Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Árneshreppi - Árið 1999 eru 70 ár
liðin frá stofnun Finnbogastaða-
skóla. Sá einstaklingur sem þar átti
stærstan hlut að máli var Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, sem
fæddist að Finnbogastöðum í Ár-
neshreppi. Hann lauk námi úr
Kennaraskólanum 1916 og hóf
fyrst farkennslu í sveitinni.
Vegna erfíðleika við skólahaldið
ákvað hann að beita sér fyrir því að
koma upp föstu skólahúsnæði. Svo
harðsótt var það að hann ákvað á
endanum að bjóða sveitarfélaginu
að byggja heimavistarskóla á eigin
reikning. Það gerði hann og hóf
kennslu í nýju skólahúsi haustið
1929.
Saga þess húss varð skamvinn
þvíþað brann 1933 en Guðmundur
byggði þá nýtt hús skömmu seinna
og er það að meginhluta það liús
sem kennt er í í dag. Þessi skóla-
Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi.
Finnboga-
staðaskóli
70 ára
haldssaga er mjög merkileg og vert
að minnast hennar á tímum sér-
hlífni og auðhyggju.
Á 70. aldursári Finnbogastaða-
skóla eru í skólanum 7 nemendur á
aldrinum 7-13 ára. Hefur nemend-
um fækkað um 1 frá í fyrra. Að ó-
breyttu ástandi verða þeir 7 næstu
tvo vetur. Kennarar við skólann í
vetur eru tveir, Haraldur Óskar-
sson, sem einnig er skólastjóri og
Bjarnheiður Fossdal frá Melum.
Einnig er Hrefna Þorvaldsdóttir úr
Árnesi 2 starfandi sem matráð-
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
skona í skólanum.
Ekki er lengur starfrækt heima-
vist við skólann heldur er þeim
börnum sem lengst eiga að sækja
og eru fjögur, ekið. Hin búa tiltölu-
lega stutt frá skólanum. þannig að
þau ganga.
Rekstur skólans hefur gengið all-
vel en auðvitað er erfitt fyrir ekki
stærra sveitarfélag en Ár-
neshreppur er orðinn að reka svona
stofnun, ekki síst þegar samfélags-
Iegar kröfur eru sífellt að aukast.
En eins og einhvem sagði „enginn
skóli, ekkert samfélag".
Miðvikudaginn 1. desember bauð
hreppsnefnd Árneshrepps til kaffi-
samsætis til að minnast þessara
tímamóta. Flestir íbúar hreppsins
mættu, þrátt fyrir erfiða færð víða í
hreppnum. Við það tækifæri var
skólanum afhent ný tölva frá Félagi
Árneshreppsbúa í Reykjavík.
Bókasafnið
flutt í grunn-
skólann
Hellu - Nú í haust flutti Bókasafn
Rangárvallahrepps í nýtt húsnæði í
Grunnskólanum á Hellu og var um
leið sameinað bókasafni skólans.
Safnið var stofnað í nóvember 1944
eða fyrir 55 árum og hét þá Lestrar-
félagið Sæmundur fróði og var til-
gangur þess að koma á og starfrækja
bókasafn á Hellu.
Árið 1951 var félagssvæðið stækk-
að og náði þá einnig yfir Oddasókn
utan Ytri-Rangár, en þar hafði um
árabil verið starfrækt Lestrarfélagið
Þörf, en bókasafn þess á Ægissíðu
fluttist við sameininguna að Hellu.
Félagið starfaði óslitið til ársins 1974
er það stækkaði enn við það að bóka-
safn Rangvellinga á Strönd samein-
aðist félaginu og um svipað leyti tók
Rangárvallahreppur við rekstri
safnsins og hefur það síðan verið
rekið sem sveitarbókasafn í húsa-
kynnum hreppsins.
Sýning á jólahandavinnu
Bókasafnið, sem hafði um árabil
verið í allt of litlu og óhentugu hús-
næði, rúmast nú allt vel í nýjum og
björtum húsakynnum í Grunnskól-
anum á Hellu, en það er opið tvisvar í
viku fyrir almenning. I tilefni flutn-
ingsins var sett upp á safninu í byrj-
un aðventusýning á jólahandavinnu
heimakvenna.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Anna Helga Kristinsdóttir er bókavörður á Bókasafni Rangárvalla-
hrepps á Hellu.
Í
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Föndrað í Bol-
ungarvík
Bolungarvík - I Bolungarvík er fé-
lagsstarf aldraðra með miklum
blóma. Á vegum bæjarfélagsins er
boðið uppá föndurdaga tvisvar í viku
og einu sinni í viku er komið saman
og tekið í spil.
Að sögn Guðrúnar Jóhannsdottir
sem veitir forstöðu föndurstofu fé-
lagsstarfs aldraðra eru þetta vel á
annan tug einstaklinga sem mætir
reglulega í þetta starf. „Það eru að
vísu eingöngu konur og vil ég bara
skora á karlana að notfæra sér þenn-
an möguleika til að vera með í
skemmtilegri vinnu. Við erum mest
að vinna í keramik, skrautmála,
vinna með perlusaum og bútasaum.
Það er ákaflega létt yfir hópnum og
mikið sungið, það er t.d. alltaf tekið
lagið áður en við fáum okkur kaffi-
hlé.
Um þessar mundir er að sjálf-
sögðu verið að gera hina ýmsu hluti
til jólagjafa handa börnum og barna-
börnum," sagði Guðrún.
Aðstaða fyrir þessa starfsemi er
til húsa í Arborg sem er bygging
áföst Sjúkrahúsi Bolungai-víkur og
hýsir þjónustuíbúðir fyrir aldraða,
safnaðarheimili Hólssóknar og ýmsa
þjónustustarfsemi.
Að sögn Guðrúnar er aðstaðan til
föndurvinnunnar vel viðunandi þó
alltaf sé hægt að bæta hana. T.d.
vantar stærri keramikofn.
Nýlega barst félagsstarfi aldraðra
myndarleg peningagjöf frá Kvenfé-
laginu Brautin í Bolungarvík, að
upphæð fimmtíuþúsund krónur, sem
renna á til að bæta aðstöðu í föndur-
stofu.
Samstarf í
menning-
armálum
Grindavík-
Grindavík-
urbær, Bláa
lónið hf. og
Hitaveita
Suðumesja
hafa tekið
höndum
saman um
að skapa
fjölbreyttara
mannlíf fyiú'
Bergur
Ingólfsson.
Grindvíkinga og aðra Suður-
nesjamenn. Þá er ætlunin með
samstarfi þessu að gera Bláa
lónið enn eftirsóknarverðara og
gefa starfsemi Eldborgar meira
vægi með listflutningi og lista-
sýningum.
I stuttu máli gengur sam-
komulagið út á það að Grinda-
víkurbær leggur 500.000 kr. ár-
lega til samstaifsins auk þess að
starfskraftar menningarfulltrúa
og ferða- og markaðsfulltrúa
standa til boða. Bláa lónið legg-
ur til húsnæði og kynningarfull-
tiúa sinn en slíkt hið sama gerir
Hitaveita Suðurnesja.
Undirskrift þessa samnings
fór fram í Eldborg, kynningar-
og mötuneytishúsi Hitaveitu
Suðumesja en þar flutti Bergur
Ingólfsson leikari stuttan kafla
úr sögu Guðbergs Bergssonar
sem ber nafnið „Tómas Jónsson,
metsölubók". Lestur Grindvík-
ingsins Bergs á sögu Grindvík-
ingsins Guðbergs var frábær og
átti sérlega vel við þetta tilefni.
Þegar hefur verið ákveðið að
ákveðinn menningarviðburður
verður á vegum samstarfsins á
vordögum 2000 í tengslum við
verkefnið Reykjavík menning-
arborg.
Aðventuhátíð í
Húsavíkur kir kj u
Húsavík-Aðventuhátíð sem kh'kju-
kór Húsavíkur stóð fyrir um síðustu
helgi var mjög vel sótt og flutningi
fjölbreyttrar tónlistarskrár vel fagn-
að. Kórstjóri og orgelleikari var Ju-
dit György og undirleikari bæði á or-
gel og píanó var maður hennar,
Aladór Ra’cz.
Hátíðin hófst með ávarpi sóknar-
prestsins, sr. Sighvats Karlssonar,
en síðan tók við mjög fjölbreytt og
hátíðleg tónleikaskrá sem hófst með
forleik e-moll prelúdíu og fúgu eftir
N. Brans, flutt af mikilli snilld af
organista kirkjunnar. Aðrir flytjend-
ur vom auk kirkjukórsins Hildur
Ti-yggvadóttir, sópran, Kaldo Kiis,
básúna, Adrienne D. Davis, flauta,
Aladór Ra’cz, píanó og orgel, og
Kristbjörg Lilja Jakobsdóttir og
Hróbjartur Sigurðsson, söngur og
gítar.
Á síðastliðnu hausti komu til
Húsavíkur ungversku hjónin Judit
György og Aladór Ra’cz, sem bæði
starfa hjá Tónlistarskólanum á
Húsavík og hún jafnframt ráðin org-
anisti Húsavíkurkirkju og stjórnandi
kórs. Á þessari hátíð sýndu þau
hjónin að þau em ungt og upprenn-
andi listafólk sem vonandi vilja sem
lengst dvelja á Húsavík.
Morgunblaðið/Silli
Frá aðventukvöldi Húsavíkurkirkju. Kirkjukúr Húsavíkur.