Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER1999 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Frétta-
bréf á
vefnum
Hafnarfjörður
FRÉTTABRÉF Hafnarfjarð-
arbæjar er orðið að vefmiðli.
Þriðja tölublað, fyrsta árgangs
er komið út, bæði á pappír og
eins hefur það verið sett upp á
vefinn með tengingu frá heima-
síðu bæjarins, www.hafnar-
fjordur.is.
Meðal efnis í blaðinu er um-
fjöllun um byggingai'landið í
Aslandi og reglur um væntan-
lega lóðaúthlutun í 2. áfanga
þar og umfjöllun um fjárhags-
áætlun bæjarins áríð 2000. Þá
er sagt frá þróun tölvumála
bæjarins, skipulagsmálum og
endurskipulagningu miðbæjar-
ins, og fjallað um umhverfismál
og Staðardagskrá 21 fyrir
Hafnarfjarðarbæ.
Stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur vill
stækka Korpúlfsstaðavöll
Kostnaður 40
til 70 milljónir
STJÓRN Golfklúbbs Reykjavíkur
vill stækka golfvöllinn á Korpúlfs-
stöðum um 9 holur, eða úr 18 hol-
um í 27, sem allra fyrst og sagði
Margeir Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri GR, að borgarverk-
fræðingi hefði þegar verið sent er-
indi þess efnis. Kostnaður við
framkvæmdina yrði á bilinu 40 til
70 milljónir.
„Þessi umræða kom upp í sum-
ar, aðallega vegna mikillar aukn-
ingar í golfinu,“ sagði Margeir.
„Meðlimum golfklúbba hefur að
jafnaði fjölgað um 12 til 15% á ári
síðustu ár og ef sú fjölgun heldur
áfram þá lendum við í vandræðum
strax eftir næsta ár.“
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur
tvo 18 holna golfvelli til umráða,
annars vegar á Korpúlfsstöðum og
hins vegar í Grafarholti, en þrátt
fyrir það er klúbburinn að fyllast
og það sama má segja um flesta
aðra golfvelli á höfuðborgarsvæð-
inu. Margeir sagði að samfara
nýrri byggð í Grafarholti mætti
gera ráð fyrir enn frekari ásókn í
Golfklúbb Reykjavíkur og því væri
brýnt að bregðast við henni sem
allra fyrst.
Gömlu kartöflugarðarnir not-
aðir undir golfvöll
Margeir sagði að alls væru um
1.360 meðlimir í GR í dag og að
miðað við stærð vallanna væri að-
eins rúm fyrir rúmlega 300 í við-
bót, eða í mesta lagi um 1.700
manns. Hann sagði að það ætti að
vera hægt að byggja 9 holur á einu
til tveimur árum, og að ef það yrði
gert myndi klúbburinn rúma um
400 meðlimi í viðbót, eða um 2.100
manns.
Margeir sagði að með tilliti til
stækkunar horfðu menn aðallega
til svæðisins sunnan megin við nú-
verandi golfvöll, þ.e. nær Vestur-
landsveginum, þar sem gömlu
kartöflugarðarnir væru.
„Þetta svæði stendur autt og
ónotað í dag, en mér skilst að sam-
kvæmt skipulagi sé gert ráð fyrir
kirkjugarði þar.“
Margeir sagði að kostnaður við
framkvæmdina ylti á því hversu
mikið yrði gert, t.d. varðandi land-
mótun, en að hann yrði samt aldrei
undir 40 milljónum króna.
Stefán Hermannsson borgar-
verkfræðingur sagði að ekki væri
búið að taka málið til afgreiðslu og
Brimborg • Bíldshöföa 6 • Sími 515 7000 • www.brimborg.is
Réttu bilarnií
FordTransit 10-15 manna
farmurinn er fólk
að enn væri verið að skoða það.
Hann sagði að samkvæmt aðal-
skipulagi væri gert ráð fyrir
kirkjugarði á svæðinu sunnan Ulf-
arsár og þá væri Rannsóknarstofa
landbúnaðarins með starfsemi á
hluta svæðisins og sá hluti væri í
eigu ríkisins.
Morgunblaðið/Kristinn
Borgarverkfræðingi hefur verið sent erindi frá stjórn Golfklúbbs Reykjavfkur, þar sem farið er fram á stækkun
vallarins á Korpúlfsstöðum úr 18 holum í 27. Rætt er um að stækka hann sunnan megin Ulfarsár.
Greið leið inn, nóg pláss, góð sæti, öryggisbelti fyrir alla
og sérhver hlutur á réttum stað. Þetta eru þeir kostir sem gera Ford
að rétta bílnum þegar farmurinn er fólk.
Útkoman er þægindi og öryggi, jafiit fyrir ökumann sem farþega.
Allir kostir við fjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga.
Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn
og útbúa hann eftir þínu höfði.
Brimborg Akureyri 1 Bílcy 1 Bctri bílasalan | Bílasalan Bílavík 1 Tvisturinn
Tryggvabraut 5, Akureyri Búðarcyri 33, Reyðartirði Hrísmýri 2a, Selfossi Holtsgötu 54, Rcykjancsbæ Faxastíg 36, Vcstmannacyjum
sími 462 2700 | slmi 474 1453 | sími 482 3100 1 sfmi 421 7800 | sfmi 481 3141
Ford Econoline Club Wagon 12-15 manna
(jr
brimborg
Grafarvogur