Morgunblaðið - 23.09.1999, Síða 42

Morgunblaðið - 23.09.1999, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KRISTÍN SOLBORG ÓLAFSDÓTTIR öllu og hafði skemmtilegan húmor. Kristín okkar var svo smekkleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Okkur vinnufélögunum hennar fannst Kristín okkar ekkert hætt að vinna, hún hefði bara farið í langt sumarfrí. Hún kom síðast í heim- sókn til okkar fimmtudaginn 9. september. Þá var hún nokkuð hress, hafði hrasað vestur á Arnar- stapa og meitt sig á fæti. Var hún líka að jafna sig eftir þá mikiu sorg að missa systurdóttur sína í ágúst sl. Hafði hún þá verið stoð og stytta móður sinnar og systur. Kristín hafði skipulagt erfidrykkju frænku sinnar sem henni þótti mjög vænt um. Það kemur vel í ljós hvað sam- starfsmönnum þótti vænt um Krist- ínu að einn af vinnufélögunum hennar, listamaðurinn Jean A. Posoeeo, opnaði myndlistarsýningu núna laugardaginn 18. september og tileinkaði hann sýningu sína minningu hennai'. Þegar Kristín okkar hætti að vinna var það vegna þess að hún vildi nota rneiri tíma með Inga sín- um. Þau áttu fallegt hús vestur á Amarstapa sem þau voru að ljúka við að standsetja. Ingi er þar með útgerð og vildi hafa Kristínu sína Xnær sér. Þau fóru til Portúgal í júlí og nutu lífsins. Við söknum okkar kæru vinkonu og vinnufélaga. Minning hennar mun lifa í huga okkar allra. Sárast- ur er þó missir og sorg Inga, Olafs og fjölskyldu, móður hennar, sem hún sýndi mikla nærgætni, og syst- ur hennar og fjölskyldu. Eg vil fyrir hönd starfsfólks í Félags- og þjón- ustumiðstöðinni Hvassaleiti 56-58 votta þeim djúpa samúð á þessum dimmu dögum og biðja Guð að gefa þeim styrk. Kristúi Jónasdóttir. Það er á fallegum haustdegi að hringt var til okkar og tilkynnt lát Kristínar skólasystur okkar úr Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1971-1972. Okkur var öllum brugð- ið, hvers vegna hún, sem alltaf var svo glöð og kát og sá alltaf björtu hliðarnar á hlutunum? Það er margt sem kemur upp í hugann á slíkri stundu og minning- amar úr skólanum urðu ljóslifandi á ný- Kristín var einstök kona, góður vinur, einlæg og hvers manns hug- -Ijúfi. Hún var hreinleg og smekkleg og bar heimili hennar þess gott vitni. Minnisstætt er þegar strákar úr Vélskóla íslands buðu stelpunum í skólanum á ball. Þær fóra einar, en sumar vora ekki einar eftir það. Þar á meðal var Kristín. Stelpumar í skólanum vora sam- hentar og oft var fjör við matborðið, þó að Katrínu skólastjóra þætti fjör- ið stundum full mikið. Misvel gekk að borða matinn sem við elduðum sjálfar en niður fór hann oftast. Ekki má gleyma Ingibjörgu gömlu sem sá um að vekja okkur á morgnana og var alltaf tilbúin að taka þátt í fjörinu með okkur. Hópurinn úr Húsmæðraskólan- um hefur komið saman nokkram sinnum á liðnum áram, en hætt er við að nokkuð tómlegt verði þegar við hittumst næst án Kristínar. Pað kvöldar en óðar er kominn nýr dagur, kolsvört er nóttin, en það birtir á ný. Himinninn Ijómar svo heiður og fagur, hjá Guði þú verður enn fógur og hlý. Við kveðjum þig Kristín með söknuð í hjarta uns komum við saman í himnanna tjöldum. Hvíl þú í friði, í faðmi Hans bjarta, þar friður mun ríkja á komandi öldum. _ (Bjarni R. Þórðarson.) Elsku Ingi, Olafur Ragnar og Eva, við biðjum Guð að styrkja ykk- ur og fjölskyldu ykkar í sorginni, en björtu minningarnar munu lýsa ykkur veginn um hinn dimma dal uns birtir að nýju. Guð veri með þér kæra skólasyst- ir, blessuð sé minning þín. 3P Skólasystur úr Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1971-1972. í dag kveðjum við kæra frænku, Kristínu Sólborgu Olafsdóttur. Andlát hennar kom eins og reiðar- slag yfir fjölskyldu og vini. Réttur mánuður er liðinn síðan við kvödd- um Hönnu Björgu, systurdóttur hennar, og hefur því mikið reynt á fjölskylduna síðasta mánuðinn. Kristín var yndisleg manneskja, góð og hjálpsöm og alltaf reiðubúin að leggja öðram lið. Elsku Eva, þinn missir er mikill því Kristín var þér mikill styrkur og stoð. Ingi og Ólafur Ragnar og fjölskylda, þið horfið á eftir ástkærri eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu sem ávallt bar hag ykkar fyrir brjósti. Þið kunnuð að meta mannkosti hennar og elskuðuð hana og virtuð. Guðrún og fjölskylda, mikið hefur verið á ykkur lagt. Fyrst að sjá á eftir Hönnu Björgu og nú að kveðja Kristínu, sem var ykkur öllum svo kær. Það er svo erfitt að skilja og sætta sig við þegar svona ungar manneskjur fara frá okkur svona alltof fljótt. Við eigum margar ljúfar minn- ingar í gegnum árin af samskiptum fjölskyldna okkar sem ekki gleym- ast. Elsku Ingi, Ólafur Ragnar, Stein- unn, Amar Logi, Sonja Lára, Eva og Guðrún og fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur frá okkur og megi Guð styrkja ykkur og blessa á þess- um erfiðu tímum. Jóhanna Bjarnadóttir, María, Hreiðar og Jóhanna Olga. Nú til hvíldar halla eg mér, höfgi á augu síga fer, allskyggn Drottinn, augun þín yfir vaki hvílu mín. (Stgr. Thorst.) Við viljum með örfáum orðum minnast hennar Kristínar sem nú hefur kvatt þetta tilverustig svo alltof fljótt. Kristín vai- sómakona, hlý, skemmtileg og afar háttvís. Hún var ástvinum sínum hin sterka stoð og stytta, ekki síst sonarsyni sínum, honum Arnari Loga, sem fékk að njóta umhyggju hennar og vináttu frá fyrstu tíð og fyrir það verðum við ævinlega þakklát. Elsku Ingi, Óli, Arnar Logi, Eva, Gurra og fjölskylda, megi góður Guð styrkja ykkur og hugga. Blessuð sé minn- ing góðrar konu. Helga, Logi, Eva og Hilmar. Elsku Kristín. Þegar mér var sagt að þú værir dáin komu margar minningar upp í hugann frá því þeg- ar ég var lítil stelpa á stapanum hjá ykkur Inga og Óla. Það var alltaf svo gaman að koma til ykkar og mikið var brallað. Þú varst alltaf svo góð við okkur syst- urnar og góð vinkona mömmu. Þeg- ar þið Ingi fluttuð til Ólafsvíkur komstu oft í heimsókn til mömmu, þá var alltaf svo gaman. Þegar ég var tíu ára var ég í pöss- un hjá þér. Mamma var að koma heim með Kolbrúnu Ingu nýfædda og þú spurðir mig hvort að ég væri ekki spennt að fá þær heim, en þá kom afbrýðisemin upp í mér og ég sagði að þú mættir bara eiga hana, mamma ætti svo margar stelpur en þú enga. En þú sagðii' að ég gæti ekki gefið hana því að mamma og pabbi ættu hana, seinna var oft hlegið að þessu. Eins man ég líka snúruferðii’nar. Þá bað mamma okkur systumar að setja upp kartöflur því hún ætlaði að hengja út á snúra en endaði svo í kaffispjalli hjá þér og kartöflurnar vora löngu tilbúnar þegar hún kom til baka, mamma þurfti að segja þér eitthvað sem mátti ekki bíða fram yfir kvöldmat. Svona var þetta stundum hjá ykkur. Kristín mín, þakka þér fyrir allar góðu stundirnap. Elsku Ingi, Óli, Steinunn, Eva og aðrir aðstandendur, missir ykkar er mikill, megi góður guð styrkja ykk- ur á þessari sorgarstundu. Gunnvör Braga Jónsdóttir og fjölskylda, Ólafsvík. MARGRET KRISTJÁNSDÓTTIR + Margrét Krist- jánsdóttir fæddist á Isafirði við Skutulsfjörð 1. febrúar 1921. Hún lést á Hrafnistu 12. september síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Krist- ján Einarsson og Katrín Hólmfríður Magnúsdóttir, bú- sett einnig á Isa- firði. Systkini Mar- grétar voru: Jó- hanna, látin; Jónína; Magnús, látinn; Rebekka. Hinn 12.1. 1941 giftist Mar- grét Óskari Sumarliðasyni, verkstjóra, f. 11. júlí 1920, d. 20. janúar 1999. Eignuðust þau fjóra drengi: 1) Magnús, kona hans Birna Haukdal Garðars- dóttir og eiga þau þrjú börn. 2) Haf- þór, lést 16. ágúst 1978, kona hans var Margrét Finnboga- dóttir, áttu þau þrjú börn saman. 3) Veigar, kona hans Hallfríður Krist- jánsdóttir og eiga þau þrjú börn sam- an. 4) Kristján, kona hans Salome Einarsdóttir, eiga þau fimm börn sam- _________ an. Tveir elstu synir Margrétar og Óskars fæddust á ísafirði. Fluttust þau til Reykja- víkur 1947 og þar fæddust tveir yngri synirnir. Utför Margrétar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þessar línur koma upp í hugann aftur er við setjumst niður til að skrifa minningar. Núna til þess að kveðja tengdamóður okk- ar, en í janúar kvöddum við tengda- föður okkar, hann Óskar Sumarliða- son, bæði eru nú horfín frá okkur á svo stuttum tíma, þau sem vora svo stór þáttur í okkar lífi. Tengdamóð- ir okkar, hún Adda, var búin að vera veik lengi, svo vitað var að hverju stefndi, en þó er svo sárt að kveðja. Adda var mikil handverkskona, málaði fallegar myndir og saumaði, bjó tfl allskonar dúkkur að ógleymdu jóla- og páskaföndri, alls þessa höfum við fengið að njóta. Miklar og góða þakkir á það hjúkranarfólk skilið sem annaðist hana á Hrafnistu í Reykjavík, og ekki síst hún Hildur og hennar fólk austur á Blesastöðum. Elsku Adda, þú varst falleg kona, yndisleg amma og tengdamóðir. Við þökkum þér samfylgdina. Salome og Halla. Elsku amma. Nú þegar þú ert farin hrannast upp fullt af minningum um þig og afa sem kvaddi okkur fyrir skömmu. Tfl dæmis þegar við kom- um í heimsókn til ykkar í Ofanleitið þá man ég vel eftir öllu handavinnu- dótinu, sem þú hafðir svo gaman af að sauma, á gömlu grænu Husqvarna-vélina þína sem reyndar er nú hjá mér og ég sauma mikið á. Svo var líka alltaf til kex í rauða og hvíta boxinu og svo auðvitað nammið í skápnum - nánar tiltekið perabrjóstsykur, það var mesti lúx- usinn. Ég veit að þér líður miklu miklu betur núna, svo ertu komin til afa og ég vfldi bara þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Síðast er ég sá þig sastu meðal rósa, er þú eigin höndum annast mjúklátt hafðir. Frostnótt hefur töfra fegurð þeirra slegið eins og aldurtil í ásýnd þína bjarta. Vaknar jurtávori vetrar upp af dái. Sálin sefur ekki sofni ég mig dreymir. Viðnám stríðra vinda vængi hennar styrkir fyrir hæsta flugið fjöllum ofar bröttum. Himinn á hæli handa hverju barni sínu sérhvers hnattar. Sól er allra móðir. Grátum eigi gleðjumst, gata hver er heimleið villugjöm er vörðuð vítum drottins orði. (Kristján frá Djúpalæk) Hvfl í friði amma mín. Margrét Inga. Hvíl í friði elsku amma: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Óskar, Bergey og Finnbogi Hafþórsbörn. Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur og ekki nema nokkrir mánuð- ir síðan afi fór. Þú varst búin að vera veik svo lengi þannig að þetta kom okkur ekki á óvart. En alltaf á maður í erfiðleikum með að sætta sig við, þegar kallið kemur. Það er svo margt sem kemur upp í hugann á svona stundu, allar þær góðu minningar sem við áttum með þér og afa þegar við vorum lítil í sumar- bústaðnum á Þingvöllum og heima hjá ykkur afa í Hlaðbænum, þar sem við sátum og máluðum og föndruðum „nissa“ eins og þú kall- aðir það. Þær minningar geymum við ávallt í hjarta okkar. Búseta okkar erlendis gerir okkur erfitt fyrir að kveðja þig, en hugurinn er með þér, elsku amma. Bless elsku amma og Guð geymi þig- Elsku pabbi, Veigai- og Diddi, við vottum ykkur dýpstu samúð og megi Guð vera með ykkur alltaf. Garðar, Katrín og Dóra. Hinn 12. september sl. andaðist Margrét Kristjánsdóttir á sjúkra- defld DAS, eftir langa baráttu við erfiðan sjúkdóm. Margi'ét, sem oft- ast var kölluð Adda, var fædd á Isa- firði 1. febrúar 1921. Foreldrai- hennar vora Kristján Einarsson sjómaður frá Hattardal við Álftar- fjörð og Katrín Magnúsdóttir frá Purkey í Breiðafirði. Margrét giftist 1941 Oskari Sumarliðasyni sem einnig var Is- firðingur. Þau eignuðust fjóra syni, Magnús, Hafþór, Veigar og Krist- ján. Æskuheimfli Margrétar var í Krók 2 á Isafírði. Með mikilli atorku og hagsýni tókst foreldrum Mar- grétar að byggja sér gott hús og margt fleira gladdi börnin, svo sem margar fallegar flíkur sem Katrín saumaði að ógleymdum mörgum óvenjulegum leikföngum sem bónd- inn kom með, þegar siglt var með fiskinn til Englands. A heimili Mar- grétar og Oskars var ætíð gott að koma því gestrisnin mætti manni þar hverju sinni. Heimilið bar með sér iðjusemi og listfengi húsmóður- innar. Henni var eðlislægt að gera fallega hluti og málverkin hennar vora svo lifandi og hlýleg, eins og þau bæru svipmót þessarar konu, sem bar svo mikla umhj'ggju fyrh' velferð sinna nánustu. Samskipti mín við þá ágætu konu sem við kveðjum hér í dag kalla fram marg- ar góðai’ minningar. Afkomendum og öðum nánum ættingjum og vinum vil ég að lokum votta hluttekningu mína. Sigfús Kristjánsson. Mig langar til að minnast með nokkrum orðum þeirra Margrétar og Óskars. Það kemur alltaf illa við mann þegar maður fær fréttir um andlát vina og vandamanna, þrátt fyrir að maður eigi von á því. Óskar lést í janúar og nú ert þú líka farin aðeins nokkrum mánuðum seinna, Adda mín. Þú varst alltaf traust við hlið Óskars og allt vilduð þið gera sem best fyrir fjölskyldu ykkar, hlúa að henni eftir bestu getu. Ég og mín fjölskylda fengum okkar skerf af umhyggju ykkar og sérstaklega þegar erfiðleikar gengu í garð hjá okkur, þá vflduð þið allt gera til að koma öllu í sem best lag. Ég þakka ykkur fyi’h’. Nú kveð ég þig, Adda mín, og þakka fyrir allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman bæði í ferðalögum og við hátíðleg tækifæri og einnig skemmtilegu stundirnar þegar við voram að sauma og föndra saman, en þú varst mikfl handavinnukona, þó að um síðir nægði þér ekki að sauma, og þú fórst út í málaralistina og málað- ir myndir og ýmislegt annað fallegt. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þótt sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin burt þessum heimi. Eg minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir.) Guð blessi minningu ykkar. Ég votta Magnúsi, Veigari og Kristjáni og fjölskyldum þeirra mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Margrét Finnbogadóttir. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.