Morgunblaðið - 23.09.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 21
Gauksmýrartj örn
endurheimt
NÚ er kominn í ljós árangur af að-
gerðum til að endurheimta Gauks-
mýrartjörn á jörðinni Gauksmýri í
Vestur-Húnavatnssýslu. Tjörnin var
fyrrum um 10 ha að stærð og mýr-
lendi með bökkum hennar. Þetta
land breyttist mjög við framræslu og
hvarf vatn að mestu úr tjörninni og
mýrlendi þornaði. A Gauksmýri er
ekki lengur stundaður hefðbundinn
búskapur. Eigendur jarðarinnai',
hjónin Jóhann Albertsson og Sigríð-
ur Lárusdóttir, eru að byggja þar
upp hesta- og ferðaþjónustubýli.
Hafa þau m.a. í hyggju að koma upp
aðstöðu til fugla- og náttúruskoðun-
ar og er endurheimt tjarnarinnar lið-
ur í því.
Aðgerðir við tjörnina hófust í júlí
er Flosi Eiríksson, verktaki á
Laugabakka, byggði yfirfallsstíflu úr
grjóti og jarðvegi í útfallsskurð úr
tjörninni. Yfirfallsstífla var talin
henta betur en útfallsrör er þar sem
Gauksmýrarlækur rennur um tjörn-
ina og mikið vatn getur flætt um
hana í leysingum og stórrigningum.
I gamla tjarnarbotninn voru einnig
hlaðnar upp nokkrar tappir sem von-
ast er til að fuglar verpi á. Tjörnin
var um fjórar vikur að fyllast og
rennur Gauksmýrarlækurinn nú á
yfirfallinu út úr henni. Vatnsborð
tjarnarinnar hefui- ekki fyllilega náð
fyrri stöðu og þarf að hækka stífluna
til að svo verði. Arangur af þessu er
þó mjög góður og stendur nú Gauks-
mýrartjörn aftur undir nafni og hef-
ur vatnsstaða hækkað í mýrlendi við
hana. Fuglar kunna að meta þessa
breytingu á tjörninni og hefur mikið
verið um endm-, gæsir og álftir á
henni nú í haust. Næsta sumar kem-
ur í ljós hvort fuglavarp eykst á
svæðinu. Margir vegfarendur á leið
um Norðurlandsveg hafa tekið eftir
þessari breytingu á tjörninni en hún
blasir við frá þjóðveginum.
Morgunblaðið/Borgþór Magnússon
Gauksmýrartjörn í byijun júní 1999 áður en endurheimt var hafin.
Mynd tekin við tjörnina um miðjan ágúst þegar vatn var komið í hana
að nýju eftir aðgerðirnar.
Það er nefnd um endurheimt vot- artjörn og er þetta fyrsta svæðið á
lendis sem staðið hefur með landeig- Norðurlandi sem endurheimt er á
endum að aðgerðum við Gauksmýr- vegum nefndarinnar.
Hannar kjóla
með „tilfinningua
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Flateyri - Hún heitir Díana Stor-
ásen og er sænsk myndlistar-
kona. Fyrir ári útskrifaðist hún
úr Myndlista- og handíðaskóla
Islands eftir þriggja ára nám í
skúlptúr. Áður hafði hún lokið
tveggja ára námi í sama fagi í
Svíþjóð. Að námi loknu fyrir
sunnan flutti hún ásamt maka
sínum, Högna Sigurþórssyni, og
syni þeirra, Mio, til Flateyrar
þar sem Högni fékkst við mynd-
menntarkennslu í Grunnskóla
Flateyrar og Díana hóf að
kenna myndlist á Isafírði, bæði
fyrir grunnskólanemendur og
um leið hélt hún sjálfstæð nám-
skeið í myndlist.
Þegar tökur hófust á mynd-
inni í „í faðmi hafsins" í sumar,
eftir þá félaga Lýð Árnason og
Jóakim Reynisson, vakti kjóll
aðalleikkonunnar, Margrétar
Vilhjálmsdóttur, mikla athygli.
Kjóllinn sá var skreyttur með
skeljum og með útliti hans og
hönnun var ákveðin tilvísun í
þema myndarinnar.
Umræddan kjól hannaði Dí-
ana sérstaklega fyrir myndina.
En þetta er ekki eini kjóllinn
sem hún hefur hannað því að á _
útskriftarsýningu hennar í MHI
og seinna meir í Slunkaríki fyrir
ári gat að líta fjóra sérstaka
kjóla sem allir eiga að túlka
ákveðnar tilfinningar notand-
ans.
Fyrstan ber að telja nam-
mikjólinn, sem samanstóð af
nokkrum kílóum af Mackintosh-
sælgæti sem var fest utan á
grind hringinn í kringum mittið.
Efri hluti kjólsins var síðan
venjuleg blússa án sælgætis.
Með nammikjólnum vildi Díana
undirstrika hlutverk kjólsins
sem tákngervings fyrir fegurð-
ina sem seður mann og um leið
fullnægir fegurðarþörfinni.
Óhætt er að segja að sá kjóll
hafi staðið undir væntingum og
satt margan manninn, því sæl-
gætið var nánast etið upp til
agna á útskriftarsýningunni.
Hinir þrír kjólarnir, glans-
mynda-, flugdreka- og teikni-
myndakjóllinn, hafa allir tilvísun
í tilfínningalegt ástand notand-
ans, æsku, frelsi, og lifandi lista-
verk. I kjólana notaði Díana
plast, smjörpappír og bómullar-
efni. Með þessum kjólum, sem
eru hver um sig sjálfstæð lista-
verk, vill Díana undirstrika að
fötin eigi að túlka hugarástand
hveiju sinni. Kjólarnir séu hann-
aðir utan um tilfinningar. Einnig
vilji hún prófa ný efni í myndlist
og hugmyndirnar sem fæðast við
notkunina ráði útkomunni. Sig
langi til að halda áfram að hanna
„tilfinningakjóla“ sem gætu nýst
til almennrar notkunar.
Aðspurð hvort hún fylgist
með tískuþáttum segir hún að
áhugi sinn hafi verið lítill í
fyrstu en siðan farið stigvaxandi
þegar hún fór sjálf að hanna.
Um þessar mundir er hún á
fullu við að teikna og mála og
þróa næsta ferli.
vARDJG
V AVtDVG
KKKDKD
íKoao
,< Hí I i
l I
:>'•* 1 ... • ,t |
H m **<&. 11 m
Gallerídagar IKEA
- endalaust úrval af
römmum og plakötum
. , .. - fyrir alla muni
a frabæru veroi!
Opiö: virka dagalO-1 8:30, laugardagaIO-1 7, sunnudagal2-1 7.
e p