Morgunblaðið - 26.11.1999, Page 56

Morgunblaðið - 26.11.1999, Page 56
5$ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Leiksýningar Sjómanna- félags Reykjavíkur ÞAÐ er nú varla hægt að sitja þegjandi undir tvískinnung- shætti og hræsni Sjó- mannafélags Reykja- víkur öllu lengui-. Nokkuð reglulega og á nokkurra mánaða fresti, ákveður hinn skeleggi formaður j^css, með aðstoð og fulltingi alþjóða flutn- ingaverkamannasamb- andsins (ITF), að láta kyrrsetja eitthvert er- lent kaupskip sem er að losa eða lesta á hans félagssvæði. Þetta ger- ir hann með vandlega skipulögðu fjölmiðla brambolti, þar sem hann sjálfur er oftast í aðalhlut- verki, og undir því yfírskini að hon- um og hans félagi sé svo annt um hag og kjör þeirra erlendu sjó- manna sem á þessum farskipum sigla. Formaðurinn heimtar að þess- ir menn fái greitt samkvæmt lágm- arkstaxta alþjóða flutningaverka- ^^annasambandsins (ITF), ellegar samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Haft hefur verið eftir hon- um í fjölmiðlum að undirmenn á þessum skipum fái sem svarar 300 bandaríkjadölum í fastalaun á mánuði, en þeir eigi þess kost að tvöfalda þá upphæð með yfírvinnu. Sem sagt um 600 dollarar á mánuði, eða sem svar- ar til um 42.000 krónur íslenskar. Það sem formanni Sjómannafélagsins lá- ist hins vegar að skýra fjölmiðlum og almenn- ingi frá, er sú staðreynd að þessi laun eru með öllu tekjuskattsfrjáls undir fána Kýpur og þar með nett- ólaun þessara manna beint í vasann. Hann segir heldur ekki frá því að á atvinnumarkaði í heimaíöndum , ilestra þessara sjómanna, eru skatt- skyld meðallaun kannski í kringum 200 dollarar á mánuði hjá venjuleg- um skrifstofumanni, ef menn eru á annað borð svo heppnir að fá ein- hverja vinnu. Oftar en ekki eru þessi skip mönnuð áhöfnum frá fyrrum austantjaldsríkjum, en verðlag og framfærsla í þessum löndum er allt annað og mun lægra og aðeins brot af því sem gerist í vestur Evrópur- íkjum. Ö0 þessi ríki búa við gríðar- lega eymd og atvinnuleysi og sjó- menn þessara landa sækja fast eftir þessum störfum á þessum launum, en 600 bandaríkjadalir á mánuði eru talin vera topplaun í þessum lönd- um. Og auðvitað veit formaðurinn það innst inni að hann er ekki að gera þessu fólki neinn greiða með þessum upphlaupum sínum. Því þó svo útgerð leiguskipsins verði knúin til að greiða þessum mönnum aftur- virk laun samkvæmt ITF-taxtanum, til þess eins að losa skipið frá kyrr- setningu, þá er það næsta víst að þeim verður öllum sagt upp störfum og sendir heim strax og skipið kem- ur í erlenda höfn. Utgerðin mun síð- an ráða aðra áhöfn í gegnum aðra áhafnaleigu á sömu kjörum og áður. Hinir erlendu skjólstæðingar Sjó- mannafélags Reykjavíkur munu síð- Sigurður Sigurgeirsson an um óíyrirsjáanlega framtíð mæla götumar einhverstaðar í fyrrum austurblokkinni, atvinnulausir og peningalausir, þökk sér umhyggju- semi formanns Sjómannafélags Reykjavíkur á Islandi. Þess má geta að oft reynist þeim sjómönnum sem lent hafa í samskonar kyirsetningu hjá alþjóðlega flutningaverka- mannasambandinu ITF mjög erfitt um vik með vinnu eftir slíkar að- gerðir. Allt þetta veit formaður Sjó- mannafélagsins auðvitað. Það sem vakið hefur athygli meiri manna samfai-a þessum uppákom- um er sú staðreynd að þau skip sem em kyrrsett að undirlagi Sjómanna- félagsins, eru nær undantekningar- laust erlend leiguskip og þá oftast svokölluð stórflutningaskip. Þetta eru kaupskip sem eru þá annaðhvort á leigu eða í umboðsafgreiðslu hjá ís- lensku skipafélögunum, sem að- gerðir Sjómannafélagsins hljóta að beinast gegn. I öllum helstu skipa- leigusamningum, hvort sem um er að ræða svokallaða ferðaleigu eða tímaleigusamninga, er leigutaki (ís- lensku skipafélögiri) undanþeginn greiðslubyrði leigu frá upphafi slíkr- ar kyrrsetningar. Það tjón sem af þessum aðgerðum hlýst, lendir því til að byrja með á hinum erlendu eigendum, sem síðan geta endur- heimt þann kostnað hjá sínum tryggingafélögum (P+I-klúbbar). Einnig má geta þess að þessi skip Kyrrsetning Þessi fyrrum áhöfn mun síðan mæla göturn- ar einhvers staðar í fyrrum austurblokk- inni, segir Signrður Sigurgeirsson, atvinnu- laus og peningalaus, þökk sé Sjómannafélagi Reykjavíkur. stunda ekki áætlunarsiglingar, og röskun á áætlun því svo til engin, að- eins smá tafir. Fjárhagslegt og við- skiptalegt tjón íslensku skipafélag- anna er því hverfandi þótt þau beri sig illa á öldum ljósvakanna, en allt er þetta hluti af leiksýningunni. Það má því segja að þessar reglubundnu uppákomur formanns Sjómannafé- lags Reykjavíkur séu orðnar jafn vandræðalega gegnsæjar og þær eru gagnslausar, en það læðist að manni sá grunur að hér sé um sam- antekin ráð að ræða. A sama tíma og formaðurinn hamast á útlendingunum, í þeirri viðleitni sinni að hjálpa fátækum og efjöíBreytt austuríem^fiátíð - SáúuuaííHÖteíSðgu. n%. sunnud. Árshátíð nýstofnaðs Thailandsvinafélags eftir stofnfund. ‘Ifmandsvimfélagið sícer aM.f. fiijárfCugur í dm fiöggi með því að fmídaframfiaídsstojnjundog aðaífund fyrmingu á (andi og fjjóð oggtcesiíega ársfiátíð. * Kl.19.00 - Húsið opnað með barþjónustu og tónlist Nýir félagar geta skráð sig og gerst stofnfélagar með rétt indum féiaga. kl. 19.45 - Hátíðin hefst með tónlist, myndasýningum og ljúffengri kvöldverðar þrennu: BALl HAl tígrisrœkja í kókos Gómsœtt heilagfiski PATONG Tandori kjúklingur CHIANG RAI MATARVERÐ - AÐEINS KR. 2.000. Meðan á máltíð stendur: LOÐSKINN og SAMKVÆMIS- FÖT. Glæsiieg tískusýning undir stjórn Unnar Arngrímsd. Thailenskar meyjar sýna austurlenska dansa. * Myndasýning og ferðakynning: UNDRA THAILAND í dag. Happdrætti: 5 ferðavinningar dregnir út á kvöldinu. DANS - Hljómsveit Stefáns Jökulssonar og Sigrún Eva leiða fjörið í dansinum til kl. 23.30. AÐGANGUR ÓKEYPIS FYRIR MATARGESTI. BORÐAPANTANIR: Heimsklúhburinn, sími 56 20 400 Hótel Saga, sími 525 9920 ^THAILANDS VINAFÉLAGIÐ WORLD CLUB & PRIMA Hvaladráp Islendinga og umhverfísráðherra ÞEGAR ég var staddur á íslandi seinni hluta ágústsmánaðar sumar- ið 1998, var fagnað með viðeigandi hætti komu háhyrningsins Keikó frá Bandaríkjunum. þessi háhyrn- ingur hafði verið veiddur við Islands strendur sem ungviði fyrir allmörgum árum og seldur til Banda- ríkjanna sem sýning- argripur í sjávardýra- safn. Það rann upp fyrir sýningargestum safnsins að þessi fangageymsla dýrsins, sem rakti ættir sínar til svo að segja ómæl- anlegra úthafsdjúp- anna á alla vegu, nú í nokkurra tuga fer- metra þró, væri í alla staði hin ómannúðleg- asta. Umhverfisverndarsinnar og dýravinafélög skáru upp herör og kröfðust þess að Willy, eins og hann nefndist í kvikmyndum, sem hann var notaður í, yrði gefið frelsi. Til að standa undir kostnaði við frelsisgjöf dýrsins hófust fjársafn- anir út um allan heim. Islensk stjórnvöld féllust á að taka við hvalnum, sér að kostnaðar- lausu, þegar eftir því var leitað. Var honum þá búinn bráðbirgðadvalar- staður við Vetsmannaeyjar á með- an hann vendist nýjum aðstæðum. Ákvörðun þáverandi íslensku ríkisstjórnar mátti líta á sem yfir- lýsingu um að héðan í frá skyldu hvalir fá að fara í friði meðfram ís- landsströndum á ferðum sínum um heimshöfin, vissulega tímabær ákvörðun af stjórnendum lands, sem telur sig ábyrgt í umhverfis- verndarmálum. Hróður landsins óx um heim all- an og þeir sem til íslands þekkja, þeir eru ótrúlega margir, luku upp einum munni „ísland er náttúru- perla". Þetta vissum við, þótt við héldum því lítið á lofti, af okkar al- kunnu hógværð. A þessum sömu dögum birtist í Morgunblaðinu grein eftir ajþingis- konu Siv Friðleifsdóttur. I henni leggur hún áherslu á að íslending- ar skuli hefja hval- veiðar að nýju svo fljótt sem því verði við komið. Hún skrifar af rætni um Keiko og framtíð hans, segir að hann muni veslast upp og drepast úr kulda. Þessi skoðum frú Sivj- ar ber ekki með sér þekkingu á líkams-: byggingu hvala, né heldur á lífríkinu yfir- leitt. Það er aldeilis úti- lokað að þessi kona verði endurkjörin til þings, reyndi ég í erg- elsi mínu að róa mig með, að lestri loknum. Síðar kom svo í ljós að fáir hafa líklega lesið greinina, Siv var kjörin til þings og ekki nóg með það, hún var leidd til ráðherrastóls í embætti sem gæta skal velferðar umhverfis- ins, þótt hún hafi lýst yfir opinber- lega andúð sinni á a.m.k. ýmsum þáttum þess. Hér er eitthvað að, hvar fela sig gáfur forsætisráherra Davíðs Oddssonar, sem ég ber virðingu íyrir eða Halldórs Ásgrímssonar sem ég einnig virði? Ef þeir hafa í huga framkvæmdir á kostnað umhverfisins sem þeir vita að verði fordæmdar síðar, er þeim þá kannski styrkur af að geta sagt, „umhverfismálaráðherrann var þessu samþykkur". Um eitthvert árabil stunduðum við hvalveiðar í vísindaskyni. M.a. átti að komast að því í hve mikilli útrymingarhættu hvalastofninn væri. Hann er það að sjálfsögðu af þeirri einföldu staðreynd að allt eyðist sem af er tekið og viðkoma hvala er ákaflega hæg. Spaugilegt, ótrúverðugt yfir- skyn, sýndist mörgum, eða hverjar voru niðurstöður rannsóknarinnar, liggja þær einhversstaðar fyrir? Hverju ætlar frú Siv umhverfis- málaráðherra að svara þegar hún á fundi með ráðherrum annarra þjóða verður spurð, af hverju Is- lendingar ætli að hefja hvalveiðar (hvaladráp) á ný. „Að þeir séu svo ófríðir að þeir megi missa sig.“ Mér er til efs ef umhverfisverndarsinn- ar, sem annarra þjóða umhverfis- málaráðherrar eru, annaðhvort væri nú, taki það svar gott og gilt. Það kemur að því og fyrr en menn ætla að þjóðir sem ennþá eru vanþroska hvað varðar nauðsyn þess að vernda náttúruna, sem við mannfólkið erum hluti af, hætta að kaupa af okkur hvalkjöt á náttúru- verndargrundvelli, um þetta er Hvaladráp Að hefja hvaladráp að nýju, segir Haraldur Jóhannsson, yrði ---7’ ------;--------- Islendingum mikill álitshnekkir. engin spurning, þróunin er ein- dregið í þá átt. Islendingar hafa í vaxandi mæli gildar árstekjur af hvalaskoðunum sem er vel og til fyrirmyndar. Heyrst hefur að hvalveiðar og þar með umhverfi náttúruperlunnar blóði drifið, muni ekki hafa minnk- andi áhrif á áhuga erlendra ferða- manna fyrir hvalaskoðunum. Þetta er auðvitað hin mesta fásinna og eiginlega stórfurðulegt að nokkrum skuli hafa dottið það í hug. Hvalaskoðunarferðir frá Islandi mundu leggjast af samstundis um leið og dráp sýningardýranna hæf- ist, og yrðu ekki aftur upptakanleg- ar, vegna andúðar hvalaskoðara á ónauðsynlegu drápi þessara virtu dýra. Og eðlilega mundi þeim hvöl- um ört fækka sem til skoðunar væru. Hvalaskoðunarútvegur er stund- aður í fleíri löndum en Islandi, því yrði þessi fráleita, óvinsæla aðgerð okkar vatn á myllu keppinautanna í öðrum heimshlutum. Að hefja_ skipulagt hvaladráp að nyju yrði íslandingum mikill álits hnekkir, sem leiða mundi til ófyrir- sjáanlegra erfiðleika, ekki síst á sviði efnahagslífsins Leonardo da Vinci listmálari (Mona Lisa, Kvöldmáltíðin), mynd- höggvari og nátturuunnandi 1452- 1519 sagði: „Sá sem ekki virðir líf annarra dýrategunda á það (þ.e. líf- ið) ekki skilið sjálfur." Höfundur er eftirlaunamaöur og býr i Austurriki. Haraldur Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.