Morgunblaðið - 26.11.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 33
Ásta EiiTksdóttii’, bætti um betur
svo þau næðu hálfu hundraðinu og
meir. Telst gildur stofn í Listasafni
Austur-Skaftafellsýslu, sem enn er
einungis til á pappírunum og skrif-
stofuveggjum. Með allt þetta í hönd-
unum var að sjálfsögðu ekki hægt að
láta Svavar liggja óbættan hjá garði
með hliðsjón af afmælinu, og er
þetta vonandi forsmekkm’ þess sem
í vændum er þegar minnst verður
aldarafmælis listamannsins. Ekki er
ráð nema í tíma sé tekið og rétt að
fara strax að leggja drög að undir-
búningnum, vera hér samsíða þeim í
útlandinu á vettvanginum. Og ef
ekkert er að gert fymist fyrii- nafn
listamannsins eins og svo margra
annarra á síðustu tímum, í öllu falli í
bili, en hinn geigvænlegi hraði
nýuppgötvaðrar hátækni mun án
efa ganga yfir og meltast, komast
menn þá vonandi í lygnari sjó...
Ekki þurfti að biðja rýninn tvisv-
ar um að koma austur, þótt fullbók-
aður væri í augnablikinu, allar tíma-
áætlanir fæiu á hvolf og öðrum
aðkallandi skrifum seinkaði, má hér
koma fram. Sýningunni í Höfn hefur
verið komið fyrir í Pakkhúsinu svo-
nefnda við höfnina og tO frásagnar
er að faðir Svavars réð þar ríkjum
um skeið og Svavar vann þar einnig.
Skemmtileg tilviljun, en það sem
máli skiptir er þó að í slíkum húsum
fara myndir oft mjög vel á veggjun-
um, sökum einfalds byggingarlags
og jafnrar birtu, jafnframt svífur
þar yfir vötnum einhver stemmning
nálgunar og tímalegrar fyllingar.
Enn betra í ljósi jafnra birtumagna,
að í þessu tilviki vita gluggar í norð-
urogvestur.
Gunnar Örn hefur valið 15 mynd-
ir úr samsafninu, sem mér skilst að
sé að meginhluta í Ráðhúsi staðar-
ins, kom þangað ekki svo ég get
takmarkaða grein gert fyrir því í
heild sinni, né dæmt um hve vel val-
ið hefur til tekist. Hér er um minni
verk í fjölþættri útfærslu að ræða og
kemst hið sérstaka vinnulag Svav-
ars vel til skila í sumum þeirra. Rétt
að geta þess að félagar Svavars í
listahópnum, Helhestinum, voru á
tímabili mjög iðnir við svipaða list-
sköpun, sem má í og með hafa verið
vegna fátæktar og efnaskorts á
styrjaldarárunum, gripu svo til
hennar af og til er fram liðu stundir.
Þannig sá ég mjög eftirminnilegt
úi-val eldri mynda eftir Carl Henn-
ing Pedersen í Örkinni í Ishöj síðast
þegar ég var þar á ferð. Félagarnir í
Helhestinum höfðu góð áhrif inn-
byrðis, kveiktu hver í öðrum, eins og
það er kallað, en héldu þó sínum
persónueinkennum og hér stóð
Svavar sterkt í sínum bestu mynd-
um. Sér í lagi fyrir uppranann og
hina „próvensíölu" kennd, sem er
sjálf sál og andrúm sveitarinnar og
jökulfrerans í gi-enndinni, en vel að
merkja með alþjóðlegu ívafi. Slíkir
era einmitt mestir heimsborgarar í
núlistum og hæglega mætti telja
upp nöfn flestra frábærastu mó-
dernista aldarinnar þessu til árétt-
ingar.
Gunnar Örn er með svipaðan
fjölda mynda og Svavar, en allt eru
það málverk kringum eitt meginstef
og bera allar samheitið Öi-vera verk,
en listamaðurinn hefur verið mjög
upptekinn í þeim heimi undanfarið.
En hafi átt að draga fram skyldleika
þessara tveggja listamanna eru
þetta trauðla heppilegustu verkin,
svo mjög sem vinnulagið og mynd-
ferlið stingur í stúf. Önnur og eldri
tímabil teldust án efa til muna
heppilegri, og þá hefðu menn átt
öllu betra með að greina ættarmót-
in, en um leið hin sérstöku persónu-
einkenni hvors fyrir sig, ólíkt vinnu-
lag þeirra og vinnuferli. En hvað
sem öðra líður er þetta vel upp sett
og mikils háttar sýning sem vert er
að veita athygli og sem flestir ættu
að skoða sem leið eiga austur að
ekki sé talað um staðarbúa og ná-
grannasveitimar.
Að ýmsu leyti vel heppnuð fram-
kvæmd, þótt sterkustu hliðar þess-
ara tveggja listamanna komi þar
trauðla fram, fjölprentuð sýningar-
ski-áin nokkuð framstæð og forn-
eskjuleg, ritmálið bætir það þó upp
að nokkru, en þar eru höfundarnir
þeir Thor Vilhjálmsson og Gunnar
Órn.
Bragi Ásgeirsson
Ljósmynd/Hrönn Axelsdóttir.
Inntak sýningar Hrannar í Hafnarborg er samkynhneigð og mikil-
vægi þess að vera hrein mey í San Blas í Mexíkó.
„Kvenfólk? og hreinar
meyjar“
í HAFNARBORG opnar Hrönn
Axelsdóttir ljósmyndasýningu á
morgun, laugardag, kl. 14. Yfir-
skrift sýningarinnar er „Kven-
fólk? og hreinar meyjar í San Blas,
Mexíkó". Myndirnar voru teknar á
árunum 1993-1995 en áþeimtíma
bjó Hrönn í San Blas Atempa í
Mexíkó.
Inntak sýningarinnar er af
tvennum toga. Annars vegar legg-
ur Hrönn áherslu á að sýna í
myndum sínum mikilvægi þess að
vera hrein mey og endurspeglun
þess í þessu samfélagi. Hins vegar
íjalla myndirnar um sam-
kynhneigt fólk og hvernig fólk
„velst“ til að vera samkynhneigt.
Karlmenn veljast frá unga aldri í
að vera það sem nefnt er „muxe“,
sem enginn hefur sljórnun á nema
náttúran sjálf. Þeim eru gefin
karlmannsnöfn, en það er alltaf
talað um þá sem kvenmenn. Sam-
kynhneigðar konur eru sagðar
fæddar með fætur fyrst. Þær eru
mjög karlmannlegar í fasi og
margar þeirra klæðast
karlmannsfötum. I þessu samfé-
lagi er mjög ákveðin skilgreining
á hegðun og klæðaburði. Sem
dæmi má nefna að aðeins karl-
menn klæðast síðbuxum og
íþróttaskóm svo og hnepptum
skyrtum.
Hrönn Axelsdóttir lauk BFA
prófi í ljósmyndun frá Rochester
Institute of Technology. Hún hlaut
styrk frá New York Foundation of
the Arts árið 1998 fyrir þau verk
sem nú verða sýnd í Hafnarborg.
Sýningin er að hluta til styrkt af
Menningarmálanefnd Hafnar-
fjarðar.
Hrönn mun flytja fyrirlestur um
efni sýningarinnar í Hafnarborg
sunnudaginn 28. nóvember kl.
17.00.
Ráðstefna
um kvik-
myndir
í TILEFNI útkomu bókarinnar
Heimur kvikmyndanna verður ráð-
stefna um kvikmyndir í Háskóla-
bíói, sal 2, sunnudaginn 28. nóvem-
ber, kl. 10-16.
Flutt verða átta erindi úr grein-
um í bókinni og fjalla þau um er-
lendar sem innlendar kvikmyndir,
afþreyingarmenningu og margt
fleira, en Heimi kvikmyndanna er
ritstýrt af Guðna Elíssyni og gefin
út af ART.IS og Forlaginu. Þeir
sem halda erindi á ráðstefnunni
era: Björn Þór Vilhjálmssson,
Heiða Jóhannsdóttir, Bima
Bjamadóttir, Kristján B. Jónasson,
Matthías Viðar Sæmundsson, Úlf-
hildur Dagsdóttir, Sigríður Þor-
geirsdóttir og Torfi Túliníus, sem
jafnframt er fundarstjóri.
Aðgangur er ókeypis.
Mynd-
listarsýn-
ing í Lóu-
hreiðri
GUNNAR I. Guðjónsson opn-
ar sýningu á verkum sínum í
Lóuhreiðri, Laugavegi 59, á
morgun, laugardag, kl. 16.
Sýningin er í tilefni þess að
Lóuhreiður er 14 ára um þess-
ar mundir.
Kanmier-
tónleikar í
Bústaða-
kirkju
KAMMERTÓNLEIKAR Tónlist-
arskólans í Reykjavík verða haldnir
í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30, í
Bústaðakirkju.
A efnisskránni er Tríó fyrir horn,
fiðlu og píanó op. 40 og Kvintett
fýrir klarínettu og strengi op. 115
eftir J. Brahms, Strengjakvartett
op. 76 nr. 1 í G-dúr eftir J. Haydn,
Píanótríó op. 67 eftir D. Sjostako-
vitsj, Kvartett fyrir flautu og
strengi og Píanótríó í C-dúr Kv 548
eftir W.A. Mart.
-----♦ 4 ♦--
„Þunglyndi
hins sanna
listamann“
SARA Björnsdóttir opnar sýningu
í Galleri@hlemmur.is, Þverholti 5,
annað kvöld, laugardagskvöld, kl.
20.
Þetta er síðasta sýningin af
þremur sem allar tengjast innbyrð-
is og ber sýningin yfirskiáftina
„Þunglyndi hins sanna lista-
manns“. Þar leikur listin stórt hlut-
verk, í von mannsins um betra líf.
Sýningin stendur til sunnudags-
ins 19. desember og er opin alla
daga, nema mánudaga, frá kl. 14-
18.
Vefslóð gallerísins er http://gal-
leri@hlemmur.is
Jólasýning
Hand-
verks og
hönnunar
HANDVERK og hönnun opnar
jólasýninguna Allir fá þar eitthvað
fallegt, á Amtmannsstíg 1 á Bern-
höftstorfunni, á morgun, laugar-
dag, kl. 12.
A sýningunni eru verk eftir átján
handverksaðila, víðsvegar að af
landinu. Þeir einstaklingar og fyr-
irtæki sem sýna eru Anna
Gunnarsdóttir. Arnfríður Lára
Guðnadóttir, Deborah Robinson,
Edda - Guðrún G. Jónsdóttir, Elín-
borg Bessadóttir, Guðrún Steing-
rímsdóttir, Halldóra _ Hafsteins-
dóttir, Hólmfríður Ófeigsdóttir,
Jón Guðmundsson, Kristín K. Þor-
geirsdóttir, María Guðmundsdótt-
ir, Philippe Ricard, Þórey S. Jóns-
dóttir, Handverk frá Hóli, Húfur
sem hlæja ehf., Leikfangasmiðjan
Stubbur, Listiðjan Eik og Tehettan
Freyja.
Sýningin er opin alla daga kl. 12-
17, nema sunnudag, og stendur til
18. desember.
♦ ♦ ♦
Síðasta
sýning
SÍÐASTA sýning á harmleiknum
Fedra eftir Jean Racine sem sýnd-
ur er í Þjóðleikhúsinu er næstkom-
andi sunnudag.
Tinna Gunnlaugsdóttir fer með
hlutverk Fedru, drottningarinnar
sem er heltekin af forboðinni ást til
stjúpsonar síns sem leikinn er af
Hilmi Snæ Guðnasyni. Aðrir leik-
endur eru Anna Kristín Arngríms-
dóttir, Arnar Jónsson, Halldóra
Björnsdóttir, Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir og Gunnar Eyjólfsson.
h 11 11 I 14 CRA/j
. hrn> ? *« ® -i happers
GREAT OUTOOOSS"
ÚTIVERA
FAXAFENI 12 - REYKJAVÍK - SÍMI 533 1550
OPIÐ VIRKA DAGA 9-18 OG LAUGARD. 10-16
SÖLUAÐILAR: Ellingsen Reykjavík, Húsasmiðjan um allt land, Akrasport Akranesi, Kaupf.
Borgfirðinga, Skipaþjónustan Ólafsvík, Hafnarbúðin (safirði, Vísir Blönduósi, Skagfirðingabúð
Sauðárkróki, KEA Hrísalundi Akureyri, KÞ Esar Húsavík, Kaupf. Héraðsbúa Egilstöðum,
S.Ú.N. Búðin Neskaupstað, Kaupf. Austur-Skaftfellinga Höfn, Skóbúð Selfoss - Sportbær,
Skeljungsbúðin Keflavík, Eðalsport Vestmannaeyjum
REGATTA-útivistarfatnaðurinn
hefur fyrir löngu sannað sig
við íslenskar aðstæður.
MIKIÐ ÚRVAL OG
EINSTAKLEGA
HAGSTÆTT VERÐ.
SÖLUAÐILAR
UM ALLT LAND
jSOTEN
Jakkar með ISOTEX-einangrun
og útöndun, frá 7.990 krónum