Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 MORGUNRLAÐIÐ ERLENT Reuters Vél bandanska flughersins lendir í Christchurc á Nýja Sjálandi með Neilsen innanborðs. Krabbameinssjúk- um lækni bjargað frá suðurskautinu Jerri Neilsen á mynd sem tekin var á suðurskautinu fyrr á þessu ári. Christchurch, New York, Troy. AP, AFP. BANDARÍSKUM lækni, sem hafði sjálf fundið æxli í öðru hrjósti sínu, var bjargað frá Suðurskautsland- inu um helgina. Hafði hún beðið þess að komast frá heimskautinu síðan í júní, en vegna veðurs reyndist ekki fært fyrr en nú. Jerri Neilsen var eini læknirinn í Amundsen-Scott-rannsóknarbúð- unum á suðurskautinu. Hún fann hnút í brjósti við sjálfsskoðun í júní og óskaði þá strax eftir því að þess yrði freistað að sækja hana. Ekki var þó hlaupið að því þar sem hávetur ríkti á suðurpólnum og nánast ómögulegt að komast að rannsóknarstöðinni. Þótt Ijóst hafí verið að ekki yrði unnt að sækja Neilsen í bráð, sam- þykkti bandaríski flugherinn að leggja í djarfan leiðangur til að reyna að koma til hennar nauðsyn- legum búnaði til að greina meinið. I júlí var í þessu skyni flogið í fyrsta sinn yfir suðurskautið að vetri til, og var tækjum og lyfjum varpað niður yfír búðunum, svo Neilsen gæti sjálf hafið meðferð. Hún gerði viðeigandi rannsóknir og gat sent ljósmyndir af sýnum með tölvupósti til lækna í Banda- ríkjunum. Hafa þeir fylgst með " * ástandi hennar og gefið henni fyr- irmæli um lyfjagjöf. Hættulegur leiðangur Um leið og útlit var fyrir að að- stæður leyfðu var hafinn undir- búningur að því að sækja Neilsen. Vélar frá bandaríska flughernum biðu í viðbragðsstöðu í síðustu viku á herstöðinni McMurdo á Nýja Sjálandi, en til leiðangursins höfðu verið valdir menn sem hafa mikla reynslu af flugi yfir heim- skautin. Á laugardag hafði hlýnað það mikið að ákveðið var að láta til skarar skríða, en fram á siðustu stundu var tvísýnt að tækist að bjarga Neilsen. Við Amundsen- Scott-búðimar var 53 stiga frost, en flugvélin var aðeins hönnuð til að þola 50 gráða frost. Að auki var vindhraðinn um 20 mflur á klukku- stund, sem þýðir að raunhitastig var um 80-90 gráður undir frost- marki. Þá olli skafrenningur á flugbrautinni við rannsóknarstöð- ina því að skyggni var takmarkað, og var því erfitt að lenda. „Spennan var í hámarki vegna þess að þetta var sérstakur leið- angur. Hann var á mörkum þess sem flugvélin þoldi,“ sagði flug- maðurinn George McAlIister í við- tali við AFP-fréttastofuna. „Við vomm afar heppin, allt gekk eins og í sögu. Það er mjög góð tilfinn- ing að hjálpa öðrum," sagði McAllister. SársaukafuIIt að vera fjarri fjölskyldunni Neilsen er 48 ára gömul og þriggja bama móðir. Hún hefur ekki viljað koma fram í íjölmiðl- um, en var í tölvupóstsambandi við bandaríska vikublaðið Newsweek nokkmm dögum áður en henni var bjargað. „Eg er veik og þrái að komast á sjúkrahús og komast að því hvað fyrir mér liggur," sagði Neilsen meðal annars í bréfi til tímaritsins. Þess var gætt að Neilsen yrði ekki fyrir ónæði fjölmiðla við heimkomuna til Bandaríkjanna, og ekki hefur verið skýrt frá líðan hennar eftir að hún komst undir læknishendur. Haft var eftir mág- konu Neilsen, Diönu Cahill, að það hefði verið afar sársaukafullt fyrir hana að vera ljarri Ijölskyldu sinni á þessum erfiðu mánuðum. Sagði Cahill að Neilsen væri mjög hug- rökk og hefði sinnt störfum sínum við búðirnar óhikað, þrátt fyrir veikindin. Við Amundsen-Scott-búðirnar starfar 41 maður við rannsóknir, og var nýr læknir fluttur á staðinn er Neilsen var sótt. „Vitringaskýrsla“ um næstu skref í samrunaþróun ESB Meirihlutaákvarðan- ir verði grunnreglan Blöndunartæki Moratemp High-Lux hentar sérlega vel I eldhúsum þar sem koma þarf háum llátum undir kranann. Mora - Sænsk gæðavara TCHGI 5^;p Smiðjuvegi 11 • Sírni: 564 1088 200 Kópavogur 1 Fax: 564 1089 Fást í hyggingavöruverslunum um tand allt Brussel. Reuters, The Daily Telegraph. EVRÓPUSAMBANDIÐ verður að setja hömlur við notkun neitunar- valds aðildarríkjanna, auka notkun meirihlutaákvarðana við atkvæða- greiðslur í ráðherraráðinu, og styrkja stöðu Evrópuþingsins í stofn- anakerfi sambandsins áður en það byrjar að taka inn ný aðildarríki. Þetta er meðal niðurstaðna skýrslu „þriggja vitringa“ sem lögð var fyrir framkvæmdastjóm ESB í Brussel í gær. Skýrslunnar, sem Jean-Luc Deheane, tyrrverandi forsætisráð- herra Belgíu, Richard von Weizsácker, fyrrverandi forseti Þýzkalands, og enski lávarðurinn Simon of Highbury eru höfundar að, hafði verið beðið með töluverðri eftir- væntingu. Henni er ekki sízt ætlað að þjóna sem grundvöllur nýrrar um- ræðu um hvaða umbætur sé nauð- synlegt að gera á stofnanakerfi ESB áður en aðildarríkjum þess fjölgar um allt að 13. Er fastlega búizt við því að skýrslan hrindi af stað nýjum deilum um hve langt samrunaþróun Evrópa eigi að ganga. Þykir skýrslan líkleg til að hafa mikil áhrif á væntanlegar tillögur framkvæmdastjómarinnar, sem lagð- ar verða fram við upphaf nýrrar ríkjaráðstefnu ESB á fyrrihluta næsta árs og stefnt er að því að ljúka EVRÓPA^ LMkiJ^afo i t)ð Nemendur í grunn-, framhaids- og háskóla athugið! Erum með einkakennslu og námskeið fyrir iitla hópa í stærðfræði, eðlisfræði og tölvufræði. Tölvu- og stærðfræðiþjónustan, Brautarholti 4, 2. hæð, s. 551 5593 á leiðtogafundi i París í desember 2000. Meðal helztu ráðlegginga skýrslu- höfundanna þriggja er, að nauðsyn- legt sé að gera ákvarðanatöku í sam- bandinu bæði skilvirkari og sveigjan- legri. Sá sveigjanleiki eigi þó ekki að ganga svo langt, að hvert aðildarríki geti kosið að taka ekki þátt í einstök- um stefnumálum. „Atkvæðagreiðslur með auknum meirihluta ættu að verða reglan í stækkuðu Evrópusambandi. Sú regla, að nauðsynlegt sé að ná sam- hljóða samþykki, er oftast samheiti við stöðnun," sagði Deheane á blaða- mannafundi í Bmssel í gær. Gæti kynt undir ágreiningi um hve langt skuli ganga Þær hugmyndir sem kynntar era í skýrslunni gætu aukið á ágreining milli ESB-landa sem sækjast eftir meiri samrana og þeirra sem streit- ast gegn því að aukið vald sé fært frá stjómvöldum aðildarríkjanna til yfir- þjóðlegra stofnana sambandsins. Vísbendingar um að í skýrslunni yrði að finna tillögur um ákveðnari skref í samranaátt kveiktu strax við- vöranarljós í Lundúnum. Sunday Times skrifaði um helgina að Tony Blair forsætisráðherra væri reiðubú- inn að beita neitunarvaldi gegn um- bótatillögum sem gengu of langt að mati Breta. „Margar af þessum tillögum munu ýta valdajafnvæginu með snöggum og róttækum hætti í átt að forseta framkvæmdastjómarinnar og stjórn- sýslunnar sem undir hann heyrir í Brassel, burt frá hinum fullvalda að- ildarríkjum [sambandsins],11 segir í Daily Telegraph í gær. Meðal tillagnanna í „vitringa- skýrslunni", sem samin var að beiðni Romanos Prodis, er að stofnsáttmála sambandsins verði skipt upp í tvær lagalegar ólíkar einingar. I öðrum hlutanum yrðu eiginleg stjórnlög ESB en í hinum reglur sem varða einstök stefnumið. Hugmyndin er sú að til að gera breytingar á „stefnu- kaflanum" nægi ákvörðun ráðherra- ráðsins og aðeins þurfi að kalla sam- an ríkjaráðstefnur - sem er seinlegt og fyrirhafnarmikið - til að breyta stj órnlagakaflanum. Niðurstöður Tampere-fundarins Um helgina tók leiðtogaráð ESB annars fyrstu skrefin í átt að þvi að skapa sameiginlegt svæði „frelsis, réttar og öryggis“ með því að sam- þykkja drög að samræmdri stefnu aðildarríkjanna 15 í málefnum inn- flytjenda og flóttamanna, sem og dómsmálum og aðgerðum gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Eftir fundinn sögðu leiðtogarnir að nýjum áfanga hefði verið náð á braut samrunaþróunar Evrópu. Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, sagði: „Eftir sköpun innri markaðar- ins, myntbandalagsins og hinnar sameiginlegu utanríkis- og öryggis- málastefnu er þetta fjórða stóra sam- runaverkefnið." Sigurlíkur Habibies dvína YFIRMAÐUR Indónesíuhers, Wiranto hershöfðingi, til- kynnti í gær að hann hefði hafnað því að verða varafor- setaefni B.J. Habibies, forseta landsins, í forsetakjöri þings- ins á morgun. Akvörðun hers- höfðingjans er mikið áfall fyrir Habibie og eykur sigurlíkur Megawatis Sukamoputra, for- setaefnis Lýðræðisflokks Indónesíu (PDI-P). Líkumar á því að Habibie verði endurkjörinn forseti virðast minnka með hverri klukkustundinni sem líður. Akvörðun Wirantos þýðir að Habibie getur ekki reitt sig á stuðning 38 fulltrúa hersins á þinginu, en þeir gætu ráðið úr- slitum í forsetakjörinu. Lokaáfangi hafinn í London LOKAÁFANGI viðræðna, sem miða að því að bjarga frið- arsamkomulaginu á Norður- Irlandi, hófst I London í gær undir stjóm Georges Mitchells, samningamanns Bandaríkjastjórnar. Formaður Sinn Fein, stjómmálaarms Irska lýðveldishersins, virtist ekki bjartsýnn á að árangur næðist, en í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær segir að fulltrúar flokksins myndu engu að síður gera sitt besta í viðræðunum. Búist er við að samningalotan geti staðið fram á sunnudag. Peter Mandelson, nýskipaður Norður-írlands- málaráðherra í bresku ríkis- stjóminni, mun í dag fara í sína fyrstu opinbera heimsókn til Dublin, höfuðborgar ír- lands, en þar mun hann ræða við utanríkisráðherrann David Andrews. Tiberi fyrir rétt XAVIERE Tiberi, eiginkona Jeans Tiberis, borgarstjóra Parísar, kom fyrir rétt í gær, en hún hefur verið ákærð fyrir misnotkun á almannafé. Er henni gefið að sök að hafa krafið yfirvöld í Essonne- hverfi um greiðslu að jafnvirði 2,4 milljóna ísl. kr. fyrir efnis- rýra skýrslu sem hún vann um hinn frönskumælandi heim. Rannsókn hefur verið hafin á nokkram meintum misferlum er snerta borgarstjóm París- ar, en málið hefur komið sér afar Ola fyrir flokk hans og Jacques Chiracs Frakklands- forseta. Mótmæli á Yestur- bakkanum HUNDRUÐ Palestínumanna gerðu hróp að ísraelskum her- mönnum á Vesturbakkanum í gær. Sökuðu þeir ísraela um hafa orðið valdir að dauða aldraðs Palestínumanns, er fékk hjartaáfall eftir að land hans var gert upptækt. Var táragasi beint að mótmælend- unum, en ekki tókst að dreifa þeim fyrr en heitið hafði verið að skila landinu aftur íljótlega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.