Morgunblaðið - 23.09.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 35
TONLIST
liangholtskirkja
KIRKJUTÓNLEIKAR
Verk eftir Hovland, Tryggva
Baldvinsson (frumfl.), Hjálmar H.
Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörns-
son, Oliver Kentish (frumfl.), Árna
Harðarson og Áma Egilsson
(frumfl.). Kári Þormar, orgel; Kór-
og Gradualekór Langlioltskirkju.
Stjómandi: Jóns Stefánsson.
Þriðjudaginn 21. september kl. 20.
HIÐ nývígða Noack barokkorgel
Langholtskirkju blasti við undimt-
uðum í fyrsta skipti á þriðjudag-
skvöldið var í allri sinni dýrð, og
reyndist sannkallað yndi eyma og
augna. Annað sem það hafði í för
með sér var auðheyranlega styttri
ómtími kirkjuskipsins en áður var,
sem hlýtur í flestum tilfellum að
vera af hinu góða, nema þá kannski
við dramatískar skyndiþagnir fyrir
útopnu organo pleno. Og gott ef
hljómburðurinn hafi ekki eilítið
mýkzt í þokkabót. Því ber sízt held-
ur að harma, enda var glymjandi
kirkjunnar lengst af fullmikil fyrir
flestan tónlistarflutning.
Kóramir sungu fyrst á inngöngu
stutt hómófónískt en tignarlegt a
cappella verk eftir Egii Hovland
frá 1974, Öll veröldin fagni fyrir
Drottni! Gradualekórinn var þvín-
æst í öndvegi í nýsömdu verki
Tryggva Baldvinssonar við sama
Davíðstexta fyrir barnakór og or-
Bókastefnan
í Gautaborg
Mikið spurt
um land
og bækur
í FRÁSÖGN í Morgunblaðinu í
gær féll niður kafli, þar sem vitnað
var til Önnu S. Einarsdóttur, sem
situr i stjórn stefnunnar.
Anna kvað marga hafa staldrað
við á íslensku sýningunni, skoðað
og spurst fyrir, ekki aðeins um
bækur heldur um Island yfirleitt,
svo að „eiginlega þyrfti ferðamála-
ráð að vera hér líka og svara fyrir-
spurnum". „Ef eitthvað er þá finnst
mér að Islendingar í Gautaborg
mættu gera meira af því að láta sjá
sig, ég varð minna vör við þá í ár en
oft áður.“ Svíar hafa hins vegar
fjölmennt, meðal annars nemendur
í íslensku sem hafa komið og keypt
bækur og eins útgefendur í eigin
hugleiðingum."
Þá sagðist Anna vonast til að fá
fleiri höfimda með í dagskrá næsta
árs, en næsta Bókastefna mun
verða dagana 14.-18. september ár-
ið 2000.
-----♦ 4 ♦ —
Alan James
sýnir í
Kringlunni
ALAN James hefur opnað mál-
verkasýningu í sameiginlegu sýn-
ingarrými Gallerís Foldar og
Kringlunnar á 2. hæð Kringlunnar
gegnt Hagkaupum.
Alan sýnir 8 olíumálverk og
stendur sýningin til 15. október.
Sýningin er opin á venjulegum opn-
unartíma Kringlunnar.
Aian James er fæddur í London
1963 og ólst þar upp. Þegar hann
var 19 ára helltist ævintýraþráin
yfir hann og næstu 11 ár ferðaðist
hann um Evrópu og Suðaustur-As-
íu þar sem hann bjó og starfaði um
tíma. Ferðum hans lauk svo hér á
landi 1993 og hefur hann búið og
starfað hér síðan. Hann hóf nám við
Myndlistarskóla Akureyrar og út-
skrifaðist þaðan árið 1997 og hélt
sína fyrstu einkasýningu í Eyjafirði
1995. Einnig tók hann þátt í
haustsýningu Listaskálans í
Hveragerði 1998 og var með einka-
sýningu í Gerðubergi í janúar 1999.
Kór- og
orgelveizla
gel, sem hér var frumflutt; glæsi-
legt lítið stykki í glansandi Nýja-
heimsanda fanföru og
ólympíufagnaðar, og vantaði aðeins
ögn rneiri gleði og brosmildi hjá
stúlkunum í samræmi við ljúflyndi
textans upp á að flutningurinn
næði toppi.
Ákall, allviðamikið orgelverk
Hjálmars H. Ragnarssonar í þrem
samtengdum köflum, kom næst,
samið fyrir vígslu nýja orgelsins
19.9. s.l., og sá maður ekki betur en
að Langholtskantor settist þar
sjálfur við hljóðfærið, þótt tón-
leikaskrá léti þess að engu getið.
Verkið var hvasst og þrumandi
kraftmikið í útköflum, en mjúkt og
íhugult í miðju; ljómandi vel leikið
og auðsætt að organistanum liði
dável í faðmi glæstrar nýrrar tin-
pípusinfóníu Langholtssóknar, sem
Hjálmar jós úr af mikilli og stund-
um allkrassandi litagleði.
Eftir hlýlega útsetningu Þorkels
Sigurbjömssonar á Heilagi Guð á
himni og jörð í rólegum þrískiptum
takti fyrir báða kórana við jólaleg-
an orgelundirleik með enskum car-
ol-blæ kom að frumflutningi
Laudate Dominum eftir Oliver
Kentish við hinn vinsæla og sérlega
tónvæna 150. Davíðssálm fyrir
báða kóra og orgel. Oliver setti þar
bamakórinn í forgrann með ful-
lorðinskórinn að mestu í „undir-
söngs“-hlutverki con bocca chiusa,
og laðaði þannig skemmtilega fram
litaandstæður kóranna við á köfl-
um allfjöragan orgelmeðleik úr
færam höndum og fótum Kára
Þormar. Verkið hafði nýklassískan
og allbrezkan svip sem minnkaði
ekki við að vera sungið á ensku, og
hefði með núverandi útbreiddri
enskukunnáttu landans vel mátt
prenta enska textann í tónskrá.
Enn var kórsöngurinn frekar fagn-
aðarsnauður miðað við viðfangs-
efnið og framan af ekki laus við að
lafa svolítið í tónhæð. Meiri texta-
innlifun og sýnilegri gleðisvipur
hefði þar getað gert góðan flutning
talsvert eftirminnilegri í þessu líf-
lega verki.
Af einhverjum ástæðum yfirsást
tónskrárritara a cappella kórverk
Áma Harðarsonar frá 1997, Ég vil
vegsama Drottin, sem var tilgreint
á sérprentuðu lausblaði sem næsta
atriði eftir Davíðssálminn. Þrátt
fyrir fjölstílayfirbragð sem sveifl-
aðist um nærri þrjár aldir fram og
aftur, var sérkennilega samfelldur
heildarsvipur yfir þessu bráðfal-
lega verki, sem náði miklum áhrif-
um með einföldu og auðsyngjan-
legu hljómamáli, enda sérlega vel
sungið undir skýrt mótaðri stjórn
Jóns Stefánssonar. Kæmi ekki á
óvart ef stykki Harðar ætti eftir að
ná álíka vinsældum og síflutt út-
setning hans á Tíminn líður, trúðu
mér.
Síðasta og lengsta verk tónleik-
anna var Dies Irae við þýzkt ljóð
Dorette G. Egilsson og texta úr
latnesku sálumessunni, sem hér
var framflutt. Verkið var framan af
undir þykkum og hægferðugum
hómófónískum rithætti við hníg-
andi krómatík, sem átti stundum til
að minna svolítið á Reger. Heildar-
tónninn var dapur og íhugull, en
var þegar á leið brotinn upp með
rytmískum mars-kenndum kafla á
sítrekuðum bordúntóni, er enn síð-
ar þróaðist yfir í forn-lútherskuleg-
an kóral, áður en verkið fjaraði út
svipað og það hófst með döpram
karlaröddum. Ef rétt er sem kvis-
aðist á skotepóni að hér færi fyrsta
kórverk Árna, verður að viður-
kenna, að vel hafi verið farið af stað
í þeirri vandasömu grein. Þrátt fyr-
ir ákveðna og eflaust meðvitaða
tónsögulega aftursækni verkaði
verkið heilsteypt og fagmannlega
samið, enda hið ágætasta flutt og í
furðugóðu raddsamvægi miðað við
töluverða karleklu samkórsins.
Ríkarður O. Pálsson
Yígsla tónleikasal-
ar við Tónlistar-
skóla Isafjarðar
Morgunblaðið/Halldór
Isfírðingar vígja tónleikasal við tónlistarskólann
NÝR sérhannaður tónleikasalur,
sem nú hefur risið sem viðbygging
við Tónlistarskóla Isafjarðar, verð-
ur vígður sunnudaginn 26. septem-
ber næstkomandi, réttu ári eftir að
fyrsta skóflustungan að bygging-
unni var tekin.
Nýi tónleikasalurinn er teiknað-
ur af Vilhjálmi Hjálmarssyni arki-
tekt hjá Teiknistofunni Óðinstorgi,
en Stefán Einarsson verkfræðing-
ur átti einnig aðild að hönnun sal-
arins varðandi hljómgæði hans.
Þessi salur er þannig einn af örfá-
um sölum landsins, sem sérstak-
lega eru hannaðir með tónlistar-
flutning í huga, og ber öllum, sem
reynt hafa hljóminn, saman um, að
hann sé mjög fagur.
Verktakafyrirtækið Ágúst og
Flosi ehf. hefur haft veg og vanda
af byggingaframkvæmdunum og
Tækniþjónusta Vestfjarða haft eft-
irlit með þeim. Framkvæmdirnar
hafa verið kostaðar af Tónlistarfé-
lagi Isafjarðar, með fjárframlögum
frá bæjarsjóði Isafjarðar og öflug-
um stuðningi Styrktarsjóðs hús-
byggingar Tónlistarskóla ísafjarð-
ar og annarra vejunnara.
Formaður Tónlistarfélags Isafjarð-
ar er Ulfar Ágústsson, en formaður
byggingarnefndar er Kristján Har-
aldsson.
Salurinn mun rúma um 150
manns, þar er gert ráð fyrir full-
kominni aðstöðu til hljóðupptöku í
framtíðinni, eða um leið og fest
hafa verið kaup á stólum, tækja-
búnaði og konsertflygli. Verður
salurinn einnig leigður út til tón-
leika, funda og annarra viðburða.
Söfnun fyrir flyglinum hefst strax
og tekist hefur að afla fjár til kaupa
á stólum í salinn, en sérstök fjáröfl-
un hefur farið af stað í þvi skyni.
Vígsluhátíðin á sunnudaginn
hefst kl. 13:30 með hátíðlegri
vigsluathöfn, þar sem flutt verða
ávörp og tónlist. Ávörp flytja eink-
um fulltrúar þeirra aðila, sem hafa
komið að húsbyggingunni með ein-
um eða öðrum hætti, en sr. Magnús
Erlingsson sóknarprestur blessar
salinn og gefur honum nafn.
Sunnukórinn og bamakór Tónlist-
arskólans munu syngja fáein lög
undir stjórn Margrétar Geirsdótt-
ur, Hulda Bragadóttir og Beáta
Joó leika saman á píanó og orgel,
Herdís Jónasdóttir og Þórunn
Kristjánsdóttir syngja ný lög eftir
Jónas Tómasson og þau Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Peter Maté píanóleikari flytja
sönglagið „Hjarðmeyna" eftir
Ragnar H. Ragnar. Að vígsluhátíð-
inni lokinni gefst gestum kostur á
að skoða hin nýju húsakynni Tónl-
istarskólans og þiggja kaffiveiting-
ar. Um kl. 15:15 verður trúðasýn-
ing fyrir börn í salnum og er það
leikhópurinn Morrinn, sem þar
kemur fram.
Kl. 16,17 og 18 verða svo þrennir
mismunandi nemendatónleikar í
salnum, þar sem boðið verður upp
á ýmiss konar söng og hljóðfæra-
leik. Hljómsveit skólans og lúðra-
sveit skólanna á f safirði og Bolung-
arvík leika, söngnemendur flytja
dúetta úr óperam, eldri píanónem-
endur og harmóníkunemendur
koma fram, unglingakórinn syngur
ásamt ýmsum fleiri atriðum.
Um kvöldið, nánar tiltekið kl.
21:00, verða í salnum hinir árlegu
minningartónleikar um hjónin Sig-
ríði og Ragnar H. Ragnar. Þar leik-
ur einn fremsti kammertónlistar-
hópur landsins, Tríó Reykjavíkur,
sem skipað er Guðnýju Guðmun-
dsdóttur fiðluleikara, Gunnari
Kvaran sellóleikara og Peter Maté
píanóleikara.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis, en aðgangur er takmar-
kaður vegna sætafjölda, svo að
þeir, sem vilja komast á tónleikana,
þurfa að vitja miða á skrifstofu
Tónlistarskólans sem fyrst. Skrif-
stofan er opin virka daga kl. 13-16.
N^jar bækur
UGLAN - fslenski kiljuklúbbur-
inn hefur gefið út Suðrið eftir Jor-
ge Luis Borges.
Borges (1899-1986) var sérk-
ennilegur og stórbrotinn höfundur,
einn af merkustu rithöfundum 20.
aldarinnar. Hann var ljóðskáld og
ritgerðasmiður en mesta frægð
hlaut hann fyrir smásögur sínar
um völundarhús og spegla, ásýnd
og reynd, dulhyggju og raun-
hyggju, heilaspuna og staðreyndir.
Sögur hans eru einfaldar í sniðum
og látleysið uppmálað en geyma
einatt flókin heimspekileg úriausn-
arefni, þverstæður og heillandi
heilabrot.
Guðbergur Bergsson tók sög-
uraar saman og þýddi árið 1975.
Sú bók hefur um árabil verið ófá-
anleg en í tilefni hundrað ára af-
mælis argentínska skáldsins hafa
þýðingamar verið gefnar út á nýj-
an leik.
UGLAN - íslenski kiljuklúbbur-
inn hefur gefið út Nóttin hefur
þúsund augu eftir Árna Þórarins-
son.
Morð er tilkynnt á flugvallar-
hótelinu og blaðamaðurinn Einar
er rifinn grúttimbraður upp úr
rúminu til að flytja af því fréttir
fyrstur allra. Einari er falið að
fylgja málinu eftir og verður af til-
viljun helsti heimildamaður þjóð-
arinnar um þennan hrottafengna
glæp. En rannsókn málsins, sem
Einar anar út í í þeirri von að
lappa upp á ímyndina sem vinnu-
veitandi og aðrir hafa af honum,
dregur þennan uppreisnargjarna
gleðimann inn á óvæntar brautir.
Hann hefði betur setið heima-
...segir í kynningunni.
Bókin er prentuð í Danmörku
og kostar 999 kr.
HÁSKÓLAÚTGÁFAN hefurgef-
ið út bókina Hönnun - sögulegt
ágrip, eftir Thomas Hauffe í þýð-
ingu Magnúsar Diðriks Baldurs-
sonar.
Bókin geymir sögulegt ágrip
hönnunar frá 19. öld og fram á
okkar daga. Gerð er grein fyrir
hinum ólíku kenningum og stefn-
um í hönnun, frá júgendstíl, Bau-
haus og Art Déco til funksjóna-
lisma og póstmódernisma. Auk
þess eru í bókinni fjölmargir stutt-
ir yfirlitskaflar um mikilvægustu
hönnuðina, frá Williams Morris til
Ettore Sottsass, frá Peter
Behrens til Philippe Starck. Bók-
inni fylgir bókalisti, skrá yfir
helstu hönnunarsöfn og sýningar
um allan heim sem og nafna- og at-
riðisorðaskrá.
Bókin kom fyrst út árið 1995 hjá
DUMONT-bókaforlaginu í Þýska-
landi og hefur nú þegar verið þýdd
á fjölda tungumála. Hún er tæp-
lega 200 bls. að lengd, í hentugu
broti (197 x 115 mm) og skreytt
u.þ.b. 250 litmyndum og 100 svart/
hvítum myndum.
Bókin er 192 bls. kilja. Verð
2.790 kr.
HÁSKÓLAtíTGÁFAN hefur gef-
ið út bókina Ráðgjöf í skólum.
Handbók í félagsráðgjöf og náms-
ráðgjöf eftir Guðrúnu Helgu
Sederholm.
í kynningu segir m.a.: „Ráðgjöf
við ungt fólk er vandasöm og mik-
ilvæg. Ef hún er unnin á faglegan
hátt og stendur öllum til boða þá
felur hún í sér fyrirbyggjandi þátt
sem styrkir samband barna og for-
eldra. Ráðgjafar í skólum heita
nemendum fullum trúnaði og
skapa þannig traust tengsl við þá
sem geta skipt sköpum. Markmið
með ráðgjöf við ungt fólk í skólum
er að sinna því í námstengdum
málum og einkamálum. A þann
hátt tekst að skapa betri vinnuskil-
yrði heima og í skóla.“ Bókin
byggir á langri reynslu höfundar
af vinnu með börnum og ungl-
ingum, sem kennari og ráðgjafi.
Guðrán Helga Sederholm er fé-
lagsráðgjafi og námsráðgjafi við
Menntaskólann við Sund.
Bókin er 59 bls., kilja. Verð
1.500 kr.