Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 43
MENNTUN
Nýbreytni Markmið þriðja málþings Rannsóknarstofnunar KHÍ, sem nýlega var haldið, var að kynna verkefni á
sviði þróunar- og nýbreytnistarfs. Gunnar Hersveinn kynnti sér nokkra þætti á málþinginu en sagt var frá á
sjötta tug rannsóknar- og þróunarverkefna. Framkvæmdastjóri þingsins var Allyson Macdonald.
Morgunblaðið/Ásdís
Margir útskrifaðir M.Ed.-nemendur kynntu niðurstöður sínar,“ segir
Allyson Macdonald.
Rannsóknir
í skólastarfi
• Leikræn tjáning þroskar tillitssemi
við aðra og hvetur til samstarfs
• Samvinna kennara og tæknimanna
er mikilvæg: Tækni og fræði
Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskóla íslands hélt
málþing 9. október um
rannsóknir, nýbreytni
og þróun í skólastarfí og var það
haldið með stuðningi menntamála-
ráðuneytis, Leikskóla Reykjavíkur
og Tæknivals. Helsta markmiðið
var að skapa vettvang til kynningar
á verkefnum á sviði þróunar- og
nýbreytnistarfs og efla rannsókn-
ar- og þróunarviðleitni kennara og
annarra uppeldisstétta. „Fjöldi
verkefna undir merkjum þróunar-
vinnu kom mér á óvart,“ segir Ally-
son Macdonalds hjá Rannsóknar-
stofnuninni, bæði eru þróunar-
sjóðir margir og styrkveitingar
ágætar, samtals fengu 322 verkefni
90 milljónir króna.
Á málþinginu voru kynnt á sjötta
tug rannsóknar- og þróunarverk-
efna, sem flest höfðu fengið styrki
frá opinberum aðilum eða samtök-
um kennara. Nefna má sem dæmi
frásagnir af þróunarverkefnum úr
leikskólum og grunnskólum, nýtt
námsefni, tilraunakennslu, rann-
sóknir á samstarfi heimila og skóla,
efni um unglingsárin, ný viðhorf í
upplýsingatækni og þá var Náms-
gagnastofnun með sýningu á nýju
námsefni.
Allyson segir að þróunarverkefni
varði yfirleitt marga, t.d. heilan
bekk, og áhrifin séu því víðtæk.
„Ánægjuleg eru einnig áhrif
meistaranámsins í KHI,“ segir
hún, „en margir nýútskrifaðir
M.Ed.-nemendur kynntu niður-
stöður sínar.“ Hún segir að fram-
haldsnámið eigi eftir að bæta tölu-
vert við rannsóknir, en það eru
oftast starfandi kennarar sem fara í
þetta nám.
Málþingið spannaði víðtækt svið
og var skipt í 6 lotur sem sjá má á
heimasíðunni www.khi.is/khi/mal-
þing/lotaskra.htm. Áður en það
hófst flutti Júlíus Björnsson, deild-
arstjóri hjá Rannsóknarstofnun
uppeldis- og menntamála, erindi
um OECD-PISA rannsóknina á
lestri, stærðfræði og náttúrufræði.
Hér er sagt frá tveimur verkefn-
um sem kynnt voru á ráðstefnunni.
Fj arkennsla í leikskóla-
kennaranámi
„MARKMIÐIÐ með verkefninu er
að skoða möguleika á samstarfi
skóla í Evrópu sem bjóða upp á
fjamám leikskólakennara,"
segja Kristín Hildur Olafs-
dóttir lektor og Kristín
Karlsdóttir, kennari við leik-
skólaskor Kennaraháskóla
Islands, sem hafa tekið þátt í
Sókrates-verkeftú um fjar-
kennslu í leikskólakennaran-
ámi síðastliðin tvö ár. Kristín
Hildur er stjómandi verkefnisins
hér.
Verkefnið byggir á samstarfi eft-
irtaldra skóla; Högskolan í Stavan-
ger, Northem College-Dundee og
Aberdeen, Waterford Institute of
Technology, University of_ Jyvas-
kylá og Kennaraháskóla Islands-
leikskólaskor.
Innan samstarfsins þafa verið
unnin nokkur verkefni. í KHÍ-leik-
skólaskori var t.d. unnin athugun
meðal nemenda skorarinnar bæði í
fjarnámi og dagskóla. Tilgangurinn
var að greina aðferðir fjarkennsl-
unnar og áhrif aðferða í dagskóla.
Gildi leikrænnar
tj áningar
Anna Jeppesen aðjunkt KHI og
Ása H. Ragnarsdóttir kennari í
Háteigsskóla kynntu verkefnið
Leikræn tjáning í skólastarfi,
en markmiðið með þessu þró-
unarverkefni var þríþætt:
• Vinna verkefni í anda
nýrrar námsskrár
• Sýna fram á hvernig al-
mennir bekkjarkennarar
geta nýtt aðferðir leikhstar í
daglegu skólastarfi.
• Sýna fram á mikilvægi lei-
krænnar tjáningar við heildstæða
menntun einstaklings.
I fyrsta kafla bókar þeirra um
efnið er farið nokkrum orðum um
leikræna tjáningu sem kennsluað-
ferð, meginmarkmið kennslunnar
og rökstuðningur. Minnst er á nýja
námsskrá í leiklist og þá þætti í
kenningum Howards Gardners,
sem tengjast kennslu í leikrænni
tjáningu, einnig era hugmyndir um
hvernig má meta framlag nemenda.
í öðram kafla er lýsing á nokkr;
um verkefnum sjöunda bekkjar. í
þriðja kafla er fjallað um verkefni
níunda bekkjar.
Höfundar komust að þeirri niður-
stöðu að ágæti leikrænnar tjáning-
ar sem kennsluaðferðar sé ótvírætt
og hvers vegna? Jú, hún hvetur
bæði til munnlegrar og líkamlegrar
tjáningar. Hún þroskar tillitssemi
við aðra og gerir einstaklinginn
meðvitaðri um eigin persónuleika,
einnig er hún hvatning til samvinnu
á milli nemenda. í leikrænni tján-
ingu er tekist á við ímyndaðar að-
stæður og skilningur og nám á sér
stað vegna þeirrar kröfu sem þess-
ar aðstæður gera til þátttakenda.
Vandinn er hins vegar sá að hinn al-
menna grannskólakennara skortir
meiri þekkingu á möguleikum lei-
krænnar tjáningar til að takast á við
þessar aðferðir.
Morgunblaðið/Golli
Melkorka og Snorri hafa áhuga á því að gera rödd ungs fólks í um-
ræðunni um vemdun eða virkjun hálendisins meira áberandi.
Kynntar vora niðurstöður á mati
byggðu á svöram nemenda leik-
skólaskorai' á málþinginu. Einnig
var kennsluefni í tölvutæku formi
kynnt. Hér er stuttur kafli úr lestri
Kristínar Karlsdóttur sem hún flutti
á málþinginu: „Niðurstöður á mati
nemenda leikskólaskorar KHI,“ en
nemendur í dagskóla HKI höfðu
flestir innan við tveggja ára starfs-
reynslu í leikskóla:
„Fjamámsnemendm- töldu að
kennarar legðu minni áherslu á les-
efni námskeiðsins og vora því mun
líklegri til þess að nota ítarefni.
Þannig má segja að fjamámsnem-
endur hafi meiri áhrif á það hvað
þeir lesa. Þetta gæti bent til þess að
kennarar stjómi ekki námi fjar-
nemanna með eins harðri hendi.
Sem aftur getur verið vísbending
um það að kennarar séu að færa sig
lengra frá einstefnumiðlun í átt að’ "
meira sjálfsnámi nemenda. Þetta er
í takt við þróun kennslumála í vest-
rænum samfélögum og einnig eðli-
leg þróun í átt að kennslu á háskóla-
stigi.“ Og síðar:
„Við sjáum merki þess að lélegur
tölvubúnaður hindrar framþróun í
kennsluaðferðum skólans, dæmi um
það er áhersla á einstaklingsverk-
efni nemenda í fjarkennslu. Einnig
sjást merki þess að kennarar kunna
ekki eða vilja ekki nota tæknina.
Það undirstrikar svo hversu mikil--*.
væg samvinna kennara og tækni-
manna er. Kennarai' hafa fræðilega
þekkingu og reynslu í kennslu, en
flestir þurfa á sérfræðiaðstoð tækni-
manna að halda.
Könnunin er gerð í miðju breyt-
ingaferli sem enn er í gangi áskipu-
lagi náms í leikskólaskor HKI... Ný
tölvuforrit hafa verið prófuð og era í
notkun og allt virðist vera á fleygi-
ferð. Þótt reynsla kennara og nem-
enda af tölvusamskiptum sé mikil er
þróun tæknimála svo ör að erfitt
reynist að fylgja henni eftir á sama
hraða. Enn eram við að upplifa að
það er ekki fagleg þekking og
reynsla kennai'a sem hindrar heldur
ónógur tölvubúnaður, skortur á
tækniþekkingu kennara og ónógur' -
aðgangur kennara að sérfræðingum
í tæknimálum sem hindra framþró-
un í vinnubrögðum fjarnámsins."
skólar/námskeið
tölvur
■ NÁMSKEIÐ
Starfsmenntun:
Skrifstofutækni, 415 st
Rekstrar- og bókhaldstækni, 125 st
Tölvunám grunnur, 80 st
Tölvunám framhald, 40 st
C++ forritun, 50 st
Visual Basic forritun, 50 st
Námskeið:
Sýn ungs fólks
á framtíðina
ALÞJÓÐLEG ráðstefna ungs
fólks, 14 til 18 ára, Millennium
Young Peopie’s Congi’ess, hefst nú
í vikunni á Hawaii og fara Mel-
korka Ólafsdóttir og Snorri Sig-
urðsson, nemendur í Menntaskói-
anum við Hamrahlíð, á hana fyrir
Islands hönd. Ráðstefnan er á veg-
um bresku samtakanna „Peace
Child Intemational“ (White House
Intemational Centre, Bunting-
ford, Hearts. SG9 9AH, U.K.) og er
viðfangsefnið friðar- og umhverf-
ismál, sýn ungs fólks á 21. öldina.
Markmiðið er einnig að taka upp
mál frá Ríó-ráðstefnunni. I Hono-
lulu munu 300-400 fulltrúar hvað-
anæva að úr heiminum iáta rödd
sína hljóma, en meðal vemdara
ráðstefnunnar er Kofi Annan, að-
alritari Sameinuðu þjóðanna.
Melkorka segir að fjallað verði
um sýn ungs fólks á heimsmálin;
fátækt, umhverfismál, mannrétt-
indi, og markmiðið að gera raddir
ungs fólks meira áberandi í um-
ræðunni. „Fuiltrúar eiga að koma
með hugmyndir að verkefnum,
eins og t.d. um umhverfismál, og
verða einhver þeirra styrkt, sér-
staklega þau sem koma frá fátæk-
um löndum," segir Melkorka.
Snorri segir að fulltrúar hverr-
ar þjóðar hafi átt að kanna á sínu
heimasvæði hvaða mál ungt fólk
telji mikilvægast og virtist það
breytiiegt eftir þjóðum; Friður,
heilsa, menntun, löggjöfín, um-
hverfið, frelsun þjóðar og mann-
réttindi. „Við eigum svo að taka
þátt í umræðum, vera með stefn-
umál frá Islandi, eitthvað sem er
einkennandi fyrir landið. Einnig
eigum við að segja frá einhverju
sem við viljum breyta og skýra frá
hvernig við ætlum að fara að því,“
segir Snorri.
Melkorka og Snorri hafa áhuga
á því að gera rödd ungs fólks í um-
ræðunni um verndun eða virkjun
hálendisins meira áberandi. „Við
viljuin koma skoðunum ungs fólks
um þetta mál á framfæri,“ segir
Melkorka. „Við viljum breyta því
t.d. með málþingum í MH um
virkjanir norðan Vatnajökuls og
að stofna samtök ungs fólks um
hálendið. Hugmyndin er að hafa
einhver áhrif á stefnu s1jórnenda.“
Snorri og Melkorka segja að
ráðstefnan eigi að vera lífleg og
verður t.d. söngleikur saminn.
Einnig verður bók, sem hefur ver-
ið í undirbúningi, gefin út. Þá eiga
fulltrúar að koma með steina frá
heimalandi sínu og setja í Friðar-
garðinn. Ráðstefnan stendur í níu
daga eða frá 21.-30. október.
Windows 98
Word grunnur og framhald
Excel grunnur og framhald
Access grunnur og framhald
PowerPoint
QuarkXPress
Unglinganám í Windows .
Unglinganám í forritun
Intemet grunnur
Intemet vefsíðugerð
Hagstætt verð og afar veglegar kennslu-
bækur fylgja með námskeiðum.
Skráning í síma 561 6699 eða
netfangi: lolvuskoli@tolviiskoli.is
Veffang: www.tolvuskoli.is.
r^Tölvuskóli Reykiavíkur
tuiixma ■ Borgartúni 28, sími 5616699
__________nudd
■ www.nudd.is