Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Breska blaðið Observer segir Kínverja hafa annast fjarskipti fyrir Júgóslavíuher
Árásin á sendi-
ráðið í Belgrad
engin mistök
Fréttinni vísað á
bug sem
„þvættingi"
London, Washington. Reuters.
NATO skaut stýriflaugum að kín-
verska sendiráðinu í Belgrad þegar
í ljós kom, að það var notað sem
fjarskiptamiðstöð fyrir júgós-
lavneska herinn. Var þessu haldið
fram í breska blaðinu Observer á
sunnudag en breska stjómin vísar
fréttinni algerlega á bug. Þá sagði
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, að fréttin
væri „þvættingur".
Observer hefur eftir ónefndum
leyniþjónustuforingja, að í Júgósla-
víustríðinu hafi NATO ekki síst
beint spjótum sínum að fjarskipta-
tækjum júgóslavneska hersins, þar
á meðal að fjarskiptabúnaði, sem
var á heimili Slobodans Milosevic,
forseta Júgóslavíu.
„Það var ráðist á aðsetur forset-
ans 23. apríl og þá þögnuðu fjar-
skiptin í sólarhring," sagði heimild-
armaðurinn, sem íylgdist að sögn
með fjarskiptunum frá Makedóníu.
„Þegar þau hófust aftur uppgötvuð-
um við, að þau komu frá kínverska
sendiráðinu."
tíreltum kortum kennt um
Stýriflaugarnar þrjár, sem skotið
var á kínverska sendiráðið 7. maí,
ollu dauða þriggja kínverskra send-
iráðsmanna og leiddu til mikillar
spennu milli NATO og kínverskra
stjómvalda. Háttsettir embættis-
menn í Bandaríkjunum og NATO
sögðu árásina hafa verið mistök,
sem stafað hefði af úreltum kortum,
en stjómin í Peking lagði ekki trún-
að á það. í þrjá daga á eftir vora
mikil mótmæli við sendiráð Banda-
ríkjanna og Bretlands í Peking.
Observer, sem vann fréttina í
samvinnu við danska blaðið Politik-
en, segir og hefur eftir háttsettum
manni í flugumferðarstjórn NATO í
Napólí, að kínverska sendiráðið
hafi réttilega verið fært inn á kort
yfir byggingar, sem ekki mátti ráð-
ast á, en á því vom meðal annars
kirkjur, sjúkrahús og sendiráð.
Fullyrðir blaðið, að kínverska
sendiráðið hafí verið tekið af þess-
Reuters
Kínverska sendiráðið í Belgrad eftir árásina 7. maí í vor. Þrír starfsmenn þess létu lífið.
um lista er í ljós kom, að það annað-
ist fjarskipti fyrir júgóslavneska
herinn.
Upplýsingar um Stealth-
flugvélina?
Observer getur sér til, að Kín-
verjar hafi lagt Milosevic lið í því
skyni að fá í staðinn upplýsingar
um tæknibúnað í bandarísku
Stealth-flugvélinni, sem var skotin
niður yfir Júgóslavíu, en hann veld-
ur því, að hún sést illa í ratsjám.
„Talið er, að Kínverjar hafi einn-
ig fylgst vel með stýriflaugaárásun-
um á Belgrad með það í huga að
þróa vamir gegn þeim,“ sagði blað-
ið.
Taslmenn NATO í Bmssel vísa
þessari frétt á bug og Robin Cook,
utanríkisráðherra Bretlands, sagði
í viðtali við breska ríkisútvarpið,
BBC, að það væri ekki sannleik-
skom í sögunni. Albright, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sagði í
viðtali við sjónvarpsstöðina CNN,
að fréttin væri „þvættingur".
Árásin hefði verið hörmulegt slys.
Hugsanlegt er, að fréttin kyndi
aftur undir spennunni á milli Kína
og NATO og setji sitt mark á Bret-
landsheimsókn Jiang Zemin, for-
seta Kína, nú í vikunni.
Musharraf skipar Þjóðaröryggisráð til að stjórna í Pakistan
Viðbrögð Bandaríkjastjórnar
við ávarpinu eru jákvæð
Islamabad. AP, Reuter.
AP
fbúar í Karachi fylgjast með sjónvarpsávarpi Pervaiz
Musharrafs á sunnudag.
PERVAIZ MUSHARRAF, hers-
höfðingi og leitogi valdaránsmanna
í Pakistan, lofaði í sjónvarpsávarpi
á sunnudag að grípa til aðgerða til
að leysa þau vandamál sem steðja
að Pakistönum. Bandaríkjamenn
hafa í meginatriðum lýst ánægju
með ræðu Musharrafs en einnig
áhyggjum vegna óvissu um hvenær
lýðræði verði endurreist í landinu.
Musharraf nefndi í sjónvarps-
ávarpinu að vandamálin væm
gjaldþrota efnahagslíf, átök trúar-
hópa, spillt valdakerfi, veikar
stofnanir og spenna milli lands-
hluta. Hann kenndi jafnframt
Sharif, hinum brottrekna forsætis-
ráðherra, um hve slæmt ástandið í
landinu væri. Musharraf tUkynnti
að skipað yrði sex manna Þjóðar-
öryggisráð til að fara með æðstu
völd í landinu. I því munu eiga sæti
herforingjar og sérfræðingar á
öðram sviðum, auk þess sem ráðið
mun njóta aðstoðar fjölmargra ráð-
gjafa. Einnig verður skipuð ríkis-
stjóm en hún verður háð yfiram-
sjón öryggisráðsins og stjórna í
umboði þess.
„Herinn hefur ekki í hyggju að
vera við völd í landinu lengur en er
algerlega nauðsynlegt tU að undir-
búa jarðveginn undir raunveralegt
lýðræði," sagði Musharraf meðal
annars í ávarpinu og bætti við að
stjómarskráin hefði aðeins verið
afnumin um stundarsakir. Hann
nefndi hins vegar engin tímamörk í
þessu sambandi eða hvenær stefnt
væri að því að efna til kosninga í
landinu.
Musharraf lofaði að vinna að því
að minnka spennu í samskiptum
Pakistana og Indveija og að pak-
istönskum hermönnum við land-
mæri ríkjanna yrði fækkað. Einnig
beindi hann þeim tilmælum til ta-
lebana í Afghanistan, sem Pakist-
anar hafa hingað til stutt, að þeir
deili völdum í landinu með öðram
hópum. Hann hvatti ennfremur ís-
lamska hópa heima fyrir að vinna
að friði og sátt í landinu og lofaði
kristnum og hindúum að þeim yrðu
tryggð réttindi og vernd.
Hershöfðinginn flutti erindi sitt
fyrst á ensku og síðar á urdu, sem
er tungumál meirihluta íbúa lands-
ins. Hann hét Bandaríkjunum og
Vesturlöndum því að Pakistanar
myndu sýna ábyrgð í meðferð
kjamorkuvopna og sagði að þeir
hefðu ávallt haft skilning á áhyggj-
um heimsins vegna hættunnar á
útbreiðslu slíkra vopna.
Bandaríkin jákvæð
íafstöðu sinni
Bandaríkjamenn fögnuðu í gær
þeirri yfirlýsingu Musharrafs að
lýðræði verði endurreist í Pakistan
en lýstu á sama tíma áhyggjum
vegna þess að ekki hefur verið
nefnd ákveðin tímasetning í því
sambandi. Sendiherra Bandaríkj-
anna í Pakistan, William Milam,
sagði á fundi með fréttamönnum að
stjómvöld í Washington hefðu í
meginatriðum jákvæðar væntingar
til Musharrafs en að þau hygðust
bíða og sjá hver framvindan yrði í
landinu áður en þau tækju afstöðu
til frekari lánveitinga Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins til Pakistan. Pakist-
anar eru mjög háðir því að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn veiti þeim lán
svo unnt sé að renna stoðum undir
veikburða efnahagslíf landsins.
Gjaldeyrisbirgðir seðlabankans
era mjög af skornum skammti og
gjalmiðill landsins stendur höllum
fæti vegna viðvarandi viðskipta-
halla og þungrar endurgreiðslu-
birði af erlendum lánum.
Milam lýsti ánægju með vilja
Musharrafs til að bæta sambandið
við Indverja og boðaða fækkun í
herliði Pakistana á landamæram
ríkjanna. Sendiherran sagðist vona
að alvarlegar viðræður hæfust inn-
an skamms milli Pakistana og Ind-
verja.
Milam sagði einnig að Banda-
ríkjamenn fögnuðu tilmælum Mus-
harrafs til talibana í Afghanistan
um að þeir reyni að ná sátt við aðra
hópa um stjóm landsins. Hins veg-
ar lýsti hann vonbrigðum með að
Musharraf skyldi ekki lýsa yfir
stríði á hendur hryðjuverkamönn-
um, eins og Osama Bin Laden sem
dvelur í Afghanistan sem „gestur“
talibanastjómarinnar.
Bandaríkjamenn hafa fengið
staðfestingu á því að Sharif fyrram
forsætisráðherra og aðrir meðlimir
ríldsstjómar hans sem handteknir
vora í síðustu viku, séu heilir á húfi.
Stjórnmálamenn í farbanni
Musharraf hefur heitið því að
beijast gegn spillingu meðal valda-
manna í landinu og hafa innistæður
á fjölmörgum bankareikningum
verið frystar og mörgum þeirra
meinað að yfirgefa landið. Mus-
harrafs hefur lýst því yfir að marg-
ir stjórnmálamenn eigi yfir höfði
sér að verða sóttir til saka fyrir að
hafa dregið að sér opinbert fé.
Benazir Bhutto, fyrrverandi for-
sætisráðherra í Pakistan, sem
tvisvar var vikið frá völdum vegna
spillingarmála, hefur fagnað að-
gerðum Musharrafs til að kveða
niður spillingu í landinu.
Pakistan hefur á síðustu 11 árum
haft alls fimm ríkisstjómir sem
stýrt hafa landinu í umboði hersins.
Allar þessar fimm ríkisstjórnir
hafa verið skipaðar til að sjá um að
kosningar færa fram í landinu eftir
að herinn hefur séð sig tilneyddan
að víkja lýðræðislega kjömum
stjómvöldum frá. Samkvæmt
stjómarskrá landsins verður að
halda kosningar innan 90 daga frá
því að ríkisstjóm lætur af völdum
og þingið er leyst upp. Musharraf
hefur enn ekki leyst upp þingið,
þar sem 217 fulltrúar sitja, og get-
ur því í raun látið stjórnarskrána
taka gildi á ný án þess að boða til
kosninga.
Aðgerðir SÞ
á A-Tímor
Heimfor
flótta-
manna
hraðað
Dili, Jakarta. AFP.
STARFSMENN Sameinuðu
þjóðanna á Austur-Tímor und-
irbúa nú endurkomu tuga þús-
unda flóttamanna frá Vestur-
Tímor. Flóttamennimir munu
koma með skipum í vikunni en
hingað til hafa þeir eingöngu
verið fluttir með flugi. Allt að
260.000 íbúar A-Tímor flúðu til
V-Tímor eftir að átök bratust
út í kjölfar atkvæðagreiðslu
um sjálfstæði A-Tímor í ágúst.
Að sögn Jacques Franquin,
yfirmanns flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna á A-Tí-
mor, er gert ráð fyrir að unnt
verði að flytja 5-6.000 manns í
hverri viku með skipum. Hann
leggur áherslu á að landamæri
Austur- og Vestur-Tímors
verði opnuð svo einnig verði
hægt að flytja flóttamenn land-
leiðina.
SÞ taki að sér stjómina
til að byrja með
Sendinefiid á vegum Indón-
esíustjómar er nú komin til
Dili, höfuðborgar A-Tímor, til
viðræðna við fulltrúa Samein-
uðu þjóðanna um pólitíska
framtíð eyjunnar. Leiðtogi
sjálfstæðissinna á A-Tímor,
Xanana Gusmao, hefur stungið
upp á því að rétt sé að afhenda
Sameinuðu þjóðunum æðstu
stjóm á A-Tímor í tvö til þrjú
ár, áður en fullt sjálfstæði fæst.
Fylkingamar á þingi Indón-
esíu samþykktu í gær að virða
úrslit atkvæðagreiðslunnar um
sjálfstæði A-Tímors. Þingið
þarf þó að staðfesta samkomu-
lagið formlega í atkvæða-
greiðslu á morgun.