Morgunblaðið - 25.08.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 27
Blásarakvintett Reykjavíkur
í Astralíu og Singapúr
Morgunblaðið/Kristinn
Blásarakvintett Reykjavíkur skipa þeir Bernharður Wilkinson flautuleik-
ari, Daði Kolbeinsson óbóleikari, Jósef Ognibene hornleikari, Hafsteinn
Guðmundsson fagottleikari og Einar Jóhannesson klarínettuleikari.
Ur íslenska
haustinu í ástr-
alska vorið
BLÁSARAKVINTETT Reykjavík-
ur er á faraldsfæti enn á ný en nú er
hann farinn í tónleikaför tO Ástralíu
og heldur þaðan til Singapúr. Þeir
Bemharður Wilkinson, Daði Kol-
beinsson, Jósef Ognibene, Haf-
steinn Guðmundsson og Einar Jó-
hannesson vora að gera sig klára
þegar blaðamaður leit inn á æfingu
hjá þeim og fékk að heyra undan og
ofan af ferðaáætlunum, en þeir
héldu af stað sl. fimmtudag og koma
aftur heim 6. september nk.
Aðalerindi þeirra félaga til
Ástralíu er að koma fram á Sydney
Spring-tónlistarhátíðinni, nú-
tímatónlistarhátíð sem nú fagnar
tíu ára afmæli. Blásarakvintettinn
spilaði þar fyrir tveimur áram og
var boðið að koma aftur í ár og
leika á opnunartónleikum hátíðar-
innar. Á þeim er að heyra að þeim
þyki það ekkert slor að fá að spila í
óperahúsinu fræga í Sydney. Einar
segir það heldur ekki slæmt að
fljúga úr haustinu hér inn í vorið
hinumegin á hnettinum.
Tekur kortér í flutningi
en tvö ár að læra
Úr því að förinni var heitið alla
leið til Sydney var ákveðið að
prjóna saman stærri tónleikaferð
og mun kvintettinn einnig koma
fram á tónleikum í Perth og Melbo-
urne og á bakaleiðinni einnig í
Singapúr. Einar er þar ekki með
öllu ókunnugur, því hann lék ein-
leik með sinfóníuhljómsveitinni í
Singapúr á tvennum tónleikum fyr-
ir tveimur árum. Bemharður segir
það mjög gott að geta gert stuttan
stans í Singapúr á leiðinni, það
stytti aðeins ferðalagið, sem ann-
ars sé alls um 25 klukkustunda
flug.
Auk þess að koma fram á tón-
leikum á þessum fjóram stöðum
mun Blásarakvintett Reykjavíkur
leika fyrir tónlistarskólanema og
leiðbeina á „masterklass“-nám-
skeiðum. Aðspurðir um efnisskrá
tónleikanna segjast þeir félagar
munu leika nútímatónlist á hátíð-
inni í Sydney, en annars verði víða
komið við. Islensk þjóðlög koma
við sögu, nýlegt verk eftir Hafliða
Hallgrímsson, færeysk blásaratón-
list, blásarakvintett eftir Carl Niel-
sen, tilraunaverk frá yngri árum
Johns Cage, verk eftir Þorkel Sig-
urbjömsson og tíu lög fyrir
blásarakvintett eftir ungverska
tónskáldið György Ligeti. Um það
síðastnefnda segir Bernharður:
„Þetta tekur kortér í flutningi en
að minnsta kosti tvö ár að læra,“
og félagar hans samsinna honum.
Auk þess leika þeir verk eftir Moz-
art, Bach, Rimsky-Korsakov og
Shostakovic. „Þetta verður breitt
sýnishorn af okkar tónbókmennt-
um,“ segir Einar.
Tónlistarhópur Reykjavíkur-
borgar annað árið í röð
Blásarakvintett Reykjavíkur hef-
ur verið óvenjuvirkur síðastliðið ár
en þá ofurvirkni skýrir Hafsteinn
með því að kvintettinn hefur verið
tónlistarhópur Reykjavíkurborgar
með tilheyrandi rekstrarstyrk frá
því á síðastliðnu hausti. „Við það
tvíefldist starfsemin hjá okkm’,“
heldur Hafsteinn áfram. Þeir hafa
tekið upp efni á þrjá geisladiska frá
áramótum og ýmislegt fleira er í bí-
gerð. Þeir era á einu máli um að
styrkurinn frá borginni hafi komið
þeim á flug. Þegar viðtalið fór fram
vora einungis örfáir dagar í að
menningarmálanefnd Reykjavíkur
tilkynnti úthlutun starfslauna til
listamanna en þá kváðust þeir fé-
lagar bíða spenntir eftir því hvort
þeir myndu fá styrkinn áfram. Það
kom á daginn þegar starfslaunum
var úthlutað sl. laugardag, en þá til-
kynnti menningarmálanefnd þá
ákvörðun sína að nýta sér heimild
til að framlengja úthlutun síðastlið-
ins árs.
PJJ^qendur athugið
BMW-golfmótið verður haldið
föstudaginn 27. ágúst nk.
Mótið verður haldið á Hlíðarvelli, Mosfellsbæ
(Golfklúbburinn Kjölur)
Vinsamlega tilkynnið skráningu
hjá skiptiborði B&L í síma 575 1200
„Maður markaðssetur
ekki einn saltfísku
Haukur Tómasson á æfingu með CAPUT-hópnum í Salnum.
CAPUT stendur fyrir
tónleikum á verkum
Hauks Tómassonar í
Salnum í kvöld kl.
20.30 en á næstu dög-
um mun hópurinn
taka upp verk tón-
skáldsins fyrir geisla-
plötu. Orri Páil
Ormarsson heyrði
hljóðið í Hauki af
þessu tilefni.
SÆNSKA útgáfufymtækið BIS
hefur sýnt íslenskri tónlist mik-
inn áhuga hin síðari misseri og
stendur nú öðra sinni að hljóðrit-
un á efni eftir Hauk Tómasson.
Er efnt til tónleikanna í Salnum
af því tilefni. Á tónleikunum og á
geislaplötunni verða fjögur verka
Hauks; Spírall, Arhringur,
Konsert fyrir fiðlu og kammer-
sveit og Stemma.
Spírall var samið fyrh" CAPUT
og framflutti hópurinn það í
Skálholti sumarið 1992. Nafnið
vísar, að sögn tónskáldsins, til
hljómagangs sem liggur til
grandvallar verkinu og gengur í
hringi en fjarlægist smám saman
upphaf sitt. „Spírall er í sjö hlut-
um; formála og eftirmála, þrem-
ur hljómrænum köflum og tveim-
ur millispilum. Áðurnefndur
hljómagangur birtist stundum
bókstaflega í forgrunni en á öðr-
um tímum fara hljóðfærin kring-
um hann eins og köttur kringum
heitan graut.“
Árhringur var samið að beiðni
Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands árið 1993 og framflutt á
Akureyri undir stjóm Guðmund-
ar Óla Gunnarssonar. „Árhringur
er í grunninn hringlaga í formi,
birtir sömu hljómana í sífellt nýju
ljósi og er þannig skylt Spíral,"
segir Haukur.
Konsert íyrir fiðlu og kammer-
sveit var saminn að beiðni Lista-
hátíðar í Reykjavík árið 1997 fyr-
ir Sigrúnu Eðvaldsdóttur og
Caput-hópinn. Konsertinn er til-
nefndur til tónlistarverðlauna
Norðurlandaráðs íyrir árið 2000.
„Verkið er í fjóram köflum með
stuttri kadensu í lok þess íyrsta.
Einleikshlutverkið er í forgrunni
allan tímann þrátt fyrir á köflum
kröftuga þátttöku hljómsveitar-
innar,“ segir Haukur.
Stemma var pantað af STEFi í
tilefni af 50 ára afmæli samtak-
anna. Það var frumflutt af Sin-
fóníuhljómsveit íslands í janúar
1998, en heyrist hér í íysta sinn í
útsetningu fyrir kammerhljóm-
sveit. „Verkið er byggt á örstuttu
íslensku þjóðlagi sem teygt er og
togað á ýmsan hátt. Fiðlurnar
spila lagið t.d. svo hægt að þær
komast aðeins einu sinni gegnum
það, meðan blásararnir hins veg-
ar puða í sveita síns andlits og
endurtaka framin aftur og aftur,“
segir Haukur. Lagið var hljóðrit-
að og skráð af Hreini Steingríms-
syni árið 1966; kveðandinn var
Jón Ásmundsson á Akranesi.
Upptökur hefjast á morgun
Upptökur á vegum BIS hefjast
strax á morgun og standa fram á
mánudag undir stjórn Þjóðverj-
ans Hans Kipfers. „Við ætlum að
taka eitt verk á dag og hafa svo
einn dag upp á að hlaupa. Þetta
verður mikil vinnulota en hljóm-
sveitin er vel undirbúin. Svo þyk-
ir mér alltaf betra að fólk sé ný-
búið að flytja verkin sem á að
hljóðrita á tónleikum, þannig
verður upptakan meira lifandi,"
segir Haukur. Gerir hann ráð
fyrir að geislaplatan verði tilbúin
tU útgáfu næsta vor.
Þetta er önnur geislaplatan
með efni eftir Hauk í flutningi
CAPUT sem BIS gerir. Sú fyrri,
Fjórði söngur Guðrúnar, þótti vel
heppnuð og fékk meðal annars
ágæta dóma í Gramophone og
fleiri virtum tónlistartímaritum.
„Mér var á sínum tíma sagt að
það væri alltaf erfitt fyrir óþekkt
tónskáld að koma fyrstu geisla-
plötu sinni á framfæri. Ónnur
platan ætti strax betri mögu-
leika. Það er gamla sagan, maður
markaðssetur ekki einn saltfisk.
Ég bíð því spenntur nú. BIS
reynir jafnan að dreifa plötum
sínum sem víðast en hefur
sterkasta dreifingu á Norður-
löndum, í Bretlandi og Japan.
Það verður fróðlegt að sjá hvern-
ig þessari plötu kemur til með að
vegna en óheyrilegur fjöldi
platna er gefinn út í heiminum á
ári hverju og fæstar þeirra kom-
ast í verslanir, hvað þá meira.
Maður verður bara að bíða og
sjá.“
Kann vel við sig
í HoIIandi
Haukur hefur verið búsettur í
Hollandi undanfarna mánuði og
gerir ráð fyrir að verða þar að
minnsta kosti hálft þriðja ár til
viðbótar. Kveðst hann kunna
ágætlega við sig þar um slóðir og
er farinn að leita hófanna um
samstarf við hljómsveitir af sama
toga og CAPUT. Ekkert er þó
enn sem komið er fast í hendi.
CAPUT-hópurinn er Hauki þó
sem fyrr hugleikinn og þessa
dagana er hann að skrifa verk
sem ráðgert er að hópurinn flytji
ásamt sópransöngkonu á menn-
ingarborgarárinu 2000. Þá á tón-
skáldið uppi í erminni tvö full-
klárað verk fýrir CAPUT sem
bíða flutnings. „CAPUT-hópur-
inn hefur í mörg hom að líta,
bæði á þessum vettvangi og öðr-
um - annar varla eftirspurn.
Þessi verk bíða því um sinn,“ seg-
ir Haukur.
Flytjendur á tónleikunum og í
hljóðverinu verða: Kolbeinn
Bjamason flauta, Eydís Franz-
dóttir óbó, Guðni Franzson klar-
ínett, Brjánn Ingason fagott,
Emil Friðfinnsson horn, Eiríkur
Örn Pálsson trompet, Sigurður
Þorbergsson básúna, Steef van
Oosterhout slagverk, Sigrún Eð-
valdsdóttir fíðla, Hildigunnur
Halldórsdóttir fiðla, Sigurlaug
Eðvaldsdóttir fiðla, Guðmundur
Ki’istmundsson lágfiðla, Sigurður
Halldórsson selló, Bryndís Halla
Gylfadóttir selló, Richard Korn
bassi og Guðrún Óskarsdóttir
semball. Stjórnandi verður Guð-
mundur Óli Gunnarsson.
jr
Norm-X setlaugum á Islandi
Hadð samband og fálð nánari upplýslngar.
Síml 565 8822. www.lslandla.ls/norml
íí
Skeiðarásl við Arnarvog,
210 6arðabæ.
Mikilvæg atriði sem hafa ber í
NORM-X
AÐRAR TEG.
Já Nei Já Nei
Full dýpt a.m.k. 90 cm ✓
Litekta /
Nær liturinn í gegn /
Brothættur ~7 1
Hætta á sprungum /
Hætta á flögnun /
Frostþolinn -40° /
Hltaþolinn +90° /
Auðvelt að bora fyrir nuddstútum o.s.frv. /
Mjúkur viðkomu /
Helst yfirborðsáferð óbreytt /
Þolir hitaveituvatn /
Viðgerðir auðveldar /
75ryggislok /
Löng reynsla á Islandi ~~Y~~
Verð á setlaug 1200 I. kr. 59.500
Verð á setlaug 1900 I. kr. 87.500