Morgunblaðið - 23.09.1999, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 23.09.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 59f KIRKJUSTARF BRÉF TIL BLAÐSINS Kjósa börnin leikskóla án starfsmanna? Frá Guði-únu Maríu Oskarsdóttur: ÉG þakka Guðjóni Bergmann til- skrif hans þann 11. sept sl. sem eru að mínum dómi einlæg og sönn, en hann ræðir málefni leikskólanna sem hafa löngum verið mér hug- leikin sökum starfa minna um tíma á þeim vettvangi. Það er mér sífellt meira undrunarefni að faglærðir og ófaglærðir á leikskólum skuli ekki enn sjá sér hag í því að mynda með sér bandalag, hvað varðar eig- ið starfsumhverfi, með það að markmiði að knýja á um breyting- ar í þá veru að viðunandi stöðug- leiki í starfsemi skólanna geti litið dagsins ljós. Ef tO vill veltur það á verkalýðsforkólfum viðkomandi fé- laga að slikt geti orðið að veruleika. Nú er það svo í raun að leiðbein- endur (ófaglærðir) sinna sömu störfum og menntaðir leikskóla- kennarar, en til þess hafa þeir hinir sömu sótt sérstök starfsmennta- námskeið, þ.e þeir er hafa kosið að dvelja á þessum starfsvettvangi lengur en nokkra mánuði. Deildar- ábyrgð er þó yfirleitt í höndum leikskólakennara er ber ábyrgð á faglegu starfi og fær mér best vit- anlega fjóra tíma á viku í undir- búning til þess að sinna skipulagn- ingu þess. Hinn ófaglærði fær einn tíma til þess að undirbúa sín verkefni í vinnu, en tekur álagi vinnunnar meðan leikskólakennarinn sinnir sínu undirbúningsstarfi og fundar með faglærðum um fagleg mál. I stai-fsmannaskorti falla slík funda- höld og undirbúningur að sjálf- sögðu meira og minna niður, sök- um lágmarks mannafla til lág- marks öryggisgæslu í starfs- mannaskorti. Fjármagn yfirvalda á röngum stað Það er sorgleg staðreynd að bæði ríki og borg verja ómældum fjármunum í „forvarnir" á ung- lingsárum sem og í meðferðarúr- ræði handa ungu fólki á villigöt- um, fólki er ef til vill hefði ekki lent á villigötum ef nægilegt atlæti frá fæðingu hefði verið til staðar. Ef til vill hefði það komið ein- hverjum börnum betur að hafa alltaf sömu „fóstruna" á leikskól- anum sínum hvort sem hún var ómenntuð eða ekki, úr þvf að mamma þurfti að fara út á vinnu- markaðinn. Ekki var verra að hún væri menntuð en ef ekki þá, aðeins þá sömu. Hefur einhver hugsað út í það álag fyrir lítið barn er fylgir því að kynnast sífellt nýju fólki, Frá Ágústu P. Snæland: í MORGUNBLAÐINU 16. þ.m. var grein eftir Hildi Fjólu Antons- dóttur frænku mína, þar sem hún talar fyrir munn félags ungra fem- inista Bríeti um klám og erótík. Vil ég þakka henni og þeim fyrir að ýta við mér, gamalli kon- unni, og hvetja mig og aðra til að skoða hug minn og tjá mig um þessi mál í dag. Þrátt fyrir mót- bárurnar sem æpa á mig að skipta mér ekki af því - það er óþægi- legt! Þrátt fyrir freistinguna að bregða yfir mig hjúpi siðavendni, fordóma eða dómhörku - eins og minni kynslóð hættir til, í stað þess að skoða á heiðarlegan og opinn hátt. barn sem er að reyna að læra traust í mannlegum samskiptum og er kannski aðeins tveggja ára. Ef til vill þarf barnið einnig að taka því álagi að dvelja sitt hvora helgina á sitt hvoru heimili mömmu og pabba sem hafa skilið. Hvernig, ég endurtek hvernig á blessað barnið að byggja upp traust ef til þess vinnst aldrei tími, sökum þess að starfsfólk byrjar og hættir er það fær launaseðilinn, jafnvel eftir fjögurra ára menntun til starfanna. Það er nefnilega hægt að finna hærri laun við það að selja börnum sælgæti við búð- arkassa, heldur en að ala þau upp. Það er einnig betur launað að gefa út skýrslur um hve mikið vanda- mál það sé að hafa ekki nóg starfs- fólk í þessum störfum og það er einnig mun betur launað að stunda verðbréfaviðskipti. Hvers vegna eru foreldrar upp til hópa ánægðir með að greiða gjald fyrir þjónustu sem þessa, án þess þó að þjónustu- stigið sé ekki sem skyldi alls stað- ar, þar sem börn eru vistuð? Það er undarlegt og halda mætti að hér þurfi að koma til veruleg hugar- farsbreyting, almennt, þar sem stokka þurfi spilin að nýju hvað varðar gildismat til lengri tíma lit- ið. Bensínhækkanir koma við pyngjuna, en bflinn er vél og hægt að nota strætó, en börnin vaxa upp og skilyrði þeirra velta á því hvaða atlæti við sköpum þeim, einkum og sér í lagi fyrstu uppvaxtarárin, þar sem mannlegur kærleikur, traust og hlýja er veitir öryggi, jafnvel ævina á enda, skiptir sköpum. Það þarf að hvetja starfsmenn launa- lega til þess að dvelja í störfum sem þessum, mánuð fyrir mánuð og ár eftir ár. Taka þarf upp skipu- lag er tekur alvarlega á þessum málum, hvort sem þar er um að ræða fagstétt eða ófaglærða því allir vinna að sama markmiðinu, sem er það að: „Lengi býr að fyrstu gerð“ í lífi ungra íslend- inga, á leið inn í nýja öld. Ég heiti hér með á kvenborgarstjóra þann sem nú ríkir í höfuðborg landins að taka af myndugleik á málum þess- um í eitt skipti fyrir öll, svo mikið sem það er á hennar valdsviði, ekki hvað sízt vegna kven- mennsku, þótt það kosti lánsfjár- magn um tíma. Slíkt mun nefni- lega skila sér til baka betur en mjög margt annað sem til umræðu er og ef til vill marka kaflaskil í framsýni stjórnmálamanna al- mennt. Ég sé að þessi mál koma mér við. Þau koma unglingum við og þau og þeirra mál eru mér mjög hugleikin. Mér hrýs hugur við því, að ást, erótík og kynlíf skuli vera brenglað og skrumskælt á þennan hátt, aug- lýst sem samkeppnisíþróttagrein og listgrein en er í raun peninga- mylla óprúttins fólks. Látum það nú vera, en hitt, sem að ungu óreyndu fólki snýr er þó öllu verra. Þessi mál eru viðkvæm og vand- meðfarin reynslulitlum unglingum og ranghugmyndir geta valdið óbætanlegum skaða og óhamingju. Heilbrigt ástalíf með elskaðri per- sónu er ein dýrmætasta gjöf lífsins sem þarf að þroska og njóta í ein- lægni og fegurð. Astalífið er verð- mæti og einkamál sem elskendur eiga samen ein. Að spilla því og ata auri er illt verk. ÁGÚSTA P. SNÆLAND, Brávallagötu 42, Reykjavík. Safnaðarstarf Glatt á hjalla í Hjallakirkju VETRARSTARF Hjallakirkju er að hefjast um þessar mundir og sannarlega mikið framundan. Und- anfarna vetur hefur verið lögð áhersla á fjölbreytni í helgihaldi og eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í kirkjustarfinu. Guðs- þjónustur eru með ýmsu móti. Má þar nefna fjölskylduguðsþjónustur, lofgjörðarguðsþjónustur, tónlistar- guðsþjónustur, almennar guðs- þjónustur og messur. Allar guðs- þjónusturnar eru byggðar upp á sama hátt og felst mismunur á milli þeirra í tónlistarflutningi. Mikil áhersla er lögð á þátttöku safnað- arins í guðsþjónustunum sem hæfa öllum aldurshópum. Á hverjam þriðjudegi kl. 18 eru svo bæna- og kyrrðarstundir í kirkjunni en þær miðast fyrst og fremst að því að efla bæna- og trúarlíf einstaklings- ins. Barna- og æskulýðsstarf Hjalla- kirkju mun einnig starfa í fullum blóma í vetur. Að þessu sinni fara barnaguðsþjónustur á sunnudög- um fram á tveimur stöðum í sókn- inni kl. 13 í Hjallakirkju og kl. 11 í Lindaskóla. Þá er einnig starf í kirkjunni fyrir 7-9 ára krakka, en sá hópur kallast því skemmtilega nafni Kirkjuprakkarar. Kirkjuprakkarar eru í kirkjunni á fimmtudögum kl. 16.30-17.30. Tíu til tólf ára bömin fá einnig eitthvað fyrir sinn snúð því á miðvikudögum hittist TTT-hópurinn kl. 17-18. Markmið þessara starfsþátta er að sjálfsögðu að börnin fái að kynnast Jesú Ki'isti, sem og hvert öðru og skemmta sér við líf og leik í kirkj- unni. Unglingamir fá einnig tæki- færi til að gera slíkt hið sama en fundir í Æskulýðsfélagi Hjalla- kirkju era sérhvert mánudags- kvöld kl. 20.30-22. Þar verður sannarlega mai-gt skemmtilegt í gangi en fundirnir era fyrir ung- linga á aldrinum 13-15 ára. Fjölskyldumorgnar hófu starf- semi sína nú í september og verða á miðvikudögum kl. 10-12. Þar gefst foreldrum kostur á að koma með börnin sín til þátttöku í helgi- haldi, kynnast öðrum og miðla af reynslu sinni. Hjálparmæður á vegum Barnamála, áhugafélags um brjóstagjöf, starfa árið um kring í Hjallakirkju og eru með fundi sína 1. og 3. þriðjudag í mánuði kl. 14-16. Kórar í kirkjulegu starfi eru ómissandi hluti þess og tilvalinn vettvangur söngiðkunar fyrir hæfi- leikaríkt söngfólk. Kór Hjalla- kirkju mun starfa að krafti í vetur og nýir félagar era ætíð velkomnir. Á haustmisseri mun kórinn m.a. fiytja þýska messu eftir Johann N. David, kantötu nr. 61 eftir J.S. Bach fyrsta sunnudag í aðventu og halda aðventutónleika hinn 5. des- ember. Eins og sjá má er nóg að gerast í safnaðarlífi Hjallasóknar. Hér er þó einungis stiklað á stóru í vetrar- starfi safnaðrins. Á meðal þess sem enn er ótalið er t.d. öldrunarstarfið sem unnið er í samvinnu við Digra- nessöfnuð og fer fram á þriðjudög- um í Digraneskirkju. Hjallakirkja stendur öllum opin og er fólk hvatt til að koma og kynnast kirkjulegu starfi innan hennar. Grafarvogs- kirkja - söngfólk KÓR Grafarvogskirkju getur bætt við sig söngfólki, einkanlega í karlaraddii'. Margt skemmtilegt er framundan, meðal annars vígsla kirkjunnar á næsta ári. Áhugasam- ir hafi samband við Hörð Bragason organista í síma 551 2512 eða Gerði Bjarnadóttur, formann kórsins, í síma 567 5671. Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-17. GUÐRUN MARIA ÓSKARSDÓTTIR, Herjólfsgötu 18, Hafnarfirði. Dýrmætasta gjöf lífsins Ágústa P. Snæland Hjallakirkja. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Grensáskirkja. Mæðramorgunn kl. 10-12. Allar mæður velkomnar með lítil börn sín. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, altaris- ganga. Léttur málsverður í safnað- arheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21. Langholtskirkja. Foreldra- og bamamorgunn kl. 10-12. Fræðsla: Sigríður Jóhannesdóttir hjúkrun- arfræðingur. Söngstund með Jóni Stefánssyni kl. 11. Svala djákni les fyrir eldri börnin. Opið hús - há- degistónleikar kl. 12-12.30. Kjart- an Sigurjónsson, organisti Digra- neskirkju. Orgeltónleikar kl. 20. Jón Stefánsson, organisti Lang- holtskirkju. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Kyrrðarstund kl. 12.00. Orgeltónlist til kl. 12.10. Að stundinni lokinni er léttur máls- verður í safnaðarheimilinu. Ein- falt, fljótlegt og innihaldsrikt í erli dagsins. Neskirkja. Síðdegistónleikar kl. 18. Steingrímur Þórhallsson, orgel- nemi í Róm. Árbæjarkirlga. TTT-starf fyrir 10- 12 ára í Ártúnsskóla kl. 16.30-17.30. Breiðholtskirkja. Mömmumorg- unn á föstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Kfl. 11.15 leikfimi aldraðra. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11- 12 ára kl. 17-18. Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20-22. Grafar vogsk i rkj a. Mömmumorgnar kl. 10-12. Fræð- andi og skemmtilegar samveru- stundir, heyrum guðs orð og Súrejmsvörur Karin Herzog Kynning í dag kl. 14-18 Hagkaup, Skeifunni syngjum með börnunum. Kaffisopi og spjall. Alltaf djús og brauð fyr- ir börnin. Kópavogskirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæna- efnum má koma til prests eða kirkjuvarðar. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strand- bergi. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. ^ Vídalínskirkja. Bæna og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bi- blíulestur kl. 21. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Viðistaðakirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12. Opið hús fyiir 10-12 ára börn kl. 17-18.30. Landakirkja Vestmannaeyjum. Helgistund í Hraunbúðum kl. 11. Gestir velkomnir. Kl. 17.30 TTT gera eitthvað skemmtilegt í Landa- kirkju. Opið hús unglinga í KFUM. _ & K húsinu kl. 20.30. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Spilakvöld aldraðra fimmtudagskvöld kl. 20. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. PALLALVFTUR ÞÓR HF Reykjavík - Akureyri Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070 m tiL utlanda -auövelt að muna SÍMINN www.simi.is Ókeypis lögfræðiaðstoð íkvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, félag laganema
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.