Morgunblaðið - 23.09.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 29
Dagbækur pólitísks einkaritara Johns Majors
Vildi að Thatcher
yrði „eyðilögð“
LÍKLEGT er, að
stuðningsmenn Marg-
aret Thatcher hugsi nú
John Major þegjandi
þörfina en í fyrradag
var upplýst, að aðeins
sex mánuðum eftir að
hann tók við af henni
sem forsætisráðherra
Bretlands, hafi hann
látið í ljós von um, að
hún yrði „eyðilögð".
Kemur þetta fram í
dagbókum Judith
Chaplin, sem var póli-
tískur einkaritari
Johns Majors á árun-
um 1990 til 1992.
Chaplin, sem var
kjörin á þing fyrir
íhaldsflokkinn 1992,
lést ári síðar, aðeins 53
ára að aldri. Opinber-
lega var hún alltaf trú
og trygg Major en dagbækumar
hennar gefa hins vegar af honum
ófagra mynd og lýsa honum í raun
sem misheppnuðum forsætisráð-
herra. Að vísu raunsæjum að sumu
leyti en stefnulausum. Segir hún
meðal annars, að hann hafi ekki þol-
að neina gagnrýni og „tekur hana
alltaf persónulega. Þetta leggst
þungt á okkur öll, sem vinnum fyrir
hann“.
Ottaðist að virðast kjánalegur
í dagbókunum segir, að í veislu í
mars 1991 hafi Major verið „dálítið
drukkinn" og þá hafi hann skamm-
að einkaritara sinn eins og hund
frammi fyrir blaðamönnum.
Chaplin segir, að Major hafi verið
„vonlaus leiðtogi og reynir að forð-
ast opnar umræður af ótta við að
virðast kjánalegur“. Segir hún, að
Major hafi verið fullur „af fordóm-
um gagnvart þeim, sem honum
finnst hafa átt of auðveldan frama
en skiiur ekki, að margir þeirra
hafa orðið að berjast fyrir sínu _
jafnvel Thatcher.“
Það eru þó ummæli Majors um
Thatcher, sem vekja mesta athygli,
og þau eiga vafalaust eftir að reita
hægriarminn í Ihaldsflokknum til
reiði. Þeir, sem honum tilheyra,
hafa lengi haldið því fram, að Major
hafi verið farinn að brugga
Thatcher launráð löngu áður en hún
var í raun sett af og víst þykir, að
hjaðningavígin, sem hafa einkennt
undirbúning lands-
fundar Ihaldsflokksins
í næsta mánuði, muni
nú færast í aukana.
Ófagrar lýsingar
Chaplin segir, að í
júní 1991 hafi Major
heyrt einkaritara sinn,
Gus O’Donnell, nefna
Thatcher á nafn og þá
hafi hann sagt: „Eg vil,
að hún verði einangr-
uð, ég vil, að hún verði
eyðilögð." „Geggjuð“,
„brjáluð", „vitlaus" og
„móðursjúk" eru orðin,
sem Chaplin segir, að
Major hafi notað um
Thatcher og hún segir,
að Major hafi talið, að
Thatcher hefði verið
„búin að vera“ áður en
kom til hins örlagaríka
leiðtogakjörs í nóvember 1990.
Chaplin segir í dagbókunum sín-
um, að þegar Major hafi verið sest-
ur í forsætisráðherrastólinn hafi
„hver einasta ákvörðun verið tekin
með tilliti til þess hvaða áhrif hún
hefur fyrir hann og frama hans. Þá
er ég ekki að segja, að hann sé ekki
viðkunnanlegur eins og altalað er,
en hann er miskunnarlaus".
Hluti af dagbókarskrifum Chaplin
birtist í Sunday Telegraph um síð-
ustu helgi og síðari hlutinn verður
birtur um næstu helgi. Akváðu
bömin hennar að birta þau til að
þáttur hennar í þessum að mörgu
leyti sögulegu atburðum yrði lýðum
ljós en vildu þó bíða með það vel
fram yfir þingkosningamar 1997.
á einu bretti
Við hjá Toyota - betri notuðum bílum höfum fengið 200 góða og trausta Toyota Corolla á sölu á Nýbýlaveginum
Bílarnir, sem allir eru mjög nýlegir, koma frá Bílaleigu Flugleiða, hafa fengið gott og reglulegt eftirlit og eru
allir í ábyrgð.
Viðskipti við Toyota - betrí notaða bíla
eru örugg og áhyggjulaus viðskipti
Cg) TOYOTA
Betn notaðir bílar
Sími 563 4400