Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 5^
Marcus og Karen Hilton verða með sýningaratriði á afmælishátíðinni.
10 ára afmælishátíð
DANSSKÓLI Jóns Péturs og
Köru stendur fyrir danskeppni
og sýningu í Laugardalshöllinni
laugardaginn 23. október nk.
Danskeppni þessi er haldin í til-
efni af 10 ára afmæli skólans.
Keppt verður í öllum aldurs-
flokkum. Einnig fer fram úrtöku-
mót í suður-amerískum dönsum í
flokki áhugamanna 16-34 ára
fyrir Evrópumeistaramót sem
haldið verður í febrúar árið 2000.
Margfaldir heimsmeistarar,
Marcus og Karen Hilton MBE,
frá Englandi koma fram með
sýningaratriði. Nokkur hundruð
barna, unglinga og fullorðinna
sýna og keppa í danskeppninni
og má búast við að ekkert af
sterkustu danspörum landsins
láti sig vanta.
Húsið opnar kl. 14.30 og hefst
keppnin kl. 15.30. Aðgangseyrir
fyrir 15 ára og yngri er 700 kr.,
fyrir 16 ára og eldri 1.200 kr. og
sæti við borð 1.800 kr. Fyrir 67
ára og eldri er aðgangur ókeypis
í stúku.
Styðja virkj-
unarfram-
kvæmdir
FUNDUR stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Verkamannafélagsins
Arvakurs á Eskifirði, sem haldinn
var 14. október sl., styður eindregið
áform um virkjanaframkvæmdir á
Austurlandi og nýtingu orkunnar til
orkufreks iðnaðar í fjórðungnum.
Fundurinn leggur í þessu sam-
bandi m.a. áherslu á eftirfarandi:
Fljótsdalsvirkjun ásamt álveri við
Reyðarfjörð eru án efa byggðarösk-
un sem átt hefur Sér stað mörg und-
anfarin ár á Austurlandi.
Álver við Reyðarfjörð mun hafa
mikil áhrif á íbúa- og efnahagsþró-
un á Austurlandi auk jákvæðra
áhrifa á íslenska hagkerfið.
Mikilvægt er að framkvæmdir við
Fljótsdalsvirkjun hefjist að nýju
sem fyrst þannig að ekki verði sett í
uppnám áform um byggingu álvers
við Reyðarfjörð.
----------------
Samkynhneig’ð-
ir fái að ætt-
leiða börn
SAMBAND ungra jafnaðarmanna
hvetur stjórnvöld til þess að tryggja
að samkynhneigðir öðlist réttindi til
þess að ættleiða böm að uppfylltum
sömu skilyrðum og aðrir þegnar
landsins, segir í ályktun sem sam-
þykkt var á fundi framkvæmda-
stjórnar Sambands ungra jafnaðar-
manna.
Ennfremur segir: „Núverandi
bann við ættleiðingum samkyn-
hneigðra er ldárt mannréttindabrot
auk þess sem það ýtir undir for-
dóma í garð samkynhneigðra. Skoð-
un sumra alþingismanna þess efnis
að bíða verði með að samþykkja
lagasetningu sem heimOar ættleið-
ingar samkynhneigðra þar til að al-
menningur sé undir hana búinn er
ekki á rökum reist. Mannréttindi
mega aldrei víkja fyrir fordómum
heldur verða fordómar að víkja fyr-
ir mannréttindum. I þessu felst
réttlæti."
-------♦-♦-♦-----
Landssíminn
setur upp ATM-
skiptistöð á
Raufarhöfn
LANDSSÍMINN hefur ákveðið í
samráði við sveitarstjóm Raufar-
hafnarhrepps að setja upp skipti-
stöð fyrir ATM-gagnaflutningsnetið
á Raufarhöfn.
Þessi ákvörðun er tekin í ljósi
þess að tveir stórir viðskiptavinir á
staðnum, íslensk miðlun og Lands-
bankinn eru nú að byggja upp víð-
net á ATM-netinu og eu skiptistöðin
því hagkvæmur kostur. Án ATM-
skiptistöðvar þyrftu þessir aðilar að
greiða fyrir 134 km stofnlínu til
Húsavíkur þar sem næsta ATM-
stöð er staðsett. Með þessu lækkar
leigulínakostnaður viðkomandi aðila
mjög verulega.
Besti undirbúningurinn fyrir góðan og
árangursríkan dag er hollur og góður svefn.
Við bjóðum upp á nánast allt sem þú þarft
fyrir góðan svefn, m.a. hinar frábæru latex-
dýnur og rafmagnsrúmbotna sem hægt er
að fá bæði með fjarstýríngu og handstýríngu.
Botnarnir eru með kodda- og setstillingu
og upphækkun undir fætur og hné. Hægt
er að setja þá beint [ rúmgrind eða hafa
þá frístandandi sem einstaklings- eða
hjónarúm.
V E R S l I) N I N
uiiiai
mánudags-, þriðjudags- og
miðirikudagskvöld. Verð 3.990 kr.
f J: & ft. A1
<Ste/u/iir ufáuv'
Borðapantanir ísíma 562 0200
-11 n> 11
1 Jl : erí