Morgunblaðið - 19.10.1999, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landsráðstefna á Sauðárkróki um
jarðhita, virkjun, vinnslu og markað
Háskóli Islands
stendur að stofn-
un fræðaseturs
Skagafírdi. Morgunblaðið.
FJÖLMENNI sat ráðstefnu sem
Ræðuklúbbur Sauðárkróks, ásamt
fleirum, stóð að í Bóknámshúsi Fjöl-
brautaskólans á föstudag. Stefán Guð-
mundsson, fyrrv. alþingismaður, bauð
gesti velkomna og var ráðstefnustjóri,
en Þorgeir Örlygsson ráðuneytisstjóri
setti samkomuna og fjallaði um ýmis
mál sem á döfinni væru í ráðuneytinu.
Ragna Karlsdóttir fjallaði um jarð-
hita í Skagafirði, og kom fram í máli
hennar að óvíða væri jarðvarmi meiri
en í Skagafirði, en jafnframt væri
óvíða minni nýting á honum en á
þessu svæði. Sagði Ragna að nánast
hvar sem leitað væri mætti finna jarð-
varma þó í mismiklum mæli. Sverrir
Þórhallsson fjallaði um virkjunarmál
og ýmsa möguleika þeim tengda varð-
andi nýtingu á jarðhitanum, en síðan
fjallaði Magnús Agústsson um innan-
landsmarkaðinn fyrir orku af þessum
toga.
Þá ræddi Einar Valur Ingimundar-
son um jarðvegshitun, en síðan Stein-
ar Frímannsson um byggingu gróðurr
húsa, og kostnaðarhlið þess að nýta
jarðvarma til ylræktar. Hilmar Magn-
ússon fjallaði um erlendan markað.
Samvinna við franska háskóla
Að þeim erindum loknum tók til
máls Guðmundur Óm Ingólfsson en
erindi hans snerist um fiski- og þör-
ungarækt. Guðmundur er fram-
kvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækisins
Máka, sem sérhæft hefur sig í eldi
hlýsjávarfiska, sérstaklega barra, og
unnið verulegt brautryðjendastarf í
þeim efiium í samvinnu við franska
háskóla og fiskeldisfyrirtæki, auk Há-
skóla íslands. í ræðu Guðmundar
kom fram að undanfarið hefði Háskól-
inn átt mjög stóran þátt í rannsóknar-
starfinu um endumýtingu vatns og
varma vegna fiskeldis. Þetta verkefni
væri unnið í samstarfi við Máka á
Sauðárkróki, Atvinnuþróunarfélag
Skagafjarðar, Bændaskólann á Hól-
um og franska aðila. Verkefnið hefði
hlotið verulega styrki frá Evrópusam-
bandinu og viðurkenningu (Eureka).
I framhaldi af þessu sagði Guð-
mundur að Háskólinn hefði lýst vilja
til þess að setja á stofn fræðasetur í
Skagafirði ef um það næðust samn-
ingar við heimaaðiia og sveitarstjóm.
Sagði Guðmundur að væntanlega yrði
sjónum beint að jarðhitanum, fiskeldi
og lífríki vatnsins, og ef allt færi að
vonum yrði þegar á næsta ári farið að
vinna málið áfram.
Guðni Agústsson landbúnaðarráð-
herra ávarpaði gesti í ráðstefnulok,
árnaði heimamönnum allra heilla með
þann mikla auð sem þeir hefðu sofið á
svo lengi án þess að vita af honum, og
vísaði þar til þeirra upplýsinga sem
fram komu um hinn mikla jarðvarma í
héraðinu. Ráðstefnunni var svo slitið í
lokahófi í Jarlsstofu, veitingastað, sem
gerður hefiir verið upp í hinu gamla
hóteli Tindastól og var þetta opnunar-
hátíðin.
Morgunblaðið/Bj örn
Ráðstefna um jarðhita og virkjanir á Sauðárkróki var vel sótt.
Morgunblaðið/Ásdís
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra og Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra opnuðu heimasiðu Rammaáætl-
unar um nýtingii vatnsafls og jarðvarma að viðstöddum Jóni Helgasyni, formanni Landverndar, og Svein-
birni Björnssyni, formanni verkefnissljórnar.
Rammaáætlun um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma
Heimasíða til
að auðvelda þátt-
töku almennings
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra og Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra opnuðu í síð-
ustu viku heimasíðu fyrir
Rammaáætlun um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma. Tilgang-
urinn er að auðvelda almenningi
og félagasamtökum að fylgjast
með og taka þátt í gerð áætlun-
arinnar.
Ríkisstjómin ákvað í mars að
hefja gerð Rammaáætlunar um
nýtingu vatnsafls og jarðvarma.
Við opnun heimasíðunnar í gær
kom fram að verkefnissfjórn hef-
ur tekið til starfa og verið er að
skipa fjóra faghópa með um 40
sérfræðingum sem ætlað er að
vinna með verkefnisstjórninni.
Landvemd hefur verið falið að
koma á virkum samráðsvettvangi
við almenning og hafa félaga-
samtökin umsjón með heimasiðu
Rammaáætlunarinnar.
Á heimasíðunni kemur fram
að verkefnisstjórn Rammaáætl-
unarinnar muni ekki koma til
með að forgangsraða virkjun-
um sem lagaheimild er fyrir og
búast megi við að verði virkjað-
ar áður en röðun Rammaáætl-
unar fer fram. Er þar átt við
Sultartangavirkjun, virkjun í
Svartsengi og Vatnsfellsvirkj-
un. Búðarhálsvirkjun, virkjun í
Bjarnarflagi og Villinganes-
virkjun kæmu til röðunar í
Rammaáætlun ef ekki verður
áður gefin út heimild til bygg-
ingar þeirra. Sama gildir um
Fljótsdalsvirkjun, ef ekki hefur
verið tekin ákvörðun um bygg-
ingu hennar þegar Rammaáætl-
unin fjallar um jökulár norðan
Vatnajökuls.
Heimasíða Rammaáætlunar-
innar er: www.land-
vernd.is/natturuafl
Samfylking-
arfélag
stofnað á
Suðurlandi
UM fjögur hundruð manns hafa
gerst stofnfélagar í nýju félagi,
Samíylkingin á Suðurlandi, sem
stofnað var síðastliðinn laugar-
dag í Tryggvaskála á Selfossi.
Fimmtán manns voru kjömir í
stjóm félagsins. Þingmennimir
Margrét Frímannsdóttir og Lúð-
vík Bergvinsson ávörpuðu fund-
inn ásamt fleimm. í máli þeirra
kom fram að Samfylkingin á
Suðurlandi muni leggja sérstaka
áherslu á umhverfismálin, jöfnuð
og réttlæti og byggðamál, sér-
staklega með tilliti til möguleika
ungs fólks á landsbyggðinni.
I stjóm Samfylkingarinnar á
Suðurlandi em: Björgvin G. Sig-
urðsson, Guðjón Ægir Sigur-
jónsson, Katrín Andrésdóttir,
Hjálmfríður Sveinsdóttir, Sol-
veig Adolfsdóttir, Sigurbjörg
Grétarsdóttir, Kristinn Bárðar-
son, Magnús Agústsson, Ami
Gunnarsson, Dagbjört Hannes-
dóttir, Guðni Kristinsson, Unnar
Þór Böðvarsson, Torfi Áskels-
son, Þómnn Bjarkadóttir og
Soffia Sigurðardóttir.
Stjóm félagsins á eftir að
skipta með sér verkum.
Eiiiaiigrun fanga æ
algengara úrræði
92% FANGA sem úrskurðaðir vom
í gæsluvarðhald í fangelsum ríkisins
fram til 1. október á þessu ári vom í
einangrun í upphafi vistarinnar.
Samsvarandi hlutfall fyrir árið 1996
var 52%, fyrir árið 1997 var það 79%
og í fyrra 72%. Einangmn gæslu-
varðhaldsfanga virðist því verða æ
algengara úrræði, en í nýrri skýrslu
ríkisstjómarinnar um málefni fanga
segir að frelsissvipting, þ.e.a.s.
gæsluvarðhald án einangmnar,
nægi í „allflestum tilvikum" ef hætta
er talin á því að merki um brot verði
afmáð eða munum skotið undan.
Egill Stephensen, saksóknari hjá
lögreglustjóranum í Reykjavík, seg-
ir að einangmn í gæsluvarðhaldi sé
oft nauðsynleg til að upplýsa mál og
bendir meðal annars á sem dæmi
stóra íikniefnamálið sem upp komst
snemma í september. Hann segir að
mismunandi geti verið milli ára
hversu margir komi að hverju máli,
og meiri þörf sé á einangrun ef fleiri
en einn em í haldi í tengslum við
sama mál.
Upplýsingar um tíðni einangmn-
ar í gæsluvarðhaldi koma fram í
svari Fangelsismálastofnunar við
fyrirspum Fréttavefjar Morgun-
blaðsins. Afstaða dómsmálaráðu-
neytisins til gæsluvarðhalds er birt í
bráðabirgðaskýrslu ríkisstjómar
Islands til Evrópunefndar um vam-
ir gegn pyndingum og ómannlegri
eða vanvirðandi meðferð eða refs-
ingu, sem samin var sem svar við
spumingum og athugasemdum
nefndarinnar í kjölfar heimsóknar
hennar til íslands í fyrra.
Fangar einkum einangraðir á
Norðurlöndunum
Rod Morgan, breskur prófessor í
refsirétti við Háskólann í Bristol,
segir í nýútkominni bók, „Preventing
Torture", að Norðurlöndin séu í sér-
flokki hvað það varðar einangmn
gæsluvarðhaldsfanga. Hann segir að
í Bandaríkjunum og Bretlandi séu
slíkar aðferðir óheimilar, og í flestum
Evrópulöndum séu þær alger undan-
tekning. Frá niðurstöðum Morgans
segir í grein í netútgáfu norska dag-
blaðsins Aftenposten, en ekki kemur
fram þar að hann hafi fjallað sérstak-
lega um Island í þessu sambandi.
Morgan segir í samtali við Aften-
posten að ekkert bendi til þess að
einangrun gæsluvarðhaldsfanga
hafi orðið til þess að fleiri sakamál
leysist á Norðurlöndum en annars
staðar.
Egill Stephensen segir að það
komi sér á óvart hversu mismun-
andi tölumar em eftir ámm.
„Það getur verið að breytilegt sé
milli ára hversu margir sitji inni í
tengslum við hvert mál. Það þykir
ekki sama þörfin á einangrun ef um
er að ræða einn einstakling sem
kemur að rnálinu," segir hann.
Hann bendir á að þegar síbrota-
menn em settir í gæsluvarðhald sé
það oft til að koma í veg fyrir að
þeir brjóti af sér þangað til dómur
hefur fallið, en ekki til þess að
vemda rannsókn máls.
Læknar hafðir með í ráðum
Egill segist ekki líta á einangrun
fanga sem vandamál og bendir á að
haft sé samráð við heilbrigðisstéttir
þegar til þess háttar ráðstafana sé
gripið.
„Læknar eru með í ráðum, og
fangamir geta alltaf fengið þá
læknis- og sálfræðisaðstoð sem þeir
þurfa. Landlæknir hefur komið
hingað í fylgd fleiri lækna og rætt
þessi mál við okkur. Við emm ein-
faldlega að reyna að upplýsa mál
eins og nokkur kostur er og beitum
þeim úrræðum sem em tiltæk og
rúmast innan ramma laganna.“
Egill bendir á að til dæmis sé al-
gerlega nauðsynlegt að sakborning-
ar í stóra fíkniefnamálinu, sitji í ein-
angmn. „Það er algerlega fráleitt
að þeir gangi lausir austur á Hrauni
og hafi frjáls samskipti hver við
annan. Menn verða að beita heil-
brigðri skynsemi. Ef á að rannsaka
og upplýsa mál verður að hafa
þennan hátt á, það er útilokað ann-
að. Það er spuming hvort vegur
þyngra, sálrænar raunir, sem sumir
þessara manna verða fyrir í tiltölu-
lega skamman tíma, eða það að upp-
lýsa málin.“
í ársskýrslu Fangelsismála-
stofnunar fyrir árið 1995 kemur
fram að til ársins 1992 þýddi
gæsluvarðhaldsúrskurður að jafn-
aði einangrun. I kjölfar lagabreyt-
inga á árinu 1992 hafi sjaldnar ver-
ið gripið til einangrunar, en með-
ferð gæsluvarðhaldsfanga varð að
flestu leyti sambærileg við meðferð
afplánunarfanga. Þó kemur fram
að gæsluvarðhaldsfangar séu yfír-
leitt hafðir í einangrun í upphafi,
en að henni sé aflétt þegar rann-
sóknarhagsmunir knýja ekki leng-
ur á um slíkt.
Samkvæmt upplýsingum frá
F angelsismálastofnun vom 88
manns úrskurðaðir í gæsluvarðhald
í fangelsum ríkisins árið 1996. Þar
af hófu 46 varðhaldið í einangrun,
eða 52%. Árið 1997 voru 89 úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald, sjötíu hófu
vistina í einangrun, eða 79%. Árið
1998 vom 57 úrskurðaðir í gæslu-
varðhald, 41 var hafður í einangrun
í upphafi, eða 72%.
Á tímabilinu fram til 1. október á
þessu ári vom 87 úrskurðaðir í
gæsluvarðhald, þar af hófu 80 vist-
ina í einangrun, eða 92%. Ekki ligg-
ur enn fyrir meðaltalslengd ein-
angmnarvistar gæsluvarðhalds-
fanga fyrir árin 1996-1999. Á árinu
1993 var meðallengdin 12,5 dagar,
árið 1994 var hún 8,6 dagar og árið
1995 8,9 dagar.