Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999 13
FRÉTTIR
Félag eldri borgara óskar eftir fundi með fjármálaráðherra
um greiðslu tekjuskatts af vaxtahluta lífeyris
Telja tekjuskattsgreiðslur
vera brot á sljórnarskrá
FÉLAG eldri borgara hefur óskað eftir fundi
með fjármálaráðherra vegna tekjuskattgreiðslu
eldri borgara af vaxtarhluta lífeyrisgreiðslna,
en félagið telur hana vera stjórnarskrárbrot.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Félags
eldri borgara í Asgarði í gær, en Olafur Olafs-
son, formaður félagsins og fyrrverandi land-
læknir,. sagði að félagið vildi að ráðherra beitti
sér fyrir lagabreytingu á Alþingi, svo það þyrfti
ekki að sækja rétt sinn fyrir dónistólum.
„Þetta er fyrst og fremst lögfræðilegt mál,“
sagði Olafur. „Við lítum ekki á þetta sem kjara-
baráttu heldur sem leiðréttingu á reglu og í
lögfræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir félagið
er tekið undir kröfur eldri borgara."
Benedikt Davíðsson, formaður Landssam-
bands eldri borgara, tók undir með Olafi og
sagði að um sanngirnismál væri að ræða.
Olafur sagði að félagið gerði sér grein fyrir
því að lækkun á skattprósentu vaxtarhluta út-
borgaðs lífeyris þýddi jafnframt lægri skatt-
tekjur fyrir ríkissjóð. Hins vegar sagði hann ól-
íðandi að tekjuöflun ríkisins byggðist á því að
mismuna borgurunum á ólögmætan hátt, það
bryti gegn stjórnarskrárvernduðum réttindum
þeirra.
Af lífeyri er nú greiddur 38,34% tekjuskatt-
ur, þegar hann kemur til útborgunar, og á það
bæði við um inngreidd iðgöld og uppsafnaða
vexti. Ólafur sagði að þetta hefði tíðkast þrátt
fyrir að uppsafnaðir vextir næmu að jafnaði
a.m.k. 2/3 hlutum útborgaðs lífeyris, en sam-
kvæmt lögum (nr. 97/1996) skal greiða 10%
fjármagnstekjuskatt af vöxtum, arði, leigu og
söluhagnaði. Einu fjármagnstekjurnar, sem
ekki falla undir hinn sérstaka fjármagnstekj-
uskatt, eru því vextir af lífeyrisiðgjöldum.
Vilja afnema
mismunun
Félag eldri borgara vill að þessi mismunun
verði afnumin, enda lítur hún svo á að í henni
felist brot á jafnræðisreglu (65 gr.) og eignar-
réttarákvæði (72 gr.) stjórnarskrárinnar. Bygg-
ist þessi skoðun félagsins á lögfræðilegri álits-
gerð Jónasar Þórs Guðmundssonar
héraðsdómslögmanns og Sigurðar Líndals pró-
fessors og sagði Ólafur að Gunnar G. Schram
prófessor hefði einnig látið sama álit í ljós.
Félaginu er ljóst að ekki er greiddur tekju-
skattur af iðgjaldi til lífeyi'issjóða og því sé
vaxtaberandi fjárhæð í lífeyrissjóð hærri sem
því nemur. Þetta er, samkvæmt lögfræðiálitinu,
ekki talið breyta því að um ólögmæta mismun-
un sé að ræða, því þetta sé tæknilegt atriði og
reikna þurfi út hverjir vextirnir hefðu orðið, ef
greiddur hefði verið tekjuskattur af iðgjöldun-
um.
Félag eldri borgara bendir sérstaklega á að
ekki megi rugla þessu máli saman við umræðu
um að ekki megi tvískatta lífeyrisgreiðslur. Þá
sé heldur ekki verið að leggja til að lífeyrissjóð-
irnir greiði skatta, en þeir eru undaþegnir
skattskyldu, heldur sé eingöngu verið að ræða
um skattgreiðslur á lífeyrisgreiðslurnar sem
slíkar þegar þær komi til útborgunar.
i
I
Norræna skólasetrið :
á Hvalfjarðarströnd
47,5 millj-
óna króna
tilboð berst
FUNDUR veðhafa I eign þrotabús
Heima hf., Norræna skólasetrinu,
verður haldinn föstudaginn 17. des-
ember nk. samkvæmt auglýsingu í
Lögbirtingablaðinu.
Að sögn Bjai'na Lárussonar, hér-
aðsdómslögmanns og skiptastjóra
búsins verður á fundinum kynnt til-
boð í eignina að upphæð 47,5 milljón-
ir króna. Ekki er hægt að greina frá
því að svo stöddu hver gerir tilboðið,
að sögn Bjarna.
Leitað verður eftir samþykki rétt-
hafa fyrir því að eigninni verði ráð-
stafað samkvæmt tilboðinu á fundin-
um. Þar gefst rétthöfum jafnframt
kostm- á að tryggja sína hagsmuni
með því að ganga inn í tilboðið eða
gera hærra boð, þar sem tilboðsfjár-
hæðin nægir ekki til uppgreiðslu
skuldar á 1. veðrétti.
Heimar hf. var úrskurðað gjald-
þrota 31. ágúst sl. af Héraðsdómi
Vesturlands að kröfu Lánasjóðs
Vestur-Norðurlanda vegna 62,6
milljóna króna veðkröfu.
Tölvustýrð lyfjagjöf í samvinnu Hrafnistu og Lyfjavers ehf.
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra fylgist með Margréti Bessadóttur, starfsmanni Lyfjavers.
Skoðanakönnim
um virkjunarmál
Japönsk tækni
notuð við lyfjagjöf
20% eru
neikvæðari
20% aðspurðra í nýrri skoðanakönn-
un Gallups segja að umræðan um
virkjun og álver á Austurlandi á Al-
þingi og í fjölmiðlum að undanförnu
hafi gert þá neikvæðari gagnvart því
að ráðist verði í framkvæmdirnar,
en 14% sögðust vera orðnir jákvæð-
ari. Tveir þriðju aðspurðra sögðu að
umræðan hefði engu breytt.
Könnunin var gerð fyrir sam-
starfsnefnd um staðarval iðnaðar-
svæða í Reyðarfirði. I úrtaki voru
1200, en samtals svöruðu 803.
Færri eru nú óákveðnir í afstöðu
sinni til Fljótsdalsvirkjunar en í
skoðanakönnun sem Félagsvísinda-
stofnun gerði fyrir STAR í október
og nóvember. Þá sögðust 25% vera
andvígir virkjuninni, en nú 32%. I
fyrri könnuninni sögðust 36% vera
hlynntir virkjuninni, en nú 38%.
Varðandi álver í Reyðarfírði hefur
þróunin verið þveröfug. Nú voru
35% aðspurðra hlutlausir í afstöðu
sinni til álversins, en aðeins 25% í
síðustu könnun.
TILRAUN með tölvustýrða lyfja-
gjöf er nú gerð á Hrafnistu í
Hafnarfirði í samvinnu við lyfja-
fyrirtækið Lyfjaver ehf.
Notuð er japönsk tækni sem
hefur verið notuð þar í landi með
góðum árangri í um áratug.
Aðferð þessi þykir spara bæði
tíma og fjármuni og auka öryggi
við lyfjagjöf, að sögn þeirra sem
að tilrauninni standa. Læknar á
Hrafnistu senda lyfjafræðingum
Lyfjavers upplýsingar um hvaða
lyf hver heimilismaður á að taka,
þar fær tölva upplýsingarnar og
gefur lyfjaskömmtunarvél fyrir-
mæli. Vélin skammtar lyf í litla
innsiglaða poka þar sem fram
kemur hvort um morgun-, hádeg-
is-, eða kvöldskammt sé að ræða
og eru pokarnir svo sendir á
Hrafnistu.
Sparar
mikla vinnu
Sigurður Geirsson, forstöðu-
maður stjórnunarsviðs Ilrafn-
istuheimilanna, segir þetta fyrir-
komulag hafa mikla hagræðingu í
för með sér. Þetta spari hjúkrun-
arfræðingum mikla vinnu, en áð-
ur þurftu þeir að eyða dágóðum
tíma á dag í lyfjaskömmtun og
reiknast honum að þar hafi verið
samanlagt um tvö til tvö og hálft
stöðugildi að ræða. Tími þeirra
nýtist nú betur í umönnun sem sé
mjög gott og nauðsynlegt þar
sem skortur sé á hjúkrunarfræð-
ingum og þeir mjög dýrmætir
starfskraftar.
í gær var Ingibjörgu Pálma-
dóttur heilbrigðisráðherra af-
hentur tveggja vikna skammtur
af vítamínum, í höfuðstöðvum
Lyfjavers, sem lyfjaskammtarinn
hafði talið og sett í fjórtán litla
poka.
Við það tækifæri hrósaði Ingi-
björg þessu nýju fyrirkomulagi
og sagði þetta sérstaklega hent-
uga aðferð þar sem lyfjaskammt-
ar fólks breytast ekki svo ört, svo
sem á öldrunarheimilum.
Undirritaði bókun
við kvennasáttmála
Sameinuðu þjóðanna
ÞORSTEINN Ingólfsson, fasta-
fulltrúi Islands hjá Sameinuðu
þjóðunum, undirritaði sl. mánu-
dag, fyrir hönd íslenskra stjórn-
valda, bókun við kvennasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna.
Undirritunin fór fram við há-
tíðlega athöfn í aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New
York.
Samtals 22 ríki undirrituðu
bókunina sem tekur gildi er 10
ríki hafa fullgilt hana. Með
henni er opnuð kæruleið fyrir
konur sem verða fyrir kynferð-
ismisrétti en einstaklingar sem
telja sig hafa orðið fyrir kyn-
ferðislegu misrétti geta sam-
kvæmt bókuninni lagt fram
kvörtun á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna. Með fullgildingu bók-
unarinnar verður nefnd um af-
nám alls misréttis gagnvart
konum veitt heimild til að taka
við og fjalla um kvartanir frá
einstaklingum og hópum um
kynferðislegt misrétti. Nefndin
mun taka til umfjöllunar mál í
ríkjum sem hafa undirritað bók-
unina og þá eingöngu eftir að
allar lagalegar leiðir innan við-
komandi lands hafa reynst ár-
angurslausar í að koma í veg
fyrir kynferðislegt misrétti.
SEG sjónvarp 28
50 megariða með
textavarpi og
scart tengi
Jólaverð
36.990 kr.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
SEG sjónvarp
20” með
textavarpi
Jólaverð
19.990 kr.