Morgunblaðið - 26.11.1999, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 26.11.1999, Qupperneq 76
.7)6 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Skyggnst inn í veröld Bond-stúlknanna margir * Vonda stelpan SOPHIE Mai'ceau er aðallega þekkt á alþjóðlegum vettvangi fyrir leik sinn í Braveheart en hún hefur leikið í mörg ár í heimalandi sínu, Frakklandi. Hún er ef til vill sú af þessum tveimur leikkonum sem líklegri er til að leika góðu stelpuna en í nýjustu Bond-myndinni breytir hún um stíl og leikur einn eftirminnilegasta og án efa fallegasta óþokka Bond-myndanna. „Mér fannst mjög gaman að taka þátt í þessari mynd. Hún er metnaðarfull og mikið lagt í handritið sem gerir að verkum að það va;- skemmtilegt fyrir leikarana að kljást við hlutverkin. Eg naut hvers augna- þliks í tökunum og lærði mikið.“ Söguþráðurinn fyrir mestu En er Bond-myndin ólík öðrum myndum sem hún hefur tekið þátt í? „Eg held að allar myndir séu svipaðar í vinnslu. Þú byrjar með tvær hendur tómar og byggir smátt og smátt upp heildarmynd úr ótal smáatriðum. Mér fínnst alltaf gaman að leika í kvikmyndum en að sjálfsögðu er góður söguþráður fyrir mestu; þannig verða myndir sígildar." Hvað með Pierce Brosnan, er hann góður Bond? „Það fínnst mér,“ svarar hún. „Hlutverkið hefur vaxið vel með honum. Hann virðist geta leikið Bpnd af fingr- um fram ef hægt er að taka svo til orða. Eg kom auð- vitað ný inn í gerð þessarar myndar þar sem margir leikaranna höfðu oftsinnis unnið saman áður. Eg var því í raun bara viðbót við það sem fyrir var. Mér fannst samt gott að vinna með Robert Carlyle, hann hugsar mjög mikið og hefur alltaf unnið vel úr hlutverkum sín- um.“ Kom eitthvert annað hlutverk tO greina heldur en Elektra King? „Eg held ekki, ég held að þetta hafi verið það hlutverk sem þeir höfðu í huga fyrir mig. Þetta er alveg frábært hlutverk og að mörgu leyti afar frábrugð- ið því sem ég hef verið að fást við. Það fyndnasta var að þau tóku fyi'st eftir mér í mynd af allt öðru tagi, sem gerist meira að segja á annarri öld.“ Veruleiki í skáldskap Hlutverk Elektru bauð einnig upp á nýja möguleika fyrir Sophie því hún varð fyrsta leikkonan til að leika Allar falla þær fyrir Bond Denise Richards og Sophie Marceau eru klæðskerasaumaðar af Guði í hlutverk Bond-stúlknanna og víst er að þótt heimur- inn sé ekki nóg fyrir Bond ættu þær að vera yfrið nóg fyrir sjentilmanninn breska. Ingi- björg Þórðardóttir fór á gala-frumsýningu í London og talaði við þær stöllur. sama hlutverkið í Bond-mynd á tveimur málum þegar hún léði frönsku útgáfunni af Bond hæfileika sína. „Það var áhuga- ^ert en mér finnst líka gaman að leika á ^nsku enda hefur það tungumál svo mikla sögu þegar kemur að leiklist." I ■ Sophie á fjögun-a ára gamlan soji sem ferðast með henni hvert sem hún fer, en er ekkert erfitt að samræma móðurhlutverkið og leiklistina? „Jú, oft er það svo, en ég trúi því að manni tak- ist það sem maður ætlar sér. Það hjálpar líka að pabbi hans getur yfir- leitt komið með okkur líka. Mér finnst samt best að leika í myndum sem teknar eru upp nálægt heimili mínu í París. Ég myndi t.d. aldrei flytja til Los Angeles. I Evrópu er mitt heim- ili.“ Leikið frá 13 ára aldri Sophie hefur fengist við leiklist frá því hún var 13 ára og unnið til s.8§argra verðlauna í Frakklandi. Ætli það sé eitthvað sem henni finnist hún eiga ógert? „Að sjálf- sögðu, ég er mjög metnaðargjörn og hef mikla ástríðu fyrir mynd- um. Það hræðilegasta sem gæti komið fyrir mig væri að þurfa að gera mynd sem vekti ekki áhuga minn. Ég trúi því að það sé ákveðinn veruleiki í skáldskap og sá veruleiki á mun betur við mig heldur en sá sem við búum í.“ Báðar voru leikkonurnar mjög áberandi í myndinni en þó verður að segjast eins og er að leikur Sophie skarar fram úr. Það sem þær eiga sj&imeiginlegt er að líta ótrú- lega vel út á hvíta tjaldinu og það verður að viður- kennast að eftir að.hafa hitt þær báðar á frumsýning- unni síðasta mánudag hef- ur blaðamaður gefið upp alla von um að verða ein- hvern tímann Bond- stelpa. tungu- STJÖRNURNAR voru allar mættar til að vera viðstaddar frumsýninguna á nýjustu Ja- mes Bond-myndinni í London síðasta mánudag og var þeirra beðið með óþreyju af þúsund- um aðdáenda sem safnast höfðu saman fyrir utan kvik- myndahúsið. í sönnum anda 007 var Pierce Brosnan umvafinn glæsilegu kvenfólki en hann virtist einungis hafa auga fyrir einni. Stjarnan mætti með unn- ustu sinni Keely Shaye-Smith sem var glæsilega skreytt skartgripum að andvirði 385 milljóna króna. Aðalleikonur myndarinnar Sophie Marceau og Denise Richards voru að sjálfsögðu mættar og stóðust allar væntingar sem glæsilegu Bond-stelpurnar. Aðrar stjörnur til að ganga eftir rauða dreglinum voru m.a. óskarsverðlaunahafinn Judi Dench, Robert. Carlyle, Maria Grazia Cucinotta og Robbie Coltrane. Heimurinn erekkinóg er 19. myndin í Bond-seriunni og hefur hún fengið frábærar við- tökur beggja vegna Atlantshafs- ins. Hún sló ekki einungis öll að- sóknarmet Bond-myndanna fyrstu sýningarhelgina í Banda- ríkjunum heldur líka kvikmynda- fyrirtækisins MGM. Hún hefur allt til að bera sem góð Bond- mynd þarf; framandi lönd, hrað- skreiða bfla, ótrúleg tæki og tól og að sjálfsögðu það sem er ómissandi fyrir hverja Bond- mynd ... fallegar konur. Það þarf víst ekki að fara mörgum orðum um að þær falla að lokum allar fyrir Bond, James Bond. Denise Richards er stúlkan sem 007 hreppir væntanlega í lokin. Góða stelpan ÞAÐ hefur orðið ákveðin breyting á Bond-stelpunum í gegnum tíðina. Þróunin heldur áfram í þessari mynd; ekki er nóg með að yfirmaður Bond, M, sé kona heldur er hin eina sanna Bond-stelpa orðin kjarnorkueðlisfræðingur. Þegai' ég hitti Denise Richards um síðustu helgi var hún alsæl yfir því að vera komin í hóp föngulegra Bond-kvenna þrátt fyiir að hafa verið vöruð við ím- yndinni sem því fylgir. „Ég myndi aldrei byrja á verkefni með neikvæðu hugarfari og það eru margir kostir við að taka þátt í svona verkefni,“ segir hún. „Ég er mjög ánægð með að þau skyldu biðja mig um að vera Bond-stelpu, sérstaklega þar sem leik- stjórinn, Michael Apted, er í miklu uppáhaldi hjá mér. Þetta er stórkostlegt tækifæri." Mamma aðdáandi Bonds Þrátt fyrir ungan aldur hefur Denise leikið í þremur stórum Hollywood-myndum en hún vakti fyrst athygli í mynd Paul Verhoeven, Starship Troopers. Þegar hún er spurð hvort hún hafi séð margar af fyrri Bond-myndunum verður fátt um svör. „Nei, eiginlega ekki,“ svarar Richards. „Ég þurfti að sjálfögðu að horfa á nokkrar svo að ég vissi um hvað þetta snerirt. Mamma er líka mikill aðdáandi þessara mynda. Ég get skilið af hverju þær eru svona vinsælar. Þetta er fantasía þar sem James Bond er þessi hetja sem heillar allar konumar og leikur sér með öll þessi tæki; það finnst karlmönnum spenn- andi. Og konur eru líka heillaðar af honum.“ En hvað finnst henni um þessa mynd af konum sem dregin hefur verið upp í Bond-myndunum? „Ég held að konurnar hafi alveg frá upphafi verið mjög klárar og sniðugar. Það var þróun sem Michael Apt- ed vildi viðhalda í þessari mynd enda eru konurnar sterkar, gáfaðar og hafa margt fram að færa. Það gerir myndina áhugaverðari og líka skemmtilegra fyrir okkur að leika þessar persónur. Að mínum dómi endurspeglar þessi þróun það sem er að gerast í sam- félaginu.“ Judi Dench stórkostleg Heimurínn er ekki nóg er eins og allar aðrar Bond-myndir, full af áhættuatriðum sem kröfðust mikils af leikurunum. „Mér fannst erfiðast að leika í kafbátasenunni. Það voru síðustu tökurnar og þá skildi ég loksins af hverju ég hafðrverið spurð að því hvort ég kynni að synda. Ég var látin vinna með köfurum sem sáu um a<5 við værum ör- 1 ugg meðan á tökunum stóð. Ég reyndi líka að 1 leika í öllum atriðunum sjálf og fullyrði eftir 1 þessa reynslu að ég hef enga löngun til þess að I verða kafari.“ En hvað fannst Denise um mótleikara sína? „Tökurnar voru spennandi en að sama skapi yf- 1 irþyrmandi. Þetta er rosalega viðamikil fram- 1 leiðsla og það sem er merkilegt við Bond-mynd- 1 irnar er að mikil hollusta ríkir á milli 1 framleiðendanna og föstu leikaranna; þetta er 1 þriðja mynd Pierce [Brosnan]. Hann var fram úr 1 hófi hjálpsamur og það gerði þetta mun auðveld- 1 ara. Robbie Coltrane sá um grínatriðin og er einn 1 fyndnasti maður sem ég hef hitt. Judi Dench er al- 1 veg stórkostleg; framkoma hennar er alveg ólýsan- 1 leg. Maður finnur virkilega fyrir nálægð hennar.“ Persóna Denise, Christmas Jones, vinnur með 1 kjarnorkuvopn og Denise játti því að það hefði oft ' gerst að hún hefði ekki haft hugmynd um um hvað 1 hún var að tala. „Ég spurði einmitt Pierce oft að því 1 hvort hann skildi mig, sem hann að sjálfsögðu gerði ekki en maður verður bara að láta sig hafa það og vonast til að maður líti út fyrir að þetta sé eitthvað sem maður tali um daglega." Saumaklúbbur Bond-stúlkna Nýlega var mikil umfjöllun um Bond-stelpur í tímaritinu Vanity Fair þar sem leikkonur síðustu þriggja áratuga komu saman. Gat Denise eitthvað lært af þessum fyrirrennurum sínum? „Það var alveg stórkostlegt að hitta þessar konur eins og t.d. Ursulu Andress. Þær sögðu mér að þetta væri alveg yndisleg reynsla og hvöttu mig til þess að njóta þess. Ég sé mig í anda sitja fyrir eins og þær eftir 40 ár. Við vor- um allar sammála um að þetta væri hlutverk sem fylgdi manni alla ævi.“ Næsta verkefni Denise er fyrsta myndin sem Matt Damon og Ben Affleck framleiða og hefur hún unnið með þeim áð- ur að stuttri sjónv- arpsþáttaröð. En getur eitthvað sleg- ið Bond-myndun- um við? „Eg get ekki ímyndað mér hvað það ætti að vera,“ svarar hún og klykkir út með: „Það jafnast ekkert ávið Bond.“ Franska þokka- gyðjan Sophie Marceau lyftir Bond á hærri stall.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.