Morgunblaðið - 26.11.1999, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fundur Verslunarráðs Islands: Seðlabankinn gegn verðbólgu
Utlánaaukningu
þarf að stöðva
BIRGIR ísleifur Gunnarsson,
seðlabankastjóri, segir að til
lengdar ætti að stefna að því hjá
íslensku bönkunum að eiginfjár-
hlutfall verði á bilinu 10-12% og
er þá átt við áhættuvegið eigið fé.
„Það gengur ekki að eiginfjár-
hlutfall bankanna sé um 9% þegar
alþjóðlegar reglur gera ráð fyrir
8% að lágmarki. Hvergi í heimin-
um er unað við að eiginfjárhlutfall
bankanna sé aðeins rétt fyrir ofan
lágmarkið,“ segir Birgir. Þetta
kom fram í umræðum á fundi
Verslunarráðs íslands í gær þar
sem kynnt var efni nýs ársfjórð-
ungsrits Seðlabankans, Peninga-
mála. Framsögumenn auk seðla-
bankastjóra voru Einar
Benediktsson, forstjóri Olíuversl-
unar Islands, og Oli Björn Kára-
son, ritstjóri DV.
Birgir segir aukna útlána-
þenslu og lækkað eiginfjárhlutfall
afleiðingu af stækkun efnahags-
reikninga bankanna. Hann segist
vona að útlánaaukningin haldi
ekki áfram en bankarnir líti í eig-
in barm og stækki ekki efnahags-
reikning sinn um of. „Vöxtur út-
lána síðustu mánuði er enn mun
meiri en til lengdar getur sam-
rýmst stöðugleika. Það er brýnt
að stjórnendur lánastofnana hugi
rækilega að því að draga úr út-
lánaþenslunni og hyggi vel að
þeirri áhættu sem mikilli útlána-
aukningu fylgir.“
Birgir Isleifur segir það ekki
síst af samkeppnisástæðum að
bankarnir vildu stækka efnahags-
reikninga sína á síðasta ári og að
hans mati átti stofnun Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins á sínum
tíma stóran þátt í aukinni sam-
keppni á fjármagnsmarkaði.
„Mikil útlánaaukning hjá bönkun-
um á sér að hluta til skýringu í
því að bankarnir vilja standa bet-
ur að vígi í einkavæðingu og
hugsanlegri sameiningu banka,
sem ég er sannfærður um að mun
verða einhvern tímann,“ segir
Birgir ísleifur.
Hugsanlegt að vextir verði
hækkaðir enn frekar
Eins og fram kom í frétt Morg-
unblaðsins í gær, leggur Seðla-
bankinn áherslu á að áfram verði
beitt aðhaldssamri peningamál-
astjórnun, að reynt verði að auka
afgang af fjárlögum á næsta ári
og að lögð verði áhersla á að
kjarasamningar takist vel. Birgir
ísleifur lagði áherslu á þetta í er-
indi sínu á fundi Verslunarráðs í
gærm og sagði hugsanlegt að
hækka þyrfti Seðlabankavexti
enn frekar til að tryggja gengi
krónunnar. í því sambandi nefndi
seðlabankastjóri að vaxtahækk-
anir erlendis ykju vaxtamuninn
enn frekay.
Birgir ísleifur gerði grein fyrir
því að vandi hagstjórnarinnar
væri tvíþættur. Annars vegar við-
skiptahallinn, hins vegar of mikil
verðbólga. „Stefnan í peningamál-
um getur ekki beinst nema að
öðru markmiðinu og er eðlilegt að
það sé verðlagsmarkmiðið. Stefn-
an í opinberum fjármálum þarf að
beinast gegn viðskiptahallanum,“
segir Birgir Isleifur.
Birgir Isleifur segir verðbólgu-
væntingar í þjóðfélaginu eitt af
því sem skipt getur máli um þró-
un verðbólgu og mikilvægt sé að
ná tökum á verðbólgunni áður en
hærri verðbólguvæntingar festast
í sessi. I Peningamálum kemur
fram að þátttakendur í könnunum
Seðlabankans um verðbólguvænt-
ingar hafa yfirleitt haft tilhneig-
ingu til ofmats en nú virðist gott
samræmi á milli mats svarenda á
verðbólgu síðustu tólf mánaða
sem var 4,8% og raunverulegrar
þróunar sem var 4,9% verðbólga.
Lánalínur til islands að fyllast
Að mati Einars Benediktsson-
ar, forstjóra Olís, bendir margt til
þess að lánalínur frá erlendum
lánastofnunum til Islands séu að
fyllast. I umræðum að framsögu-
erindum loknum, tók Birgir Is-
leifur undir það að viss teikn
væru á lofti um slíkt á hefðbundn-
um skammtímalánsfjármörkuðum
sem íslenskir bankar skipta við
en sagði að stórum hluta eðlilegar
skýringar þar á, svo sem 2000-
vandann. „Engu að síður höfum
við orðið varir við það að þessar
stofnanir virðast vera að hugsa
sinn gang og að kvóti Islands fyr-
ir skammtímalán hjá þessum lán-
astofnunum sé langt kominn með
að fyllast. Islenskum lánastofnun-
um hefur þó gengið vel að fá láns-
fé til lengri tíma, sérstaklega á
óhefðbundnum lánsfjármörkuð-
um,“ segir Birgir Isleifur. „Bank-
arnir geta því haldið áfram að
auka útlán ef þeir vilja með aukn-
um langtímalántökum."
Einar greindi frá því í erindi
sínu að fjánnögnun Olís hafi ný-
lega verið breytt algjörlega í
þremur áföngum og nú sé fjár-
mögnunin 80% í erlendum mynt-
um, án milligöngu banka. Af
þessu hljótist lækkun á
fjármagnskostnaði. „Rétt er að
undirstrika að samhliða því sem
fyrirtæki nýta beina erlenda fjár-
mögnun í auknum mæli, er nauð-
synlegt að þau skilgreini viðun-
andi áhættu, móti stefnu um
áhættustýringu og afli nauðsyn-
legrar þekkingar," segir Einar.
„Trúin á stöðugt efnahagslíf og
stöðugt gengi er grundvöllur þess
að íslensk atvinnufyrirtæki hafa í
vaxandi mæli valið að fjármagna
sig með erlendu lánsfé," segir
Einar og nefnir í því sambandi að
sú veigamikla breyting hefði orð-
ið á síðustu árum að stærstu sjáv-
arútvegsfyrirtæki landsins fjár-
mögnuðu sig nú að stærstu með
erlendum lánum. „Það er því ekki
lengur litið á það sem lausn, ef
tekjuvandi skapast í sjávarútvegi,
Morgunblaöiö/Ásdís
Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri ræddi m.a. útlánaþensluna
á morgunverðarfundi Verslunarráðs fslands í gær.
að fella gengi íslensku krónunn-
ar.“
I erindi sínu tók Einar undir
með seðlabankastjóra að hagstæð
niðurstaða komandi kjarasamn-
inga væri mikilvæg forsenda fyrir
mjúkri lendingu í efnahagsmálum
og það væri hans von að verka-
lýðshreyfingin hefði skilning þar
á. Einar á síður von á frekari
vaxtahækkunum af hálfu Seðla-
bankans. Hann spáir því að úr
þenslu dragi sem leiði til lækkun-
ar verðbólgu þegar í byrjun
næsta árs og vaxtalækkunar þeg-
ar líða taki á árið.
Hugsanlegt að gengi krónunnar
lækki á næsta ári
Að mati Ola Björns Kárasonar,
ritstjóra DV, er mjúk lending lík-
leg og líklega verði að hækka
skammtímavexti enn frekar. Oli
Björn segir verðbólguhættuna
viðráðanlega en til lengri tíma lit-
ið muni íslenska krónan ekki
standast álagið og lækkandi
gengis muni gæta þegar á næsta
ári.
„Aðgerðir Seðlabankans hafa
mikil áhrif á atvinnulífið og það
skiptir miklu máli að stefna bank-
ans sé trúverðug og launafólk trúi
að hún skili tilætluðum árangri.
Trúverðug peningamálastefna
getur ráðið úrslitum um hvort
komandi kjarasamningar verða á
skynsamlegum nótum eða ekki,“
segir Óli Björn.
I erindi sínu gagnrýndi Óli
Björn fjármál hins opinbera og
sagði aðhaldssama stefnu Seðlab-
ankans í peningamálum vega upp
ístöðuleysi í fjármálum hins opin-
bera. „Viðskiptahalli líkt og verð-
bólga er sjúkdómseinkenni en
ekki sjúkdómurinn sjálfur. Seðla-
bankinn bendir á mikla útlána-
þenslu sem er að stórum hluta
heimatilbúið vandamál stjórn-
valda sem með rangri stefnu í
einkavæðingu ríkisviðskiptabanka
jók útlánagetu þeirra. Hlutafé
bankanna var aukið í stað þess að
hefja sölu á þeim hlutabréfum
sem voru og eru enn í eigu ríkis-
ins.“
Óli Björn segir verra eiginfjár-
hlutfall bankanna ekki þurfa að
koma á óvart þótt það sé
áhyggjuefni. „Hlutdeild víkjandi
lána í mældu eigin fé hefur aukist
að því er fram kemur hjá Seðla-
bankanum. Þetta eru víkjandi lán
sem meðal annars Seðlabankinn
hafði sjálfur forgöngu um að veita
bönkunum á árum áður.“
Óli Björn sagði það misskilning
að halda það sérstakt afrek að
skila töluverðum afgangi af ríkis-
sjóði á þessum tímum. Hann
sagði verulegan uppskurð í ríkis-
fjármálum nauðsynlegan, ástæða
væri til að hafa meiri áhyggjur af
því en „verðbólguskotinu" sem nú
ríkir.
2000-vandinn í Danmörku
Árangursríkar
aðgerðir
SVEN Bentzen, helsti
sérfræðingur Dana í
aðgerðum gegn svo-
kölluðum 2000-vanda í
tölvukerfum, hélt fyrir-
lestur á kaffifundi
Skýrslutæknifélags Is-
lands á miðvikudag.
Sven stýrir skrifstofu í
Danmörku sem hefur
yfirumsjón með öllum
aðgerðum þar í landi og
hefm- ferðast víða og
haft samstarf við
starfsfélaga sína í öðr-
um löndum.
I máli Svens kom
fram að ríkisstjóm Danmerkur
hefði á sínum tíma sett fram 7 liða
áætlun um aðgerðir gegn 2000-
vandanum, sem eins og kunnugt er
skapast við það að tölvur skynja ár-
ið 2000 sem árið 1900. í fyrsta lagi
kom ríkisstjómin af stað viðamikilli
upplýsingaherferð. í öðm lagi setti
hún á stofn málþingsstofnun um
2000-vandann, í þriðja lagi stofnaði
hún embætti það er Sven Bentzen
gegnir, í fjórða lagi lét hún kanna
2000-vandann í ársreikningum fyr-
irtækja, í fimmta lagi kom hún af
stað sérstakri „2000-tilbúinn“-
merkingu. í sjötta lagi lagði hún
áherslu á nána eftirgrennslan hjá
opinberum stofnunum
og í sjöunda lagi ýtti
hún undir kennslu í
meðferð vandans.
Myndaðir vom
starfshópar, sem
skiptu milli sín verkum.
Embætti það sem Sven
gegnir var stofnað í nó-
vember 1997 og var því
úthlutaðar 21,5 milljón-
ir danskra króna, eða
sem nemur 215 milljón-
um íslenskra króna, á
þriggja ára tímabili. 6
starfsmenn vora ráðnir
til skrifstofunnar.
Sven segir starf embættisins
hafa skilað árangri, og nefnir í því
sambandi að könnun hafi verið gerð
annars vegar í janúar og hins vegar
september árið 1998. I janúar hafi
til að mynda 81% fyrirtækjaeig-
enda mínni og miðlungsstórra fyr-
irtækja vitað af 2000-vandanum,
samanborið við 95% í september.
18% þeirra höfðu komið á fót
starfsnefnd til höfuðs 2000-vandan-
um í fyrri könnuninni, en 26% í
þeirri síðari. Núna í september hafi
svo könnun sýnt að í þessum fyrir-
tækjum hafði 2000 vandinn verið
leystur alveg eða að hluta í 94% til-
fella.
Sven Bentzen
Veltan á Verðbréfaþingi 100 milljarðar frá áramótum
Almenn bjartsýni
meðal fjárfesta
vaxtahækkanir af hálfu
Seðlabankans, enda hafi viðmið-
unarvextir í nágrannalöndunum
hækkað að undanförnu og því
dregið úr vaxtamun. Bent er á að
þrátt fyrir bein áhrif vaxtahækk-
ana Seðlabankans á fjármagn-
skostnað bankanna, til viðbótar
við áhrif lausafjárreglna Seðlab-
ankans, hafi gengi hlutabréfa
fjármálafyrirtækja hækkað gríð-
arlega það sem af er árinu, en
hækkunin á vísitölu fjármála og
trygginga nemur nú um 52% frá
áramótum.
„Þetta er nokkuð sérstæð þró-
un í ljósi þess sem sjá má í
nágrannaríkjum okkar við sömu
aðstæður í efnahagslífinu og við
sjáum hér á landi í dag. Fjárfest-
ar virðast algerlega hundsa nei-
kvæða þróun í umhverfi þessara
fyrirtækja, en einblína þess í stað
á afkomu þeirra í dag og mögu-
legan ávinning af samrunum f
þeirra á rnilli," segir í mánaðar- ■
skýrslu greiningardeildar Kaup-
þings.
SAMANLÖGÐ velta á Verðbréfa-
þingi það sem af er ári nemur
tæplega 100 milljörðum króna og
af einstökum félögum hafa verið
mest viðskipti með hlutabréf ís-
landsbanka fyrir 3,6 milljarða
króna, FBA fyrir 2,9 milljarða,
með bréf Eimskips fyrir 2,8 millj-
arða, Samherja fyrir 2,7 milljarða
og með hlutabréf Flugleiða fyrir
2,3 milljarða. Úrvalsvísitalan hef-
ur hækkað um 32% frá áramót-
um.
I nýju mánaðaryfirliti greining-
ardeildar Kaupþings hf. um þróun
og horfur kemur fram að þau fyr-
irtæki sem minnst viðskipti hafa
verið með það sem af er árinu em
öll á vaxtarlista. Heildarviðskipti
með Fiskmarkað Breiðafjarðar
nema um 0,9 m.kr. frá áramótum,
3,6 m.kr. viðskipti hafa verið með
Loðnuvinnsluna, 7,7 m.kr. við-
skipti með hlutabréf Skinnaiðnað-
ar og um 10,9 m.kr. viðskipti hafa
verið með bréf Vaka og Jökuls
hvors um sig.
Að mati greiningardeildar
Kaupþings ber að taka vísbend-
ingu um að verðbólgan sé á niður-
leið með mikilli varúð. Bent er á
það í skýrslunni að lengri tíma
þurfi til að meta hugsanlega
lækkun og nauðsynlegt sé að
gæta áfram mikils aðhalds í efna-
hagsmálum. Þá bendi atvinnu-
leysistölur einnig til þess aðgæta
þurfi varkárni. Atvinnuleysi mæl-
ist nú 1,4% en var 2,1% á sama
tíma í fyrra. Almennar horfur í
efnahagsmálum séu því áfram
tvísýnar.
Ekki hægt að útiloka frekari
vaxtahækkanir
Bent er á að miðað við verð
hlutabréfa á síðustu dögum ríki
almenn bjartsýni meðal fjárfesta
um þessar mundir. Færst hafi í
vöxt að fyrirtæki birti 9 mánaða
uppgjör og fagna beri þeirri
ákvörðun fyrirtækja sem sé tví-
mælalaust til hagsbóta fyrir fjár-
festa.
Greiningardeild Kaupþings tel-
ur ekki hægt að útiloka frekari