Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ
68 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
Gjöfin
■ hennar
1 V\l//
w c3 Ue—
\mJl Kringlunni, sími 553 7355.
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Á hvaða tungumálasvæði eru
flest símtæki í heiminum?
www.tunga.is
Uinalína Rauða krossins
- Úkeypis símaþjónusta
þegar þér er uandi á höndum
Ert þú 18 ára eða eldri og þarft
að ræða uið einhuern í trúnaði?
- Uinalínan sími 800 6464
frá kl. 20-23 öll kuöld
Kvenspariskór
lIí
i mi
úrvah frá araiog^^
Verð kr. 4.995,- Stærðir: 36-42
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
i eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
3. flokki 1994
-37. útdráttur
- 34. útdráttur
-33. útdráttur
-31. útdráttur
-26. útdráttur
- 22. útdráttur
- 19. útdráttur
- 18. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 2000.
ÖU númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum birt
hér í blaðinu i dag. Upplýsingar um útdregin húsbréf
Liggja frammi hjá íbúóaLánasjóði, i bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafýrirtækjum.
íbúðalánasjóður
Suðurlandsbraut 24 I 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
í DAG
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kurteisi kostar
ekkert
UNG kona hafði samband
við Velvakanda og sagði að
hún hefði þurft að eiga
samskipti við Trygginga-
stofnun ríkisins sem voru
ekki ánægjuleg. Hún hafði
haldið til haga öllum lækn-
isnótum yfír árið og þegar
hún fór yfír þær kom í ljós
að hana vantaði eina nótu
frá sérfræðingi. Hún hafði
samband við Trygginga-
stofnun og þar fékk hún
þær upplýsingar, að það
væri bilun í kerfinu og
stúlkan sagði við hana að
hún skyidi athuga hvort
hún gæti gefíð henni þær
upplýsingar sem hana
vantaði, en það væri van-
inn að sækja um það sér-
staklega og hvort hún
gæti hringt seinna. Hún
gerði það og lenti þá á af-
greiðslustúlku sem var af-
skaplega dónaleg og svar-
aði því til að þær vissu
ekki allt og það væri ekki
hægt að veita þessar upp-
lýsingar, þar sem sérfræð-
ingar gæfu ekki upp rétt
verð til stofnunarinnar.
Var hún mjög dónaleg og
hafði litla þjónustulund.
Þakkir
FJÖLSKYLDUNNI sem
rak myndbandaleigu á Ný-
býlaveginum í Kópavogin-
um eru færðar bestu þakk-
ir fyrir frábæi'a þjónustu.
Það var alltaf hægt að
ganga að myndunum vís-
um og þjónustan var alveg
einstök. Þeirra er sárt
sakanað.
Ánægður viðskiptavinur
fkonamyndir
ÁSGEIR hafði samband
við Velvakanda og vildi
benda á, að á Næstu grös-
um væri sérlega skemmti-
leg sýning á íkonamynd-
um eftir Birnu G. Ás-
björnsdóttur. Sýningin
stendur fram að jólum og
vildi hann hvetja fólk til
þess að gefa sér tíma til
að kíkja inn, sjá fallegar
myndir og fá sér gott að
borða.
Tapað/fundið
Tveir gullhringir
týndust
TVEIR gullhringir týnd-
ust fyrir um það bil
tveimur mánuðum. Annar
er 5mm breiður með hvít-
um steinum, hinn er með
stórri hraunaðri plötu að
ofan og demantur í plöt-
unni. Gætu hafa týnst í
Ármúlanum eða í Frosta-
fold. Hringanna er sárt
saknað. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband i síma 587-
2849.
Dýrahald
Gára
í óskilum
GÁRA fannst fyrir utan
Bogahlíð 26 mánudaginn
13. desember sl. Upplýs-
ingar í síma 588-7087.
Kettlingur
í fóstri
UNG læða fannst í vestur-
bæ i september sl. Hún
hefur verið í fóstri en vant-
ar núna nýtt heimili vegna
ofnæmis. Hún er bröndótt
með hvíta bringu, mjög
falleg, blíð og þrifaleg.
Hún heitir Þrenning. Upp-
lýsingar veittar síma 552-
1088.
SKAK
IJnisjón Margeir
Pctnrsson
Staðan kom upp á fímmta
alþjóðlega Guðmundar Ara-
sonannótinu sem nú stend-
ur yfir í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði.
Skákina tefldu
Önnur úrsht í fyrstu um-
ferð urðu þau að Sævar
Bjamason vann Stefán Kri-
stjánsson, Björn Freyr
Björnsson vann Þorvarð
Ólafsson, jafntefli gerðu
Ágúst Sindri Karlsson og
Kristján Eðvarðsson og þeir
Westerinen, Finnlandi, og
Raetsky, Rússlandi. Fjórða
umferð mótsins er tefld í
dag og hefst klukkan 17.
tveir erlendir al-
þjóðlegir meist-
arar í fyrstu
umferð: Daninn
Jacob Aagard
var með hvítt,
en Manuel Bos-
boom, Hollandi,
hafði svart og
átti leik.
28. _ Bxg3+! 29.
Dxg3 _ He8+
30. Kd2 _ Rc4+
31. Kcl _ Dh6+
32. Hf4
Dxf4+! 33. Dxf4
_ Hel mát!
SVARTUR leikur og vinnur
COSPER
C0SPER.
Af hverju þarf ég alltaf að viðra hundinn?
Víkverji skrifar...
AÐ er vel til fundið hjá Vega-
gerðinni að bjóða þá þjónustu á
Netinu að hægt sé að fylgjast með
færð og umferð á þjóðvegum
landsins. Á heimasíðu má á auga-
bragði sjá hvernig færðin er og þar
er einnig tiltekið hversu mikil um-
ferðin hefur verið.
Víkverji hefur ekki sjálfur þurft
á þessum upplýsingum að halda
vegna vetrarferða sinna en sér í
hendi sér hversu hagnýtar þær
eru. Ekki síst þegar vetrarferðir
eru annars vegar og menn kannski
ragir við að leggja í hann. Hann
hefur nefnilega það á tilfínningunni
að margir landsmenn, sérstaklega
þeir sem búa á höfuðborgarsvæð-
inu og fara kannski sjaldnast ak-
andi út íyrir borgarmörkin, viti
ekki af því að helstu þjóðvegum er
haldið opnum allt árið. Ekki er þó
mokað alla daga en það gildir þó
um flesta aðalvegi, hinir eru
hreinsaðir nokkrum sinn um í viku.
Þess vegna kemur manni það vel
að geta séð í einni svipan með því
að fletta upp íslandsmynd Vega-
gerðarinnar og smella á einstaka
landshluta, Vesturland, Vestfirði,
Norðurland vestra o.s.frv. hvernig
færið er þar. Upplýsingarnar eru
nákvæmar, greiðfært, hálkublettir,
hálka, flughált, snjór, ófært og
þannig ættu menn ekki að vera í
neinum vafa um út í hvað þeir eru
að fara því upplýsingarnar eru
talsvert nákvæmar.
Til viðbótar þessum upplýsing-
um um færðina má einnig sjá
hversu mikil umferð hefur verið
um viðkomandi vegarkafla eða t.d.
fjallveg þann daginn og síðustu 10
mínúturnar áður en síðan er skoð-
uð. Sjálfvirkir teljarar nema þessar
upplýsingar. Þannig má stundum
sjá að kvöldi til hversu einmana-
legt það hefur verið að fara t.d. um
Isafjarðardjúp þegar aðeins 10-20
bíl ar hafa farið þar um næstum
því allan daginn og kannski enginn
bíll síðustu 10 mínúturnar. Vík-
verja fínnst ástæða til að meta að
verðleikum þetta framtak Vega-
gerðarinnar sem hann hefur til-
tölulega nýlega uppgötvað. En
kannski eru það gömul sannindi
fyrir öðrum.
xxx
HÖLDUM okkur enn við um-
ferðarmálin og víkjum að um-
ferðinni í höfuðborginni. Bflstjórar
á atvinnutækjum, sendibflum sem
merktir eru fyrirtækjum, strætis-
vögnum, flutningabílum og öðrum
slíkum eru á vissan hátt andlit fyr-
irtækja sinna. Er þetta svipað því
sem sagt er um þá sem annast sím-
svörun fyrirtækja, þeir eru andlitið
og viðmót þeirra getur markað af-
stöðu manna og væntingar til við-
komandi fyrirtækis. Það er tekið
eftir þessum bílum. Þess vegna
hvflir sú sjálfsagða skylda á þeim
að þeir vandi sig í umferðinni. Vík-
verji hvetur fyrir tækjastjórnend-
ur til að brýna þessi atriði fyrir
starfsmönnum sínum því þau
skipta áreiðanlega meira máli en
menn gera sér oft grein fyrir. Það
er nefnilega of algengt að sjá
strætisvögnum ekið ruddalega,
gosbílum lagt eins og hentar við
sjoppudyr án þess að hugsa um
hvernig umferð gangandi og ak-
andi truflast verulega af þeim sök-
um og þannig mætti áfram telja.
Víkverji gerir sér grein fyrir
þrengslum og erfíðleikum í þessu
sambandi en hér má áreiðanlega
vanda sig meira. Hann hefur þó
sérstaka samúð með einum flokki
atvinnubfla sem oft teppa þröngar
götur: Það eru sorpbílarnir. Þar
vinna menn mikið þjóðþrifaverk og
Víkjverji reynir jafnan að sýna ítr-
ustu stillingu þegar þeir verða í
vegi hans.