Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ
I
i
70 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
dfh ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóióii kl. 20.00
GULLNA HLIÐIÐ eftir Davíð Stefánsson
Frumsýning annan í jólum 26/12, uppselt, 2. sýn. þri. 28/12, örfá sæti laus, 3. sýn.
29/12, örfá sæti laus.
GLANNI GLÆPUR í LATABÆ
Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Fim. 30/12 kl. 14.00, uppselt, kl. 17.00, uppselt, sun. 2/1 2000 kl. 14.00, laus sæti,
og kl. 17.00, laus sæti, 9/1 2000 kl. 14.00 og kl. 17.00.
KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS - Bertolt Brecht
Fös. 7/1, lau. 15/1.
TVEIR TVÖFALDIR — Ray Cooney
Fös. 14/1, lau. 22/1
Litla sóiiid kt. 20.00: 3(81
ABEL SNORKO BÝR EINN - Eric-Emmanuel Schmitt
I kvöld 15/12, uppselt, þri. 28/12, örfá sæti laus, mið. 29/12, nokkur sæti laus,
fim. 30/12. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst.
Miðasalan er opin mánud.-þriðjud. kl. 13-18, miðvikud.-sunnud. kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200.
Gjafakort i Þjóðíeikhúsið — qjöfin sem lifnar óið!
'élíiÉilw
Lau 8. jan kl. 20
Lau 15. jan kl. 20
Ávaxtakörfumyndbandið fæst í miðasölu
,.l
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
Allra! Allra! Allra!
síðustu sýningar
verða í janúar
Símapantanir í sima 5511475 frá kl. 10
Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga
nema sunnudaga.
KaííiLeikhjísiá
I HLAÐVARPANUM
Vesturgötu 3 _________
í kvöld mið. 15/12 kl. 21
Bjartmar Guðlaugsson —
Tónleikar
Rm. 16/12 kl. 21
KK og Magnús Eiríksson
flytja lög af nýjum geisladiski
Fös. 17/12 kl. 21:
Jóladagskrá.
Flytjendur: Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
Anna Sigríður Helgadóttir, Kristín Ema
Blöndal ásamt Guðmundi Pálssyni.
Kvöldverður kl. 19.30.
MIÐAPANTANIR I S. 551 9055
Blessuð jólin
eftir Arnmund Backman.
Frumsýn. fös. 17. des kl. 20 uppselt
2. sýn. lau. 18. des. kl. 20
3. sýn. sun. 19. des. kl. 20
4. sýn. þri. 28. des. kl. 20
5. sýn. mið. 29. des. kl. 20
6. sýn. fim. 30. des. kl. 20
Miðasala opin alla virka daga
kl. 13—17 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
SALKA
ástars<3ga
eftir Halldór Laxness
Mið. 29/12 kl. 20.00 jólasýning,
örfé sæti laus
Síðasta sýning á árinu
Munið (fjafakortin
I MIDASALA S. 555 2222 |
STJÖRNUR
Á MORGUNHIMNI
Forsýning mán 27/12 UPPSELT
Fmmsýning irið 29/12 UPPSELT
2. sýn. fim 30/12 2. kortasýn. örfá sæti
3. sýn. sun 2. jan. 3. kortasýn. örfá sæti
Gjafakort - tilvalin jólagjöf!
www.idno.is
Loksins kominn með
allar plöturnar!
NIGEL Stockley er 43 ára Breti.
Nigel hefur helst unnið sér það til
frægðar að hafa safnað saman öllum
smáskífum sem hafa náð í efsta sæti
breska vinsældalistans frá því sá
listi hóf göngu -sína fyrir margt
löngu.
Eins og gefur að skilja er söfnun
af þessu tagi engin stundarfirra því
mörg ár getur tekið að komast yfir
sumar platnanna. Fyrir stuttu full-
komnaði Nigel safnið þegar hann
náði í smáskífuna með laginu „How
"TMuch Is That Doggie In the Win-
dow“ sem Lita Roza söng og var í
efsta sæti listans árið 1953. „Ég var
yfir mig ánægður að geta loksins
fullkomnað safnið,“ segir Nigel sem
viðurkennir að söfnunaráráttan hafi
kostað hann þúsundir punda. Hann
spilar 78-snúninga og 45-snúninga
vinyl-plötur sínar á gamlan ferða-
spilara sem hann keypti fyrir 23 ár-
um. En hvað skyldi vera í mestu
uppáhaldi? „Ég held mest upp á árið
1966. Þá komu út klassísk lög eins
og „Pretty Flamingo" (Manfred
Mann), „Reach Out I’ll Be There“
með Four Tops og „Good Vibrat-
ions“ með Beach Boys“.
5 LEIKFELAG <
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
Stóra svið:
eftir David Hare, byggt a verki Art-
hurs Schnitzler, Reigen (La Ronde)
5. sýn. þri. 28/12 kl. 20.00.
FOLKI FRETTUM
Að sýningu lokinni er framreitt
girnilegt jólahiaðborð af meistara-
kokkum Eldhússins
- Veisla fyrir sál og líkama -
Jjtía htytthójítúðui
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
Fim. 30/12 kl. 19.00
u i svcn
eftir Marc Camoletti.
Mið. 29/12 kl. 19.00 aukasýning
Litla svið:
Höfundur og leikstjóri
Öm Árnason
Leikarar Edda Björgvinsdóttir,
Valur Freyr Einarsson, Halldór
Gylfason, Hildigunnur Þráinsdóttir
og Öm Árnason.
Leikmynd og búningar Þórunn
María Jónsdóttir.
Lýsing Kári Gíslason.
Undirleikari Kjartan Valdimarsson.
Frumsýning sun. 26/12 kl. 15.00
2. sýn. mið. 29/12 kl. 14.00
3. sýn. fim. 30/12 kl. 14.00
Sala er hafín
Litla svið:
Fegurðardrottningin
frá Línakri
eftir Martin McDonagh
þri. 28/12 kl. 19.00.
Sýningum fer fækkandi.
Litla svið:
eftir Jane Wagner.
Lei+ir)
að víífcendTneu
ur* vTtyív»or»auf
í a(heTi^Tr»ú^
Em. 30/12 kl. 19.00.
í/di^
Gjafakort í Borgarleikhúsið
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
ERLENDAR
oooooo
Kjartan Þór Þórðarson
skrifar um nýjustu plötu
listamannsins sem um tíma
kallaði sig Prince.
Kominn aftur
á kortið!
TÓNLISTARMAÐURINN sem eitt
sinn hét Prínce hefur nú vent kvæði
sínu í kross og samið við einn af út-
gáfurisunum vestanhafs, eftir að
hafa sjálfur séð um útgáfu og mark-
aðssetningu platna sinna undanfarin
ár. Eða allt frá því að hann sagði skil-
ið við Warner Records árið 1996. Ar-
ista er nýja útgáfufyrirtæki kappans
og á það að sjá til þess að nýja afurð-
in seljist sem skyldi. Með samningi
sínum við Ai-ista virðist Prince hafa
ákveðið að tími sé kominn til að selja
á ný eftir mjög slæma sölu undan-
farin ár, því söluvænlegi-i plötu hefur
Prince ekki sent frá sér í fjölda ára.
Á plötunni er aragrúi „hittara“ eða
útvarpsvænna laga. Þar má nefna
„So Far, So Pleased" þar sem
hann nýtur aðstoðar Gwen Stef-
ani, söngkonu hljómsveitarinn-
ar No Doubt, grípandi rokkari
með skemmtilegri melódíu. I
„Baby Knows“ fær hann til
liðs við sig Sheryl Crow,
lagið minnir óneitanlega á
„Cream“ af plötunni „Dia-
monds and Pearls" em er
einmitt síðasta plata
Prínces sem seldist að ein-
hverju viti. „Everyday is a
Winding Road“ sem Sheryl
Crow gerði vinsælt tekur
Prince og gerir að sínu
eigin. Fyrsta smáskífan
„The Greatest Roma-
nce Ever Sold“ er
snilldarlega vel út-
sett og er einn af
hápunktum plöt-
unnar, það lag og
lagið „Wherever U
Go, Whatever U
Do“ eru þau lög
sem undirritaður
spáir sem mestrí
velgengni á ljós-
vakamiðlunum.
Það eru samt sem j
áður tilraunir
Princes sem hafa
haldið honum við
sem einum af
virtustu tón-
listarmönnum
tímans. Fyi-ir þá sem eru hrifnir að
slíkum uppátækjum eru 2-3 slík lög
á „Rave un 2 the Joy Fantastic“.
Fyrst ber að nefna „Strange But
True“ sem er einhvers konar ljóða-
lestur með þungum bassa og
trommutakti, og synta sem minnir
einna helst á stórverk kappans af
„Dirty Mind“-plötunni frá 1982. Tit-
illagið er gamalt frá Batman-tímabil-
inu og er eitthvað sem Prince varð
greinilega að koma frá sér, en á samt
engan veginn heima á þessari
plötu.
Þar er
líka lag
sem heit-
ir „Tang-
erine“ og er
arfaslakasta
lag Princes í
áraraðir og
tilgangsleysi
I þess algert á
plötunni. Á
móti kemur
að á plötunni
er einnig að
finna með
betri lögum
Princes í fjölda
ára, og þar á
meðal er hið gullfallega
„I Love U, But I Don’t
Trust U Anymore",
sungið í falshettu,
Prince á píanó og Ani
DeFranco á gítar.
„Undisputed" lag 2 á
plötunni er funkbomba
með Chuck D úr Public Ene-
my. Einnig má nefna „Man-
’O’War" sem gefur hlustandanum
gæsahúð.
Þrátt fyrir að platan innihaldi
fjölda vandaðara texta og laga-
smíða þá heldur hún ekki hlust-
andanum við efnið og er það
stærsti galli plötunnar saman-
borið við eldri plötur meista-
rans. Lögin virðast helst
vera tekin héðan og það-
an úr geymslu Prince
heldur en að vera
samin í heild fyrir
eina plötu. Engu að
síður er margt
skemmtilegt að
finna á plötunni og er
hún afskaplega vönduð í alla staði.
Ég held að ég megi segja að Prince
sé aftur kominn á kortið með því að
sýna að hann kunni enn að semja
vinsældapopp og er þessi plata sönn-
un þess þó að einstaka Prince aðdá-
andi er ófullnægður!
Hendrix
bestur á gítar
BANDARÍSKI gítarsnillingurinn Jimi Hendrix hefur ver-
ið útnefndur gítarleikari aldarinnar í könnun meðal tón-
listarmanna á vegum breska tímaritsins Guitar.
Uppivöðsluseggurinn Noel Gallagher úr Oasis naut
þess vafasama heiðurs að vera valinn „ofmetnasti" gítar-
leikari aldarinnar. í næstu sætum á eftir Hendrix höfnuðu
Eric Clapton og gítarleikari Led Zeppelin, Jimmy Page.
Kurt Cobain úr Nirvana hafnaði í sjöunda sæti, rétt á und-
an Eddie Van Halen.
Aðdáendur Nirvana geta huggað sig við að „Neverm-
ind“ með sveitinni var valin besta breiðskífan í sömu
köunun eftir harða keppni við sígildar plötur á borð við
„Dark Side of the Moon“ með Pink Floyd og „Electric La-
dyland" með Hendrix.
John Entwistle úr The Who var valinn besti bassaleik-
ari sögunnar og hafði betur en Paul McCartney úr Bítlun-
um og John Paul Jones úr Led Zeppelin.