Morgunblaðið - 23.09.1999, Blaðsíða 44
^44 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elsku faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR REYNIR EINARSSON,
Droplaugarstöðum,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu-
daginn 24. september kl. 13.30.
Dröfn R. Hjaltalín, Örn Hjaltalín,
María Hjaltalín,
Dögg Hjaltalín, Andri Úlriksson,
Agnes Hjaltalín Andradóttir,
Freyja Kjartansdóttir,
Karítas Ólafsdóttir.
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
HÖRÐUR ZOPHONÍASSON
rafvirkjameistari,
sem lést sunnudaginn 19. september sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 24. september kl. 15.00.
Hrönn Harðardóttir,
Erna Harðardóttir,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Zophonías Kristjánsson,
Kristján Zophoníasson,
Viðar Zophoníasson,
Steinunn Zophoníasdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
EINAR G. ÞÓRÐARSON,
Vatnsleysu,
Vatnsleysuströnd,
verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju
laugardaginn 25. september kl. 16.00.
Alice Lid,
Geir Einarsson, Laila Park,
Halldór Einarsson,
Þórunn A. Einarsdóttir, Hannes H. Gilbert
og barnabörn.
*
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns,
föður okkar, afa og langafa,
HAUKS JÓSEFSSONAR
deiidarstjóra,
Barmahlíð 48.
Svava J. Brand.
Þórunn Helga Hauksdóttir, Guðmundur Sveinsson,
Hilmar J. Hauksson,
Björn Torfi Hauksson, Laufey Birkisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Svem'r Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
i' Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Stofnað 1990
Útfararþjónustan ehf.
Rúnar Geirmundsson, útfararstjóri
Sími 567 9110
Heimsmeistara-
mót unglinga
á íslandi 2001?
SKAK
Reykjavík
Heimsmeistaramót
unglinga árið 2001
FIDE, Alþjóðaskáksamband-
ið, samþykkti á fundi sínum í Las
Vegas 28.-29. ágúst að gefa ís-
lendingum kost á að halda
heimsmeistaramót unglinga í
skák árið 2001.
Upphaf þessa máls má rekja
til umsóknar Taflfélagsins Hellis
sem félagið sendi fyrr á þessu ári
til FIDE um að halda heims-
meistaramót unglinga í Reykja-
vík árið 2000. Hugmyndin var sú
að mótið yrði hluti af hátíðahöld-
um í tilefni af því að Reykjavík
var valin ein af menningarborg-
um Evrópu. Þar sem í ljós kom
að framkvæmd keppninnar verð-
ur að vera á ábyrgð skáksam-
bands viðkomandi lands óskaði
Hellir eftir því að Skáksamband
íslands sendi umsókn til FIDE
um að halda keppnina, þótt fram-
kvæmd og fjármögnun yrði í
höndum Hellis. Skáksambandið
brást fljótt og vel við þeirri ósk.
Því miður hafnaði FIDE um-
sókn íslendinga og ákvað að
mótið yrði haldið í Armeníu á
næsta ári. FIDE var reyndar
einstaklega hliðhollt Armeníu á
fundi sínum í Las Vegas og sam-
þykkti að tvö önnur mikilvæg
mót yrðu haldin í Armeníu.
Þrátt fyrir að heimsmeistara-
keppni unglinga verði ekki hluti
af hátíðahöldunum á næsta ári,
þá bar umsóknin þann árangur
að hugsanlegt er að þetta mikil-
væga mót verði haldið hér á landi
ári 2001 og þá jafnvel bæði karla-
og kvennaflokkurinn.
Það er ljóst að mót sem þetta
mundi vekja alheimsathygli og
vera mikil lyftistöng fyrir bama-
og unglingastarf taflfélaga hér á
landi. Einnig væri mótið hvatn-
ing fyrir okkar sterkustu ung-
linga um að stefna að enn betri
árangri en hingað til og tryggja
sér sæti á mótinu.
Þess má geta að Helgi Ass
Grétarsson varð heimsmeistari
unglinga árið 1994.
Evrópukeppnin
á föstudagskvöld
Einn af athyglisverðari skák-
viðburðum síðari ára hér á landi
hefst annað kvöld í Hellisheimil-
inu, Þönglabakka 1 í Mjódd. Þá
hefst einn af undanrásarriðlum
Evrópukeppni taflfélaga 1999.
Upp undir 20 stórmeistarar,
margir hverjir heimsþekktir,
taka þátt í keppninni. Þar á með-
al verður Alexander Morozevich
(2.758), fjórði stigahæsti skák-
maður heims. Hann er jafnframt
einn stigahæsti skákmaðurinn
sem teflt hefur kappskák hér á
landi. Það má því búast við að
skákáhugamenn fjölmenni í
Þönglabakkann.
Morozevich teflir fyrir hina
sterku sveit Síberíu frá Tomsk,
en hún mætir einmitt Taflfélagi
Reykjavíkur í fyrstu umferð. TR
stillir upp sínu sterkasta liði og
margir skákáhugamenn munu
fagna þvl, að Guðmundur Sigur-
jónsson ætlar að tefla allar þrjár
umferðimar.
Alls taka átta íslenskir stór-
meistarar þátt í
keppninni, en það er
orðið æði langt síðan
svo margir þeirra
sáust saman í kapp-
skákmóti. Það er því
margt athyglisvert
við þessa keppni.
Oslo Schakselskap
hætti við þátttöku á
síðustu stundu, en í
þeirra stað kemur
þriðja íslenska sveit-
in, Skákfélag Akur-
eyrar. Það vekur
væntanlega athygli
margra, að Jóhann
Hjartarson teflir á
fyrsta borði fyrir
Akureyringa. Akureyringar
mæta Helli í fyrstu umferð.
Ármúlaskóli í öðru sæti
á Norðurlandamóti
Norðurlandamót framhalds-
skóla 1999 var haldið í Bærum í
Noregi 17.-19. september. Skák-
sveit Armúlaskóla tók þátt í mót-
inu fyrir íslands hönd og hafnaði
í 2. sæti með 14 vinninga í 20
skákum. íslensku keppendumir
unnu flestar viðureignirnar stórt
og tefldu flestir af miklu öryggi.
Það var hins vegar stórt tap
gegn Noregi I sem kom í veg fyr-
ir sigur Islands á mótinu. Noreg-
ur I sigraði í keppninni, hlaut 15
vinninga. Skáksveit Armúlaskóla
skipuðu:
1. Jón V. Gunnarsson 5 v. af 5
2. Arnar E. Gunnarsson 2 v. af 5
3. Davíð Kjartansson 4 v. af 5
4. Sveinn Þór Wilhelmsson 3 v. af 5
Rúnar Berg og Magnús Gunn-
arsson sigra á fullorðinsmóti
Rúnar Berg og Magnús Gunn-
arsson sigmðu á fyrsta fullorð-
insmóti Hellis á þessu hausti.
Mótið var haldið mánudaginn 20.
september. Þeir fengu báðir sex
vinninga í sjö umferðum. Rúnar
reyndist þó hærri á stigum. Ur-
slit urðu annars þessi:
1. Rúnar Berg 6 v.
2. Magnús Gunnarsson 6 v.
3. Stefán Amaids 5 v.
4. -6. Vigfús Ó. Vigfússon, Veturliði
Stefánsson og Eiríkur Bjömsson 4'A v.
7.-11. Gunnar Nikulásson, Stefán
Baldursson, Grímur Ársælsson, Finn-
ur Kr. Finnsson og Jón Þorleifur Jóns-
son 3Mi v.
12. Kjartan Másson 3 v.
o.s.frv.
Skákstjórar voru Þorfinnur
Bjömsson og Benedikt Egilsson.
Næsta fullorðinsmót verður
haldið mánudaginn 11. október
kl. 20 í Hellisheimilinu, Þöngla-
bakka 1. Fullorðinsmótin em
einungis opin skákmönnum 25
ára og eldri.
Enn bætist
í lið TG
Enn fjölgar erlendum skák-
meistumm á félagaskrá Taílfé-
lags Garðabæjar, en rússneski
stórmeistarinn Oleg Korneev
(2.615) hefur nú gengið til liðs við
félagið. Þar með er ljóst, að Tafl-
félag Garðabæjar gæti farið að
velgja Helli og TR undir uggum
ef það stillti upp sinu sterkasta
liði. Undanfarin ár hefur Taflfé-
lag Reykjavíkur verið duglegast
íslenskra félaga við að nýta sér
erlenda skákmenn til að styrkja
lið sín í deildakeppninni, en nú
gæti farið svo að Taflfélag
Garðabæjar tæki foiystuna á
þessu sviði.
Atskákmót
Reykjavíkur
Atskákmót Reykjavíkur 1999
hefst í félagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur, Faxafeni 12, föstu-
daginn 24. septem-
ber kl. 20 og verður
fram haldið laugar-
daginn 25. septem-
ber kl. 13. Tefldar
verða níu umferðir
eftir Monrad-kerfi
með 25 mínútna um-
hugsunartíma..
Fyrri daginn verða
tefldar fjórar um-
ferðir og þann síðari
fimm. Sigurvegar-
inn hlýtur nafnbót-
ina Atskákmeistari
Reykjavíkur 1999
og veglegan farand-
bikar til varðveislu í
eitt ár auk verð-
launagrips. Dagskráin verður
sem hér segir:
1.-4. umf. föstud. 24.9. kl. 20-24
5.-9. umf. laugard. 25.9. kl. 13-18
Verðlaun:
1. verðlaun 15.000 kr.
2. verðlaun 10.000 kr.
3. verðlaun 5.000 kr.
Veitt verða þrenn bókaverð-
laun fyrir bestan árangur 14 ára
ogyngri.
Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir
16 ára og eldri, en 800 kr. fyrir 15
ára og yngri. Öllum er heimil
þátttaka.
Ný mótaröð á
Grand-Rokk
Skákfélag Grand-Rokk hefur
ákveðið að efna til hraðskákmóta
alla laugardaga í vetur, nema
aðrir stóratburðir í skákinni séu
í gangi á sama tíma. Fyrsta mót-
ið var haldið 11. september og
sigraði Helgi Ólafsson stórmeist-
ari nokkuð örugglega. Ingólfur
Gíslason kom, sá og sigraði með
glæsibrag 18. september og
hlaut 12 vinninga af 13 möguleg-
um.
Næsta laugardag, 25. septem-
ber, klukkan 14 hefst fjögurra
móta röð sem styrkt er af Karli
K. Karlssyni. Sigurvegari á
hverju móti fær verðlaun frá fyr-
irtækinu, en að auki eru gefin
stig fyrir heildarframmistöðu. Sá
sem fær flest stig úr þremur
mótum verður krýndur meistari
mótaraðarinnar og fær að auki
20 þúsund króna verðlaun.
Næstu þrjú mót í þessari röð
verða 2., 16. og 23. október,
ávallt klukkan 14. Þátttakendur
geta skráð sig á Grand-Rokk,
Smiðjustíg 6. Keppnisgjald er
300 krónur á hverju móti og eru
allir skákáhugamenn, 20 ára og
eldri, velkomnir.
Skákmót
á næstunni
25.9. Grand-Rokk. Hraðskák kl. 14
24.9. Hellir & TR, Evrópukeppnin
3.10. Haustmót TR
Að gefnu tilefni vil ég minna
skipuleggjendur móta á að senda
úrslit móta til skákþáttar Morg-
unblaðsins strax að móti loknu
(dadi@vks.is). Skákmenn sem
sjá mót kynnt í þættinum vænta
þess einnig að sjá úrslitin birt.
Daði Örn Jónsson
Guðmundur
Sigurjónsson