Morgunblaðið - 15.12.1999, Blaðsíða 74
74 MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Frá Las Vegas til Neskaupstaðar
A Austfjörðum skemmti
ég mér tralla-la-la...
Árlega er efnt til veglegrar og vandaðrar tónlistar- og dansveislu í
Neskaupstað þar sem bæjarbúar og nágrannar stíga á svið og
, skemmta. Sunna Ósk Logadóttir brá sér austur og naut sýningar-
innar til fulls þrátt fyrir að vera aðeins óbreyttur Reykvíkingur.
Heiðrún Helga Snæbjörnsdóttir
söng lagið Down Town af mikilli
innlifun.
UNDANFARIN tíu ár hefur Blús-,
rokk- og djasskúbburinn á Nesi í
samstarfi Egilsbúð staðið fyrir
sannkallaðri tónlistarveislu í Hótel
Egilsbúð í Neskaupstað og hefur
hróður hennar farið víða og troðfullt
verið á allar sýningar. Ar hvert er
ákveðið þema valið sem síðan er
túlkað með tónlist og dansi af íbúum
frá Neskaupstað og nágrannabyggð-
um. I ár var sýningin helguð Las
Vegas og þeim skemmtikröftum sem
komið hafa fram í þeiri'i gleðiborg
■*v ljóssoglita.
Tom Jones í ham
Áður en tónlistarveislan er á borð
borin snæða sýningargestir ljúf-
fenga máltíð að hætti austfirskra
gæðakokka er metta þurftu yfir 250
munna kvöldið sem blaðamaður
mætti á svæðið. Þegar eftirréttur-
inn, sem iðulega er hápunktur mál-
tíðarinnar hjá blaðamanni, er farinn
að bráðna á tungu gesta hefst sýn-
ingin með gömlum Tom Jones slag-
ara sem Bjarni Halldór Kristjánsson
’ söng með miklum tilþrifum, tilheyr-
andi ljósasýningu og áköfum undir-
tektum sýningargesta. Á eftir hon-
um stigu mjög frambærilegir
söngvarar og dansarar á svið og
vöktu iðulega verðskuldaða athygli
gesta.
„Það eru milli þrjátíu og fjörtíu
manns sem taka þátt í þessari sýn-
ingu,“ segir Ágúst Armann Þorláks-
son, skólastjóri Tónlistarskólans í
Neskaupstað, og þátttakandi í sýn-
ingunni. „Ailir söngvararnir eru héð-
an frá Fjarðarbyggð utan tveggja
sem koma frá Seyðisfirði," heldur
hann áfram.
Súellen reið á vaðið
*V Fyrir tíu árum fæddist hugmynd-
in að blása til stórrar tónlistarveislu
og var það að frumkvæði Ágústs Ár-
manns, Þrastar Rafnssonar og
hljómsveitarinnar Súellen. „Strák-
arnir í Súellen voru undirstaðan í
fyrstu sýningunum," útskýrir Ágúst
Armann, en þær sýningar gengu svo
vel að ákveðið var að gera þetta að
árlegum viðburði sem nú er orðinn
fastur liður í félagslífi Neskaupstað-
ar og jafnvel allrar Fjarðabyggðar.
.jVið erum alltaf að læra,“ segir
Ágúst Armann brosandi. „Sýning-
amar eru sífellt betur sóttar með
hverju árinu og í ár slógum við öll
met, vorum með fjórar sýningar og
húsfylli í hvert sinn,“ segir hann
- stoltur. Las Vegas sýningin hefur þó
ekki endanlega kvatt þennan heim
því enn á eftir að halda jólasýningu í
Neskaupstað og síðan fer allur
mannskapurinn til höfuðborgarinnar
í janúar og slær sýningunni upp á
sjálfu Broadway.
Glæsileg sýning í aldarlok
Sýningin er einkar vel úr garði
gerð og þaulæfð og skiptir þá engu
máli hvort um tónlistarflutning,
söng, dans, lýsingu eða sviðsmynd er
•, að ræða. „Við höfðum það í og með í
, huga að gera glæsilega sýningu í ald-
; ‘ arlok,“ segir Ágúst Armann. „Við
höfðum verið að velta fyrir okkur
Las Vegas sýningu um hríð en héld-
um að hún yrði of róleg. En við tínd-
um saman flytjendur sem hafa kom-
ið þar fram allt til síðustu ára og
fengum út úr því lífiega sýningu,
með blöndu af rólegum og fjörugum
lögum."
' Undir þau orð er óhætt að taka og
Tina Turner Austurlands. Sigrún Huld Skúladóttir
syngur What’s Love Got To Do With It.?
±w-J
1 + fl
| gJjjjpiiJIMW—T Hpa: I i|r ^ 1 ,
Daðrað yfir dagblöðum í Las Vegas.
heimamenn jafnt sem aðkomumenn
á meðal áhorfenda sungu með af
fullri rausn og hlógu að hárfínum
bröndurum kynnisins, Jóns Bjöms
Hákonarsonar, sem sló á létta
strengi milli laga.
Díana, Tina og Gibb-bræður
Meðal þeirra laga sem flutt voru á
Las Vegas sýningunni í Neskaup-
stað voru You cant hurry love sem
Diana Ross söng á sín-
um tíma en ekki síðri
söngkona, Rósa Dögg
Þórsdóttir, flutti
lagið í Egils-
búð. Á eft-
ir henni
steig Helgi
Bjarkason
á svið og
flutti
gamla
Frank Sin-
atra slagarann
New York - New
York og tóku
gestir hraustlega
undir. Heiðrún
Helga
Snæbjörns- jm
dóttir söng
lagið Down Town, Guðmundur
Rafnkell Gíslason fór á kost-
um við flutning lagsins Just a
Gigolo og var nokkurs konar
hápunktur kvöldsins.
Seyðfirðingar létu ekki sitt
eftir liggja og sendu Aðalheiði
Borgþórsdóttur (Öllu Borg-
þórs) til að syngja. Sigrún
Huld Skúladóttir tók Tinu
Tumer-lagið „Whats Love
Got To Do With It“ en Sigrún
er söngkona hljómsveitarinn-
ar Stuðkroppanna sem spiluðu
fyrir dansi að sýningu lokinni.
Norðfirðingar era svo heppnir
að eiga á að skipa sínum eigin
Gibbbræðram sem bera
nöfnin Bjarni Halldór
Kristjánsson, Bjarni
Ágústsson og Helgi
Georgsson meðal
heimamanna. Er þeir
stigu á svið kom í ljós
að þeir eiga mikilli
kvenhylli að fagna ef marka
má viðbrögð kvenkyns gesta.
Elvis og Raggi Bjarna
Ekki er hægt að halda Las
Vegas sýningu án þess að minn-
ast Elvis Presley og fengu lög
hans auðvitað að njóta sín og
flutti hinn óborganlegi Smári
Geirsson forseti bæjarstjórnar
Bakraddasöngkonurnar Heiðrún
Helga Snæbjörnsdóttir og Elín Jóns-
dóttir.
eitt laga hans með miklum tilþrifum.
„Við ölum með okkur þann draum
að takast einhvern tímann að fá
Ragnar Bjamason hingað til okkar,“
segir Ágúst Armann alvarlegur í
bragði. „Hann er mikill maður í ís-
lensku tónlistarlífi og er ennþá al-
gjör hetja í okkar augum. Það væri
okkur sannur heiður að fá hann hing-
að.“
, s -;
Guðmundur Rafnkell Gíslason
vakti gífurlega lukku í hlut-
^verki Louis Prima með lagið
Just a Gigalo.
Morgunblaðið/Kiistín Ágústsdóttir
Það kemur í ljós að ári hvort
Ágúst Armann fær ósk sína upp-
fyllta en þangað til verður Las Vegas
sýningin að duga, hún verður sýnd í
Hótel Egilsbúð milli jóla og nýárs og
síðan 14. janúar á Broadway í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Hlynur Sturla Hrolllaugsson, Svala Valgeirsdóttir og
Sigurrós Sigurðardóttir skemmtu sér vel á Las
Vegas- sýningunni.
MYNDBOND
Martröð
stríðsins
Hjartarbaninn
(Deer Hunter)
I) r a m a
★★★★
Framleiðandi: Michael Cimino,
Michael Deeley, John Peverall.
Leikstjóri: Michael Cimino. Hand-
ritshöfundur: Michael Cimino.
Kvikmyndataka: Vilmos Zsigmond.
Tónlist: Stanley Myers. Aðal-
hlutverk: Robert De Niro, John
Cazale, John Savage, Christopher
Walken, Meryl Streep, George
Dzuudza.(175 mín.) Bandaríkin.
Myndform, 1999. Myndin er bönnuð
innan 16 ára.
SAGAN fjallar um nokkra vini
sem fara til Víetnam til að berjast og
hafa hörmungar stríðsins varanleg
áhrif á sálir þeirra
sem komast lífs af.
Myndform á
þakkir skildar fyrir
að endurátgefa
marga af gimstein-
um kvikmyndasög-
unnar og er Hjart-
arbaninn kóróna
útgáfu þeirra.
Þetta meistaraverk
Michael Ciminos hefur ekki misst
snefil af áhrifamætti sínum gegnum
tíðina og kvikmyndataka Zsigmond
er ógleymanleg. Leikurinn hjá öllum
er óaðfinnanlegur og væri gaman að
sjá Savage og De Niro fá aftur hlut-
verk eins og þessi til að fást við. Þeir
sem ekki hafa séð þessa ættu ekki að
hika við að fara út í leigu og kynnast
þessu stórvirki - hinir ættu að end-
urnýja kynnin.
Ottó Geir Borg
Dagur í lífi
leigubíl-
stjóra
Vítisbíllinn
(Hellcab)
II r a m a
★★★
Framleiðandi: John Cusack, Suzan-
ne De Walt, D.V. DeVincentis, Paul
Dillon, Jamie Gordon, Steve Pink.
Leikstjóri: Mary Cybuski, John Tin-
tori. Handritshöfundur: Will Kern.
Kvikmyndataka: Steve Pink. Tón-
list: Page Hamilton. Aðalhlutverk:
Paul Dillon, Gillian Anderson, John
Cusack, Moira Harris, Michael
Ironside, Laurie Metcalf. (96 mín.)
Bandaríkin. Myndform, 1999.
Myndin er bönnuð innan 16 ára.
MYND þessi er byggð á leikriti
Wills Kerrs „Chicago Cab“ og hét
kvikmyndin það í
Bandaríkjunum, en
titillinn virðist aft-
ur hafa breyst þeg-
ar hún kom til
Evrópu. Það er
ekkert víti í þessari
mynd heldur fjallar
hún bara um ein-
faldan leigubíl-
stjóra og þá undar-
legu kúnna sem hann þarf að fást við.
Þetta er mjög skemmtileg og vel
leikin mynd og er Paul Dillon mjög
sannfærandi í aðalhlutverkinu.
Hann túlkar mann sem við vitúm
mjög lítið um annað en að hann vill
sem minnst blanda sér í hlutina en í
hjarta hans blundar rómantískur
maður fullur samúðar og góðs vilja.
Mótleikarar Dillons era ekki af verri
endanum þótt margar af stóra
stjörnunum (Anderson, Cusack) hafi
ekki mikið að gera en flestir ná á
stuttum tíma að skapa heilsteyptar
persónur.
Ottó Geir Borg