Morgunblaðið - 26.11.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 31
Wiranto hershöfðingja stefnt fyrir þingnefnd í Jakarta
Neitar því að herinn hafí
skipulagt grimmdarverk
Jakarta. AP, AFP.
WIRANTO hershöfðingja, fyrrver-
andi yfirmanni Indónesíuhers, var
stefnt fyrir þingnefnd, sem rannsa-
kar mannréttindabrot hersins í
Aceh-héraði, og hann neitaði því að
yfirmenn hersins hefðu fyrirskipað
grimmdarverk til að kveða niður
uppreisn íslamskra aðskilnaðar-
sinna í héraðinu. Nokkrum klukku-
stundum áður en hershöfðinginn
var yfirheyrður höfðu þúsundir
manna safnast saman við þinghúsið
í Jakaita til að krefjast þess að efnt
yrði til atvæðagreiðslu meðal íbúa
Aceh um hvort héraðið ætti að
verða sjálfstætt ríki.
Wiranto hershöfðingi, sem er nú
öryggismálaráðherra í stjórn Ind-
ónesíu, kom fyrir þingnefndina
ásamt Widodo Adisucipto, núver-
andi yfirmanni hersins, og lögreglu-
stjóra Indónesíu, Rusmanhadi
hershöfðingja.
„Það er alls ekki satt að ríkis-
stjómin eða yfirmenn hersins hafi
skipulagt grimmdarverk," sagði
Wiranto, en viðurkenndi að her-
menn hefðu gerst sekir um mann-
réttindabrot í héraðinu. Hann gaf
ennfremur til kynna að herinn
myndi falla frá þeirri kröfu sinni að
sett yrðu herlög í Aceh þar sem
horfur væru á því að hægt yrði að
leysa deiluna með friðsamlegum
hætti.
Suharto, íyrrverandi forseti Ind-
ónesíu, fyrirskipaði hernum árið
1989 að bæla niður íslamska að-
skilnaðarhreyfingu sem stofnuð var
í héraðinu árið 1976 og talið er að
herinn hafi orðið þúsundum manna
að bana. Aðgerðunum var hætt í
fyrra en ekkert lát hefur orðið á of-
beldinu, sem hefur kostað að
minnsta kosti 300 manns lífið frá því
í mars.
Oháð nefnd, sem stjórnvöld skip-
uðu í júlí til að rannsaka mannrétt-
indabrot hersins, sagði í fyrradag að
æðstu yfirmenn hersins hefðu stað-
ið fyrir „stríðsglæpum" í Aceh. Hún
kvaðst hafa skráð alls 5.000 alvarleg
mannréttindabrot, meðal annars af-
tökur án dóms og laga, pyntingar,
nauðganir og mannrán.
Fjölmenn mótmæli við
þinghúsið
Allt að 5.000 manns söfnuðust
saman við þinghúsið áður en yfir-
heyrslurnar hófust til að krefjast
þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði Aceh. Mótmælendurnir
gengu síðan um götur miðborgar-
------♦ ♦ ♦----
Bílaauglýsing
vakti reiði
karlmanna
morgun er
' i Vinnin<jur>
PimmPaldur
12-13 miluonir
innar og stöðvuðu umferðina á leið
sinni að Istiqlal-moskunni, stærsta
bænahúsi múslima í Suðaustur-As-
íu.
Um 900 námsmenn söfnuðust
einnig saman við forsetahöllina í
Jakarta til að krefjast þess að yfir-
menn hersins yrðu sóttir til saka
vegna grimmdarverka hersins í
Aceh. Hundruð óeirðalögreglu-
manna fylgdust með mótmælunum
en reyndu ekki að stöðva þau.
Abdurrah Wahid, forseti Indón-
esíu, sem er í fjögurra daga ferð um
Miðausturlönd, sagði í íyrradag að
ekki yrði orðið við kröfunni um að
íbúar Aceh fengju að greiða atkvæði
um sjálfstæði. Atkvæðagreiðslan
ætti aðeins að snúast um hvort
íbúarnir vildu taka upp íslömsk lög.
Hann bætti við að ekki kæmi til
greina að setja herlög í héraðinu.
Reutcrs
Aceh-búi krefst atkvæðagreiðslu í héraðinu um hvort það eigi að
verða sjálfstætt ríki á mótmælafundi við þinghúsið í Jakarta.
SJÓNVARPSAUGLÝSING fyrir
bifreiðategundina Neon frá
DaimlerChrysler var tekin úr
sýningu í Kanada í síðustu viku,
eftir að margir áhorfendur, flest-
ir þeirra karlmenn, höfðu kvartað
yfir því að hún væri ofbeldisfull.
I auglýsingunni sést ungt par
ganga eftir götu og er það fer
framhjá Chrysler Neon, sem er
lagt við gangstéttarbrún, lítur
maðurinn við til að dást að bif-
reiðinni. En í sama mund gengur
önnur kona á milli mannsins og
bflsins. Kærastan heldur að unn-
ustinn sé að horfa á konuna og
slær hann utanundir.
„Það var ekki ætlun okkar að
móðga neinn,“ sagði Mike St.
Pierre, fjölmiðlafulltrúi Daim-
lerCrysler í Kanada, og bætti við
að markmiðið með auglýsingunni
hefði verið að kitla hláturtaug-
arnar.
Gerð var ný útgáfa af auglýs-
ingunni í kjölfar kvartananna, en
í henni lætur kærastan nægja að
gefa unnusta sínum illt auga.
JOtóER
Mundu eftlr Jókernum
, PPADAIUK.INN 61/pn