Morgunblaðið - 23.09.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 63
FÓLK í FRÉTTUM
Alla og Anna Sigga
heimsækja Norðurland
Sönglög fyrri ára
ÞAÐ ERU sönglög fyrri ára
sem þær stöllurnar Anna Sig-
ríður Helgadóttir söngkona og
Aðalheiður Þorsteinsdóttir pí-
anóleikari hefja til vegs og
virðingar í dagskránni og eru
sönglög kventónskálda eins og
Ingibjargar Þorbergs, Hjör-
dísar Pétursdóttur og Hall-
gerðar Bjarnadóttur í fyrir-
rúmi.
I kvöld munu þær heim-
sækja Sauðkrækinga en Anna
Sigga segir að þar hafi hún
kennt við Tónlistarskólann um
tveggja vetra skeið og hafí
hún ætíð haft sterktar taugar
til Sauðárkróks síðan. „Alla er
líka frá Húsavík, svo við höf-
um báðar tengst Norðurlandi
sterkum böndum sem verða
ekki svo auðveldlega rofín,“
bætir hún við. A föstudags-
kvöld leika þær á Kópaskeri
og á laugardagseftirmiðdag
verður heimabær Öllu, Húsa-
vík, heimsóttur og síðan spilað
um kvöldið á Akureyri.
Lokatónleikarnir verða síðan í
Grímsey á sunnudagskvöld.
Anna Sigga og Alla hafa sterkar taugar til Norðurlands.
Frá A til Ö
■ ÁLAFOSS FÖT BEZT Á
fimmtudagskvöld heldur hljóm-
sveitin Klamedía X tónleika og
hefjast þeir kl. 22. Á laugardags-
kvöld er dansleikur með hljómsveit-
inni Fiðringnum.
■ ÁSGARÐUR, Glæsibæ Bingó
flmmtudagskvöld kl. 19.15. Dans-
leikur sunnudagskvöld kl. 20. Caprí
tríó leikur fyrir dansi.
■ BROADWAY Á föstudagskvöld
er sýningin Bee Gees
þar sem fimm strákar
flytja þekktustu lög
þeira Gibb-bræðra.
Trúbrot & Shady
Owens leika í aðalsal.
Á laugardagskvöld er
Abba-sýningin en
sýningar hafa nú ver-
ið á þriðja ár. Fimm
söngvarar syngja
bestu lög Abba
flokksins og hljóm-
sveit Gunnars Pórð-
arsonar leikur undir.
Trúbrot & Shady
Owens leika fyrir
dansi í aðalsal. Athug-
ið allra síðasta sinn.
■ BÚÐARKLETTUR,
Borgarnesi, Á föstu-
dagskvöld leikur og
syngur Pétur Péturs-
son í koníakstofunni.
Á laugardagskvöld
leikur síðan hljóm-
sveitin Léttir sprettir.
■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó-
leikarinn Josep O’Brian leikur öll
kvöld. Hann leikur einnig fyrir mat-
argesti Café Óperu.
■ CATALÍNA, Hamraborg Hljóm-
sveitin Þotuliðið leikur föstudags-
og laugardagskvöld.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fimmtu-
dagskvöld verður írsk stemmning
með hljómsveitinni Pöpunum og á
föstudags- og laugardagskvöld leik-
ur hljómsveitin Geimarar. Á sunnu-
dags- og mánudagskvöld er hljóm-
sveitin Centaur boðin velkomin eft-
ir langt hlé og verður leikið blús-
rokk og Siggi á munnhörpunni
fremstur í flokki. Á þriðjudagskvöld
leika Fræbblamir í beinni á
www.xnet.is og á miðvikudagskvöld
verður sveitt sveifla að hætti Úlla.
■ GRAND HÓTEL v/Sigtún Tón-
listarmaðurinn Gunnar Páll leikur
fyrir matargesti frá ki. 19-23
fimmtudags-; föstudags- og laugar-
dagskvöld. Á efnisskrá eru gömul
og hugljúf lög.
■ GRAND ROKK Hljómsveitin
Sólon leikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ GULLÖLDIN Hljómsveitin
Heiðursmenn leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
■ HM-CAFÉ, Selfossi Tónlistar-
maðurinn Torfi Ólafsson leikur
föstudags- og laugardagskvöld.
■ HLÖÐUFELL, Húsavfk Á laug-
ardagskvöld leika Jósi bróðir, synir
Dóra og pabbi Baldurs.
■ HÓTEL SAGA Á laugardags-
kvöld verður dansleikur í Súlnasal.
Þar leikur sem fyrr hljómsveitin
Saga-Klass með söngvarana Sig-
rúnu Evu Ármannsdóttir og Reyni
Guðmundsson í fararbroddi. Miða-
verð er 1.000 kr.
■ INGÓLFSKAFFI, Ölfusi Hljóm-
sveitin Papar leikur laugardags-
kvöld.
■ KAFFI REYKJAVÍK Hljóm-
sveitin Karma leikur fimmtudags-;
föstudags- og laugardagskvöld. A
þriðjudags- og miðvikudagskvöld
Ieikur Eyjólfur Kristjánsson.
■ KRIN GLUKRÁIN Á fimmtu-
dags- og sunnudagskvöld leikur
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson en
á föstudags- og laugardagskvöld
leikur hljómsveitin Sín.
■ KRÚSIN, ísafirði Um þessar
mundir heldur hljómsveitin GOS
upp á bæði þriggja ára afmælið sitt
og gigg númer 100. Þessum tíma-
mótum verður fagnað með Isfirð-
ingum og nærsveitarmönnum
föstudags- og laugardagskvöld.
■ LILLEPUT, Laugavegi 34a, er
pöbb í erlendum stíl með risaskjá
og tónlist fyrir alla aldursflokka.
Húsið er opnað alla daga kl. 12 og
opið til kl. 23.30 virka daga og til
kl. 2 föstudags- og laugardags-
kvöld.
■ LIONSSALURINN, Auðbrekku
25, Kóp. Á fimmtudagskvöld held-
ur áhugahópur um línudans
dansæfingu kl. 21-24. Elsa sér um
tónlistina. Allir velkomnir.
■ LÍNUDANSÆFING verður hjá
Áhugafélagi línudansara föstu-
dagskvöld kl. 21 í Auðbrekku 17.
Byrjendur og lengra komnir eru
hvattir til að koma og æfa sig. Allir
velkomnir.
■ MÓTEL VENUS, Borgarfirði A
laugardagskvöld leikur hljómsveit-
in Sixties.
■ NAUSTIÐ er opið alla daga frá
kl. 18 fyrir matargesti. Reykjavík-
urstofa er opin frá kl. 18. Söngkon-
an og píanóleikarinn Liz Gammon
frá Englandi leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
■ NAUSTKRÁIN Á föstudagkvöld
er skagfirsk veisla með Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar. Á laug-
ardagsskvöld leikur hljómsveitin
Furstarnir og Geir Ólafsson.
■ NÆTURGALINN Þau Baldur
og Margrét leika föstudags- og
laugardagskvöld. (Hver man ekki
eftir BG frá ísafírði). Húsið opið frá
kl. 22-3.
■ ODDVITINN, Akureyri Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
Rúnar Þór.
■ OZIO, Lækjargötu Á fímmtu-
dagskvöld leikur fönkhljómsveitin
Oran. Hana skipa
þeir: Jóel Pálsson,
saxófónleikari, Pétur
Hallgrímsson, gítar,
Guðni Finnsson,
bassi, og Matthías
Hemstock, trommur.
Tónleikamir hefjast
kl. 22.
■ PÉTURSPÖBB
Plötusnúðurinn
Skugga-Baldur leik-
ur föstudags- og
laugardagskvöld.
Boltinn í beinni á
breiðtjaldi.
■ RÉTTIN, Úthlíð
Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar
leikur á réttarballi
laugardagskvöld.
■ SJALLINN, Akur-
eyri Á laugardags-
kvöld leika á
stórdansleik Skrið-
jöklarnir og Dægur-
lagapönkhljómsveitin Húfan. Báð-
ar hljómsveitimar eiga rætur að
rekja til Akureyrar.
■ SKOTHÚSIÐ, Keflavík Hljóm-
sveitin Sóldögg leikur laugardags-
kvöld.
■ SKU GGABARINN Húsið opnað
kl. 23 föstudags- og laugardags-
kvöld. Plötusnúðar verða þeir
Nökkvi og Áki. Aðgangseyrir er
500 kr. inn eftir miðnætti. 22 ára
aldurstakmark. Engar bláar galla-
buxur.
■ SPOTLIGHT Á fimmtudags-
kvöld er opið kl. 23-1. Aldui-stak-
mark 18 ára og öll skírteini gilda til
kl. 1. Gestir kvöldsins verða erlend-
ir nemendur við HÍ. Á föstudags-
kvöld er opið kl. 23-3. Þema kvölds-
ins er leður/latex/gúmmí/plast.
Sýningaratriði verður frá Fetish &
4play og kynnir er Páll Óskar. VIP
korthafar ganga fyrir. Kort gilda
samkvæmt venjum. 20 ára aldurs-
takmark. Á laugardagskvöld er op-
ið 23-3 og er aðgangur takarmkað-
ur.
■ SPORTKAFFI er opið alla daga
frá kl. 11-1 virka daga en frá kl. 11-
3 um helgar.
■ VEITINGAHÚSIÐ EINAR BEN
Á fimmtudagskvöld verða jazztón-
leikar með hljómsveit Þorsteins Ei-
ríkssonar frá kl. 22-24.
■ VÍKIN, Höfn í Hornafirði
Hljómsveitin Á móti sól leikur laug-
ardagskvöld.
■ SKILAFRESTUR í skemmtan-
arammann Frá a-ö er til þriðju-
dags. Skila skal tilkynningum til
Kolbrúnar á netfangið
frett@mbl.is eða með súnbréfi á
569 1181.
Hljómsveitin Sixties leikur á dansleik á Mótel Venus,
Borgamesi.
LIKA SKOFL
STEINAR WAGGE
KRINGLUNNI
í
BERLIN
1999 /
SII.IT ItBJOBNIW
SI \I BES'I'V
k\ IKMVMMN
D Vg M E
.m.si \ do<;\i \
\I\M)IN"
II ////"/)
VI I-11« I IU LYUAIUU - Sl'MlB Ml lliV I \ VDIUU
SIÐASJ J SÖNCÍUK
mfwg
#
MfcöÍA
MIFUNE
MIIT M.S SIDSH. S VN(;
luikstjóri S0REN KRAGH-JACOBSEN
»i( GOÐAR
V V STUNDIR
SYND I HASKOLABIÓ