Morgunblaðið - 23.09.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikil ásókn í
smáskífu Quarashi
Á ÞRIÐJA þúsund manns hefur
sótt sér smáskífu Quarashi, Stick
‘em Up, sem gefin var út á frétta-
vef Morgunblaðsins, mbl.is, sl.
föstudag. Að sögn aðstandenda út-
gáfunnar er þetta mun meiri ár-
angur en búist var við, enda selj-
ast ekki af vinsælli smáskífu nema
300-500 eintök hér á landi.
Stefán Ingólfsson, samstarfs-
maður Quarashi, segir að undir-
tektirnar við útgáfu Stick ‘em Up
á mbl.is hafi farið fram úr björt-
ustu vonum. „Þetta er mun betri
árangur en við þorðum að vona,
sérstaklega í Ijósi þess að smáskíf-
ur seljast yfirleitt ekki nema í
300-500 eintökum hér á landi.
Þessar undirtektir sýna að útgáfa
þessarar gerðar á fyllilega rétt á
sér og verður allsráðandi í náinni
framtíð.“
Stefán segist telja að sala á
breiðskifum í þessu formi sé ekki
langt undan, þótt menn eigi eftir
að greiða úr ýmsum atriðum varð-
andi höfundargreiðslur og rétt-
indamál. „Útgáfa þessarar gerðar
jafnar samkeppnisstöðu íslenskra
hljómsveita og erlendra, enda er
grunnkostnaður útgáfu sá sami
hvort sem seljast af plötu 500 ein-
tök eða 500.000. Með þessu móti
má lækka dreifingar- og útgáfu-
kostnað verulega og vonandi verð-
ur þessi tækni til að auka til muna
útgáfu á islenskri tónlist. Þetta
gefur tónlistarmönnum að auki
nýjan hlutlausan vettvang til að
koma tónlist sinni á framfæri til
hliðar við útvarpsstöðvar.“
Lag Quarashi er fyrsta smáskif-
an af væntanlegri breiðskífu
hljómsveitarinnar, en á vef mbl.is
má sækja smáskífuna til að hlusta
á hana, en einnig eru leiðbeining-
ar um hvernig búa megi til úr
henni geisladisk. Á síðu helgaðri
útgáfunni er og hægt að sækja
umslag af smáskífunni sem hægt
er að prenta út, til að mynda á lit-
prentara, en útgáfu hefur ekki áð-
ur verið þannig háttað hér á
landi.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Embætti rikislögreg-lustjora rannsakar fíkniefnamálið
Reynt að koma í veg fyrir
að eignum sé komið undan
Morgunblaðið/Júlíus
Ríkislögreglusljóri og lögreglan í Reykjavfk leggjast nú á eitt um að
upplýsa stóra fíkniefnamálið. Frá vinstri: Arnar Jensson aðstoðaryfír-
lögregluþjónn, Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, og
Omar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra hef-'
ur sett allan sinn mann-
afla í það verkefni að
aðstoða fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykja-
vík við rannsókn stóra
fíkniefnamálsins á þátt-
um sem varða meint
efnahagsbrot og eigna-
færslur þeirra sem talið
er að tengist málinu.
Lagt hefur verið hald á
ýmis verðmæti fyrir
50 milljónir króna.
RÚM vika er frá því lögreglan í
Reykjavík kynnti stöðu mála íyrir
efnahagsbrotadeildinni og fór fram
á aðstoð við rannsóknina og er nú
unnið af fullum þunga að því að ná
til verðmæta í eigu þeirra sem
tengjast fíkniefnamálinu. Þegar hef-
ur tekist að leggja hald á verðmæti
fyrir 51 miHjón króna. Hlutverk
efnahagsbrotadeildarinnar í málinu
er að rannsaka fjármál í tengslum
við innflutning og dreifingu fikni-
efna á vegum þeirra sem tengjast
málinu, eins og fram kom á blaða-
mannafundi með Jóni H. Snorra-
syni, yfirmanni efnahagsbrotadeild-
arinnar, og Arnari Jenssyni og
Ómari Smára Armannssyni aðstoð-
aryfirlögregluþjónum.
Að sögn Jóns H. Snorrasonar er
mikilvægt að rekja fjárstreymi og
fjármálaleg samskipti á milli aðila til
þess að ná til allra þeirra sem tengj-
ast málinu, t.d. þeirra sem kunna að
vera í íjarlægð frá fíkniefnaneytend-
unum.
Markmiðið að undirbúa
upptöku verðmæta sem
lagt hefur verið hald á
Markmiðið með aðgerðunum er
að undirbúa upptöku verðmætanna
við meðferð málsins fyrir dómi þar
sem talið er að þau séu afrakstur
fíkniefnabrota. Um er að ræða 51
milljón króna í formi fasteigna, bif-
reiða og annarra lausafjármuna, ís-
lenskra peninga og erlends gjald-
eyris, sem lagt hefur verið hald á.
M.ö.o. hafa nokkrar íbúðir verið
kyrrsettar, lagt hefur verið hald á
yfir 10 dýrar bifreiðir og greiðslur
vegna fasteigna hafa verið frystar.
Niu manns hjá efnahagsbrotadeild-
inni vinna nú af fullum krafti við að
upplýsa eignafærslurnar sem um
ræðir og er lögð þung áhersla á að
hraða verkinu, en að sögn Amars
Jenssonar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns hjá ríkislögreglustjóra, er vit-
að til þess að menn hafi gert ráðstaf-
anir til að koma undan eignum sem
tengjast málinu.
Jón H. Snorrason sagði að ef
skipuleg afbrotastarfsemi eins og sú
sem er hér til rannsóknar fær að
þróast kemst á hana skipulag sem
er með þeim hætti að fáir taka á sig
ábyrgðina en starfsemin sjálf heldur
engu að síður áfram og skapar þeim
sem að henni standa hagnað og jafn-
vel þeim sem þurfa að sitja tíma-
bundið í fangelsi vegna hennar. „Það
er því mjög mikilvægt að taka fjár-
málin til rannsóknar, upplýsa um
alla þá sem tengjast málinu til þess
að gera hagnaðinn upptækan og
reyna að uppræta brotastarfsem-
ina,“ sagði Jón.
Tilkynningar fjármálastofnana
höfðu verulega þýðingu
fyrir rannsóknina
Tilkynningar fjármálastofnana um
grunsamlegar peningafærslur höfðu
verulega þýðingu við upphaf rann-
sóknar málsins. Jón sagði að nýleg
löggjöf um vamir gegn peninga-
þvætti hefðu skipt talsverðu máli við
rannsóknina. Heimild og skyldur
fjármálastofnana til að tilkynna lög-
reglu um grunsamlegar færslur
hefðu haft þau áhrif að þær gátu lát-
ið lögreglu í té upplýsingar með mun
greiðari hætti en áður, þegar þagn-
arskylda fjármálastofnana var við
lýði. Það væri lykill að rannsókn
mála sem þessa, að allar upplýsingar
sem leitað er eftir gætu komið fljótt
inn í málið. „Ef ekki væri þessi lög-
gjöf þyrfti að koma til úrskurður um
að upphefja þessa þagnarskyldu í
hveiju einasta tilviki, sem væri mjög
tafsamt," sagði Jón.
Lögreglan telur að í þessu máli
muni reyna verulega á endurskoð-
aða og rýmkaða löggjöf, sem kom í
kjölfar alþjóðasamnings sem ísland
á aðild að og fjallar m.a. um baráttu
yfirvalda við fíkniefnabrot og alvar-
leg hegningarlagabrot. Felst
rýmkunin m.a. í því að heimildir til
upptöku verðmæta eru rýmkaðar,
þ.e. að beita upptöku til jafnvirðis
því sem menn eru taldir hafa aflað
með ólögmætum hætti.
Meira magn fíkniefna hefur ekki
fundist í tengslum við þetta mál og
enn eru tveir íslendingar eftirlýstir
í Evrópu. Þá sitja fimm menn í
gæsluvarðhaldi vegna þessa máls.
Kennt undir
berum himni
HELGA Olgeirsdóttir myndlist-
arkennari brá sér út í góða veðr-
ið með bekkinn sinn í vikunni.
Nemendur settust við styttuna
Alda aldanna eftir Einar Jónsson
en hún hefur án efa blásið þeim
listrænum anda í brjóst.
------------
*
Islendingur
til hjálpar-
starfa
á Taívan
SÓLVEIG Ólafsdóttir, sem verið
hefur sendifulltrúi Rauða kross ís-
lands í Kína undanfarna mánuði, fór
til Taívan í gær tO þess að taka þátt
í hjálparstarfi vegna jarðskjálftans
sem reið yfir landið á mánudag.
Sólveig er í Taívan sem sendifull-
trúi Alþjóðasambands Rauðakross-
félaga og mun, að sögn Þóris
Guðmundssonar upplýsingafulltrúa
Rauða kross íslands, vinna með
japönskum björgunarsveitum
Rauða krossins og taívanska Rauða
krossinum. Hennar starf felst í því
að samræma og skipuleggja utanað-
komandi aðstoð sem berst til Taí-
vans og er hún í samstarfi við taí-
vönsk stjómvöld, Sameinuðu þjóð-
imar og Rauða krossinn. Að sögn
Þóris er ekki ljóst hversu lengi hún
mun dvelja í Taívan.
Sólveig hefur undanfama mánuði
starfað í Kína við aðstoð á flóða-
svæðum á vegum Rauða krossins.
----------------
Rán í verslun
í Kópavogi
Þriðji
maðurinn
handtekinn
LÖGREGLAN í Kópavogi handtók í
fyrradag þriðja manninn sem leitað
var vegna rannsóknar á ráni í
versluninni Strax í Hófgerði í
Kópavogi 18. september sl.
Lögregla hefur lagt fram kröfu um
gæsluvarðhald yfir honum en
dómari tók sér frest til dagsins í dag
til að taka afstöðu til kröfunnar.
Maðurinn, sem er á þrítugsaldri,
hefur verið í haldi lögreglu síðan
hann var handtekinn. Annar maður
situr í gæsluvarðhaldi til 5. október
vegna málsins, en þriðja manninum
hefur verið sleppt úr haldi.