Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 49
UMRÆÐAN
w
\}A .-V: ááAv -i
■ v jat**'/ „ J5 «33 Rix:!
I;T
Austurstræti 8-10 séð frá Austurvelli.
Dularfullt
mannshvarf
ÞAÐ er ekki af engu
sem mikið hefur verið
rætt um bygginguna
sem nú rís á Isafoldar-
lóðinni, við Austur-
stræti 8-10, en hana
hannaði ég í samstarfí
við Hlédísi Sveinsdótt-
ur arkitekt. Byggingin
stendur jú við sjálfan
Austurvöll og þó að
Jón Sigurðsson forseti
snúi baki í hana, er
ekki við hæfí að ein-
hver lágkúra rísi bak
við þennan helsta
stjómmálamann ís-
lendinga frá öndverðu.
Fjallað hefur verið um
bygginguna í fréttum sjónvarps-
stöðva, á síðum Morgunblaðsins og
í tímaritum.
Nú les ég í Fasteignablaði Morg-
unblaðsins þann 12. október ítar-
Hönnun
Það er mér
réttlætismál segir Orri
- 7
Arnason að þáttur
minn í hönnun þessarar
byggingar sé
að réttu metinn.
lega og góða grein um húsið en þar
er mín að engu getið, hvorki góðu
né illu. í öllum þeim fjölda viðtala
sem tekin hafa verið við fyrrver-
andi samstarfskonu mína, tengdum
Austurstræti 8-10, hefur mér
aldrei verið boðin þátttaka sem
hefur leitt til þess að Hlédís
Sveinsdóttir hefur ætíð komið fyrir
sjónir almennings sem eini höfund-
ur hússins. Hlédís má þó eiga það
að hún hefur sýnt mér þá „vin-
semd“ að minnast lítillega á mig
sem samstarfsmann sinn. Heldur
þótti mér þetta í daprara lagi en of-
bauð er ég las fyrrnefnda grein í
Fasteignablaðinu. Þar er enn vegið
í sama knérunn og Hlédís lætur
sem hún hafí hannað húsið ein.
Með lævísum hætti gerir hún til-
raun til að koma í veg fyrir að ég
geti sakað hana um óheiðarleika
þar eð hún biður blaðið um örsmáa
leiðréttingu er birtist í blaðinu
sama dag; var hún öll í skötulíki.
Þetta verklag er í meira lagi und-
arlegt svo ekki sé dýpra í árina
tekið. Hér er um aðferð að ræða
sem Hlédís notar augljóslega til
þess að afmá nafn mitt
og framlag til þessa
húss. Ég var ánægður
með verk okkar Hlé-
dísar og get því ekki
látið hjá líða að gera
athugasemd við þetta
einkennilega hvarf
mitt úr allri umfjöllun
um húsið. Arkitektar
eru dæmdir af því sem
eftir þá liggur og
standa og falla með
verkum sínum. Það er
mér því réttlætismál
að þáttur minn í hönn-
un þessarar byggingar
sé að réttu metinn.
Gangur samstarfs
okkar Hlédísar er í stuttu máli
þessi: Haustið 1998 fékk hún mig
til samstarfs um hönnun á Austur-
stræti 8-10. Hún hafði áður unnið
að því um skeið ásamt öðrum arki-
tektum. Ekki veit ég hver þeirra
hlutur var og eru þeir úr sögunni.
Þótt ég væri með stórt verkefni í
Blásölum í Kópavogi sá ég mér
fært að vinna að þessu spennandi
viðfangsefni. Enda vildi svo vel til
að framkvæmdir í Blásölum höfðu
tafíst. Ég gekk því glaður til verks.
Við unnum að verkinu í hartnær ár
og á þeim tíma breyttust forsendur
þess verulega og húsið tók stakka-
skiptum frá því sem áður var. Við
áttum marga og gagnlega fundi
með starfsmönnum borgarskipu-
lags sem samþykktu tillögur okkar
að húsinu. Þá lágu fyrir grafískar
tölvumyndir unnar af Radon ehf.
sem sýna glöggt útlit hússins.
Byggingamefndateikningar voru
samþykktar á vordögum. Afram
var unnið að teikningum, útboðs-
gögnum ofl. En þegar hér var kom-
ið sögu voru ýfingar með okkur
Hlédísi orðnar miklar og samstarf-
ið stirðara en hollt var. Við ákváð-
um því að slíta því.
Hlédís hefur nú í tvígang gert al-
varlega tilraun til þess að eigna sér
mitt hugverk á opinberum vett-
vangi. Slíkur ruglingur á eignar-
réttinum hefur verið nefndur
þjófnaður. Hvorki hefi ég löngun
né nennu til þess að geta mér til
um þær hvatir sem liggja að baki
þessari iðju hennar. Hún verður að
eiga það við sjálfa sig hvort hún
hyggst hafa þetta verklag til fram-
búðar. En þá er líklegt að þeim fari
fækkandi sem verða til þess fúsir
að draga fyrir hana ækið.
Ilöfundur er arkitekt og rekur
teiknistofuna Zeppelin.
Loksins á íslandi!
VERSACE
MAKE UP
Kynning veróur á
morgun, mióvikudag
og fimmtudag í
'förðun
Keflavík
v
•r
innréttíngar
baðinnréttingar
Full búð af nýjum frábærum vörum
l /j i
Lat iM. i. L IflKk • (■w - yjji
vfr W, &
1
.. .m y 'I’ÉV rWíhÉ
Stjömuspá á Netinu
yhómbl.is
e/-rrH\SA£J /výtt~