voru
266 einstaklingar á atvinnuleysis-
skrá en þeir voru 419 á sama tíma í
fyrra. Reyndar þarf að fara alla leið
aftur til ársins 1990 til að finna
lægri tölu en nú sést á atvinnuleys-
isskrá á þessu svæði. Hins vegar
sagði Helena Karlsdóttir hjá Svæð-
isvinnumiðlun Norðurlands eystra
að á þessum tíma væri atvinnuá-
stand oft betra en á vetuma og
kæmi t.d. til vegna sláturtíðar í slát-
urhúsum. Þá færi atvinnulausum
aftur fjölgandi í október og þegar
liði á veturinn. Eins væri stóra
spumingin hvað gerðist í kjölfar
uppsagna sem senn taka líklega
gildi í Skinnaiðnaði, Húsasmiðjunni,
Slippstöðinni og hjá Sæunni Áxels í
Ólafsfírði.
Spurning með uppsagnir
Helena segir samt ljóst að
ástandið er betra heldur en það hef-
ur verið undanfarin ár, það sýni töl-
ur á atvinnuleysisskrá um síðustu
mánaðamót. „Það er náttúralega
spuming hvað gerist þegar slátur-
tíðinni lýkur og ef uppsagnimar
taka gildi. Maður veit ekki hvort
það skiiar sér tO okkar eða hvort
þeir starfsmenn hafa þegar fengið
vinnu annars staðar," sagði Helena.
Haust- og vetrarstarf Sigurhæða að hefjast
Fjallað um Vísnabók
Guðbrands biskups
HAUST- og vetrarstarfið á Sigur-
hæðum - Húsi skáldsins hefst í
kvöld, miðvikudag, en kl. 20 fjallar
Kristján Eiríksson um hina merku
Vísnabók, sem Guðbrandur Þor-
láksson biskup gaf út á Hólum árið
1612. Hún hefur aðeins verið end-
urútgefin einu sinni og auk þess
Ijósprentuð en Kristján vinnur nú
ásamt Jóni Torfasyni að þriðju út-
gáfu hennar á vegum Bókmennta-
stofnunar Háskóla íslands.
í kynningunni, sem er öllum op-
in, mun Kristján jöfnum höndum
fara með vel þekktan sem miður
kunnan kveðskap sem var í Vísna-
bókinni fyrsta sinni fram borinn á
prenti, íslenskum almenningi til
fróðleiks og skemmtunar svo sem
guði myndi þóknanlegt, eins og
segir í fréttatilkynningu frá Sigur-
hæðum. Einnig gerir hann nokkra
grein fyrir helstu nýmælum í með-
ferð bragar sem þar er að finna og
síðan hafa orðið lífseig.
Fræðimaður og kennari
Kristján Eiríksson er Skagfirð-
ingu, uppalinn í Pagranesi. Hann
er cand.mag. í íslenskum fræðum
frá HI og hefur lengi sinnt
kennslu, m.a. við ML og verið
lektor í Björgvin í Noregi. Jafn-
framt hefur hann stundað fræði-
störf og gefið út bækur, þ.ám.
Máltækni og Stíltækni. Kristján
er kvæntur Sigurborgu Hilmars-
dóttur, sem einnig hefur erjað ak-
ur íslenskra fræða. Undanfarnar
vikur hafa þau hjón dvalist í lista-
og fræðimannsíbúðinni í Davíðs-
húsi á Akureyri.
Deiliskipulag á reit ii við Holtateig á Eyrarlandsholti
Með vísan til greinar 6.2.3 [ skipulagsreglugerð auglýsir Akureyrar-
bær deiliskipulag á reit II við Holtateig á Eyrarlandsholti. Skipulags-
svæðið afmarkast af Mýrarvegi að austan og norðan og Holtateigi
að vestan. í tillögunni er gert ráð fyrir þremur raðhúsum á einni hæð
og tveimur tveggja hæða fjölbýlishúsum. Á skipulagssvæðinu verða
samtals 19 íbúðir.
Uppdráttur er sýnir tillöguna ásamt skýringarmyndum og greinar-
gerð liggur frammi almenningi til sýnis á Skipulagsdeild Akureyrar-
bæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar
auglýsingar, þ.e. til miðvikudagsins 6. október 1999, þannig að þeir
sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athuga-
semdir. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 miðvikudaginn 6.
október 1999. Athugasemdum skal skila til Skipulagsdeildar Akur-
eyrarbæjar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilgreinds frests
teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Akureyrar
Hún segist ekki eiga von á stór-
vægilegum breytingum en vonast til
að ástandið verði heldur betra en
það var í fyrra. Til samanburðar má
nefna að árið 1998 voru 328 á at-
vinnuleysisskrá í lok september en
377 vom á sama tíma árið 1997. Út-
lit er fyrir að þeir verði heldur færri
í ár, en um það er ekki gott að spá,
að sögn Helenu.
Vant fólk fæst ekki til starfa
Óli Valdimarsson, sláturhússtjóri
sláturhúss KEA, sagði að ekki væri
enn komið í ljós hvemig gengi að
manna stöður í sauðfjárslátrun.
Hann sagði að það væri búið að
auglýsa og eitthvað hefði verið
spurst fyrir en þetta kæmi ekki í
ljós fyrr en eftir helgina þegar fyr-
irtækið færi að hringja í þá sem
þegar hefðu skráð sig. „Jú, það
hafa nokkuð margir spurst fyrir, en
vandinn er að fá vant fólk, það
reynist orðið erfitt. Málið er að áð-
ur fyrr var það fólk úr sveitunum
sem kom hér vant inn til starfa í
sláturtíðinni en nú búa orðið svo fá-
ir í sveitunum að menn komast
bara ekki orðið burt til vinnu eins
og áður,“ sagði Óli.
Óli sagði að sem betur fer hefði
eitthvað af fólki komið að máli við
sig sem hefði starfað áður við slát-
urhúsið. Hann sagði samt að ein-
ungis 800 lömbum yrði slátrað á dag
í stað 1.200 vegna þess að ekki fæst
nóg af vönu fólki. Þess má geta að
sláturtíðin hefst 9. september og
stendur líklega til 20. október.
Morgunblaðið/Páll A. Pálsson
íslandsmeistarar í Sjóstangaveiði árið 1999: Sigfríð Valdimarsdóttir
og Árni Halldórsson, bæði úr SJÓAK.
Sj óstangaveiðimót
SJÓAK
UM HELGINA hélt SJÓAK
(Sjóstangaveiðifélag Akureyrar)
sjóstangaveiðimót og var það
jafnframt síðasta stigamót sum-
arsins til Islandsmeistaratitils.
Að mótinu loknu var það tjóst að
Árni Halldórsson frá SJÓAK var
Islandsmeistari karla með 760
stig en Sigfríð Valdimarsdóttir,
einnig frá SJÓAK, var íslands-
meistari kvenna með 778 stig.
Helstuúrslit á mótinu um helgina
urðu ahnars þau að Árni Hall-
dórsson var aflahæstur karla en
Guðlaug Karlsdóttir, SJÓAK, var
aflahæst kvenna. Árni veiddi
einnig fíesta fiska en Skarphéðinn
Ásbjömsson, Sjóstangaveiðifélagi
Siglufjarðar, veiddi flestar teg-
undir. Aflahæsti báturinn var hins
vegar Sigrún og skipstjóri Sig-
rúnar var Þórður Guðmundsson.
Sveitarfélög í Eyjafírði halda aðalfund í Grímsey
Staða byggðasvæða
verði skilgreind
Grímsey/Morgnnblaðið
AÐALFUNDI Eyþings, og Þing-
eyjarsýslum, lauk í Grímsey sl.
föstudag, með áliti nefnda á fund-
armálum, afgreiðslu tillagna og
ályktana. Að sögn Péturs Þórs
Jónassonar, framkvæmdastjóra
Eyþings, voru aðalfundarfulltrúar
almennt ánægðir með fundinn en
hann sóttu um 50 manns.
Pétur Þór sagði að menn hefðu
verið sammála um að umræðan á
fundinum hefði verið góð og inn-
legg verið í þá átt sem stjómin
hafði átt von á. Á meðal fulltrúa
vora þingmenn Norðurlands
eystra, sem höfðu sýnt aðalfundi
Eyþings mikinn áhuga og var þetta
í fyrsta skipti sem þeir vora allir
saman komnir í Grímsey.
Fundinum lauk með ákvörðun
um næsta fundarstað, sem verður
Stóratjamarskóli í Ljósavatns-
hreppi. Enginn sérstakur dagur
var ákveðinn en aðalfund Eyþings
skal halda eigi síðar en 10. septem-
ber ár hvert.
Áfram unnið að aðgerðaáætlun
Aðgerðaáætlun Eyþings, sem
unnin var af Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri, var kynnt á
fundinum og tillögur í áætluninni í
heild sinni samþykktar. Ásgeir
Magnússon, bæjarfulltrúi á Akur-
eyri, kynnti álit nefndar sem fjall-
aði um áætlunina og sagði hann að
menn hefðu verið sammála um að
þar væri að finna gott innlegg
varðandi aðgerðir í byggðamálum.
„Nefndarmönnum finnst áætlun-
in að vísu taka mikið mið af Akur-
eyri og Eyjafjarðarsvæðinu en
telja brýnt að beina sjónum að
þessu svæði, sem þýðingarmiklu
svæði tO uppbyggingar. Nefndin er
sammála um tillögur og fól stjórn
sambandsins að vinna áfram að
gerð aðgerðaáætlunar fyrir Ey-
f Opinn fyrirlestur
hAskóunn
Á AKUOEVRI
Dr. Sunitha Gandhi kynnir:
„The Council for Global Education“
Fyrirlesturinn verður haldinn í Þingvallastræti 23,
stofu 14, fimmtudaginn 26. ágúst kl. 16.30.
Allir velkomnir.
Kennaradeild HA.
þing á grandvelli skýrslu Rann-
sóknarstofnunar Háskólans á
Ákureyri.“
Ásgeir sagði að við áframhald-
andi vinnu verði dregin upp heild-
armynd af svæðinu þar sem staða
einstakra byggðasvæða verði skil-
greind, þannig að ljóst sé hvernig
heildarappbygging svæðisins er
hugsuð. Hann sagði að leitað yrði
álits sveitarstjórna á svæðinu við
gerð aðgerðaáætlunarinnar þannig
að tryggt verði að þær standi að
baki Eyþingi við framkvæmd
hennar. Jafnframt var stjórninni
falið að vinna að þeim verkefnum
sem nefnd era í skýrslu RHA og
mikilvægt er að nái fram nú þegar.
Nýr aðalmaður
í stjórn
Stjórn Eyþings er kosin til
tveggja ára í senn og aðalmenn
sem kosnir voru í september í
fyrra eru: Kristján Þór Júlíusson,
Ákureyri, formaður, Guðný Sverr-
isdóttir, Grenivík, Gunnlaugur Júl-
íusson, Raufarhöfn, Kristján Ólafs-
son, Dalvík, og Skarphéðinn Sig-
urðsson, Bárðardal. Þó urðu breyt-
ingar á stjóm og varastjóm að
þessu sinni. Guðný H. Björnsdótt-
ir, Kelduneshreppi, tók sæti Gunn-
laugs Júlíussonar í aðalstjórn, Jak-
ob Björnsson, Akureyri, tók sæti
Sigfríðar Þorsteinsdóttur í vara-
stjórn og Henrý Ásgrímsson, Þórs-
hafnarhreppi, tók sæti Guðnýjar
H. Björnsdóttur í varastjórn.
Fulltráar á samráðsfundi Lands-
virkjunar til eins árs voru tilnefnd-
ir þeir Pétur Bolli Jóhannsson,
Hrísey, Kristján Snorrason, Dal-
víkurbyggð, Dagbjört Þyrí Þor-
varðardóttir, Húsavík, og Steindór
Sigurðsson, Öxarfjarðarhreppi.