Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 55^ FRÉTTIR * Myrkrahöfðingi Meðal annarra orða Eftir Njörð P. Njarðvík ÞAÐ var mér þung raun að horfa á hina nýju kvik- mynd Hrafns Gunnlaugs- sonar, Myrkrahöfðingj- ann, er hann segir byggða á Píslarsögu séra Jóns Magnússon- ar. Mér þykir það mál mér nokkuð skylt, þar sem ég hef skrifað sögu- lega skáldsögu, Dauðamenn (1982) um sama efni. Þar segi ég að vísu ekki sögu sr. Jóns, heldur vík sjón- arhorninu við og fylgi fórnarlömb- um hans, feðgunum á Kirkjubóli, í frásögninni. En atburðirnii' eru hinir sömu, sá mikli harmleikur er gerðist árin 1655-1656, er þeir feðg- ar voru brenndir saklausir á báli sumardaginn fyrsta fyrir galdra. Sú almenna regla gildir og skal í heiðri höfð, þegar fjallað er um nafngreindar persónur og unnið úr sögulegu efni þar sem ákveðnar staðreyndir liggja fyi'ir, að virða heimildir og leyfa sér einungis slíkt frelsi til túlkunar að ekki sé hallað réttu máli, og staðreyndum ekki breytt. Um þessa atburði eru til fleiri heimildh' en Píslarsagan, og eru t.d. dómar varðveittir. Þessa reglu virðir Hrafn Gunnlaugsson ekki. Sr. Jón Magnússon var prestur á Eyri við Skutulsfjörð (þar sem nú er ísafjörður). Þar var verslunar- staður og kemur m.a. danskt flutn- ingaskip við sögu. Þeir Kirkjubóls- feðgar, sem hétu báðir Jón Jónsson (en ekki Páll Pálsson eins og í myndinni) voru stöndugir bændur eins og kemur glöggt fram í síðari dómi um skaðabætur handa presti. Þeir voru ekki heldur nein afstyrmi í útliti. Sr. Jón lýsir Jóni yngi-a þannig að hann hafi verið „manna dæilegastur að andlitsmynd og yf- irlitum, með gullkrúsað hár, fagran hjálm og hvítan hörundslit“. Þetta fólk bjó vel í allfjölmennu sveitarfé- lagi, en ekki í ömurlegum og af- skekktum kofaskriflum. s kvikmyndinni kemur sr. Jón sem ungur maður að sókn- inni og hefur nær strax málarekstur. Þar hefur hann verið neyddur til að kvænast ekkju fyrirrennara síns og vii'ðist sú hjónavígsla hafa farið fram að konunni fjarverandi. Hún er látin vera miklu eldri og eiga uppkominn son, Snorra að nafni, sem er af- skræmdur fituhlunkur, síveifandi skammbyssu. Presturinn er látinn hafa megna óbeit á konu sinni - en bera óbærilegan girndarhug til Þuríðar, systur Jóns yngra á Kirkjubóli, sem er vinnukona hjá presti. Ekkert af þessu stenst. Sr. Jón var 46 ára brennuárið og hafði þá verið prestur á Eyri í ein 13 ár. Þorkatla kona hans var að vísu prestsekkja, en ekki er annað að sjá en hjónaband þeirra hafi verið ástríkt. Hún átti tvö börn af fyrra hjónabandi, Bjarna og Rannveigu. Er einkennilegt að Rannveig kem- ur ekki við sögu í kvikmyndinni, því hún er sennilega nokkur örlaga- valdur, þar sem Jón yngri hafði beðið hennar, en fengið synjun prests. Þau hjón áttu saman ungan son, Snorra, er sr. Jón kallar „pilt- korn“. Þuríður Jónsdóttir var aldrei vinnukona hjá prestinum, hvað þá að hann bæri til hennar ástarhug eða hefði samfarir við hana. Málareksturinn í kvikmyndinni er með ólíkindum og í raun fái'án- leg skrumskæling á íslensku rétt- arfari á 17du öld. Þar handtekur presturinn þá feðga sjálfur (sem hann hefur auðvitað enga heimild til), beitir þá fantabrögðum og fær þá til að játa á sig galdra gegn lof- orði um að þeim verði hlíft við af- töku. Síðan kemur Magnús Magn- ússon sýslumaður galvaskur aðvífandi ásamt konu sinni (sem hvergi er getið í heimildum). Hann hefur meðferðis bók eina mikla fulla af ferlegum klámmyndum, er hann sýnir presti. Hann lætur kynda bál og les þar dóm yfir þeim feðgum og lætur brenna þá. Rétt- arhald er ekkert. í heimildum kem- ur skýit fram að Magnús sýslu- maður gekk mjög nauðugur til þessa máls. Og það var ekki fyrr en Þorleifur Kortsson (sem hvergi er nefndur í kvikmyndinni) kemur til sögunnar, að raunverulegur skrið- ur kemst á málið. Þeim feðgum var dæmdur tylftareiður í desember, en þeir gátu aldrei aflað sér hans, því að þeir voru handteknir nokkru síðar og hafðir í haldi lengi vetrar. Magnús hafði enga klámskreytta fræðibók um galdra, og hin kyn- ferðislega hlið galdi'amála, þar sem konur voru sakaðai' um samfarir við djöfulinn, kemur ekki við sögu hérlendis. Presturinn var ekki við- staddur aftökuna, hvað þá að hann hlakkaði yfir örlögum þeirra. Þó kastar fyrst tólfunum, þegar kemur að eftirleik þessa máls, þegar sr. Jón snýr ásökunum á hendur Þuríði. I veruleikanum var hún aldrei handtekin og hafði engin samskipti við Magnús Magnússon sýslumann. Hún flúði vestur í Ön- undarfjörð og sat þar í skjóli prest- frúarinnar í Holti, - og var sýknuð af öllum ákæium. í kvikmyndinni handtekur Magnús hana, prestur- inn nauðgar henni, Snon’i stjúp- sonur hans skýtur hann af slysni í nárann, Þuríður hjálpar konu Magnúsai' að fæða með læknislist sinni (sem hvergi er getið), konan deyr en barnið lifir. Þuríður gerir að skotsári prests og notar tæki- færið til að gelda hann (!!), Þuríður og sýslumaður fallast í faðma!!! Loks verður að nefna þá fáránlegu hugmynd að láta sr. Jón komast til Brynjólfs Sveinssonar biskups er les píslarsöguna skráða í ídám- myndabókina miklu, leyfir að prestur sé bundinn á kross og horf- ir upp á hann tortímast fyrir eld- ingu af himnum. Brynjólfur biskup var þekktur fyrir að hafa skömm á öllu galdratali. Fyrir utan það smá- ræði að Brynjólíúr lést árið 1675, en sr. Jón lifði til 1696, er hann dó í hárri elli, liðlega hálfníræður. Það er dapurlegt að sjá því- líka skrumskælingu á átakanlegum harmleik. Sr. Jón var í raun enginn fantur. Hans ógæfa fólst í því að hann taldi sig vera að gera rétt, þegar hann í raun gerðist sekur um hræðilegan glæp. Hann trúði því að ekkert væri betra galdramönnum en að þeir yrðu látnir játa sök sína og síðan hreinsaðir af synd með því að brenna í eldi. Hann var sjúkur maður, alvarlega sálsjúkur, og varla sjálfráður gerða sinna. A Kii'kjubólsfeðgum var framið rétt- armorð, því að þeim gafst aldrei tóm til að hreinsa sig með tylftar- eiði. Magnús sýslumaður var leik- soppur embættiskerfisins. Hann gat ekki staðist sífellda ásókn manns er talaði sem staðgengill Guðs á jörðu. Þorleifur Kortsson er í rauninni sá eini sem gengur ótrauður fram af hreinu samvisku- leysi. Allt þetta fólk á skilið aðra meðferð, svo að ekki sé talað um virðingu, en þá sem birtist í af- skræmingu Hrafns Gunnlaugsson- ar. Höfundur er prófessor i islenskum bókmenntum við Háskóla íslands. Styrkur til Mæðra- -m styrks- nefndar í VERSLUNUM Nýkaups næstu daga verður sérstaktsöluátak þar sem viðskiptavinir geta styrkt Mæðrastyi’ksnefnd með kaupum á ákveðnum vörum. Fyrirkomulag átaksins er á þann veg að ef viðskiptavinur kaupir til- tekna vöru í verslunum Nýkaups",,, mun Nýkaup afhenda Mæðrastyrks- nefnd aðra eins vöru fyrir hönd við- skiptavinarins. Viðskiptavinur Nýkaups er því með kaupum á þess- um vörum að taka ákvörðun um að gefa aðra slíka til Mæðrastyrks- nefndar. A þriðjudag sl. var fyrsta varan boðin í þessu söluátaki. Þar gafst við- skiptavinum kostur á að kaupa Mackintosh-dós, 1 kg. Fyrir hverja selda dós afhendir Nýkaup aðra dós til Mæðrastyrksnefndar. Með þessu vill Nýkaup leggja sitt af mörkum til að styðja þarft málefni í von um að sem flestir njóti þess. Fundur um ævisögur og sagnfræði SAGNFRÆÐINGAFÉLAG ís- lands heldur jólafund sinn fimmtu- daginn 16. desember. Að þessu sinni er umræðuefnio ,-r ævisögur og sagnfræði. Fyrirlesarar eru þau Páll Valsson, Guðjón Frið- riksson og Erla Hulda Halldórsdótt- ir ásamt leynigesti. Fundurinn hefst klukkan 20 og er haldinn á efri hæð Sólons íslandus- ar. NEC DB2000 GSM 900/1800 MHz Aðeins 130gr. 475 mín. taltími 200 klst. biðtími Innbyggður titrari Handfrjáls notkun Snúra í eyra fylgir SMS Skilaboð SIM-Toolkit fyrir VIT þjónustu EFR stafrænt samband Nec DB2000 fær frábæra dóma i könnun norska blaðsins IT avisen í flokki vandaðra GSM síma með 420 stig. Könnunin var sú stærsta sem gerð hefur verið í Noregi. Sjá nánar á www.telecom.no. sfdu*úu 37 - §, m-im ® mbl.is --ALLTXKf= &7TH\/A£> A/ÝTT Fréttir á Netinu vffl>mbl.is -f\LLTAf= e/TTHVVK£) A/ÝTT Frábært verð! - Bretti með bindingum og skóm frá kr. 25.900, stgr. 24.605. - Brettagleraugu frá kr. 2.600. - Brettaúlpur barna frá kr. 6.490. - Brettaúlpur fullorðins frá kr. 8.900. SNJOBRETTI BRETTAFATNAÐUR BRETTASKÓR BRETTAHANSKAR BRETTA GLERA UGU BRETTAPOKAR Armúla 40, síml 553 5320 férslunin Sport - Hjól - Skíði - Golf - Þrek Fréttir á Netinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.