Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 51
Kirkjan sem
andleg trúar- og
fræðslustofnun
MIG LANGAR að
ræða örlítið málefni
sem lengi hafa verið
mér hugleikin, en það
er kirkjan og innri
markmið hennar.
Kirkjan er stofnun sem
hefur yfir mörgum
starfsmönnum að ráða,
en prestarnir sjá um að
móta stefnumörk
hennar og inntak. Þær
fréttir hafa borist á
undanförnum misser-
um að fólk sé að yfir-
gefa þjóðkirkjuna.
Þetta er nýtt hér á
landi þó að fyrir hafi
komið á undanförnum
áratugum að einn og einn maður hafi
sagt sig úr kirkjunni og þá af ein-
hverjum sérstökum og, að þvi er oft
var talið, óeðlilegum ástæðum. Það
vakti svo mikla athygli að menn
ræddu það sérstaklega sín á milli.
Nú virðist þetta breytt. Fjöldi
Kirkjan
Kirkjunni er nauðsyn-
legt að breyta um
áherslur, segir Esther
Vagnsdóttir, og auka
stórlega miðlun
á andlegri fræðslu.
manns segir sig úr þjóðkirkjunni og
menn yppta bara öxlum og segja:
Jæja, þau um það. En hver skyldi
vera ástæðan fyrir þessari ákvörð-
un? Þegar komið er í kirkju á venju-
legum sunnudegi er algengt að sjá
fáeinar hræður á kirkjubekkjunum,
undantekning ef kirkjan er hálfset-
in. Um stórar kirkjuhátíðir gegnir
öðru máli, en þá eru kirkjurnar oft
fullsetnar. Til hvers förum við í
kirkju? Mín tilfinning er sú að við
förum til að heyra orð af vörum
prestsins sem veitir ferska sýn á til-
veruna, eitthvað til að byggja á og
auka von, við komum til að skynja
það inntak sem veitir aukinn skiln-
ing á göngu okkar gegnum lífið. Við
komum líka til að heyra fræðslu um
lögmál tilverunnar og hvernig við
getum lifað samkvæmt þessum lög-
málum til að öðlast meiri innri frið
og sátt við okkur sjálf og umhverfi
okkar.
Mannssálin þráir þann skilning á
trúnni sem styðst við heilbrigða
skynsemi og veitir raunsanna sýn á
það ferli sem við erum að ganga í
gegnum og kallast jarðlíf.
Þetta ferli er margþætt og er í
senn efnislegs og andlegs eðlis og
maðurinn verður að öðlast skilning á
stöðu sinni innan þessa ferlis til að
geta skilið sjálfan sig í tengslum við
þá veru sem við köllum Guð. Hvern-
ig bregst kirkjan við þeirri skyldu
sinni að fræða fólk um þessi andlegu
lögmál, sem snerta alla tilveru
mannsins? Jú, við fáum að heyra um
kenningar Jesú, ævi hans, kærleika
og kraftaverk, síðan krossfóm hans
og upprisu. Prestarnir spjalla síðan
út frá guðspjalli dagsins um ýmis-
legt því viðkomandi, en oft fáum við
að heyra gamlar sögur úr Biblíunni,
sem eru harla framandlegar og
snerta lítið skilning okkar á lífinu í
kringum okkur í dag. Efni sem er í
litlum tengslum við veruleika okkar
nútímamanna og vandamál. Stund-
um er tekin dæmisaga sem auðvitað
er hægt að kryfja og læra eitthvað af
sé vilji fyrir hendi, en undantekning
ef við höfum fengið eitthvað að
heyra sem eykur skilning á tilveru
okkar og lífinu í heild.
Þetta geta verið hörð orð, en sögð
í góðri meiningu, því sannleikurinn
er alltaf sagna bestur.
Sorglegt er að þurfa að
horfa upp á góða Is-
lendinga segja sig úr
þjóðkirkjunni vegna
þess að þeim finnst
þeir ekkert hafa þang-
að að sækja lengur.
Kirkjan verður að taka
upp ný viðhorf gagn-
vart fræðslu um andleg
mál. Þau mál eru svo
víðfeðm og margslung-
in að endalaust er hægt
að finna nýja fleti til
upplýsinga og leiðbein-
inga á því sviði.
Fólk sem sækir
kirkjuna þarf að geta
fundið þá innri fræðslu og þann
aukna skilning á sjálfu sér og lífinu
sem gerir að það vill koma aftur og
fá meira. Fyrir utan að boða kristna
trú verður kirkjan að vera andleg
fræðslustofnun þangað sem fólk get-
ur sótt andlega fræðslu í víðum
skilningi.
Þetta er sagt í einföldum orðum til
að allir geti skilið hvað um ræðir.
Ekki þarf að ræða þessi efni með
fræðilegum hugtökum sálfræðinnar.
Það er hin andlega sálfræði sem
kirkjan verður að sinna betur ef hún
vill halda vöku sinni í heimi nútím-
ans. Fólk verður að fá að vita hvað er
nauðsynlegt að rækta með sér og
hvernig, ef það vill þroskast and-
lega. Svo einfalt er það. Fólk spyr
spurninga um líf eftir dauðann.
Hvaða svör veitir kirkjan þeim sem
þannig spyrja? Biblían fræðir um
gyðinglega trú á dauða og upprisu
og þau svör fáum við oft þegar spurt
er um þessa hluti. Kirkjan hefur lítil
sem engin skil gert rannsóknum
spíritista og annarra rannsóknar-
manna og niðurstöðum þeirra. Ég er
viss um að margir prestar skilja
hvað ég er að fara og eru mér sam-
mála. Það væri sorglegt ef kirkjan
og prestarnir héldu áfram að starfa í
svo stöðnuðu formi að hvergi má
fara út af þúsund ára gömlum við-
miðunum og boðum til að hægt sé að
koma nauðsynlegu efni til áheyr-
enda.
Kirkjunni er nauðsynlegt að
breyta um áherslur og auka stórlega
miðlun á andlegri fræðslu. Merkir
andlegir meistarar hafa veitt and-
lega fræðslu fólki, sem hefur þyrpst
að þeim í þakklátri gleði og tekið
innri umbreytingu í kjölfarið. Þann-
ig þarf kirkjan að vera. Hún þarf að
miðla andlegu þekkingunni í nútíma-
legra formi til fólksins og hún þarf
líka að taka upp það sem meistarinn
mikli frá Nazaret gerði á sinni tíð og
iðkað var innan fyrstu kristnu safna-
ðanna - að lækna sjúka og þjáða.
Hún þarf að stofna og efla bæna-
hringi, leggja áherslu á mátt bæna
til lækninga og leyfa því fólki að
vinna innan sinna veggja sem hefur
sýnt að það hefur hæfileika til að
hjálpa fólki.
Jafnframt þyrfti að boða til ráð-
stefnu margra aðila þar sem bæði
starfsfólk kirkjunnar og aðrir aðilar
sem sinna andlegum málum kæmu
saman og legðu fram tillögur til úr-
bóta og endurnýjunar. Samstarf og
skilningur er það sem gildir í dag.
Áreiðanlegt er að margt jákvætt
kæmi í kjölfarið á slíkri samkomu.
En það eru fyrst og fremst prest-
arnir sem ráða ferð og þeir þurfa að
koma auga á nýjar leiðir í þessum
efnum.
Höfundu r er kennari á Akureyri.
www.mbl.is
Esther
Vagnsdóttir
I B ■ H
■
I
■
Þarftu að send
msm
mm8m
191'
pakka til útland
fyrir jólin?
",
Við viljum minna á sérstakt tilboðsverð
TNT Hraðflutninga á sendingum til útlanda í desember.
Láttu TNT koma jólapökkunum til skila hratt og örugglega.Við komum og sækjum
sendinguna til þín og sendum hana heim til vina og ættingja.
Nánari upplýsingar fást hjáTNT Hraðflutningum, Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík
og á pósthúsum um land allt. Sími 580 1010.
Þyngd Evrópa Bandaríkin Kanada Önnur lönd
i kg 2.700 kr. 2.900 kr. 3.100 kr.
2- 3.300 - 3.600 - 3.900 -
3 - 3.800 - 4.200 - 4.600 -
4- 4.200 - 4.900 - 5.300 -
5 - 4.500 - 5.300 - 5.900 -
( I
>---x
Hraðflutningar
Sími 580 1010 • www.ls
■
Umboðsaðili TNT á Islandi.