Morgunblaðið - 26.11.1999, Side 64
64 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FLJOTSDALSVIRKJUN:
ER ANNARRA KOSTA VÖL?
ALÞINGI fjallar
nú um tillögu iðnaðar-
og viðskiptaráðherrk
til þingsályktunar um
framhald fram-
kvæmda við Fljóts-
dalsvirkjun. Með til-
lögunni er fylgiskjal
þar sem Orkustofnun
svarar þeirri spurn-
ingu hvort afla megi
ráðgerðu 120 þús.
tonna álveri við Reyð-
arfjörð raforku með
öðrum hætti en þeim
að reisa þá virkjun í
Fljótsdal með miðlun- Þorkell
arlóni á Eyjabökkum, Helgason
sem þingsályktunar-
tillagan fjallar um. Vegna mikil-
vægis málsins svo og þess að fréttir
hafa verið misvísandi um svar
Orkustofnunar verður í þessari
blaðagrein gerð nokkur grein fyrir
mögúleikunum. Að
m|stu er hér byggt á
fýrrgreindu fylgi-
skjali.
Þarfír orkuvers
í Reyðarfirði
Hinn ráðgerði fyrsti
áfangi álvers í Reyðar-
firði þarf um 1.700
GWh/a (gígavatt-
stundir á ári, en 1
GWh jafngildir 1 millj-
ón kílóvattstunda).
Aform um álverið kalla
á skjótar ákvarðanir
og að sjálfsögðu skipt-
ir verð orkunnar máli.
Þegar leitað er leiða til
að afla álverinu orku þarf sam-
kvæmt forsendum málsins að upp-
fylla eftirfarandi skilyrði:
• Orkan sé tiltæk til afhendingar
fyrir árslok 2003.
Orkuframkvæmdir
... aðeins með því að
reisa Fljótsdalsvirkjun,
segir Þorkell Helgason,
er unnt að tryggja 120
þúsund tonna álveri á
Reyðarfirði orku fyrir
árslok 2003...
• Gefa verður skuldbindandi lof-
orð á fyrri hluta ársins 2000 um
orkuafhendinguna.
• Orkukostnaður sé lægri eða
ámóta og frá Fljótsdalsvirkjun.
Orkuspá og ráðgerður
orkufrekur iðnaður
Áætlað er að raforkunotkun á
Islandi hafi undir árslok 1998 verið
komin í rétt ríflega 6.900 GWh/a.
Raforkuþörfin hafði þá vaxið ört á
liðnum árum vegna nýn-a verkefna
í orkufrekum iðnaði: Stækkunar ál-
vers Isals í Straumsvík og fyrsta
áfanga álvers Norðuráls á Grund-
artanga. Síðla á þessu ári, 1999,
hófst rekstur þriðja bræðsluofnsins
hjá íslenska járnblendifélaginu og
gefnar hafa verið skuldbindingar
um aukna raforkusölu til álvers
Norðuráls vegna stækkunar svar-
andi til 30 þús. tonna, en þessi við-
bótarsala á að hefjast í apríl 2001.
Þessari framvindu sem og hinni
öru þróun í raforkunotkuninni er
lýst á 1. mynd.
Nú þegar erum við Islendingar
orðnir sú þjóð sem mest notar af
raforku á hvern íbúa og förum við
þessi misserin fram úr Norðmönn-
um og Kanadamönnum sem hafa
staðið okkur framar hvað þetta
varðar. Það er þó munur á okkar
raforkunotkun og þeirra. Þannig
nota Norðmenn mjög drjúgan
hluta af sinni raforku til húshitun-
ar, eða 20-30% (árið 1998) en við
aðeins rúm 5% (árið 1998). Orku-
frekur iðnaður er stórnotandi í
Noregi með um 30% af raforku-
notkuninni 1998, en hjá okkur er
stóriðjan þegar farin að nota um
60% af raforkunni á árinu 1998 og
stefnir í meira, eins og 1. mynd sýn-
ir.
En við erum ekki aðeins stórnot-
endur rafmagns. Vegna mikilla
þarfa á húshitun á okkar norðlægu
slóðum svo og hlutfallslega stórs og
orkufreks skipastóls er orkunotkun
okkar í heild afar mikO; enn á ný sú
mesta í heimi miðað við íbúatölu. Sá
er þó munur á okkur og vel flestum
öðrum þjóðum að stærsti hlutinn af
orkunni kemur frá endumýjanleg-
um orkulindum eða réttir tveir
þriðjuhlutar (67%) á síðasta ári og
stefnir í nokkru hærra hlutfall,
■►SbRMERICr
HANDKLÆÐI
Verð 1.490
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
Þú færð meira fyrir
PENINGANA ,
þína ? ? ? J|f
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ
Frumkvöðull að lækkun glcraugnaverðs á íslandi
vegna vaxandi raforkuframleiðslu.
Afgangurinn er jarðefnaeldsneyti.
Enn eru það Norðmenn sem næstir
okkur koma í þessum efnum með
um rétt tæpan helming (48% árið
1998) frá endurnýjanlegum orku-
lindum (einkum vatnsorku, en líka
viðar- og sorpbrennslu).
í efri hluta 1. töflu er þörfum raf-
orkumarkaðarins lýst fram til árs-
ins 2004, þar með talin þörf þeirrar
nýju stóriðju, sem þegar hefur ver-
ið ákveðin. Neðri helmingur töfl-
unnar sýnir hvernig ráðgert er að
sjá við þörfinni1
Enda þótt ekki kæmi til frekari
stóriðju þyrfti mjög bráðlega að
huga að aukinni orkuöflun fyrir al-
menna markaðinn. Við þessu mætti
bregðast með ýmsu móti, svo sem
með vatnsorkuverum af minna tagi
eða áföngum í jarðgufuvirkjunum.
Yfírlit yfir virkjunarkosti
í 2. töflu eru taldar upp þær
virkjanir sem lengst eru komnar í
undirbúningi og gætu hugsanlega
tekið til starfa íýrir árslok 2005. En
minnt skal á að samkvæmt forsend-
um um álverið í Reyðarfirði, þarf
rafmagn að vera til reiðu þegar í
skipað í kostnaðarflokka, þar sem
I. flokkur merkir að orkuverð gæti
orðið sambærilegt við orkuverð frá
Fljótsdalsvirkjun, eða lægra. En þá
er aðeins miðað við orkukostnað við
stöðvarvegg, en ekki tekið tillit til
kostnaðar við flutning á orkunni
sem getur verið afar mismikill.
Orkugeta virkjana, annarra en
Fljótdalsvirkjunar, sem gætu hafið
framleiðslu iýrir ársbyrjun 2004 er
samtals um 1.200 GWh/a.2
Þar af er orkugeta nýrra virkj-
ana á Norður- og Austurlandi að-
eins um 600 GWh/a. Afganginn
þyrfti þá að flytja um langan veg
með tilheyrandi viðbótarkostnaði,
og skortir þó enn nokkuð, eða um
500 GWh/a.
Á töflunni sést að aðeins með því
að reisa Fljótsdalsvirkjun er unnt
að tryggja 120 þúsund tonna álveri
á Reyðarfirði orku fyi'ir árslok
2003, enda verði að staðfesta orku-
afhendinguna fyrir mitt næsta ár.
Á árunum 2004-2005 væri hugs-
anlegt að útvega næga orku, annað-
hvort með flutningi verulegs hluta
orkunnar frá virkjununum á Suður-
og Suðvestui’landi eða með stór-
aukinni virkjun jarðvarma á
Norðausturlandi. Fyn-i leiðin kall-
ar annaðhvort á lagningu há-
spennulína yfir Sprengisand, sem
myndi hleypa orkukostnaðinum
langt yfir sett mörk, eða auknar
línulagnir frá Blöndu og allt í Reyð-
arfjörð, sem yi’ðu einnig afar dýrar.
Erfitt er á þessari stundu að full-
yrða að hin leiðin, nýjar jarðgufu-
virkjanir á Norðausturlandi, sé
fær. Rannsóknarboranir hafa því
miður ekki verið gerðar í þeim
GWh/a
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
Ál\ ier í leyðarfir ðí-s \
c 3tæk kun Norc uráls^ y
H"
Nt ver: andi stóriðja
-4n
/> — Ime nn r afor kum >tku — n
04
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
1. mynd: Raforkunotkun á íslandi 1990-2005 samkvæmt raforku-
spá og með staðfestri stóriðju
2. mynd: Möguleikar á orkuöflun fyrir álver í Reyðarfirði.
1. tafla: Raforkubúskapur fram til ársins 2004, án álvers í Reyðarfiröi
Markaður Ár GWhJa
Raforkuþörfin í árslok 1998 1998 6.905
Aukning á almennum markaði 1999-2003 280
Þriðji ofn hjá Jámblendifélaginu 1999 323
Stækkun um 30 þús. tonn hjá Norðuráli 2000 450
Umsamið ogfyrirséð í árslok 2003 7.958
Orkuöflun Ár GWh/a
Orkukerfið í árslok 1998 1998 6.550
Sultartangavirkjun 1999 880
Aukning í Svartsengi 1999-2000 220
Vatnsfellsvirkjun 2002-2003 410
Staðfest orkugeta í árslok 2003 8.060