Morgunblaðið - 23.09.1999, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bændasamtökin hafa komið á fot gagnabanka um rúmlega 100.000 íslensk hross
Á ANNAÐ hundrað þúsund ís-
lenskra hrossa eru skráð í tölvu-
tækan gagnagrunn Bændasam-
takanna. Nánast öll hross hér-
lendis eru skráð í grunninn, en
fyrirhugað er að hefja skráningu
á íslenskum hrossum erlendis í
janúar árið 2000.
Að sögn Ágústs Sigurðssonar,
hrossaræktarráðunauts Bænda-
samtakanna, er stefnt að því að
öll íslensk hross hvar sem er í
heiminum verði skráð í gagna-
grunninn, en áætlað er að þau
séu um 200.000 talsins. f grunn-
inum er meðal annars að finna
upplýsingar um ætterni, nafn,
uppruna, lit, sérstaka eiginleika
hestsins og mælingar á honum.
Bændasamtökin munu vera í
samstarfi við FEIF, alþjéðasam-
tök um íslenska hestinn, en
grunnurinn verður geymdur hjá
Bændasamtökunum. Gögnum um
hesta erlendis verður safnað í
gegnum Netið, að sögn Ágústs,
og munu samtökin liðka fyrir
skipulagningu málsins.
„Það er mjög sérstakt að upp-
lýsingar um eitthvert ákveðið
kyn séu til á einum
stað. Islenski hestur-
inn er ótrúlega vin-
sæl skepna og af
þeim 200.000 hross-
um sem eru til í heim-
inum er innan við
helmingur hérlendis.
Við gætum byrjað
strax að skrá hross
erlendis en það krefst
forritunarvinnu og
kostar peninga en
fjármögnun verksins
setur hraða þess
skorður.
Við vonumst til að
byija að skrá íslensk
hross erlendis í janúar 2000.
Okkar sérstaða felst í því að við
erum upprunaland ís-
lenska hestsins en
það er ekki sjálfgefið
lengur því hesturinn
er ræktaður um víða
veröld og því er mik-
ilvægt fyrir okkur að
koma því á framfæri.
Gagnagrunnurinn er
lykillinn að því að fs-
land hljóti alþjóðavið-
urkenningu sem upp-
runaland í'slenska
hestsins," segir
Ágúst. Hann segir að
bankinn sé mikilvæg-
ur upp á að ná ár-
angri við ræktun,
hann sé einnig risasöluskrá fyrir
íslenska hestinn og auk þess
ómetanlegur við rannsóknir.
„Nú er til dæmis í gangi ákveð-
ið rannsóknarverkefni sem fjall-
ar um erfðafræði lita. Með notk-
un upplýsinganna úr gagna-
grunninum er bæði hægt að fá
upplýsingar um hvernig litirnir
hegða sér og einnig reikna út lík-
ur á lit afkvæma. Bankinn er því
bæði hagnýtur og mjög þýðing-
armikill fyrir rannsóknarniður-
stöður. Eins er hann risasöluskrá
fyrir íslenska hestinn ef fólk er
að Ieita að hestum til ræktunar.
Þarna eru á einum stað allar
upplýsingar um íslenska hestinn
og einstök hross,“ segir Ágúst og
bendir á að gagnabankinn sé til
sölu á geisladiski hjá Bændasam-
tökunum og í lionum séu einnig
vistaðar Ijósmyndir af hrossun-
um, sem óneitanlega glæði ein-
staklingana meira iífi.
5 milljón sauðkindur einnig
skráðar
Auk hrossagagnabankans
halda Bændasamtökin til haga
svipuðum gagnabanka fyrir
nautgripi og sauðkindur. I
gagnagrunninum um sauðkind-
ina eru um ð milljónir kinda en
þær upplýsingar hafa safnast á
síðustu 50 árum eða svo, að sögn
Ágústs. Þetta er að öllum líkind-
um langstærsti gagnagrunnur
um sauðfé í heiminum.
Bankinn er að mestu á tölvu-
tæku formi og er þar skráð ýmis-
legt sem tengist afurðum sauð-
fjárins, svo sem fallþungi, fijó-
semi og mat á gæðum með tilliti
til fitu- og vöðvasöfnunar, svo
eitthvað sé nefnt, auk allra ætt-
ernistenginga. Að sögn Ágústs
eru báðir grunnar notaðir í kyn-
bótastarfi. Þar er hægt að sjá
hvaða einstakling á að velja til
áframhaldandi ræktunar með til-
Iiti til ákveðinna eiginleika.
Gagnast við ræktun,
sölu og rannsóknir
Ágiíst Sigurðsson
Morgunblaðið/Loftmyndir ehf.
Reykjanesbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem hafa valið þann kost að leggja til hliðar hefðbundin kort af sveitarfélaginu og er nú með öll gögn í
tölvutæku formi sem felld eru inn á loftmynd af sveitarfélaginu.
Sveitarfélög nota mynd-
kort í stað landakorta
NOKKUR sveitarfélög hafa á síð-
ustu árum sparað sér umtalsverða
fjármuni við kortagerð með því að
nota loftmyndir í stað hefðbund-
inna landakorta. Að sögn Arnar
Ingólfssonar hjá ísgraf ehf. er
verulegur sparnaður fólginn í því
að nota loftmyndir í stað korta,
ekki síst vegna þess að kostnaður
við að endumýja loftmyndir em að-
eins brot af því sem kostar að gera
ný kort.
Sveitarfélög þurfa að halda utan
um mikið magn upplýsinga um
staðsetningu lagnakerfa sem flytja
heitt og kalt vatn, skolpleiðslur og
fleira. Fram að þessu hafa flest
sveitarfélög haldið utan um þessar
upplýsingar með því að teikna lagn-
imar inn á kort. Slík kort hafa þann
kost að vera nákvæm, en á móti
kemur að verulegur kostnaður fylg-
ir gerð þeirra. Om sagði að mjög
mörg minni sveitarfélög treystu sér
ekki til að fjárfesta í kortum af
sveitarfélaginu vegna þessa kostn-
aðar. Þau væru því oft að notast við
gömul og úrelt kort.
Myndkort í stað Iandakorta
Loftmyndir ehf., sem er í eigu
sömu aðila og Isgraf, hafa undan-
farin sumur unnið kerfisbundið að
því að mynda allt landið úr lofti
með það að markmiði að koma upp
gagnagrunni fyrir landið allt. Með
því að tengja myndimar lands-
hnitakerfi (ISNET 93) er hægt að
ná fram líkani að landinu, sem gerir
það að verkum að hægt er að fá
mynd af landinu í þrívídd. Þetta
hefur verið kallað myndkort.
Jafnframt hefur Isgraf þróað
landfræðilegt upplýsingakerfi, sem
kallað er Oddviti, og er nú notkun
hjá allmörgum sveitarfélögum og
lagnafyrirtækjum. Örn sagði að
kerfið héldi utan um upplýsingar
um öll lagnakerfi og staðsetti þau
inn á loftmyndir. Upplýsingar um
lagnakerfin væm felldar inn á loft-
mynd. Ekki þyrfti því að teikna
nýtt kort þótt breytingar yrðu í til-
tekinni götu eða hverfi. Nóg væri
að taka nýja loftmynd af hverfinu
og fella lagnakerfið inn á hana.
Hann sagði að kostnaður við þetta
væri um þriðjungur af kostnaði við
hefðbundna kortagerð.
Öm viðurkenndi að nákvæmni
þessarar aðferðar væri ekki jafn-
mikil og í hefðbundinni kortagerð.
Nákvæmnin færi úr einum senti-
metra í u.þ.b. 20 sendimetra. En
hann sagði að í fæstum tilvikum
skipti það máli. Þegar farið væri út
í framkvæmdir þyrfti ætíð að gera
mælingar á staðnum óháð ná-
kvæmni þeirra korta sem notast
væri við.
Frá 1996 hefur Vegagerðin boðið
árlega út vinnu við loftmyndir og
landlíkön af verkum sem hún fram-
kvæmir. Loftmyndir hafa átt
lægsta tilboð í þessum útboðum.
Örn sagði að þetta hefði leitt til
mikilla breytinga á hönnun vega-
framkvæmda. Allir vegir væru
núna hannaðir í landlíkönum, sem
auðveldaði alla útreikninga á kostn-
aði og stærð efnisflutninga. Teikn-
ingar af vegaframkvæmdum í dag
væru því nánast óþekkjanlegar frá
því sem áður var.
$TOR UTSALA
UM ALLT LAND
útivistar & vinnufatnaður
SEXTÍU OG SEX NORÐ
66°N Skúlagötu 51 Reykjavík • Akureyri • Vestmannaeyjum
Hafnarbúðin ísafirði • SÚN Neskaupstað • Skipaþjónusta Esso Ólafsvík
Vélsmiðja Hornafjarðar • Skeljungsbúðin Keflavík
LIN gefur
ekki upp
persónu-
upplýs-
ingar
STJÓRN Lánasjóðs íslenskra
námsmanna samþykkti á
stjórnarfundi 17. september
síðastliðinn tillögu um að upp-
lýsingar um nöfn og póstföng
umsækjenda og lánþega skuli
hér eftir teljast einstaklings-
bundnar upplýsingar sem fara
skal með sem trúnaðarmál.
I samþykktinni segir að
vafatilvik sem upp kunna að
koma skuli lögð fyrir Tölvu-
nefnd, sbr. lög nr. 211/1989
um skráningu og meðferð
upplýsinga. Þar segir jafn-
framt að þótt ekki hafi hingað
til verið farið með slíkar upp-
lýsingar sem trúnaðarmál
telji stjórnin eðlilegt að endu-
skoða þá afstöðu, meðal ann-
ars í ljósi þeirra sjónarmiða
sem fram hafa komið í fjöl-
miðlaumræðu undanfarna
daga. Mikilvægt sé að náms-
menn og aðrir viðskiptavinir
beri fullt traust til sjóðsins
hvað varðar meðferð persónu-
upplýsinga.