Morgunblaðið - 28.08.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 13
FRÉTTIR
Iðnaðarráðherra um vald sitt
til að afturkalla virkjunarleyfí
Leyfíssvipfting
fæli í sér lögbrot
HAFT var eftir Hjörleifi Guttorms-
syni, fyrrverandi alþingismanni og
iðnaðarráðherra, í Morgunblaðinu
s.l. fimmtudag að iðnaðarráðherra
hefði vald til þess að afturkalla út-
gefið virkjunarleyfi fyrir Fljótsdals-
virkjun og því þyrfti ekki endilega
að koma til kasta AJþingis þótt leyf-
ið yrði afturkallað og eftir atvikum
sett ný skilyrði, t.d. mat á umhverf-
isáhrifum virkjunarinnar.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra var spurður út í þessi ummæli
Hjörleifs og sagði hann að ráðherra
gæti undir vissum kringumstæðum
afturkallað slíka heimild. I þessu til-
felli væri ekki um það að ræða þar
sem það bryti í bága við stjóm-
sýslulög.
„Samkvæmt 25. grein stjóm-
sýslulaga geta stjómvöld afturkall-
að ákvörðun sína sem tilkynnt hefur
verið aðila máls þegar það er ekki
til tjóns fyrir aðila eða ef formgalli
er á ákvörðuninni. Það er alveg ljóst
að afturköllun á virkjunarleyfi
Fljótsdalsvirkjunar væri til tjóns
fyrir Landsvirkjun. Þá hefur enginn
formgalli enn komið fram á virkjun-
arleyfinu sem geri það að verkum
að nauðsynlegt sé að afturkalla það.
Eg treysti mér ekki til að afturkalla
leyfið því þá myndi ég brjóta í bága
við stjórnsýslulög," sagði ráðherra
og hélt áfram:
„Þó svo að virkjunarleyfið yrði
dregið til baka myndi það ekki hafa
þau áhrif að framkvæmdin þyrfti að
fara í mat á umhverfisáhrifum
framkvæmda, vegna þess að grand-
völlurinn fyrir heimild Landsvirkj-
unar til þess að virkja er lagaheim-
ild Alþingis sem samþykkt var með
lögum númer 60 árið 1981.“
Utanríkisráðherrar Norðurlanda
funda á Egilsstöðum um helgina
HAUSTFUNDUR utanrfkisráð-
herra Norðurlandanna, undir
formennsku Haiidórs Asgríms-
sonar utanríkisráðherra, verð-
ur haldinn á Hótel Héraði á
Egilsstöðum dagana 29.-30.
ágúst.
Samkvæmt venju bjóða nor-
rænu ráðherrarnir starfsbræðr-
um sínum frá Eystrasaitsríkjun-
um tii þátttöku og einnig sér-
stökum gesti, sem að þessu
sinni verður Lloyd Axworthy,
utanríkisráðherra Kanada.
Fundur norrænu utanrfldsráð-
herranna verður á dagskrá á
sunnudag, en á mánudag verð-
ur fundað með utanríkisráð-
herrum Eystrasaitsríkjanna og
utanríkisráðherra Kanada.
Meðal umræðuefna á fundi
norrænu utanríkisráðherranna
verða norrænar áherslur og
samstarf innan alþjóða- og
svæðisbundinna stofnana, en Is-
land fer nú með formennsku í
Evrópuráðinu, Noregur í
Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu (ÖSE) og Finnland í
Evrópusambandinu (ESB). Þá
verður rætt um svæðisbundna
samvinnu á norðurslóðum,
stjórnmálaþróunina í Rússlandi,
uppbyggingarstarf í Kosovo og
fleira. Eftir fundinn er fyrir-
hugað að norrænu utanrflds-
ráðherrarnir undirriti yfirlýs-
ingu, þar sem hvatt verður til
þess að þátttaka barna og ung-
menna undir 18 ára aldri í her-
mennsku verði bönnuð.
Á fundinum með utanríkis-
ráðherra Kanada mun hann
meðal annars fjalla um nauðsyn
þess að lögð verði aukin áhersla
á „öryggi einstaklingsins"
(human security) innan alþjóða-
kerfisins, en um er að ræða
málaflokk sem Kanada hefur
beitt sér sérstaklega fyrir á al-
þjóðavettvangi undanfarin ár.
Þriðjudaginn 31. ágúst hefst
eins dags opinber heimsókn
Lloyd AxworthySj utanríkisráð-
herra Kanada, á Islandi. Á
morgunverðarfundi með Hall-
dóri Ásgrímssyni utanríkisráð-
herra verður fjallað um ýmis
tvíhliða málefni íslands og
Kanada, svo sem fyrirhuguð
landafundahátíðahöld í Kanada
árið 2000, flugsamgöngur, við-
skiptamál og hugsanlega opnun
sendiráðs íslands í Kanada og
gagnkvæmni Kanada í því sam-
bandi.
Einnig munu ráðherrarnir fara
yfir stöðu samningaviðræðna
um fríverslunarsamning EFTA
og Kanada, ásamt samvinnu
ríkjanna tveggja á alþjóðavett-
vangi. Kanadíski utanríkisráð-
herrann mun eiga fund með
Davíð Oddssyni, forsætisráð-
herra.
TEGUND: VERÐ:
GLS 3d 980.0001
GLX5d 1.020.0001
TEGUND: VERÐ:
Beinskiptur 1.399.000 KR.
Sjálfskiptur 1.519.000 KR.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www. suzukibilar. is
SUZUKl SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson,
Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Isafjörður: Bllagarður eht.Grænagarði, slmi 456 30 95.
Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00.
Rými?
Þægindi?
Öryggi?
Sparneytni?
Fjórhjóladrif?
Gott endur-
söluverð?
Óttastu bensínhækkanir?
Suzuki bílar eru alltaf á meðal
þeirra sparneytnustu
WAGON R+ BALENO
TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ:
WAGONR+ 1.099.000 KR. 1,3 GL 3d 1.195.000 KR.
WAGONR+4X4 1.299.000 KR. 1,3 GL 4d 1.295.000 KR.
1,6 GLX4d 1.445.000 KR.
ÍÓDÝRASTI 4X4 BÍLLINN i 1,6 GLX 4x4 4d 1.575.000 KR.
I ÁMARKAÐNUM | 1,6 GLXWAGON 1.495.000 KR.
1,6 GLX WAGON 4x4 1.675.000 KR.
VITARA GRAND VITARA
TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ:
JLX SE 5d 1.830.000 KR. GR.VITARA2,0L 2.179.000 KR.
DIESEL 5d 2.180.000 KR. GR. VITARA 2,5 L V6 2.429.000 KR.