Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 29
LISTIR
Leo
Castelli
faliinn frá
New York. Reuters.
Listaverkasalinn Leo Castelli
lést um síðustu helgi en
Castelli, sem var níutíu og
eins árs, er m.a. talinn hafa
átt mikinn þátt í því að miðja
lista og menningar færðist
frá París til New York á sjö-
unda áratugnum. Kom
Castelli þá á framfæri lista-
mönnum eins og Jasper
Johns, Robert Rauschenberg
og Andy Warhol, sem ollu
straumhvörfum í menningar-
heiminum.
Castelli fæddist í Trieste,
sem nú tilheyrir Italíu, árið
1907 og bjó á sínum yngri ár-
um m.a. í Mílanó og París,
þar sem hann rak listagallerí.
Hann flúði Evrópu hins vegar
þegar seinni heimsstyrjöldin
skall á og settist að í New
York.
Castelli þjónaði í Banda-
ríkjaher í stríðinu og hlaut
þannig bandarískan ríkis-
borgararétt en hann opnaði
ekki gallerí í New York fyrr
en 1957, eftir að hafa orðið
bergnuminn yfír verkum
þeirra Rauschenbergs og
Johns, sem þá voru alls
óþekktir.
Meðal annarra listamanna
sem hann hafði á sínum
snærum má nefna Warhol,
Frank Stella og Roy Lichten-
stein. Á allra síðustu árum
voru þeir Dan Flavin, Bruce
Nauman og Richard Serra
meðal skjólstæðinga hans.
Bandaríska stórblaðið The
New York Times kallaði
Castelli á mánudag „einn
áhrifamesta listaverkasala í
Bandaríkjunum á þessari
öld“. Ahrif hans á listir og
menningu reyndust enda um-
talsverð, ekki aðeins vegna
skjólstæðinganna sjálfra
heldur ekki síður fyrir þann
hátt sem hann hafði á við að
koma þeim á framfæri, og
sinna hagsmunum þeirra.
Hann var t.a.m. fyrstur
listaverkasala í Bandaríkjun-
um til að bjóða þeim lista-
mönnum, sem hann hafði á
sínum snærum, laun - alger-
lega burtséð frá því hvort
verk þeirra seldust vel eða
ekki.
ERLEIVDAR
BÆKUR
iSpenniisaga
EYÐILEGGIST ÓOPNAÐ
„DESTROY UNOPENED"
eftir Anabcl Donald.
Pan Books 1999. 325 síður.
Anabel Donald er skemmtilegur
breskur sakamálapenni sem skrif-
ar um spæjarann Alex Tanner.
Donald er fædd á Indlandi og hlaut
menntun sína m.a. í klausturskóla
og í Oxford. Hún hefur starfað sem
rithöfundur frá árinu 1982 þegar
fyrsta skáldsaga hennar kom út,
„Hannah at Thirty-Five“, auk þess
sem hún var skólastjóri í Doncast-
er til margra ára.
Nýlega kom út eftir hana í vasa-
broti hjá Pan-útgáfunni sakamála-
sagan Eyðileggist óopnað eða
„Destroy Unopened“ og er hún
fimmta bókin um Alex þessa Tann-
er. Nafnið er það eina sem segja
má að sé karlmannlegt við Tanner.
Hún er kona og sögumar um hana
eru sögur um konur og konur í leit
að ágætlega spennandi afþreyingu
ættu að lesa þær.
Spæjari hálfan daginn
Áður hafa komið út í Tanner-
bálknum bækurnar „The Loop“,
Alex Tanner
leitar fjölda-
morðingja
„The Glass Ceiling", „In at the
Deep End“ og „An Uncommon
Murder" og virðast breskir gagn-
rýnendur hafa tekið þeim býsna
vel. Alex Tanner er skemmtilega
samsett persóna sem hentar vel í
harðsoðnar spæjarasögur Donald.
Hún er aðeins spæjari hálfan dag-
inn því hitt starfið hennar felst í
því að vinna rannsóknarvinnuna
fyrir þá sem gera heimildarmyndir
fyrir sjónvarp. Hún hefur enga
þjálfun í einkaspæjarastarfið og
starfar ein en grípur til vinkvenna
sinna þegar hún þarf á þeim að
halda. Hún fæst mest við að hafa
uppi á týndu fólki og hún kannar
íbúðir og nágranna og hverfi fyrir
þá sem ætla að kaupa fasteignir en
hafa ekki tíma til að kanna aðstæð-
ur sjálfir. Eins og t.d. í Notting
Hill-hverfinu (frægur staður eftir
frumsýningu samnefndrar kvik-
myndar) þar sem, æi, gleymdi ég
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Síðustu sumartónleikarnir verða í Isaljarðarkirkju í kvöld.
Blokkflautu-, lútu-
og gítarleikur
Á SIÐUSTU sumartónleikum í
Isafjarðarkirkju í kvöld, miðviku-
dagskvöld, kl. 20.30 leika hjónin
Camilla Söderberg blokk-
flautuleikari og Snorri Orn
Snorrason lútu- og gítarleikari.
Þau munu endurvekja óm liðinna
alda með flutningi gamallar tón-
listar á hljóðfæri þeirra tíma, en
efnisskráin spannar tónlist frá
14. öld allt til okkar tíma.
Tónleikarnir eru haldnir í
samvinnu Tónlistarfélags Isa-
fjarðar og Isafjarðarkirkju og
njóta stuðnings Félags íslenskra
tónlistarmanna.
Fræðsludeild Listahá-
skólans tekur til starfa
FRÆÐSLUDEILD Listaháskóla
Islands tekur nú við hlutverki
Fræðsludeildar Myndlista- og
handíðaskóla íslands og verður
starfsemin á haustönn 1999 með
svipuðu sniði og áður, en sSkólaár-
inu 1999-2000 er ætlað að vera
undirbúningsvettvangur hins nýja
Listaháskóla íslands.
Ætlunin er að í hinum nýja listahá-
skóla verði starfrækt öflug sí-
menntunardeild fyrir starfandi
listafólk úr öllum greinum og fyrir
áhugafólk um listir og listmenntun,
segir í fréttatilkynningu. Boðinn
verður aðgangur að þeirri sérþekk-
ingu og aðstöðu sem Listaháskól-
inn hefur yfir að ráða með nám-
skeiða- og fyrirlestrahaldi.
Haustönn byrjar um miðjan
september og verða í boði nám-
skeið, m.a. rafsuða, teiknimynda-
sögur, lifandi letur - letrun, teikni-
myndagerð, animation, hlutateikn-
ing I og II, gifsmótagerð, stein-
Haustönn með
margs konar
námskeiðum og
fyrirlestrum
högg, tréhögg/skurður, efnisfræði,
myndvinnsla I, II og Ill-tölva
verkfæri í myndlist, bókagerð,
breytingar við aldahvörf, Feng
Shui, þróun byggingalistar og
skipulags á 20. öld, yfírlit. Vatns-
litamálun, pólýesterlitógraíía,
módelteikning, myndgerð - efni -
áhöld - litir, samtímalistasaga, ís-
lensk myndlist í eina öld, rýmis-
hönnun og kennaranámskeið í
myndvinnslu á tölvu.
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar verða haldnir á
mánudögum í Laugarnesi og á
miðvikudögum í Barmahlíð Skip-
að nefna það? fjöldamorðingi geng-
ur laus.
Alex Tanner er feministi fram í
fingurgóma, sjálfsöryggið uppmál-
að, hörð í viðskiptum við hitt kynið
og hún heldur að hún sé ólétt. Það
er á henni að heyra að það fari í
taugarnar á henni ef karlmaður
býður fram aðstoð sína en kannski
er hún að linast eitthvað. „Ég var á
móti því að karlmenn héldu að
aumingja, litla Alex þyrfti stóran
og stæðilegan karlmann til þess að
gæta hennar. Barnaleg afstaða,
kannski. Kannski var kominn tími
til þess að vaxa upp úr þvílíkum
hugsunarhætti og taka fagnandi
allri þeirri hjálp sem mér stóð til
boða.“
Helsta ástæða þess er
fjöldamorðinginn í hverfinu.
Nokkrar ljóshærðar, bláeygar
stúlkur hafa horfið og fundist aftur
einhverjum dögum síðar illa lim-
lestar. Ekki er nóg með að fast-
eignaverðið er á hraðri niðurleið
vegna þessa heldur stendur roskin
kona inni á skrifstofunni hjá Alex
Tanner og segist hafa áhyggjur af
því að hún viti hver morðinginn er.
Hilary Lucas heitir hún. Maðurinn
hennar hélt framhjá henni árum
saman og eignaðist son með við-
haldinu og bréf sem Hilary hefur
undir höndum gefur til kynna að
viðhaldið geti verið móðir
fjöldamorðingjans.
Að auki fær Alex Tanner það
verkefni að hafa uppi á ungri
stúlku sem horfið hefur af heimili
foreldra sinna og til þess að bæta
gráu ofan á svart er unga aðstoðar-
konan af spæjaraskrifstofunni
einnig horfin.
Þetta er aðeins bláupphafíð á
spennandi og hressilega skrifaðri
sakamálasögu Anabel Donald með
góðu safni af persónum, bæði smá-
um og stórum, forvitnilegri upp-
byggingu sem alltaf heldur athygli
lesandans og aðalpersónu sem kall-
ar ekki allt ömmu sína. Alex Tann-
er er sjálf sögumaður bókarinnar
og óneitanlega skemmtilegur
ferðafélagi. Hún er hæfilega gam-
ansöm með gott kvenlegt innsæi og
býr yfir ákveðni og þrjósku og hug-
rekki sem fleytir henni áfram yfir
verstu hindranirnar.
Arnaldur Indriðason
Vikuveisla til
Costa
del Sol
14. sept. frá
kr. 29.955
holti 1 kl. 12.30 á tímabilinu frá 1.
október til nóvemberloka. Meðal
fyrirlesara eru Ragnar Axelsson
og Einai- Falur ljósmyndarar,
Katrín Pétursdóttir hönnuður,
Erla Þórarinsdóttir myndlistar-
maður, Kolbrún Björgúlfsdóttir
leirlistarmaður, Jón Axel Bjöms-
son myndlistarmaður, sr. Gunnar
Kristjánsson prófastur, Kristín
Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður,
Eva Heisler listfræðingur, Atli
Hilmarsson, grafískur hönnuður,
Þorvarður Árnason heimspeking-
ur, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson
myndlistarmaður og Ragnhildur
Stefánsdóttir myndlistarmaður.
Fyrirlestrarnir eru ókeypis og
opnir öllum. Fræðsludeild Listahá-
skóla Islands er til húsa í Skipholti
1. Forstöðumaður er Sólveig Egg-
ertsdóttir og starfsmaður Arn-
þrúður Ösp Karlsdóttir. Skráning
fer fram hjá Fræðsludeild Listahá-
skólans.
28 sæti a
sértilboði
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri á síðustu sætunum til
Costa del Sol í haust. Vikurispa til"
Costa del Sol á hreint frábærum kjörum á E1 Pin-
ar-íbúðahótelinu, góðu íbúðahóteli með öllum aðbú-
naði. Allar íbúðir með sjónvarpi, síma, loftkælingu,
eldhúsi og baði. A hótelinu er stór sundlaugargarður,
líkamsrækt, tennisvellir og barnaleikvöllur. Og á með-
an á dvölinni stendur getur þú farið í spennandi kynn-
isferðir með fararstjórum Heimsferða.
Verð kr. 29>955
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
14. september, vika
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í stúdíó,
14. september, vika
El Pinar
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600 • www.heimsferdir.is