Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Varnarmalaraðherra Breta aðlaður
Stjórnarand-
staðan mótmælir
London. Reuters.
BRESKA stjórnarandstaðan brást í
gær ókvæða við fregnum þess efnis
að George Robertson, varnarmála-
ráðherra Bretlands, sem senn tekur
við framkvæmdastjórastöðunni hjá
Atlantshafsbandalaginu (NATO),
hefði verið skipaður í lávarðadeild
breska þingsins en útnefningin veld-
ur því að boða verður til aukakosn-
inga um laust þingsæti hans í sept-
ember. Sögðu talsmenn stjórnar-
andstöðunnai- útnefningu Robert-
sons augljósa misnotkun á aðals-
kerfínu breska og sökuðu Tony Bla-
ir forsætisráðherra um „ótrúlegt
siðleysi".
Talsmenn Skoska þjóðarflokksins
(SNP) fordæmdu útnefninguna en
hún veldur því sjálfkrafa að boða
þarf til aukakosninga, og munu þær
verða 23. september næstkomandi,
sama daginn og SNP ætlar að halda
árlegt flokksþing sitt. SNP er helsti
keppinautur Verkamannaflokksins í
kjördæmi Robertsons í Hamilton í
Skotlandi og sökuðu þeir bresku
stjórnina um að misnota sér réttinn
til að útnefna menn í lávarðadeildina
til að tryggja hag sinn í aukakosn-
ingunum.
Þar sem Robertson - sem nú ber
titilinn Robertson lávarður af Port
Ellen - var útnefndur næsti fram-
kvæmdastjóri NATO á meðan
breska þingið var í þinghléi gat
hann ekki sagt af sér þingmennsku
fyrr en þing kæmi saman að nýju í
október. Útnefning hans í lávarða-
deildina tryggir bresku stjórninni
leið fram hjá þessu formsatriði.
Talsmaður bresku stjórnarinnar
varði útnefninguna hins vegar í gær
og sagði að ákvörðunin tryggði að
kjósendur í Hamilton myndu eiga
fulltrúa á breska þinginu þegar það
kemur saman að nýju í október.
Alkóhólistar fastir
í vítahring’ þunglyndis
NIÐURSTÖÐUR rannsóknar, um
áhrif misnotkunar áfengis á efna-
skipti heilans, voru í gær kynntar á
ársþingi félags bandarískra efna-
fræðinga. Hafa vísindamennirnir
fundið efnafræðilegar skýringar á
því hvers vegna alkóhólistar falla
endurtekið í sama farið jafnvel þótt
áfengi valdi þeim streitu og þung-
lyndi.
Samkvæmt niðurstöðum rannsókn-
arinnar kemur misnotkun áfengis
af stað vítahring efnaskipta heilans.
Mikið magn áfengis gengur á forða
dópamíns, efnasamband amínósýra,
í heilanum, sem veldur tilfinningum
eins og gleði og vellíðan. En óhóf-
lega drykkja styður þar að auki los-
un efna eins og kórtíkóis sem er
streituvaldandi leysiefni sem einnig
veldur langvarandi þunglyndi. I
þeirri von að bægja frá slæmum til-
finningum hefja alkóhólistar
drykkju að nýju, en framleiðsla
kórtíkóisins eykst samfara aukinni
drykkju og festast drykkjusjúk-
lingar því í vítahring efnaskipta.
Lyf sem dregur
úr eiturlyfjafíkn
Vísindamenn við Háskólann í
Arkansas hafa þróað lyf er byggist
á efnasamböndum mótefnis sem
varnað getur því að mannslíkaminn
ánetjist ofskynjunarlyfinu engla-
ryki. Er þetta í fyrsta skipti sem
útlit er fyrir að fíklar lyfsins hafi
kost á langtíma meðferð sem miðar
að því að draga úr sálrænum áhrif-
um englaryks.
Á ráðstefnunni var einnig kynnt
bóluefni sem hugsanlega gæti kom-
ið í veg fyrir að fólk ánetjist kókaín.
Lífefnafræðingurinn Kim Janda
greindi frá tilraunum sínum sem
miðast að því að hvetja ónæmis-
kerfið til að mynda mótefni sem
ræðst á sameind kókaíns og tor-
veldar henni að ná til miðtauga-
kerfisins. Vísindamenn frá Norður-
Carolinu greindu einnig frá efna-
sambandi sem hefur suma eigin-
leika kókaíns án þess þó að vera
vanabindandi. Gæti efnasambandið
hjálpað fíklum kókaíns á sama hátt
og meþadón er notað við meðferð
heróínfíknar.
KRISTIN TRÚ
í ÞÚSUND ÁR
ÁRIÐ 2000
Með kæru þakklæti!
Við viljum þakka öllum þeim mikla fjölda fólks sem lagði
sitt af mörkum til þess að útiguðsþjónustan og
fjölskylduhátíðin í Laugardalnum sunnudaginn 15. ágúst sl.
heppnaðist frábærilega vel í alla staði.
Við viljum um leið þakka þeim þúsundum manna sem lögðu
leið sína í dalinn þennan dag til að taka þátt í hátíðarhöldunum
sem þar voru í boði.
f.h. undirbúningsnefndar kristnitökuhátíðar
Reykjavíkmprófastsdæma
í Reylqavik, Kópavogi og á Seltjarnarnesi
Guðmundur Þorsteinsson Jón Dalbú Hróbjartsson
prófastur prófastur
Reuters
Leiðtogar verkalýðsfélaganna í fremstu röð mótmælagöngu
ríkisstarfsmanna í Pretóríu í gær.
Um 35.000 manns mótmæltu launa-
stefnu stjórnvalda í Suður-Afríku
Verkfallið telst
sögulegur atburður
Pretóría. AFP.
RÍKISSTARFSMENN í Suður-
Afríku fylkja nú liði og þramma
um götur borga og bæja í tug-
þúsunda tali til að knýja á ríkis-
stjórnina um launahækkanir.
Eftir sjö mánaða árangurslaus-
ar samningaviðræður verka-
lýðsfélaga og stjórnvalda boð-
aði samband suður-afrískra
verkalýðsfélaga, Cosatu, til
verkfalls sem nær til rúmlega
milljónar manna. Voru mót-
mælagöngurnar í gær þær íjöl-
mennustu í landinu síðan á tím-
um aðskilnaðarstefnunnar.
VerkföIIin, sem leiðtogar
verkalýðsfélaganna segja sögu-
leg, lömuðu samgöngur og
skólastarf í öllum níu héruðum
landsins í gær. Verkalýðsfélög-
in krefjast 7,3 prósenta launa-
hækkunar sem samsvarar verð-
bólgustigi í Iandinu en ríkis-
stjórnin hefur boðið ríflega sex
prósenta hækkun. Boðað var til
verkfallanna aðeins tveimur
mánuðum eftir vígslu Thabo
Mbeki sem forseta landsins.
Hafði hann fyrir kjör sitt gefið
yfírlýsingar þess efnis að hann
hygðist ráðast í efnahagslegar
umbætur og boðað aðhald í rik-
isfjármálum.
Klofningur Afríska
þjóðarráðsins yfirvofandi
Cosatu er sterkur pólitfskur
armur innan Afríska þjóðar-
ráðsins, ANC. Willie Madisha,
nýkjörinn forseti sambandsins,
sagði á útifundi í gær að verka-
lýðsfélögin myndu semja við
ríkisstjórnina en ekki við framá-
menn ANC sem eru þó meiri-
hluti núverandi ríkissíjórnar.
Eru ummæli hans talin vera til
marks um það að menn óttist
pólitískan klofning innan þjóð-
arráðsins eftir að stjórnvöld
hverfa í síauknum mæli frá hug-
myndafræði ráðsins sem Iöng-
um byggðist á sósialisma.
Evrópusinnaðir
íhaldsmenn reknir
Lundúnum. Reuters.
TVEIR fyrrverandi þingmenn
brezka íhaldsflokksins hafa verið
reknir úr flokknum fyrir að vilja
ekki sætta sig við stefnu flokksins í
Evrópumálum. Talsmenn Ihalds-
flokksins upplýstu þetta í gær.
Hinir reknu eru Sir Julian
Critchley, sem var óbreyttur þing-
maður í nærri fjóra áratugi, og Tim
Rathbone, sem var aðstoðarráð-
herra í ríkisstjórn Margaret
Thatcher. Brottrekstrarsökin var
sú, að þeir höfðu báðir lýst yfir
stuðningi við klofningsframboð
Evrópusinna úr Ihaldsflokknum
fyrir kosningarnar til Evrópuþings-
ins í júní sl.
Ennfremur upplýstu talsmenn
höfuðstöðva íhaldsflokksins í gær,
að verið væri að íhuga að svipta
einn manninn enn flokksskírteininu,
sem á langan stjórnmálaferil að
baki. Er það Gilmour lávarður, fyrr-
verandi vamarmálaráðherra, en
hann hefur einnig verið óspar á
gagnrýni á tök flokksleiðtogans
EVRÓPA^
Williams Hagues á Evrópumálun-
um.
I kosningabaráttunni fyrir Evr-
ópuþingkosningamar rak íhalds-
flokkurinn mikinn áróður gegn að-
ild Bretlands að Efnahags- og
myntbadalagi Evrópu (EMU) og
vann stórsigur á Verkamanna-
flokknum.
„Eg held að mér líði bezt sem
óháðum íhaldsmanni, eins og ég hef
alltaf verið, og mig langar sannar-
lega að vera stór þyrnir í síðu
Hagues og hans nóta“ sagði
Critchley í útvarpsviðtali í gær.
„Bretland ætti ekki aðeins að vera í
Evrópufsambandinu], það ætti að
veita Evrópu forystu!“ sagði hann.