Morgunblaðið - 19.10.1999, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
1!
Hluturinn í
Orra frá
Þúfu kom-
inn í milljón
SAMIÐ var um sölu á hlut í
stóðhestinum Orra frá Þúfu
síðastliðinn sunnudag og var
hann seldur á eina milljón
króna en eignarhlutirnir í
hestinum eru sextíu. Er hér
um að ræða 100% hækkun og
metverð og hefur hlutur í stóð-
hesti af íslensku kyni aldrei
verið seldur svo háu verði.
Kaupandinn er þýskur og mun
hann eftir því sem best er vit-
að vera fyrsti útlendingurinn
sem eignast hlut í Orra.
Orri er óumdeilanlega
fremstur stóðhesta á íslandi í
dag, hann trónir á toppnum í
kynbótamati Bændasamtaka
Islands þar sem hann er með
styrka stöðu og virðist bæta sig
með hverju árinu sem líður. Þá
kemst enginn með tæmar þar
sem hann hefur hælana hvað
varðar verð á folatollum. Sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var í það minnsta einn
tollur seldur á 300 þúsund
krónur síðastliðið sumar meðan
hver tollur næstdýrustu hest-
anna er verðlagður í kringum
70 þúsund krónur.
Heildarvrðmæti Orra
um 60 milljónir
Samkvæmt þessari sölu ætti
heildarverðmæti hestsins að
vera um 60 milljónir króna en
kunnugir telja að raunvirði
Orra sé á bilinu 100 til 200
milljónir. Þá eigi verðmæti
hans eftir að aukast frá því
sem nú er eftir því sem meira
sæði verður tekið úr honum en
búið er að taka og frysta
skammta fyrir 70 hryssur. Þá
er talið að hugsanlegur út-
flutningur sæðis muni styrkja
stöðu hestsins enn frekar og
jafnvel hækka markaðsverð á
folatollum. Til tals hefur komið
meðal eigenda að hætta að
halda hryssum undir Orra en
sæða þær þess í stað til að
tryggja betur endingu hans en
annað eista hans er ónýtt og
bent er á að aðeins þurfi eitt
gott högg á heila eistað til að
eyðileggja þennan gjöfula
hest.
■ Ævintýri sem virðist/52
Heilsað upp
á fíðurféð
FIÐURFÉÐ á bænum Garðsvík á
Svalbarðsströnd kunni vel að
meta heimsókn frá alnöfnunum
Bjarneyju Bjarnadóttur frá
Sveinbjarnargerði og barnabarni
hennar, þar sem þær voru í
göngutúr í góða veðrinu sl.
sunnudag. Litskrúðugar gæsir,
endur, hænur og kalkúnar hóp-
uðust í kringum þær nöfnur og
hafa fuglarnir vafalaust reiknað
með einhverju góðgæti frá þeim.
Islenskir vísindamenn ná árangri í erfðarannsóknum
Greindu genabreytingu
sem veldur sykursýki
ÍSLENSKA líftæknifyrirtækmu Urði Verðandi Skuld (UVS) og samstarfs-
aðilum þess hefur tekist að greina genabreytingu sem veldur ákveðinni teg-
und af sykursýki. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Reyni Am-
grímsson, framkvæmdastjóra vísindasviðs UVS, en hann sagði að aldrei
fyrr hefði tekist á íslandi að greina erfðavísi sem veldur sykursýki.
Morgunblaðið/Kristján
Atvinnurekendur vilja fjölga starfsfólki um 535
• •
Oll aukningin er á
höfuðborgarsvæðinu
ATVINNUREKENDUR vildu fjölga starfsmönnum um 535 sem er um
0,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði, samkvæmt atvinnukönnun
Þjóðhagsstofnunar sem framkvæmd var í septembermánuði. Þetta er
meiri eftirspurn eftir vinnuafli en á sama tíma í fyrra, en þá vildu at-
vinnurekendur fjölga starfsmönnum um 400.
Tvær nýjar borholur á jarðhitasvæði Kröflu lofa góðu
Hola 34 er
sú öflugasta
til þessa
JlrvÆR nýjar borholur, núiner 33 og 34, sem boraðar
voru á jarðhitasvæði Kriifiu í sumar lofa mjög góðu sam-
kvæmt fyrstu niðurstöðum. Ásgn'mur Guðmundsson,
jarðfræðingur hjá Orkustofnun, sagði að hola 33 gæfi ná-
lægt 10 megavöttum en hola 34 væri enn öflugri og sú öfl- Morgunbiaðið/Birkir Fanndal
ugasta sem boruð hefði verið til þessa á svæðinu. Hola 34 í blæstri.
Asgrímur vildi hins vegar ekki gefa upp á þessari
stundu hversu aflmikil hún væri, enda lítil reynsla kom- Alls eru 25 holur í rekstri í Kröflu en frá upphafi hafa
in á hana enn. Holu 34 var hleypt upp í síðustu viku og verið boraðar 34 holur og eru því 9 holur ónýtar eða
»íagði Ásgn'mur að það myndi skýrast eftir einn mánuð óvirkar. Öflugasta holan á svæðinu fram til þessa gefur
hvað hún byði upp á. 12-13 megavött.
Aukin eftirspurn eftir vinnuafli
kemur öll fram á höfuðborgarsvæð-
inu. Þar vildu atvinnurekendur
fjölga starfsfólki um 745, en á
landsbyggðinni vildu atvinnurek-
endur fækka starfsfólki um 210
manns.
Eftirspurn eftir starfsfólki á höf-
uðborgarsvæðinu hefm- ekki mælst
meiri á þessum áratug að því er
fram kemur í frétt Þjóðhagsstofn-
unar. Mest er eftirspurnin í þjón-
ustu við atvinnurekstur, í tækni-
greinum, í verslun og veitinga-
rekstri og í iðnaði eða á bilinu 1-2%
af mannaflanum í þessum greinum.
Þá kemur fram að á landsbyggð-
inni fer eftirspurn eftir vinnuafli
minnkandi í flestum atvinnugrein-
um, mest þó í byggingarstarfsemi,
ýmiss konar þjónustustarfsemi,
iðnaði, eins og trjávöruiðnaði, efna-
iðnaði og í fiskiðnaði. Óskir um
fjölgun koma einkum fram í mat-
vælaiðnaði.
Könnunin nær til 295 fyrirtækja
og bárust svör frá 279. Þau eru í öll-
um atvinnugreinum nema landbún-
aði, fiskveiðum og opinberri þjón-
ustu. Umsvif fyrirtækjanna eru um
47% af þeirri atvinnustarfsemi sem
hún nær til, sem spannar um 70% af
allri atvinnustarfsemi í landinu.
Genabreytingin, sem vísinda-
mennirnir greindu, veldur svokall-
aðri snemmkominni fullorðinssykur-
sýki, að sögn Reynis. Genabreyting-
in hefur í för með sér að sjúkdómur-
inn kemur fram hjá ungu fólki og á
það til að leggjast í ættir.
Genabreytingin veldur því að það
myndast prótein sem starfar ekki
eðlilega, en prótein þetta er nauð-
synlegt fyrir eðlileg efnaskipti syk-
urs í líkamanum. Að sögn Reynis
eiga rannsóknarniðurstöðumar eftir
að hjálpa til bæði við greiningu og
meðferð sjúklinga sem þjást af þess-
ari tegund sykursýki.
Bernhard Pálsson, stjórnarfor-
maður UVS og prófessor við Kali-
fomíuháskóla í San Diego (UCSD),
sagði að árangur fyrirtækisins væri
á heimsmælikvarða. Hann sagði að
ástæðan íyrir þessum góða árangri
væri fyrst og fremst sú að fyrirtækið
hefði safnað til sín mörgum af bestu
vísindamönnum Islands og að þeir
hefðu góðan efnivið og góða aðstöðu.
I Hjálpar/10
Myllan
kaupir hlut
í bakaríi
í Boston
MYLLAN-Brauð hf. hefur keypt
30% hlut í bakaríinu Carberry’s í
Bandaríkjunum. Aðrir hluthafar í
Carberry’s eru Agúst Felix Gunn-
arsson, William Febbo og Matthew
Carberry auk þess sem lykilstarfs-
fólki Carberry’s verður gefinn kost-
ur á að eignast hlut í félaginu.
Carberry’s var stofnað fyrir sex
ámm í Boston. Fyrsta bakaríið var
opnað í Cambridge en síðan hafa
tvö bæst við. Annað er starfrækt í
Harvard en hitt í Arlington. Ekki er
einungis um bakarí að ræða heldur
em einnig rekin kaffihús þar sem
hægt er að fá kaffi og meðlæti úr
bakaríinu, auk þess sem seldar eru
léttar veitingar eins og súpur, salöt
og fleira.
Ávallt rekið með hagnaði
Carberry’s-fyrirtækið hefur
ávallt verið rekið með hagnaði og
hefur hlotið margvísleg verðlaun
fyi-ir framleiðslu sína. Að sögn Kol-
beins Kristinssonar, framkvæmda-
stjóra Myllunnar-Brauðs hf., eru
um þrjú ár síðan Myllan byrjaði að
leita fyrir sér erlendis þar sem tak-
markaðir stækkunarmöguleikar
eru innanlands í þessu fagi. „Það
em um þrjú ár síðan við höfðum
fyrst samband við Ágúst og með-
eigendur hans um mögulegt sam-
starf. Eins höfum við kannað aðra
möguleika bæði í Bandaríkjunum
og Evrópu en ástæðan fyrir því að
við ákváðum að kaupa hlut í Car-
berry’s er sú að um ungt fyrirtæki
er að ræða sem er í örum vexti.
Eins sáum við ekki fram á að geta
komið inn á Bandaríkjamarkað sem
ódýrir aðilar þar sem ekki er mögu-
legt fyrir okkur að keppa við risa-
stóra brauðframleiðendur sem ráða
lögum og lofum á þeim markaði,"
segir Kolbeinn.
■ fslenskt brauðmeti/22