Morgunblaðið - 23.09.1999, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 23.09.1999, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 13 lllmferðarmiðstöðihái Leitað að jeppa og kerru eftir innbrot LÖGREGLAN á Hvolsvelli rann- sakar nú innbrot, sem framið var í húsnæði Bílfoss við Suðurlandsveg á Hellu aðfaranótt 15. september, þaðan sem stolið var umtalsverðu magni af nýjum hjólbörðum af ýms- um gerðum. I tengslum við rann- sóknina er upplýsinga leitað um ferðir dökkblárrar Toyota Landcru- se bifreiðar með yfirbyggða dökka kerru. Kerran er merkt á vinstri hlið ,ADDICE“. Biður lögreglan þá, sem vita hvar kerran eða bif- reiðin er niðurkomin, að hafa sam- band við sig. Meðal þeirra hjólbarðategunda sem saknað er frá Bílfoss er Cooper 10,5 LT 31 tomma, Cooper SGR 175x70x13, Cooper SGR 185x70x13, Cooper SGR 195x70x15, Firestone 900s 175x70x13, Mudder 36 tomma, Summit AT 33 tomma, sólaðir barð- ar af Colway-gerð, stærðir 155R- 165Rxl3 og 195Rxl5, álfelgur 10 tomma, 6 gata. Ennfremur var stolið miklu magni af ýmiskonar ljósum, svo sem þokuljósum, vinnu- ljósum kösturum, breiddarljósum og glitmerkjum með tegundarheit- unum RINDER og SIRIUS. Formaður Golfsambandsins ekki sammála túlkun ÍSÍ um áhugamennskunefnd GUNNAR Bragason, formaður Golfsambands Islands, kveðst vera ósamþykkur túlkun framkvæmda- stjórnar ÍSÍ um að á lögum sam- bandsins sé sá veigamikli ann- marki að áhugamennskunefndar þess sé ekki getið þar. Hann telji ákvæði í lögum sambandsins þýða að nefndin hafi réttmætan grund- völl. Gunnar segir einnig að fjallað verði eins fljótt og auðið er um þá ósk lögfræðings ungs kylfings, sem sviptur var áhugamannaréttindum sínum til sex mánaða, að úrskurður áhugamennskunefndar þar að lút- andi verði felldur úr gildi þegar í stað. „í lögum sambandsins segir að íþróttin sé stunduð samkvæmt reglum The Royal and Ancient- golfklúbbsins í St. Andrews í Skotlandi, sem gefur út reglur sem segja til um hvemig á að standa að golfleik áhugamanna. Við höfum alla tíð unnið lög sambandsins eftir reglum þeirra, sem öll heimssam- bönd í golfi fara eftir. Þar er skýrt kveðið á um að áhugamennsku- nefnd skuli vera til staðar og hvert verksvið hennar á að vera. Við telj- um því að nefndarinnar sé getið í lögum, þó svo að hennar sé ekki getið sérstaklega,“ segir hann. Hann segir löngu viðurkennt að golfíþróttin sé mjög ströng hvað áhugamennsku varðar og því hafí nefndin starfað í samræmi við lög sem gilda um hana. Litið alvarlegiim augum Gunnar segir að stjórn GSÍ muni koma saman fljótlega til fundar vegna erindis lögfræðings kylfings- ins. „Ég veit ekki nákvæmlega hvenær við munum funda um ósk lögfræðingsins, en við erum að skoða okkar hlið á málinu frá a til ö, og munum svara erindinu sem fyrst. Þetta mál er þannig vaxið að skoða þarf það mjög vel. Við lítum það mjög alvarlegum augum og viljum að sjálfsögðu gera það sem rétt er, en ekki brjóta á neinum að ástæðulausu,“ segir Gunnar. Gunnar segir að kylfingurinn ungi sé sá eini sem sviptur hafi verið áhugamannaréttindum á þessu ári. Hann vann verðlaun á opna AIWA-golfmótinu að andvirði 51.800 krónur, sem er tæpum 12 þúsund krónum yfir því hámarki sem áhugamennskunefnd GSI hef- ur sett um verðmæti vinninga fyrir Hið fyrsta verði fundað um kylfíng1 í banni áhugamenn. Annar kylfingur fékk á mótinu verðlaun sem voru yfir viðmiðunarmörkum, eða að and- virði 62.100 krónur, en að sögn Gunnars var um atvinnumann að ræða. „Atvinnumenn hafa heimild til að taka við þessum verðlaunum, það er enginn ágreiningur um það,“ segir hann. Aðspurður hvort ekki sé þver- sögn í því fólgin að áhugamenn og atvinnumenn keppi samhliða á mótum en megi ekki taka við sömu verðlaunum fyrir árangur í þeim, segir Gunnar að þetta fyrirkomu- lag hafi verið samþykkt fyrir nokkrum árum á golfþingi. Enginn óánægður „Reglurnar gilda með þessum hætti og í þessu felst munurinn á áhugamönnum og atvinnumönn- um. Sem atvinnumaður geturðu spilað upp á peninga en sem áhugamaður áttu í raun og veru ekki að gera slíkt. Það að þessir aðilar spili samhliða á mótum er ákvörðun golfþings sem allir golf- klúbbar stóðu að og var ekki deilt um það. Menn vissu fyrir hvernig þetta fyrirkomulag yrði í fram- kvæmd og okkur vitanlega hefur enginn verið óánægður með það,“ segir Gunnar. Svipting áhugamanna- réttinda Golfsambandið sendi frá sér eft- irfarandi yfirlýsingu síðdegis í gær: „Samkvæmt lögum Golfsam- bands íslands þá starfar samband- ið samkvæmt reglum „The Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews" (R&A) eins og önnur landssamtök kylfinga. í reglum R&A er skýrt tekið fram að golfyf- irvöld í hverju landi fara með yfir- stjóm golfmála og hefur sá háttur verið hafður hér á landi að stjóm GSI hefur skipað Áhugamennsku- nefnd með erindisbréfi í upphafi hvers starfsárs. Það er síðan hlut- verk nefndarinnar að fylgjast með að reglum um áhugmannaréttindi sé framfylgt hér á landi. í reglum R&A um ákvörðun brots á áhugamannareglum kemur fram í 1. lið 2. reglu: „Hvenær sem viðkomandi nefnd golfsambands, fær vitneskju um hugsanlegt brot kylfings sem telur sig áhugamann, gegn skilgreiningunni á áhuga- manni í golfi, skal hún að lokinni rannsókn sem hún álítur æskilega, úrskurða hvort brot hafi verið framið eða ekki. Hvert tilvik skal úrskurða eftir þeim staðreyndum sem fyrir liggja. Úrskurði hennar verður ekki áfrýjað." Eftir þessari reglu úrskurðaði Áhugamennsku- nefnd í máli ungs kylfings nú ný- verið. í framhaldi af bréfi fram- kvæmdastjórnar ÍSÍ vegna þessa máls, þá er stjórn GSI að láta skoða hvort reglur R&A varðandi vinnureglur og viðurlög Áhuga- mennskunefnda séu strangari en á sé fallist í dóms- og refsiákvæðum ÍSÍ. Framhalds málsins af hálfu GSÍ mun ráðast af þeirri niður- stöðu. Hvort að reglur um áhuga- mennskuréttindi séu réttlátar eða skynsamlegar má alltaf deila um en GSI sem er landssamband kylfinga hér á landi verður að hlýta þeim alþjóðareglum sem við höfum skuldbundið okkur til að fylgja, enda nauðsynlegt ef íslenskir kylfingar vilja vera gjaldgengir á erlendum vettvangi. Golfsambönd norðurlandanna undir forystu Svía hafa í nokkur ár barist fyrir því á alþjóðavettvangi að þessar reglur séu rýmkaðar enda hafa áhugamennskureglur í öðrum íþróttagreinum tekið mikl- um breytingum hin síðustu ár. Það er von stjórnar GSÍ að á áhuga- mennskuráðstefnu EGA (Europe- an Golf Association) sem haldin verður nú í desember verði þessi mál tekin til ítarlegra skoðunar og reglur rýmkaðar." Leyfí hagp- drættis SIBS framlengt til 2007 RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum á þriðjudag frum- varp, sem Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra kynnti fyrir ríkisstjórninni um breytingu á lögum um vöruhappdrætti fyrir SIBS. Með frumvarpinu var lagt til að heimild SÍBS til rekstrar vöruhappdrættis yrði fram- lengd um átta ár, þ.e. til ársloka 2007, en leyfið átti að renna út um næstu áramót. Væri slík framlenging í samræmi við gild- istíma heimildar happdrættis DAS sem framlengdur var með lögum í hittifyrra. Framkvæmdir við nýjan Hafravatns- veg hefjast í haust LOKIÐ er mati á umhverfisáhrif- um vegna nýs Hafravatnsvegar og er áætlað að fyrsti hluti vegarins verði tilbúinn fyrir Kristnitökuhá- tíð árið 2000. Fyrsti áfangi vegaframkvæmd- arinnar er 3,4 km. En í þeim áfanga verður lagður nýr vegur að Keldnaselshæð, þaðan sem lagður verður tengivegur að núverandi gatnamótum Hafravatnsvegar og Nesjavallavegar við Dalland. Veg- urinn verður lagður bundnu slitlagi og er áætlað að þessi framkvæmd hefjist nú í haust. Síðari áfanginn er 3,1 km, en með honum verður vegurinn framlengdur frá Keldnaselshæð norður yfir Úlfarsá og hann tengdur þar Úlfarsfells- vegi. Þrír framkvæmdakostir voru kynntir að nýjum Hafravatnsvegi og var sú leið valin sem talin var valda minnstri röskun á lífríki stað- arins og falla best að aðalskipulagi. En markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á austurjaðri höfuðborgarsvæðisins. Ekki var talið koma til greina að endur- byggja gamla Hafravatnsveginn C \,Hafravatn Nýr\, Hafravatnsvegur Langavatnl NeájavelHr . áfangi sUð Framkvæmdir vegna 1. áfanga nýs Hafravatnsvegar hefjast nú í haust og verður lokið fyrir Kristintökuhátíðina árið 2000 vegna öryggissjónarmiða og hættu á hljóðmengun. Enn á eftir að ákveða hvenær hafist verður handa við síðari hluta framkvæmdarinnar. mm 20- fOv afsláttur zo*m Rymum fyrir nýju vetrarlínunni!! Reysur lákkar P Persónuleg og fagleg þjónusta lltlVISTAlt BI»IN Buxim II Sími: 551 9800 og 551 3072 m http://,come.to/utisDort
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.