Morgunblaðið - 23.09.1999, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Viðsjárvert ástand rfkir enn á Austur-Tímor eftir komu friðargæslusveitanna
Síðustu sólar-
hringar afar
hættulegir
Ofbeldið magnast og morð á hollensk-
um blaðamanni veldur óhug
Dili. Reuters, AFP, AP.
Reuters
Ástralskur hermaður á verði á götu í Dili, höfuðstað Austur-Tímor. Reykmökk lagði frá húsum í borginni
eftir íkveikjur manna sem leggjast gegn sjálfstæði landsins.
FRIÐARGÆSLULIÐ Sameinuðu
þjóðanna á Austur-Tímor hóf í gær
að færa sig varfærnislega frá höfuð-
staðnum Dili og út í hin stríðshrjáðu
héruð eyjunnar á meðan vígahópar
sem styðja áframhaldandi samband
A-Tímor við Indónesíu virtust í
auknum vígahug. I Dili ruddust
hundruð sársvangra flóttamanna
sem hafast við í fjalllendinu á A-
Tímor inn í skemmu þar sem mat-
væli voru geymd og friðargæsluliðar
gerðu mikið magn heimatilbúinna
vopna upptækt. Ofbeldi virðist nú
vera vaxandi á A-Tímor þrátt fyri
komu friðargæsluliðsins og hefur
morð á hollenskum blaðamanni vald-
ið óhug. Peter Cosgrove, yfírmaður
friðargæsluliðsins, sagði í gær að
síðustu tveir sólarhringar hefðu ver-
ið afar hættulegir.
Lík hollenska blaðamannsins
Sander Thoenes, sem starfaði fyrir
Financial Times og var nýkominn til
A-Tímor, fannst illa útleikið á svæði
sem er enn á valdi ofstækishópa er
styðja stjómvöld í Jakarta. Vitni að
morðinu segja að menn sem klæddir
voru einkennisbúningum
indónesíska hersins hafi veitt
Thoenes eftirför og myrt hann á
þriðjudagskvöld í úthverfi Dili.
Thoenes flúði, við annan mann á bif-
hjóli, undan vígamönnunum og sagði
ökumaðurinn, sem komst undan, að
hann hefði misst stjóm á hjólinu í
eltingarleiknum. Hann hefði hlaupið
inn í skóglendi og hrist morðingjana
af sér en Thoenes hefði orðið eftir
við götuna.
Fleiri blaðamenn hafa orðið fyrir
árásum vígahópa andstæðinga sjálf-
stæðis á A-Tímor undanfarna daga.
Alls er talið að þúsundir manna hafi
týnt lífi í átökum undangenginna
vikna en indónesísk hermálayfirvöld
segja að innan við eitt hundrað
manns hafi týnt lífi til þessa.
Kanadíski blaðamaðurinn Paul
Dillon, sem er fréttaritari The Globe
and Mail, sagðist í gær hafa komið
að líki starfsbróður síns. Sagði hann
að svo virtist að líkið hefði verið
dregið langa leið þar sem blóðför
sáust á götunni. „Penni hans lá á
jörðinni, tveimur metmm frá. Minn-
isbókin var þar líka,“ sagði Dillon.
Vopn gerð upptæk
Ástralskar hersveitir sem fara fyr-
ir friðargæsluliði SÞ réðust í gær inn
í höfuðstöðvar eins hinna fjölmörgu
vígahópa er á eyjunni starfa. Hand-
tóku þær sex menn og gerðu Ijós-
myndir, bankayfirlit og önnur skjöl
upptæk. Þá var tilkynnt um að frið-
argæsluliðar hefðu gert hundmð
skotvopna, mest heimatilbúnar byss-
ur, sveðjur og hnífa upptæk. „Við
höfum sannarlega breytt ýmsu, en
það leynast enn afar hættulegir
menn þama úti,“ sagði Mark Evans,
höfuðsmaður og yfirmaður land-
gönguliða. Peter Cosgrowe hefur
lýst því yfir að það muni taka nokkr-
ar vikur að koma á lögum og reglu á
A-Timor.
Wiranto, yfirmaður Indónesíu-
hers, sagði í gær að herlögum sem
komið var á í A-Tímor í síðustu viku
verði senn aflétt. Sagði hann að yfir-
völdum í Jakarta hefði verið tjáð af
yfirmanni herdeildanna sem era á A-
Tímor að flest væri nú með ró og
spekt á eyjunni. Friðargæslulið SÞ
hefur hins vegar lýst því yfir að
ástandið sé afar viðsjárvert.
Foringi eins vígahópanna í Dili
sakaði í gær sjálfstæðissinna um að
hafa ráðist inn í búðir hóps síns og
myrt þar nokkra menn með hnífum,
brennt húsakynni, rænt um 400
mönnum og fært þá til fjalla.
„Nokkrir ungir meðlimir Blóðs sam-
stöðu [vígahópsins] vom stungnir til
bana og þeir brenndu nærliggjandi
hús,“ sagði Miguel Soares Babo við
fréttamenn í Atambua á Vestur-
Tímor.
Friðargæsluliðið sagt tefja
fyrir neyðaraðstoð
Alþjóðlegu hjálparsamtökin Lækn-
ar án landamæra sökuðu friðargæslu-
lið SÞ um að tefja fyrir að neyðarvist>
ir gætu borist til landsins. „Hver dag-
ur skiptir máli ef bjarga á mannslíf-
um,“ sagði Susanne Christofani, tals-
maður samtakanna. Yfirmenn gæslu-
liðsins sögðu hins vegar að áður en
gögn gætu farið að berast til landsins
yrðu aðgönguleiðir að vera tryggðar.
Herflugvélar vörpuðu um tíu tonn-
um af neyðarvistum til bágstaddra
flóttamanna sem hafast við í sólþorn-
uðum hlíðum A-Tímor í gær.
Hundmð þúsunda flóttamanna em
þar saman komin eftir að vígahópar
ráku þá úr Dili og nálægum byggð-
um og segja hjálparstarfsmenn að
vistirnar sem kastað var nýtist ekki
nema broti alls þess fjölda sem er í
nauðum staddur. Matarsendingum
var frestað sl. sunnudag að tilmælum
friðargæsluliðsins en samkvæmt
samkomulagi við indónesísk stjóm-
völd er flugvélum gert skylt að lenda
í Dili áður en mat er komið til fólks
svo Indónesíuher geti gengið úr
skugga um að ekki sé verið að flytja
vopn til flóttafólksins.
Fyrstu dægrin
afar mikilvæg
Hermálasérfræðingar segja að
fyrstu dægrin séu afar mikilvæg í
friðargæsluaðgerðum líkt og þeim
sem nú standa yfir á A-Tímor. Frið-
argæslulið SÞ á eyjunni hefur um-
boð öryggisráðsins til að beita valdi
ef þörf krefur og er talið að afar mik-
ilvægt sé að ef vart verði við mót-
spyrnu þá beiti það hörðu strax í
upphafi. Mark Laity, hermálasér-
fræðingur BBC, segir að reynslan
frá Bosníu og Kosovo kenni að ef
gripið er til harðra aðgerða muni það
spyrjast fljótt út og varna frekari
vandræðum síðar meir.
Ástralar hafa lýst því yfir að víga-
hópar verði ekki teknir neinum vett-
lingatökum og talið er líklegt að
breskar hersveitir taki sömu afstöðu.
Hins vegar sé enn óljóst hvaða
stefnu hersveitir Asíuríkja muni
taka og þótt þær séu vel þjálfaðar þá
vilji yfirboðarar þeirra fara varfærn-
islega í sakirnar.
Friðargæsluliðið hefur nú hafið
sókn út úr Dili en jafnframt því að
halda út úr höfuðstaðnum þykir sýnt
að hersveitimar geti gefið á sér
höggstað ef skipulagið er ekki þeim
mun betra.
Tamilar harð-
lega gagnrýndir
Colombo. AFI*.
Reuters
Diana Ross handtekin
RADHIKA Coomaraswamy, sér-
legur embættismaður Sameinuðu
þjóðanna á Sri Lanka, varaði
skæmliða Tamfla á Sri Lanka í gær
við að þeir gætu átt yfir höfði sér
ákærur fyrir stríðsglæpi og for-
dæmdi hún stuðning stjómmála-
manna Tamíla við hryðjuverk. 54
múslímskir þorpsbúar vora myrtir
af skæmliðum Tamfla á laugardag
og hafa mannréttindasamtök á
borð við Amnesty Intemational
fordæmt óhæfuverldn.
„Nú á tímum alþjóðlegra dóm-
stóla á þetta að vera öllum full-
ljóst,“ sagði Coomaraswamy, sem
sjálf er Tamfli, í blaðagrein er birt-
ist í Colombo, höfuðstað Sri Lanka,
í gær. Sagðist hún óttast frekari
hryðjuverk á næstunni en ekki síst
þá þögn og ótta sem virðist ríkja
meðal íbúa Sri Lanka. „Eg hef tek-
ið viðtöl við fjölmörg fórnarlömb
stríðsins. Þögnin er þeirra fyrstu
viðbrögð. Því meiri sem hryllingur-
inn er því meiri er þögnin,“ sagði
hún í grein sinni.
Færir Tamílum aðeins skömm
Efaðist Coomaraswamy stórlega
um að hörð þjóðemisstefna sem
rekin væri af Tamflum hefði skilað
nokkm öðra en fólksflótta og al-
mennri skelfingu. Sagði hún að
morð og ofbeldisverk á saklausum
borguram gerðu lítið annað en að
færa skömm yfir Tamfla. „Enginn
sem trúir á mannréttindi eða fé-
lagslegt réttlæti getur réttlætt
þessar aðgerðir."
Vamarmálaráðuneyti Sri Lanka
neitaði fyrst um sinn að hersveitir
Tamfla bæra ábyrgð á morðunum
en viðurkenndi þó í gær að nokkrir
þorpsbúar kynnu að hafa orðið fyr-
ir skotum.
BANDARÍSKA söngkonan Diana
Ross var handtekin í gær á Heath-
row-flugvelli í London fyrir að
ráðast á öryggisvörð, konu, sem
Diana sakaði um að hafa þuklað á
brjóstum sér við líkamsleit. Segist
hún hafa svarað í sömu mynt,
þuklað á brjóstum konunnar og
spurt hvernig henni líkaði það.
Haft er eftir einum öryggisvarð-
anna, að Diana hafi raunar ekki
látið þar við sitja, heldur æpt og
öskrað af öllum lífs- og sálarkröft-
um. Ætlaði hún til New York með
Concorde-þotu og var sest í sætið
sitt er lögreglan kom og Ieiddi
hana burt hálfgrátandi. Henni var
þó sleppt með áminningu eftir 20
mínútur. Diana Ross er í miklum
metum sem söngkona en hún er
líka fræg fyrir að kunna lítt að
stjórna skapi sínu.
Jack Straw, innanrík-
isráðherra Bretlands
Rannsókn
á njósna-
málunum
London. Reuters.
JACK Straw, innanríkisráðherra
Bretlands, sagði í gær, að hann hefði
fyrirskipað rannsókn á njósnamálun-
um, sem upplýst hefur verið um að
undanfömu.
Stjórnarandstaða íhaldsflokksins
hefur krafist þess, að málin verði
könnuð ofan í kjölinn en Straw hefur
lítið um það sagt þar til nú. í yfirlýs-
ingu frá honum í gær kveðst hann
hafa farið fram á það við leyniþjón-
ustu- og öryggismálanefndina, að
hún gangist fyrir rækilegri skoðun á
málunum öllum.
Síðasta hálfa mánuðinn hefur ver-
ið flett ofan af ýmsum, sem njósnuðu
fyrir kommúnistaríkin áður fyrr.
Fyrst var upplýst, að Melita
Norwood, 87 ára gömul kona, hefði
komið ýmsum kjarnorkuleyndarmál-
um til Rússa á fimmta áratugnum og
síðan var skýrt frá því, að John
Symonds, fyrrverandi lögreglumað-
ur, hefði njósnað fyrir KGB, sovésku
leyniþjónustuna. I síðustu viku við-
urkenndi svo hagfræðikennarinn
Robin Pearson, að hann hefði njósn-
að fyrir Stasi, austur-þýsku leyni-
þjónustuna.
Straw sagði raunar í fyrstu, að
ekki væra nægar sannanir til að
höfða mál á hendur Norwood og Pe-
arson og embættismenn í innanríkis-
ráðuneytinu fullyrtu, að málin yrðu
ekki rannsökuð.
Sund er heilsurækt
rm _____________________________—
■ ■ í Sundhöll Reykjavíkur
mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga
frá kl. 12.00 til 13.00.
Kennari Edda Baldursdóttir.
Farið er í m.a. leiðréttingar á sundstíl, sund sem
þolþjálfun og uppbyggingu þjálfunaráætlana.
Nánari upplýsingar í
Sundhöll Reykjavíkur í síma 551 4059.