Morgunblaðið - 25.08.1999, Blaðsíða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ANÐIE MACDOWELL
„Vona áð alllr
sjái myndina því
madur kemur
brosandi út úr
bíólnu"
Bylgjan
Koraáaöghiíta
Jiiftaífotx’rtsosltushOnrttt
blottÍBg Hífl
INDUM
bZLrsW i 2Í*£*“
Hagatorgi, sími 530 1919
★★★ Rás2
95 af 100 Tvihofði
FUCKING
ÁMÁL
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
II -W/aai%i .sw.u'i^bi JWMaflabi
IYTT 0G BETRA'
Juliette Lewis
Einvolo lið leikara sýnir stórleik i
skemmtilegri grínmynd eftir iQkUóij
Pretty Woman. Þessi kitlar
hlóturtaugornar. ~
Dúute Keaton
Álfabakka 8, simi 587 8900 o«j 587 8905
fe,5 % ■ \ - • •- . .
1 t | v 'A
L » ••11 1 **
1Œ1 podém
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.10. Sýnd kl. 5 og 7. B.i.10. Sýndkl. 5. |
www.samfilm.is
Frakkur
Frakki
►FRAKKINN Alain Roberts er
frakkur maður og þekktur sem
köngulóarmaðurinn. Hann
.jjlífur hvað sem er og hérna
sést hann klífa Sears-turninn í
Chicago á föstudaginn var.
Hann hefur einnig afrekað að
klífa á topp Empire State-
byggingarinnar og Eiffel-
turnsins í París en var
handtekinn af lögreglu er hann
náði toppi Sears-turnsins enda
kolólöglegt að leggja í slíka
hættuför.
Poppuð
fyrirsæta
►FYRIRSÆTAN Caprice Bourret er komin í poppið og á
mánudag kom út fyrsta smáskífan hennar, „Oh Yeah“. Hún
sagði í viðtali á Sky News að gamall kærasti hefði átt hug-
myndina að söngferlinum en hún hafi ekki tekið mark á hon-
um í fyrstu. Nú hefur hún hins vegar slegið til og býður gagn-
rýnendum byrginn, sem stórefast um frama hennar í popp-
^Jieiminum og segja hana best geymda á sýningarpöllunum. Of-
^n-fyrirsætan Naomi Campbell gerði heiðarlega tilraun til að
afla sér vinsælda í tónlistinni og gaf út lagið „Blood and Tears“
sem hvarf sporlaust og átti engum vinsældum að fagna. „Lík-
urnar eru mér í hag,“ sagði Caprice. „Bæði
Grace Jones og Sade voru fyrirsætur áður en Naomi Campbell
þær urðu tónlistarmenn og þær eru mjög virtar reyndi við söng-
og dáðar.“ Hún játaði þó að hin breska Naomi inn en lagði
hafi gert sér erfitt fyrir. „Það muna allir eftir hann síðan á
Njfáomi-ævintýrinu - Guð blessi hana!“ hilluna á ný.
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Quarashi-menn kátir í hljóðveri sínu; Sölvi H. Blöndal, Höskuld-
ur Ólafsson, Steinar Orri Fjeldsted og Dj Dice, en fimmti maður í
Quarashi er Hrannar Ingimarsson.
Breytt stemmning
Geri á toppnum
RAPPSVEITIN góðkunna, Qu-
arashi, hóf upp raust sína í vor
eftir langt hlé og sendi þá meðal
annars frá sér eitt lag á smá-
skífu. Þeir Quarashi-félagar eru
nú í hljóðveri að taka upp breið-
skífu sem koma á út í haust og
verður allfrábrugðin sumar-
laginu, að því er þeir sjálfir
segja.
Quarashifélagar hafa
komið sér fyrir í hluta af
gömlu hljóðveri í Sól-
túninu; fengu að koma
þar fyrir upptökutólum
sem sveitin hefur sjálf
fest kaup á og gera
henni kleift að vinna
lögin eins hratt eða
hægt og henni sýnist
með Hrannari Ingi-
marssyni , sem er
fímmta hjól undir
vagninum. Þeir félag-
ar segjast líka hafa
gefíð sér góðan tíma
til að vinna upptök-
urnar, lagt mikið á
sig til að ná fram
rétta hljómnum, en
eðlilega fer drjúg-
ur tími í að taka
upp tuttugu lög.
Segja má að
upptökur á plöt-
unni hafi hafíst
síðasta haust,
rétt áður en
sveitin tók sér
frí og liðs-
menn hufu hver í sína áttina;
Steini til Bandaríkjanna; Sölvi á
flakk um Suður-Ameríku og
Höskuldur inn í Háskóla. Þá
tóku þeir félagar upp tvö lög en
byrjuðu síðan í mars síðastliðn-
um að vinna að fleiri lögum og
svo loks í sumar hófst aðalvinnu-
lotan sem staðið hefur samfellt
síðustu vikur. Stemmningin í
tónlist Quarashi hefur mikið
breyst frá því upptökur hófust á
siðasta ári - og reyndar var að-
eins eitt lag úr þeirri lotu notað
- meiri kraftur er í tónlistinni og
hún er harðari.
Fimm laganna eru án rapps
eða söngs og ætluð til að brjóta
upp stemmningu á plötunni -
verða jafnvel ekki notuð í heilu
lagi - en hin fímmtán rata vænt-
anlega flest inn á skífuna sem
verður þá í lengra lagi. „Þegar
við vorum að taka upp stóru
plötuna okkar fyrir tveimur ár-
um vorum við að kreista úr okk-
ur eitt og eitt lag með miklum
harmkvælum," segir Sölvi, „en
nú eru lögin orðin tuttugu, sem
er kannski merki um að dóm-
greindin sé að bresta." „Nema
það séu geðlyfin,“ skýtur Steini
inn í og þeir skellihlæja.
Upptökum er nánast lokið en
þeir Quarashi-menn hyggjast
ekki byi’ja á að hljóðblanda plöt-
una strax; láta hana bíða í hálfan
annan mánuð og ná þannig hæfí-
legri fjarlægð en þá verður valið
á plötuna.
GERI Halliwell náði öðru sætinu
á vinsældalistanum í Bretlandi
með lagi sínu Look At Me fyrr í
sumar. Nú hefur hún bætt um
betur og nýjasta smáskífulag
hennar, Mi Chico Latino, er
þessa vikuna í fyrsta sæti list-
ans. Meðan Geri var með hljóm-
sveitinni Spice Girls komu þær
stöllur sjö lögum í íyi'sta sætið
og seldust plötur þeirra eins og
heitar lummur. „Ég er alveg í
skýjunum, ég á engin orð til að
lýsa því hversu spennt ég er,“
sagði hin 27 ára gamla Geri u
toppsætið. Lagið er undir
áhrifum frá suður-amerískri
tónlíst, sem er mjög vin-
sæl beggja vegna Atl-
antshafsins eins og söngvarar á
borð við Ricky Martin sanna.
„Ég er mjög þakklát öllum þeim
sem hafa stutt mig og ég er yfir
mig hrifin að fólk kann að meta
tónlistina mína.“
verinu
m 11111 yji»1111 n ri iiun i rrjnirrrriiiTi~n iiiiinnniii