Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 27
ÚR VERINU
Andri Sveinsson hjá Bí
Umræða um sam-
þjöppun óréttmæt
Aflaverð-
mætið
126,7 m.
FRYSTITOGARINN Baldvin
Þorsteinsson EA kom til Reykja-
víkur í gær eftir 35 daga veiði-
ferð og var um mettúr að ræða.
Hann var með 500 tonn af þorski
upp úr sjó og samtals um 200
tonn af öðrum afla og er afla-
verðmætið 126,7 milljónir króna.
I áhöfn eru 26 manns og má
áætla að hluturinn sé tæplega 1,3
milljónir.
„Eg heyri að þetta sé það
skársta sem hefur verið gert
hingað til,“ segir Hákon Þröstur
Guðmundsson, skipstjóri, og bæt-
ir við að þeir hafí verið á Vest-
fjarðamiðum og út af Breiðafirði.
„Það voru úrtökur og brælur og
svo þurftum við að skjótast inn
Morgunblaðið/GoUi
Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson kom til hafnar í Reykjavík
í gær með meira aflaverðmæti en nokkurt fslenzkt fiskiskip.
og landa aðeins upp úr skipinu
því við þurftum að koma ákveðnu
magni af afurðum í veg fyrir skip
sem var að fara til Englands, en
þar hefur fengist gott verð að
undanförnu. Það er mikill þorsk-
ur á bak við verðmætið en það
eru aflaheimildirnar sem ráða.“
Hákon Þröstur segir að veðrið
hafi verið misjafnt á miðunum.
„Það er komið vetrarveður,
reyndar var það komið þegar í
lok ágúst, og þetta hefur verið
stöðugur steytingur."
Með stóra og fallega sild
„MÉR finnst sú umfjöllun sem
verið hefur að undanförnu um
samþjöppun í sjávarútvegi órétt-
mæt,“ segir Andri Sveinsson, for-
stöðumaður fyrirtækjaráðgjafar
Búnaðarbankans, í samtali við
Morgunblaðið. Að undanförnu hef-
ur verið mikil umræða um sam-
þjöppun í sjávarútvegi og leyfilega
hámarksaflahlutdeild einstakra
fyrirtækja eða aðila.
„Með þeirri hagræðingu sem
orðið hefur í sjávarútvegi hér á
landi á síðustu árum, erum við
iyrst núna að sjá hagnað í grein-
inni eftir áratuga tap. Það sést
best á því að flest fyrirtækjanna
eru nú fyrst farin að greiða tekju-
skatta og er þar helst um að ræða
stór og stöndug fyrirtæki. Þetta
hlýtur að teljast jákvæð þróun, sér
í lagi þar sem mikil gagniýni er á
ríkisstyrki tii sjávarútvegs í lönd-
unum í kringum okkur á sama
tíma.
Aukin krafa um arðsemi
Við erum með stjórnkerfi, sem
skapað hefur stöðugleika þannig
að fyrirtækjunum hefur gefist
kostur á að skipuleggja starfsemi
sína lengra fram í tímann og hafa
náð að hagræða í kjölfarið á því. I
kjölfar hlutabréfamarkaðar hefur
krafa um arðsemi sjávarútvegsfyr-
ii-tækja orðið tO. Sé litið á útveginn
í heild, eru ennþá fremur fá fyrir-
tæki, sem uppfylla arðsemiskröf-
ur. Það eru eingöngu stærstu fyr-
irtækin, sem skráð eru á
verðbréfaþingi, sem gera það.
Sé horft yfir greinina í heild,
held ég að á næstu þremur árum
muni verða enn frekari samruni,
sem leiðir til betri nýtingar starfs-
fólks, skipa og tækja. Ég tel því að
öll lög sem hamla slíkri framþróun
séu skammsýn. Lög um hámar-
kskvóta og úthlutun á byggða-
kvóta séu ekki til þess fallin að
bæta hag þjóðarinnar til lengri
tíma.
Teljum frekari
samruna framundan
Fyrirtæki í sjávarútvegi eru að
keppa um fjármagn, ekki eingöngu
innan sjávarútvegsins, heldur
einnig við önnur fyrirtæki. Ef
þessi grein skilar ekki þeirri kröfu
um arðsemi, sem fjárfestar gera,
mun fjármagnið leita úr sjávarút-
veginum yfir í aðrar greinar. Það
mun verða til þess til lengri tíma
að engin framþróun verður í út-
vegin um hér. Við erum að keppa
við sjávarútveg í öðrum löndum og
verði lagður steinn í götu hagræð-
ingar, mun samkeppnishæfi ís-
lensks sjávarútvegs versna veru-
lega.
Við hjá Búnaðarbankanum telj-
um að frekari samruni sé fram-
undan í sjávarútveginum og við
höfum lagt mikla fjármuni í Ut-
gerðarfélag Akureyringa og Þor-
móð ramma-Sæberg. Við teljum
að þessi fyrirtæki séu með mjög
hæfa stjórnendur, sem munu í sín-
um framtíðaraðgerðum taka skref,
sem muni skila núverandi eigend-
um góðum arði til lengri tíma.“
SÍLDVEIÐAR gengu heldur treg-
lega síðastliðna helgi en nokkur
skip fengu þó ágætan afla fyrir
austan land sl. föstudag. Sfldin sem
fékkst fyrir helgi þótti mjög stór og
falleg og henta vel til vinnslu en
fram til þessa hefur sfldin þótt smá
og stórt hlutfall aflans farið í
bræðslu.
Antares VE landaði um 500 tonn-
um af sfld í Vestmannaeyjum í gær
sem Grímur Jón Grímsson, skip-
stjóri, sagðist hafa fengið í tveimur
köstum norður af Borgarfirði á
föstudag. Það er nokkuð norðar en
sfldarskipin hafa fengið afla á þess-
ari vertíð. „Það var talsvert að sjá
af síld þarna fyrir helgina og hún
var einnig töluvert betri en sú sfld
sem veiðst hefur til þessa. Mér
skilst að hún hafi aðallega flokkast í
tvo stærstu flokkana til vinnslu.
Síðan skilst mér að lítið hafi veiðst
en það er mikil ferð á síldinni, enda
er sjórinn óvenju hlýr á þessu
svæði.“
Sáu ekkert fyrir vestan
Grímur sagðist hafa leitað að sfld
vestan við landið síðustu vikur en
ekkert orðið var. Rannsóknarskip
hafi engu að síður orðið vart við sfld
í Breiðafirði og allt norður í Húna-
flóa. Hún sé hinsvegar ekki í veið-
anlegu magni. „Þessi sfld verður
vonandi veiðanleg þegar hún kem-
ur vestur fyrir land til vetursetu.
Ég geri ráð fyrir að við förum aftur
á austursvæðið í næsta túr en eftir
það er ætlunin að skoða svæðið fyr-
ir vestan aftur,“ sagði Grímur.
Þau skip sem að undanförnu hafa
verið við loðnuleit hafa nú snúið sér
að sfldveiðum. Að sögn skipstjórn-
armanna sem Morgunblaðið ræddi
við sást mjög lítið til loðnunnar og
ætla flestir að gefa henni frí í
nokkra daga.
DAIHATSU
ss==*- — i.
isnir ■3
Lipur og sprækur
Daihatsu Cuore er ofursparneytinn fimm dyra smábíll
á einstöku verði. Liprari borgarbíl er vart að finna, en
Cuore er jafnframt ótrúlega rúmgóður. Vélin er
þrælspræk en eyðir þó aðeins 5,3 lítrum á hundraðið
í blönduðum akstri, með beinskiptingu, samkvæmt
Evrópustaðli. Cuore uppfyllir ströngustu kröfur
Evrópusambandsins um árekstravörn.
Ríflega búinn
Af ríflegum staðalbúnaði Cuore má nefna nýja
fjölventlavél, tvo öryggispúða, rafdrifnar rúður og
spegla, samlæsingu, vökvastýri, snúningshraðamæli,
fjaropnun á bensínloki og skottloki, hæðarstillingu
aðalljósa, aukahemlaljós, ræsitengda þjófavörn og
útvarp með segulbandi. Cuore er jafnframtfáanlegur
með sjálfskiptingu og ABS-hemlalæsivörn.
Cuore sjálfskiptur 954.000 kr.
Cuore beinskiptur 899.000 kr.
(>
brimborg
Brimborg-Þórshamar Bíley Betri bílasalan Bílasalan Bílavík Tvisturinn
Tryggvabraut 5, Akureyri Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrísmýri 2a, Selfossi Holtsgötu 54. Reykjanesbæ Faxastig 36, Vestmannaeyjum
Simi 462 2700 Simi 474 1453 Sími 482 3100 Sfmi 421 7800 Simi 481 3141
B r i m b o r g
Bíldshöföa 6
S í m i 5 1 5 7 0 0 0
www.brimborg.is