Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
■
I
Fagleg vinnubrögð
UMRÆÐAN um
mat á umhverfisáhrif-
um Fljótsdalsvirkjun-
ar tekur sífellt á sig
nýjar myndir. Menn
rugla saman náttúru-
vemd og byggðamál-
um, framkvæmdaleyfi
og mati á umhverfis-
áhrifum, hlutverki
löggjafans og fram-
kvæmdavaldsins svo
eitthvað sé nefnt.
Fyrir Alþingi liggur
þingsályktunartillaga
um að fram fari lög-
formlegt mat á um-
hverfisáhrifum fyrir-
hugaðrar
Fljótsdalsvirkjunar. Einnig hefur
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra
lýst yfir að hann vilji kanna vilja al-
þingismanna til virkjanaleyfis
Fljótsdalsvirkjunar óháð mati á
umhverfisáhrifum. Að afnema
framkvæmdaleyfi Landsvirkjunar
til Fljótsdalsvirkjunar, án þess að
tengja þá ákvörðun mati á um-
hverfisáhrifum eru ekki síður ófa-
gleg vinnubrögð en að ráðast í
framkvæmdirnar án þess að lög-
formlegt mat á umhverfisáhrifum
fari fram.
A dögunum hafði Halldór Ás-
grímsson, þá starfandi umhverfis-
ráðherra, þau ummæli í umræðu
um þingsályktunartillögu um mat á
umhverfisáhrifum fyiirhugaðrar
Fljótsdalsvirkjunar að alþingis-
menn væru alveg jafnfærir og
skipulagsstjóri um að svara þeirri
spumingu hvort setja ætti Eyja-
bakka undir vatn eða ekki. Hann
sagði einnig: „Mér finnst vera tak-
mörk fyrir því hvað háttvirtir þing-
menn vilja setja mikið
vald í hendumar á
þessari annars ágætu
stofnun.“
Af viðbrögðum
skipulagsstjóra má
ætla að hann hafi
fengið þetta óvænta
mat yfirmanns síns á
stofnuninni úr fjölmið-
lum.
Skipulagsstofnun er
stofnun sem nýtur
virðingar. Með fram-
sýnum hugsunarhætti
og nútíma vinnu-
brögðum hefur henni
verið breytt í nútím-
astofnun undir stjóm
Stefáns Thors. Faglegur metnaður
er leiðarljós sérfræðinga stofnun-
arinnar eins og sérfræðinga ann-
arra stofnana umhverfisráðuneyt-
isins. Að bera saman
sérfræðiþekkingu í umhverfismál-
um á Skipulagsstofnun og á Alþingi
ber vott um ofmat á sérfræðiþekk-
ingu alþingismanna. Það þætti lík-
lega skjóta skökku við ef dómsmál-
Ummæli
Skipulagsstofnun, segir
Ólöf Guðný Valdimar-
sdóttir, er stofnun sem
nýtur virðingar.
aráðherra lýsti yfir að Alþingi væri
jafnhæft dómstólum til að dæma í
máli og valdið yrði fært Alþingi.
Það em eðlileg viðbrögð hjá
skipulagsstjóra að leita skýringa á
ummælum Halldórs Ásgrímssonar
og sýnir árvekni hans í starfi. En
ennþá einu sinni er horft fram hjá
kjarna málsins og aukaatriðið, hér
óvenjulegur samskiptamáti, gert
að aðalatriði. Málið er alvarlegt og
það hefði verið eðlilegt að skipulag-
sstjóri hefði fengið skýr svör við er-
indinu.
Höfundur er arkitekt og formaður
Náttúruverndarráðs.
11«
HIUGSjKjOT
«i* S »■* rvr •» i s F i. t í> í
3amainynck:döl<iti‘
1 0% afsláttur í október
Nethyl 2 ♦ S. 587 8044
Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir
Mi'ruWVi-W'r J Sporðdrekinn/snillingur eða eiturpadda? •
- Er að kólna i bólinu? - Leirlistarkona og Ijósmóðir
Handavinna - Slakaðu á - Leyndarmálið - Ástarsaga
Cb LYFJ A
Lyf á lágmarksverði
Frumkvöðull í
lækkun
lyfjaverðs á íslandi
Lyfja Lágmúla í Reykjavik - Lyfja Setbergi i Hafnarfirdí - Lyfja Hamraborg i Kópavogi
basta
Jjfippne
m/stick
si/'cone I
OMISSANDIIVETRARAKSTRINUM
ekkorl hriin á rtiöum
engar Irosnar læsinyar
enyar Irosnar hurðir
atiövelil yangsetnimj i kiiltlamim
rakavörn lyrir ralkerliö
Olíufélagiöhf
www.esso.is
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur boðar til morgunverðar-
fundar miðvikudaginn 20. október nk. frá kl. 8:00 til kl. 10:00
á Grand hótel Reykjavík.
Samanburður lífskjara
á íslandi og f Danmörku
Marta Skúladóttir,
Hagfræðistofnun Háskóla íslands.
Hvert stefna nágrannalöndin
í kjaramálum
Gunnar Páll Pálsson,
forstöðumaður hagdeildar VR.
Allir velkomnir.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur \\fs,
rt